Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
Heimsbikarmót Flugleiða
Jóhann tapaði fyrir Salov
eftir þunga baráttuskák
FYRSTA umferð Heimsbikarmóts Flugleiða var tefld i gærkvöldi á
Hótel Loftleiðum. Fjölmargir áhorfendur komu til að fylgjast með
skemmtilegri baráttu 18 stórmeistara í fremstu röð í skákheiminum
í dag. Jóhann Hjartarson heldur uppi merki íslands á mótinu og
tefldi við Sovétmanninn Salov. Þeir tefldu þunga baráttuskák, þar
sem Jóhann varði svörtu stöðuna af seiglu. Jóhann jafnaði taflið,
en missti tökin í tímahraki og tapaði.
í byrjun beindust allra augu á
skákunum Ljubojevic — Timman
og Karpov Speelman. Ljubojevic lék
kóngi sínum til e2 í byrjun og tefldi
af hörku til sóknar. Timman fann
ekki vörn gegn skemmtilegri tafl-
mennsku Júgóslavans. Hollending-
urinn kom mönnum sínum ekki í
spilið og stóð loks upp með gjörtap-
að tafl, þótt hann hefði tveim peðum
meira. Glæsilegur sigar hjá
Ljubojevic, sem gefur honum byr
undir báða vængi, sérstaklega þar
sem honum hefur oft gengið erfíð-
lega með Timman.
í kvöld verður önnur umferð tefld
kl. 17-23 á Hótel Loftleiðum og þá
tefla Jóhann — Seirawan, Nikolic —
Andersson, Timman — Ivanchuk,
Ehlvest — Ljubojevic, Chandler —
Gulko, Speelman — Khalifman,
Portisch — Karpov, Salov —
Beljavskíj.
Hvítt: L. Ljubojevic. Svart: J.
Timman. Drottningarbragð.
1. d4 - Rf6, 2. Rf3 - e6, 3. c4
— d5,4. Rc3 — dxc4 (Vínarafl)rigð-
ið sem Timman beitir hér, hefur
notið mikilla vinsælda undanfarið.)
5. e4 — Bb4, 6. Bg5 — c5, 7.
Bxc4 — cxd4, 8. Rxd4 — Bxc3+,
9. bxc3 - Da5, 10. Bb5 - Rbd7,
11. Bxf6 - Dxc3+, 12. Ke2!?
(Af svipbrigðum Ljubojevic að
dæma hafði hann vandlega und-
irbúið framhaldið. Venjulega er
hér leikið 12. Kfl.)
12. - gxf6, 13. Hcl - Db4
(13. — Da5?? fengi snöggan endi.
Hvítur léki þá 14. Hxc8!+ — Hxc8,
15. Bxd7+ og nú má svartur ekki
leika 15. — Kxd7 vegna 16. Rb3+
og drottningin fellur.)
14. Hc4 - De7, 15. Dcl - 0-0,
16. Hc7 - a6?
(Gróf mistök hjá Timman sem
gerir stöðu hans mjög erfiða. 16. —
Dd6, 17. Hdl — Re5 var betri
möguleiki því eftir 18. Rf5 — Db4
hótar svartur að drepa hvíta biskup-
inn með skák. Eftir 14. Rf3 —
Db4, 15. Rxe5 - Dxb5+, 16. Rc4
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 24. SEPTEMBER
YFIRLIT: Um 400 km suður af landinu er 965 mb vaxandi lægð,
sem hreyfist austnorðaustur á milli (slands og Færeyja. Yfir norð-
austur-Grænlandi er 1.025 mb hæð.
SPÁ: Norðaustan hvassviðri um land allt. Víða rigning eða skúrir
framan af degi, en sumstaðar styttir upp og sumstaðar léttir til.
Áfram verður rigning eða slydda um landið norðanvert, einkum á
Norðausturlandi. Kólnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hitf veður
Akureyri 6 skýjað
Reykjavik 8 iéttskýjað
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Nokkuð hvöss norð-
anátt með rígningu eða slyddu um landið norðanvert, en sunnan-
lands verður þurrt og víðast léttskýjað. Aðfaranótt fimmtudags
lægir vestanlands og þar má búast við vægu næturfrosti, en áfram
verður nokkuð hvöss noröan- eða norðvestanátt um landið austan-
vert. Hitinn verður 2-7 stig að deginum.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■| 0 HKastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V
El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
[Tx Þrumuveður
Bergen 9 skúr
Helsinki 12 þokumóða
Kaupmannahöfn 15 hálfskýjaó
Narssarssuaq 3 skýjaó
Nuuk 3 skúr
Osló 12 skúrás. klst.
Stokkhólmur 14 hálfskýjað
Þórshöfn 10 hálfskýjað
Algarve 27 þokumóóa
Amsterdam 17 skýjaö
Barcelona 26 mistur
Berlín 16 hálfskýjað
Chicago 6 heiðskirt
Feneyjar 23 þokumóða
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow 12 rignlngogsúld
Hamborg 14 skýjað
London 17 súld
Los Angeles 19 skýjað
Lúxemborg 14 skýjað
Madríd 29 heiðskírt
Malaga 28 mistur
Mallorca 29 skýjað
Montreal 13 alskýjað
NewYork 17 alskýjað
Orlando 24 hálfskýjað
Paris 20 léttskýjað
Madeira 24 skýjað
Róm 25 skýjað
Vln 17 rigning á s. klst.
