Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 29
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Albanía - Júgó- slavía að hefúr fjarað hratt undan sósíalismanum í A-Evr- ópu. Ör atburðarás hefur kom- ið flestum á óvart, ekki sízt í Sovétríkjunum. Þar er hins vegar ekki á vísan að róa um lýðræðisþróun. Ýmis ljón eru á leið þeirra til lýðræðis og mark- aðsbúskapar. Tilraun harðlínu- manna til vajdaráns, þjóðern- isátök, sem víða hafa brotizt út, og efnahagsleg ringulreið, með tilheyrandi óvissu um af- komu fólks, tala sínu máli þar um. Albanía var það ríki A-Evr- ópu, sem lengst hélt fullum trúnaði við „ómengaða“ þjóðfé- lagsgerð og sósíalismann. En svo bregðast krosstré sem önn- ur tré. Albanía hefur nú hrak- ist inn í hagkerfis- og hug- sónagjaldþrot sósíalismans í þessum heimshluta. Sören Rassmussen segir í fréttaskýr- ingu hér í blaðinu síðastliðinn sunnudag: „Þjóðbyltingar í gömlu sós- íalistaríkjunum í Mið- og Austur-Evrópu komu mjög illa við efnahag Albaníu þegar á síðasta ári. Fram að þeim tíma hafði gamaldags vöruskipta- verzlun verið rekin við ýmis ríki á þeim slóðum, svo sem Tékkóslóvakíu, Júgóslavíu og Rúmeníu. Þaðan fékkst lífs- nauðsynleg matvara, auk hrá- efna og véla. Þegar eðlileg við- skiptalögmál fijálsrar verzlun- ar fóru að gilda í þessum lönd- um, tók fyrir þessi vöruskipti ... Þjóðarbú Albana stóð áður óstyrkum fótum, og nú hneig það enn meira saman ... Hið miðstýrða herbúða-hagkerfi hrundi eins og spilaborg ...“ Fólksflótti frá ríkjum sósíal- ismans er ekki nýr af nálinni, hvorki í A-Evrópu né Asíu. Raunar á flóttamannavandinn í veröldinni í ríkum mæli rætur í þessari þjóðfélagsgerð. Straumur flóttamanna frá Alb- aníu til Italíu, sem fréttir síðustu vikna hafa tíundað, staðfestir aðeins, að „sagan endurtekur sig“ að þessu leyti. Sören Rassmussen segir í til- vitnaðri fréttaskýringu: „Ungir Albanir eru ráðvilltir og örvæntingarfullir. Þeim líður illa í landi sínu, búast við að ástandið versni enn og vilja koma sér burtu áður ... Allir þessir ungu og vonsviknu flóttamenn eru alveg vissir um eitt; Albanía hefur ekkert að bjóða þeim, ekkert. Atvinnu- leysið nær til fleiri og fleiri með miklum hraða. Verzlanir,-sem hafa verið hálftómar af vörum hingað til, eru nú að verða galtómar. Fulltrúar Flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna í landinu segja, að „of- boðsleg hræðsla um framtíð- ina“ hafí gripið um sig meðal allra landsmanna." Júgóslavía var, öfugt við Albaníu, í hópi þeirra Mið- og Austur-Evrópuríkja, sem hvað fyrst losaði dulítið um alræðis- og miðstýringarhöft. Júgó- slavía steig hins vegar skrefið til fijáls markaðsbúskapar aldrei nema til hálfs. Þessvegna náði hún skemmra í almennum kjarabata en efni stóðu að öðru leyti til. Vandi Júgóslavíu er og að stærstum hluta annarrar gerðar en Albaníu. I Júgóslavíu búa um margt ólíkar og sundurlyndar þjóðir, sem haldið hefur verið saman í skjóli valdbeitingar. Þær krefjast nú sjálfstæðis, sumar hveijar, í skjóli breyttra kring- umstæðna og þeirrar grund- vallarreglu alþjóðaréttar, að virða beri rétt þjóða til sjálfs- stjórnar. Stríðsástand hefur ríkt í Júgóslavíu. Meginátökin hafa verið milli Króata og Serba, sem beitt hafa sam- bandsher Júgóslavíu í átökun- um. Vopnahlé, sem Evrópu- þjóðir hafa knúið fram, hafa reynzt skammvinn. Ekki hefur náðst samstaða um það að Vestur-Evrópusam- bandið sendi her inn í Júgó- slavíu til að binda enda á blóð- ug átök þar. