Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
ARNAÐ HEILLA
Ijósmynd/Gunnar Kristinn
Hjónaband. Brúðhjónin Auður Ólafsdóttir
og Hjörtur Stefánsson voru gefin saman í
Fella- og Hólakirkju, 7. september sl. af
séra Hreini Hjartarssyni. Heimili þeirra er
í Orrahólum 7.
Ljjósmynd/Jóhannes Long
Hjónaband. Brúðhjónin Þórey Guðmunds-
dóttir og Leifur Eiríksson voru gefin saman
í Akraneskirkju, 24. ágúst sl. af séra Birni
Jónssyni. Heimili þeirra er í Vesturbergi
118, Rvík.
Ljósmynd/Jóhannes Long
Hjónaband. Brúðhjónin Guðrún Vala Elís-
dóttir og Arnþór Gylfi Árnason voru gefin
saman í Kópavogskirkju, 24. ágúst sl. af
séra Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Heimili
þeirra er að Holtagerði 14, Rvík.
yósinynd/Jóhannes Long
Hjónaband. Brúðhjónin Anna Garðarsdótt-
ir og Þorkell Garðarsson voru gefin saman
í Bústaðakirkju, 17. ágúst sl. af séra Pálma
Matthíassyni. Heimili þeirra er í Orrahólum
7.
Úr norsku myndinni um Pelle og Proffen.
Þýsk kvikmyndahátíð:
IRUSTUNUM
Norsk kvik-
myndavika:
Dauðinn
á lestar-
stöðinni
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Dauðinn á lestarstöðinni
(„Döden pa Oslo S“). Sýnd í
Háskólabíói á norskri kvik-
myndaviku. Leikstjóri: Eva
Isaksen. Handrit: Axel Hellste-
nius. Aðalhlutverk: Havard
Bakke, Tommy Karlsen, Helle
Figenschow. Noregur. 1990.
Opnunarmyndin á norskri
kvikmyndaviku í Háskólabíói var
spennumyndin Dauðinn á lestar-
stöðinni eða „Döden pa Oslo S“)
eftir Evu Isaksen. Hún byggir á
sögu eftir Ingvar Ambjömsen,
sem skrifað hefur a.m.k. fjórar
sögur um aðalpersónurnar, vin-
ina Pelle og Proffen, og margvís-
leg ævintýri sem þeir lenda í.
Isaksen, sem heldur áfram á
braut sakamálamynda f sinni
nýjustu mynd, Fullkomið morð,
skapar sér norskan frískleika í
Dauðanum á lestarstöðinni, sem
er ágætt mótvægi við spennu-
myndir frá Hollywood. Fram-
leiðslan, þrátt fyrir að hún sé
ódýr, er mjög vönduð, hraðinn í
frásögninni er góður, myndataka
frískleg og sagan kímin og
harðneskjuleg í senn. Myndin
greinir frá unglingum sem lent
hafa öfugu megin við velferðar-
samfélagið og hvernig félagamir
Pelle og Proffen flækjast í þeirra
mál. Unglingarómantíkin er
heldur ekki langt undan. Hér er
á ferðinni raunsæ og skemmtileg
mynd, vel leikin og gerð. Og
fyrir þá sem endilega vilja er
meira að segja bílaeltingarleikur
í Oslóamóttinni undir lokin -
greinilega ómissandi þáttur í
hverri spennumynd.
Félagarnir Pelle og Proffen,
sem þrá að lenda í dularfullum
ævintýmm, taka að kynnast
skuggahliðum stórborgarinnar
þegar þeir hefja leit að kunningj-
um sínum, Filla og Stein. Þeir
em utangarðsstrákar sem gert
hafa allt vitlaust á drengjaat-
hvarfínu Voninni, stela pening-
um af Pelle í leiðinni og ætla sér
greinilega að flétta ofan af for-
stöðumanni athvarfsins. í
millitíðinni verður Pelle ástfang-
inn af hinni dularfullu Lenu, sem
hverfur sporlaust. í leit sinni að
strákunum og Lenu kynnast þeir
félagar skuggahverfí heimilis-
lausra unglinga sem drepa sig
hægt með límsniffi, útigangs-
fólki á lestarstöðinni, dópneyslu
og unglingavændi. Þetta er ljót
lýsing á vemleik unglinga sem
hvergi eiga höfði að halla og
Isaksen er lagið að draga fram
þennan heim í öngstrætum borg-
arinnar sem blákaldan raunvera-
leika.
Sagan er einföld með skýran
boðskap og hvergi er viðvanings-
bragur á myndinni. Þrátt fyrir
heldur myrkan efniviðinn er allt-
af góður, Tiúmorískur andi í
myndinni og allar em persónur
hennar brakandi ekta í orðum
og útliti. Foreldrar Pelle em
einkar fijálslyndir og skemmti-
legir síðhippar og það er engu
líkara en unglingarnir séu teknir
beint af götunni. Sem dæmi um
gamansemina má nefna austur-
lenskan leigubílstjóra sem hjálp-
ar Pelle og Proffen eftir bílaelt-
ingaleikinn þegar illmennið
ræðst á Pelle. Sá austurlenski
flýgur á illmennið í öflugri kar-
atestellingu með orðunum: Þessi
gutti er minn kúnni. - Gott mál.