Washington 17 skúrás. klst.
Winnipeg 9 léttskýjað
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Björn Theódórsson framkvæmdastjóri Flugleiða lék fyrsta leikinn
fyrir Anatolíj Karpov gegn Jonathan Speelman í fyrstu umferð
Heimsbikarmóts Flugleiða í gær. Þorsteinn Þorsteinsson yfirdómari
stendur hjá.
— e5 þarf svartur varla nokkuð að
óttast.)
17. Ba4 - Dd6, 18. Hdl -
Re5, 19. Rf5! - Kg7, 20. Hd4! -
Db6, 21. Re7+ Kg7, 22. Dc3!
(Svartur er í úlfakreppu. Biskup-
inn á c8 getur sig hvergi hrært og
kóngsstaðan er ótraust.
22. - Rg6?
(22. — Rc6 hefði Ljubojevic
líklega svarað með 23. Hxc6! —
bxc6, 24. e5! og við hótununum 25.
Hg4 og Dg3 er engin vöm.
23. Rxg6 — hxg6, 24. e5! —
fxe5, 25. Hd3 - Kg8, 26. Dxe5 -
Db4
(26. — f6 er svarað með 27. Dg3
- Db2, 28. Kfl! - Dbl, 29. Bdl
og svartur er vamarlaus.)
27. Hh3 - f6, 28. De3 - Db2+,
29. Kf3 - g5, 30. Hhh7! - Hd8,
31. Hhg7+ - Kf8, 32. Dc5+
og Timman gafst upp. Ljubojevic
notaði aðeins rúma klukkustund á
skákina. Hann lék á als oddi eftir
skákina og hafði augsýnilega mikið
gaman af að leika Timman jafn
grátt og raun bar vitni.
Siglingamálastofnun:
Kannað hvort skip
hafi losað ammoníak
Siglingamálastofnun er að kanna hvað hæft er í fréttum um að
spánskt flutningaskip hafi losað ammoníak í sjóinn í Faxaflóa eða
grunnt undan Reykjanesi um síðustu áramót.
Stöð 2 sýndi um helgina mynd-
band sem skipvefji á umræddu skipi
hafði tekið. Mátti þar sjá efnum
dælt úr skipi. Skipveijinn fullyrðir
að myndbandið sýni dælingu amm-
oníaks í sjóinn skömmu eftir að
skipið lét úr höfn í Gufunesi. Full-
yrti skipveijinn að 90 tonnum hafí
verið dælt í sjóinn. Myndbandið
hafði Stöð 2 fengið í hendur frá
samtökum Grænfriðunga.
Páll Hjartarsson siglingamála-
stjóri segir að ekki sé vitað hvar
ammoníakið fór í sjóinn né um
hversu mikið magn var að ræða.
„Við munum kanna hvað skipið los-
aði mikið ammoníak í Gufunesi og
hvað talið er að hafi verið mikið
um borð þegar skipið kom til lands-
ins,“ sagði hann. „Hafi eitthvað
verið umfram þegar skipið fór frá
Gufunesi og þá hvort því hafi verið
skilað í land. Enginn veit enn þá
hvort eða hvar þessi losun fór fram.
Þetta gat alveg eins verið sjór sem
verið var að losa.“
Páll sagði að ammoníak væri
fljótt að leysast upp og hæpið að
það ylli verulegu tjóni á lífríki
sjávarins.
Mengunarflekkirnir við Sauðanes:
Ekki talið að um grút-
armengun sé að ræða
EKKl ER talið að mengunarflekkimir, sem sáust við fjörur frá Sauða-
nesi að Haganesvík á laugardag séu af sama tagi og ollu miklum nátt-
úruspjöllum á Ströndum í sumar. Eyjólfur Magnússon yfirmaður meng-
unarvarna hjá Siglingamálastofnun tók sýni af mengunarflekkjunum
á sunnudag og segir þá annars eðlis en grútarmcngunin á Ströndum.
„Ég skoðaði tvo flekki við Siglu-
fjörð og þetta virðist vera frekar
froðukennt, enginn massi f þessu
þótt flekkurinn héngi saman. Þetta
var svipað eins og að hræra í upp-
þvottavatni," sagði Eyjólfur Magnús-
son við Morgunblaðið. En hann sagði
að svipaður litur væri á þessum
flekkjum og var á grútarflekkjunum
við Strandir. Eyjólfur fór með sýni
úr flekknum á rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins til rannsóknar og er
búist við niðurstöðum í dag.
Vitavörðurinn á Sauðanesi sá á
Iaugardagsmorgun mengunarflekki
á sjónum við Sauðanesvita og áfram
meðfram ströndinni vestur eftir.
Hann taldi þá, að um svipaða grútar-
mengun væri að ræða og á Strönd-
um. Flekkirnir urðu aldrei landfastir
og rak frá landi um nóttina, þannig
að þeir ollu engum skaða.