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráð- herra, hefur sterklega gefið til kynna fyrir hönd íslenzku ríkis- stjómarinnar, að hún sé „líkleg til að styðja samræmdar að- gerðir Evrópuþjóða um að við- urkenna sjálfstæði þjóða Júgó- slavíu, að því tilskyldu, að ekki yrði látið sitja við orðin tóm, heldur yrði því þá fylgt eftir með aðgerðum, þá á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Ör- yggisráðsins, með þeim hætti að friðargæzlusveitir SÞ komi nægilega öflugar til að stöðva blóðbaðið“. Atburðarásin í Albaníu og Júgóslavíu er hluti af fjörbrot- um sósíalismans í Austur- og Mið-Evrópu. Vonandi fær hún farsælan endi fyrir viðkomandi þjóðir og álfuna í heild. En trú- lega verður því seint haldið fram hér á landi að allir vildu þá Lilju kveðið hafa, sem varp- ar fram spurningunni „Sovét- ísland, óskalandið, hvenær kemur þú?“-. Sækjandi krefst a.m.k. 6 ára fang- elsisvistar yfir Pétri og Armanni Segir Avöxtunarmálið stærsta fjársvika- og fjárdráttarmál íslenskrar afbrotasögu í RÆÐU sinni í Ávöxtunarmálinu í sakadómi Reykjavíkur í gær krafð- ist Atli Gíslason, hrl skipaður sækjandi, þess að Ármann Reynisson og Pétur Björnsson, eigendur Avöxtunar, yrðu dæmdir í þyngstu refsingar sem lög leyfa fyrir brot þau sem þeir eru ákærðir fyrir og ekki til skemmri fangelsisvistar en 6 ár. Sækjandinn kvaðst telja efni til að dómurinn neytti lagaheimildar til að fara út fyrir refsiramma auðgunar- brota sem kveður á um 6 ára hámarksfangelsi með því að bæta allt að helmingi þeirrar hámarksrefsingar við þá refsingu sem Ármanni og Pétri verði gert að sæta, þannig að refsingin gæti orðið allt að 9 ára fangelsi. Atli Gíslason sagði að Ávöxtunar- maiið væri stærsta fjársvika- og fjár- dráttarmál sem komið hefði fyrir íslenska domstóla, ekki aðeins varð- andi þá fjárhæð, 104 milljónir króna, sem þeir Pétur og Ármann væru sakaðir um að hafa dregið sér, held- ur vegna þess hve umfangsmiklar blekkingar þeir hefðu stundað gagn- vart almenningi í kynningu á starf- semi sinni og þess að stór hópur manna hefði glatað sparifé sínu vegna þess. Hann gerði einnig kröfu um að Reynir Ragnarsson og Hrafn Bachmann yrðu dæmdir til refsingar og að Reynri yrði sviptur réttindum löggilts endurskoðanda og að Pétur Bjömsson yrði sviptur leyfi til verð- bréfamiðlunar. Forhertur ásetningur Sækjandinn kvaðst telja að for- hertur ásetningur hinna ákærðu ætti að koma til þyngingar refsingar, sem og það að þeir hefðu sammælst um brot. Til málsbóta væri að þeir hefðu ekki áður sætt refsingum og hvað Pétur Bjömsson varðaði bæri að taka tillit til þess að hann hefði greint hreinskilnislega frá. Það ætti hvorki við um Reyni Ragnarsson né Ármann Reynisson en hann hefði reynt að varpa allri ábyrgð