Myndin er ótextuð. - Vont
mál.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Á mörkum austurs og vesturs
(„Ostkreuz"). Sýnd í Regnbog-
anum á þýskri kvikmyndahátíð.
Leikstjóri, handritshöfundur
og framleiðandi: Michael Klier.
Aðalhlutverk: Laura Tonka,
Miroslav Baka, Stefan Cam-
mann. 1991.
Ein af nýjustu myndunum á þýsku
kvikmyndahátíðinni í Regnbogan-
um er „Ostkreuz" eða Á mörkum
austurs og vesturs, frá þessu ári.
Höfundur, leikstjóri og framleið-
andi er Michael Klier en myndin
mun hafa unnið aðalverðlaun
kvikmyndahátíðarinnar í Múnc-
hen. Og er vel að þeim komin.
„Á mörkunum" er einkar nöpur
og kaldranaleg lýsing á rótlausu
lífi fjórtán ára gamallar stúlku í
austurhluta Berlínar. Hún býr
ásamt móður sinni í nk. gámi inn-
réttuðum sem eins herbergis íbúð.
Þær em að missa það auma hús-
næði svo Elfie, en það heitir stúlk-
an og er frábærlega leikin af
Laura Tonka, fer að reyna að
afla peninga. Þannig kemst hún
í heldur auman félagsskap svarta-
markaðsbraskarans Dariusar og
flækist með honum í von um
seðla. Strákurinn er samviskulaus
vitleysingur. í einni af braskferð
sinni langt inn í landið stekkur
hann uppí bíl og keyrir burtu þeg-
ar ráðist er á þau og skilur hana
eftir til að bjarga sér sjálf. Sam-
band Elfie við móðurina er sárah't-
ið, hún skilur ekki að dóttir sín
vill aðeins láta gott af sér leiða.
Eins og gámurinn sé eina hal-
dreipið sem eftir er. Á endanum
flytur mamman burt úr eymdinni
með manni sem hún er í tygjum
við og skilur Elfie eftir á götunni
enda neitar hún að fara með, fyr-
irlítur karlinn og sambandið. Hún
kynnist vini á sínum aldri, sem
foreldrar hans eru einnig flúnir,
og þau koma sér fyrir í yfírgef-
inni byggingu í niðurníðslu, mun-
aðarlaus börn í rústum kommap-
aradísarinnar.
Klier hefur gert einkar áhrif-
aríka mynd á sínum lágstemmdu
nótum. Hann dregur sannarlega
upp eymdarlega mynd og sorg-
lega af lífinu austurfrá. Það er
engu líkara en allir séu flúnir.
Götur em auðar og hús em tóm.
Þetta er einskismannsland fullt
af steynsteypu og risastómm
blokkum þar sem líf fær ekki þrif-
ist. Tómir, líflausir gluggar. Allt
er grátt og guggið og niðurdrep-
andi og óendanlega ljótt. Dauða-
þefurinn í loftinu bergmálar sála-
rástand mannfólksins, sambands-
leysið og fírringuna.
Með hlutverk Dariusar í „Á
mörkunum“ fer Miroslov Baka en
hann lék morðingjann í hinni
þekktu boðorðamynd Krzysztof
Kieslowskis, Stutt mynd um dráp.
Baka minnir á að hið grámósku-
lega útlit og eymdartilfinning í
þessum tveimur myndum er svip-"
uð um margt.
Þysk nákvæmni
í stuttmyndinni Skipulag hlut-
anna frá 1988 gerir höfundurinn,
Franziska Buch, heilmikið grín
að hinum þrælskipulagða ogóend-
anlega nákvæma Þjóðveija í lýs-
ingu á manni sem hefur viður-
væri sitt af að ydda blýanta. Allt
í lífi hans er tímanum og ná-
kvæmninni háð, alveg oní hálfell-
efu fróunina fyrir háttinn. Á end-
anum hlýtur kerfíð að bresta og
kaosin tekur við. Skoplegt en
varla fyrir viðkvæmar sálir.
■ PRÓFESSOR K.R. Rao, frá
ríkisháskólanum í Texas, vel þekkt-
ur sérfræðingur og fmmkvöðull í
kóðun og þjöppun merkja, er stadd-
ur hér á landi í boði Endurmenntun-
arnefndar Háskóla íslands. Hann
mun halda almennt erindi við Há-
skóla íslands um stöðu þessa sviðs
og þýðingu í náinni framtíð fyrir
myndgeymslu, myndfjölmiðlun og
símafjarskipti. Erindið, sem er öll-
um opið, verður haldið þriðjudaginn
24. september ( stofu 157 í húsi
verkfræðideildar Háskólans á
Hjarðarhaga 2-6 í Reykjavík og
hefst kl. 17.00.
-----------x---------------------------
\ýll §krif§lofutækninám
Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift að auka við
þekkingu þína og atvinnumöguleika á skjótan og
hagkvæman hátt.
' Þú lærir bæði á Macintosh- og PC-tölvur, auk al-
mennrar skrifstofutækni, bókfærslu, tölvubókhalds,
verslunarreiknings og toll- og verðútreikninga.
Innritun stendur yfir.
Hringið og fáið sendan ókeypis bækling.
Erum við til kl. 22
Tölvuskóli Reykiavíkur
Borgartúni 28, sími 91-68759Q
\