á sínum verkum á meðákærða eða lögmenn og aðra sérfræðinga eða gefið ósennilegar og óskynsamlegar skýringar. Upp- lýst væri að Ármann hefði vitað allt um málið og óábyrg afstaða hans breytti því einu að hún gæti orðið honum til refsiþyngingar. Atli Gíslason rakti ítarlega að Pétur Bjömsson og Ármann Reynis- son hefðu gerst brotlegir við skýr ákæði laga um banka og sparisjóði með því að afla fjár með því að taka við innlánsfé til greysmlu og ávöxt- unar. I lögum um sparisjóði og við- skiptabanka væri öllum öðrum aðil- um bannað að stunda þá starfsemi án lagaheimildar. Sækjandi kvaðst telja engan vafa á ólögmæti þess að taka við fé og gera sérstaka ávöxtun- arsamninga um það, enda vitnuðu samþykktir Ávöxtunar sf og fram- burður eigenda þess, Armanns og Péturs, um það. Lægi vafi á ásetn- ingi til að bijóta lög á áranum 1983- 1985 væri enginn vafi eftir laga- breytingu um áramót 1986 og eftir bréf frá lögmanni Ávöxtunar í sept- ember 1986 þar sem lofað væri að hætta gerð ávöxtunarsmaninga væri ekki unnt að tala um annað en for- hertan ásetning jafnvel þótt dregið hefði eitthvað úr gerð slíkra samn- inga en þegar rekstur Ávöxtunar stöðvaðist námu innistæður á slíkum samningum nær 90 milljónum króna. Ákvæði sem sett hefðu verið í iög vegna hagsmuna neytenda og skyld- uðu verðbréfamiðlara til að halda fjármunum hvers reikningsenganda aðgreindum þannig að ekki væri unnt að ráðstafa fjármunum án umboðs eiganda hefðu verið virt að vettugi. Þessi ákvæði væru til þess að tryggja mikilvæga hagsmuni eins og sæist best af því hve viðamiklar afleiðingar af brotastarfsemi Ávöxt- unar hefðu verið. „Áhyggjulaus ávöxtun á óöruggum tímum“ Atli Gíslason sagði að eitt þýðing- armesta atriði málsins væri sá kafli ákærannar þar sem Pétri og Ár- manni er gefið að sök að hafa stund- að blekkingar gagnvart ótilteknum fjölda manna gegnum auglýsingar. Hér væri lagt próf fyrir dómskerfið sem margoft hefði staðið frammi fyrir því að taka afstöðu til blekkinga og fjársvika sem bitnað hefðu á ein- stökum aðilum -en ekki áður-svo al- mennum og víðtækum blekkingum í gegnum fjölmiðla. Þetta væri þung- amiðja málsins, í þessum auglýsing- um hefði starfsemi Ávöxtunar birst almenningi en á milli þess sem aug- lýst var og þess veruleika sem bók- hald fyrirtækisins hefði leitt í ljós hefði verið svo mikil órafjarlægð að það gæti ekki verið refsilaust. Auglýst hefði verið óhyggjulaus og öragg ijárfesting til lengri og skemmri tíma með hæstu ávöxtun sem þekktist. „Áhyggjulaus ávöxtun 43% og 46% af nafnvirði greiddust til eigenda bréfa í Verðbréfasjóði og Rekstrarsjóði Ávöxtunar. í köflum ákærannar sem fjalla um ársreikninga Ávöxtunar sf og Verð- bréfasjóðs Ávöxtunar hf fyrir árið 1987 er Ármanni, Pétri og Reyni Ragnarssyni gefið að sök að hafa ofmetið tekjur og eignir Ávöxtunar sf þannig að reikningurinn sýndi eignir upp á um 139 milljónir króna þegar þær eru í raun 10-35 milljóna króna virði og ofmetið eigur Verð- bréfasjoðsins um 100 milljónir króna. Meðal annars hafi 26 milljóna króna vextir verið tekjufærðir á kröfur, sem lítt eða ekki voru tryggðar og marg- ar í vanskilum og þar af hafi 12 milljónir beint verið raktar til þess sem virðist vera klaufaleg villa en sú villa hafí endurtekið sig þijú ár í röð í reikningsskilunum. Þá hafi eignarhluti í Kjötmiðstöðinni verið á óöruggum tímum,“ hefði verið texti einnar auglýsingarinnar. Sagt hefði verið að ávöxtun umfram verðbólgu væri 14%, án fyrirvara. Því hefði verið haldið fram að bréf verðbréfa- sjóðsins bæru gengið 1,9901 og álíka tölur sem auglýstar hefðu verið reglulega. Talað hefði verið í auglýs- ingu um reglulegt eftirlit með sjóðn- um en hámarki hefðu auglýsingarnar náð 1. september 1988 þegar aug- lýst var að öryggi væri í fyrirrúmi. Þessar auglýsingar hefðu verið beinlínis rangar en þetta hefðu við- skiptamenn mátt ætla að væru stað- reyndir. Sækjandinn rakti skýrslur þess fólks sem teldi sig hafa verið blekkt í viðskiptum við Ávöxtun bæði með auglýsingum fyrirtækisins og einnig í viðtölum, oftast við Ár- mann Reynisson, sem fullvissað hefðu fólk um að allt væri í himna- lagi. Meðal þessara kærenda væru ekkjur og ellilífeyrisþegar. Þessu fólki hefði Ármann Reynisson lofað að allt væri í lagi, sögur um fyrirtæk- ið væru ekki sannar, allar innistæður væru bankatryggðar. Hinn bitri raunveruleiki væri að ekki hefði ver- ið farið að samþykktum félagsins við útreikninga og upplýst væri að Ávöxtunarmenn hefðu gefið sér það að þeir byðu 14% raunávöxtun og síðan hefði dæmið veijð reiknað út frá því á hveiju sem gekk. Til grandavilar hefðu legið huglægar forsendur en ekki hlutlægar byggðar á grundvelli bókhalds. Engin við- hlítandi gögn hefðu legið að baki. Stofnun sem starfað hefði eins og banki hefði ekkert innra eftirlit haft með fjármunum sem aðrir áttu og höfðu treyst fyrirtækinu fyrir, þvert á móti hefði bókhaldið verið í rúst og gjörsamlega ómarktækt eins og sæist af því að skiptum í þrotabúi Ávöxtunar sf lyki með því að 2% greiddust upp í almennat' kr-öfur og endurmetinn og uppfærður um millj- ónir króna án nokkurs tilefnis eða tillits til ársreiknings þess fyrirætkis og bókfært verð fasteigna í eigu Ávöxtunar verðbætt miðað við bygg- ingavísitölu. Ekki hafi verið sundurl- iðaður listi jrfir skuldunauta í því skyni að leyna því hve stóram hluta flárins Pétur og Ármann höfðu veitt til eigin illra stæðra fyrirtækja. Atli Gíslason sagði að í viðurkenn- ingu Ármanns og Péturs um að þeir hefðu aldrei lánað óskyldum aðilum fé á opinn viðskiptareikning án full- nægjandi trygginga jafngilti játn- ingu á því hve óeðlilega hefði verið að verki staðið. Löggiltur endurskoðandi með þessa afstöðu á að snúa sér að öðru Með þessu hafi afkoma Ávöxtunar sf verið sýnd sjö sinnum betri en efni hafi staðið til. Þegar ársreikn- ingur hefði sagt tap félagsins 4,7 milljónir og eigið fé neikvætt um 4 miljónir hefði tapið í raun verið 30,7 milljónir og eigið fé neikvætt um 30,6 milljónir. Ársreikningurinn hafi verið marklaus og verði þáttur Reyn- is Ragnarssonar talinn refsilaus og löggiltir endurskoðendur gerðir stikkfrí þá sé það hættulegt og rýri traust á löggiltum endurskoðendum. Atli sagði að skýrsla Reynis fyrir skiptarétti væri grundvallargagn í málinu. Hann hefði meðal annars sagt að auðvitað hefðu viðskipti Ávöxtunar við Hjört Nielsen hf, sem Ármann og Pétur áttu að öllu leyti og Reynir annaðist reikningsskil fyr- ir, ekki verið í lagi en hann hefði ekki gefið álit á ársreikningi fyrir- tækisins enda hefði ekki viðgengist hjá löggiltum endurskoðendum að gefa neikvætt álit á ársreikningum og að hann þekkti þess engin dæmi í praxís. „liiggiltur endurskoðandi sem hefur þessa afstöðu á að snúa sér að öðru,“ sagði Atli Gíslason. Með því að Reynir hefði talið sér útilokað að setja Pétri og Ármanni stólinn fyrir dyrnar hefði öryggis- ventill brugðist sem almeningur, bankaeftirlit og skattstofa hefðu tre- yst á. Reynir hefði borið að hjá Ávöxtun hefðu nánast öll önnur störf verið látin ganga fyrir bókhaldi. Reynir hefði gefið áritun á ársreikn- inginn sem gefið hefði tilefni til að ætla að hann gæfi glögga mynd af rekstrinum þegar hann hefði í raun verið markleysa. Áritun með áliti á stöðu fyrirtækisins þýði að endur- skoðun hafi farið fram á þeim liðum sem ekki sé gerð athugasemd við. Atli Gíslason sagði að að brot þau sem fyrrum löggiltur endurskoðandi Hafskips var sakfelldur fyrir í Haf- skipsmálinu væru hreinir smámunir í samanburði við það sem Reynir hefði gerst sekur um í Ávöxtunar- málinu. Sækjandi sagði brot endur- skoðandans enn ótvíræðari varðandi reikningsskil Verðbréfasjóðs Ávöxt- unar hf þar sem hann hefði engan fyrirvara gert um tryggingar á bak við kröfur, slaka stöðu fyrirtækja í viðskiptum við sjóðinn, ástand bók- haldsmála, brot Ármanns og Péturs við stjómarsamþykkt um að lána ekki meira en 5% til eins aðila þegar um 30% sjóðsins hefðu verið bundin í fyrirtækjum þeirra. Skuldabréfa- eign hefði ekki verið sundurliðuð en allir í viðskiptalífinu hefðu kippst við hefðu þeir vitað að glötuð fyrirtæki eins og Kjötmiðstöðin, Hjörtur Niels- en og fleiri væra þar ofarlega á blaði. 30% sjóðsins í eigin fyrirtækjum í 4. kafla ákærunnar er Ármanni og Pétri gefið að sök að hafa ráðstaf- að 86,9 milljónum króna_ úr verð- bréfasjóði á rekstrarsjóði Ávöxtunar til ýmissa eigin fyritækja án trygg- inga. Þetta hefði verið ansdstætt markmiðum sjóðanna og öllum sam- þykktum stjórna þeirra. Samþykktir félagsins hefðu gert ráð fyrir að lán- að væri með sem minnstri áhættu, fjárfestingu yrði dreift í öruggar auðseljanlegar eignir. Þeir Pétur og Ármann hefðu í heimildarleysi notað fé sjóðanna til að IJármagna eigin rekstur. Farið hefði verið á bak við formann sjóðsstjórnarinnar og í mörgum tilfellum þvert á tilmæli hans. 30% af fé sjóðsins hefði verið bundið fyrirtækjum Ármanns og Péturs og það léti nærri að það væri einmitt sú upphæð sem sjóðimir hefðu tapað. Ekki séu til stærri mál þessarar tegundar í íslenskri afbrota- sögu. Auk þess sem rakið hefur verið að framan krafðist Atli Gíslason refs- ingar fyrir 5. kafla ákærunnar þar sem Pétri Björnssyni er einum gefið að sök að hafa dregið 17,1 milljón króna ýmist til eigin þarfa eða fyrir- tækja í eigin eigu, 6. kafla þar sem Ármann og Pétur eru ákærðir fyrir fjársvik eða skilasvik með því að taka undir sig 900 þúsund króna söluandvirði lausaíjár Hughönunar hf, ijórum dögum fyrir gjaldþrot Ávöxtunar og tæpum 2 mánuðum fyrir gjaldþrot þess fyrirtækis. Hann taldi sannað í 8. kafla ákærunnar væru Pétur, Ármann og Hrafn Bac- hmann sannir að því að hafa svikið kaupendur Veitingamannsins, deild- ar í Kjötmiðstöðinni, með því að leyna að hiuti lausaijár sem fylgdi í kaup- unum væri ekki eign fyrritækisins heldur bundið kaupleigusamningum. í 7. kafla hefðu Pétur og Ármann tilkynnt hlutafélagaskrá um 11,1 milljóna króna innborgun hlutaijár í Brauðgerð Suðurnesja þegar ekkert hafði verið greitt. Þá hefði Ármann gerst sekur um skilasvik með því að fela 37 málverk sem selst hefðu fyr- ir 1,2 milljónir kóna fyrir skiptaráð- anda og reyna að skjóta þeim undan skiptum í búi sín. I dag og á morgun munu veijend- ur sakborninga flytja ræður sínar í sakadómi en að því loknu verður , málið tekið í dóm. Reuter Jón Baldvin Hannibalsson flytur ræðu sína á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Utanríkisráðherra á allsheijarþingi SÞ: Nauðsynlegt gæti reynst að viðurkenna sjálfstæði bæði Slóveníu og Króatíu JON Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, sagði í ræðu sem hann flutti á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að ekki væri hægt að halda Júgóslavíu saman gegn vilja þeirra þjóða sem byggðu landið og menn kynnu að þurfa að horfast í augu við þá staðreynd að þeir yrðu að viðurkenna sjálfstæði Króatíu og Slóveníu. I ræðu sinni sagði utanríkisráðherra einnig að hann teldi þörf á nýrri Marshall-áætlun fyrir Mið- og Austur-Evrópu og að nauðsynlegt væri að koma á nýju öryggiskerfi sem næði til heimsbyggðarinnar allrar. Jón Baldvin sagði ástandið í Júgóslavíu vera víti til að varast. Það minnti óneitanlega á að þjóð- ernisdeilur er ekki lengur hægt að iíta á sem málefni er varða einungis þau ríki sem í hlut eiga. Afleiðingar slíkra deilna gætu verið víðtækari og verið ógnun við frið og öryggi í heiminum. Það væri greinilegt að í Júgó- slavíu hefðu menn ekki skilið grundvallaratriði umskiptanna í Evrópu. Stjórnskipan sem byggði á kúgun væri ekki hægt að við- halda gegn vilja fólksins. „Stað- reyndin er sú að vilji þjóðir Júgó- slavíu ekki halda landinu saman þá verður það ekki gert. Alþjóð- legt samfélag getur þurft að horf- ast í augu við þessa staðreynd og verða við óskum Króatíu og Sló- veníu um viðurkenningu,“ sagði utanríkisráðherra. Núverandi aðstæður í Evröpu sagði hann um margt minna á árin eftir síðari heimsstyijöldina. Þá hefði þörfin verið brýnust á að reisa Vestur-Evrópu úr rústum stríðsins. Nú væri þörfin brýnust að reisa Austur-Evrópu við úr rústum óstjórnar og miðstýringar. Endurreisnin á eftirstríðsárunum hefði verið árangursrík vegna ein- stæðs framtaks í sögu alþjóða- samskipta - Marshall-áætlunar- innar - sem hefði borið vott um óvenjulega stjórnvisku. Þetta ein- staka framtak hefði veitt ör- magna efnahagslífi Evrópuríkja bolmagn til að endurheimta fyrri styrk. I áætluninni hefði jafnframt falist siðferðilegur stuðningur við þjóðir Evrópu sem skipti þær ekki síður máli. Ríkin í Mið- og Austur-Evrópu sagði Jón Baldvin þurfa á hvoru tveggja að halda. „Við þurfum á nýrri Marshall- áætlun að halda,“ sagði hann. Utanríkisráðherra sagði nauð- syn á að koma á víðtæku sameig- inlegu öryggiskerfi sem næði til heimsbyggðarinnar allrar. Norð- urlöndin væru nú þegar að koma sér saman um sameiginlega stefnu í þessum málum. Fyrr en síðar yrðu öll aðildarríki SÞ að koma sér saman um viðeigandi farveg fyrir umræður og ákvarð- anir þar að lútandi. Willy Brandt, fyrrum kanslari Þýskalands, hefði haft forystu fyrir hópi manna sem unnið hefði mikilvægt starf í þessu máli og lagt fram hugmynd- ir og tillögur um umbætur á skipu- lagi Sameinuðu þjóðanna. „Ríkis- stjórn íslands styður þá tillögu hópsins að stofnsett verði sjálf- stæð Alþjóðanefnd um alheims- stjórnskipan, sem undirbúi alþjóð- legan leiðtogafund til að taka á þessu verkefni,“ sagði Jón Bald- vin. Hann vék einnig í máli sínu að ráðstefnu SÞ um umhverfi og þróun sem kölluð verður saman í Rio de Janeiro á næsta ári. Jón Baldvin sagði það valda ríkisstjórn Islands áhyggjum að tilraunir hefðu verið gerðar til að innleiða tillögur um hvalveiðistjórnun í Rio-ferlið. „Þessar tillögur byggja á vafasömum siðferðilegum vangaveltum og eru í reynd ekki umhverfismál. Jafnframt stang- ast þær á við grundvallarhug- myndina um sjálfbæra þróun. Það eykur á vandann ef ríki hyggjast beita viðskiptaþvingunum vegna ágreinings um stefnu í umhverfis- málum.“ Ríkisstjórn Islands væri þeirrar skoðunar að Rio-ráðstefnan ætti að leggja fram framkvæmdaáætl- un sem tæki til allra þátta sem hefðu áhrif á tengslin milli um- hverfis og efnahagslífs. Sérstak- lega þyrfti að grípa til skjótra aðgerða til að takmarka og hafa eftirlit með losun á geislavirkum úrgangi, þungamálmum og var- anlegum lífrænum efnurn í höfin eða undir sjávarbotni. „Við höfum ekki síst áhyggjur af hinni stöðugu hættu á geisla- virkri mengun hafanna. Sú hætta á ekki síst upptök sín í kjarnorku- verum sem staðsett eru við strandlengju ýmissa ríkja. Við það verður ekki unað að ríki áformi að reisa slíkar stöðvar, eins konar tímasprengjur gagnvart umhverf- inu, við aðstöðu þar sem minni- háttar slys geta haft meiri háttar umhverfisslys í för með sér - umhverfisslys sem bitna harðast á öðrum, en þeim sem ábyrgðina bera. Okkur stafar einnig ógn af kjarnakljúfum í sjó. Ríkisstjórn íslands mun halda áfram að vinna að alþjóðlegri viðurkenningu á þeim hættum sem geta stafað af slysum þar sem kjarnakljúfar á höfunum koma við sögu,“ sagði utanríkisráðherra. Eina af höfuðástæðum þess að efnahagsástandið í meirihluta þróunarlandanna hefði versnað á síðasta áratug sagði Jón Baldvin vera haftastefnu sumra iðnvæddu ríkjanna. íslensk stjórnvöld gerðu sér ljósa grein fyrir þeirri stöðu sem mörg þróunarlandanna væru í, enda byggði efnahagslíf lands- ins nær eingöngu á einni auðlind og útflutningsafurð. Raunar væru fá ríki eins háð utanríkisviðskipt- um eins og ísland. Vandamál þau sem haftastefnan skapaði ættu raunar ekki eingöngu við um sam- skipti iðnríkjanna og þróunarríkj- anna heldur settu þau einnig mark sitt á samskipti iðnríkjanna innbyrðis. „íslensk stjórnvöld hafa sem aðili að Fríverslunarsamtök- um Evrópu - EFTA - tekið virk- an þátt í samningaviðræðum við evrópska nágranna sína og hafa þá oft rekist á sömu pólitísku nærsýnina, og hindrar aðgang þróunarríkjanna að mörkuðum Evrópu. Sú stefna Evrópubanda- lagsins að tengja viðskipti og að- gang að auðlindum er algerlega óviðeigandi og óásættanleg. Hún er þröskuldur í vegi fyrir frekari samruna í Evrópu," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Bakkafjörður; Miklir rekstr- arerfiðleikar hjá Útveri hf. Bakkafirði. MIKLIR erfiðleikar steðja að fiskvinnslufyrirtækinu Utveri hf., að sögn Samúels Guðniunds- sonar framkvænidastjóra. Rekst- ur var stöðvaður 15. ágúst og öllu lausráðnu fólki, alls tíu manns, sagt upp störfum og sent heim. Rafmagnið var tekið af fyrirtækinu fyrir rúmri viku. Unnið er að framtíðarlausn. Ein helsta ástæða fyrir þessum miklu erfiðleikum hjá fyrirtækinu er stopult liráefni í of langan tíma. Því var tekin ákvörðun um að stöðva reksturinn eftir að milliupp- gjör fyrir 1991 lá fyrir þar sem ekki var talinn rekstrargrundvöllur miðað við núverandi skuldastöðu og síminnkandi veiðiheimildir. Samúel Guðmundsson hóf störf hjá Útveri hf. 15. júní í sumar en hann útskrifaðist frá Háskóla Is- lands sl. vor sem viðskiptafræðing- ur. - ÁHG Húsnæðisnefnd Reykjavíkur; Óskað eft- ir tilboðum í 30 íbúðir HÚSNÆÐISNEFND Reykjavík- ur leitar eftir tilboðum hjá bygg- ingaraðilum í 30 fullbúnar íbúðir sem eiga að koma til afliendingar í lok ársins 1992 eða byijun árs 1993. Ríkharður Steinbergsson hjá Húsnæðisnefndinni sagði að nefnd- in hefði óskað eftir fjárveitingu til byggingar og kaupa á 190 íbúðum. Fjárveiting hefði fengist fyrir 150 íbúðum og væru þessar 30 hluti af þeim, en að auki væru 113 íbúðir í byggingu við Laufengi og það sem á vantaði yrði keypt en alltaf væri eitthvað um að eldri verkamanna- bústaðir kæmu á fijálsan markað. Ríkharður sagði að nefndin hefði áður keypt íbúðir af byggingaraðil- um fyrir félagsiega kerfið en þetta væri í fyrsta skipti sem óskað væri eftir tilboðuni. Engin sérstök skil- yrði væru sett varðandi stærð íbúða eða annað heldur vildu þeir fá að sjá hvað í boði væri hvað varðaði verð og gæði. Myglusveppur í kartöflum: Agæti hefur hætt að taka við kartöflum tímabundið ÁGÆTI hf. hefur tímabundið hætt að taka við kartöflum frá framleiðendum á Suðurlandi vegna myglusvepps, sem vart hefur orðið þrátt fyrir að bændur hafi gert ráðstafanir í sumar til að koma í veg fyrir hann. Að sögn Matthiasar Guðmundsson- ar, framkvæmdastjóra Ágætis, verður væntanlega farið að taka á móti kartöflum á nýjan leik í næstu viku eftir að bændur hafa flokkað þær og þvegið. „Menn voru að vonast til þess að ekki yrðu um myglu í kartöflun- um að ræða þar sem faramleiðend- urnir gátu úðað, en ég held að það hafi verið gert of seint og kannski ekki nógu oft. Þetta er þó misjafnt milli framleiðenda, en það sleppur að ég tel enginn alfarið við þetta,“ sagði Matthías.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.