Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 41 SOLUHÆSTIBILLINNIEVROPU VOLKSWAGEN NU A FRABÆRU VERÐI A ISLANDI FRÁKR. 982.000 5 DYRA - 3 ÁRA ÁBYRCÐ HVARFAKUTUR MINNl MENGUN HEKLA LAUGAVEG1174 SÍMI 695500 ■ » Einkaumboð á íslandi: Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Armúla 29 ■ Raykjavík • Simi 3S640 Barna- og unglinga starf kirkjunnar eftirRagnheiði Sverrisdóttur Nú er að heflast barna- og ungl- ingastarf kirkjunnar í Reykjavíkur- prófastsdæmum. Það er íjölbreytt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi sem vilja taka þátt í starfi kirkjunnar. En sjón er sögu ríkari. Barnaguðsþjónustur eru í ölium kirkjum og eru þær almennt á sunnu- dögum. í þeim er lögð áhersla á að kenna börnunum undirstöðu kris- tinnar trúar og trúariðkun. Með öðr- um orðum eru börnunum kenndar bænir og þær beðnar með þeim. Þau kynnast helgihaldi og læra mörg þannig utan að ýmislegt sem tilheyr- ir guðsþjónustunni. Umfram allt er lögð áhersla á að þau upplifi þessa guðsþjónustu sem stund með Guði og að nærvera hans sé með þeim og okkur öllum úti í daglega lífinu. Mik- ið er sungið af sálmum og léttari söngvum og eru hreyfisöngvar sérs- taklega vinsælir hjá yngstu börnun- um. Fræðsluefni hefur verið útbúið af Fræðsludeild kirkjunnar og útgáf- unni Skálholti fyrir þetta starf og er reynt að vanda það eins og kostur er. Efni þessa árs ber yfirskriftina „Lífið er ævintýri“. Þar er Biblían aðalnámsefnið en það er útbúið þann- ig að auðvelt er fyrir böm að skilja það. Sú nýbreytni var tekin upp að nota þekktá barnabók til að tengja boðskap kirkjunnar og hversdagsleg vandamál allra barna. Bókin sem var valin er Emil og Skundi eftir Guð- mund Ólafsson. Flestar kirkjur bjóða börnum möppur annað hvort ókeypis eða gegn vægu gjaldi. í þessar möpp- ur safnast svo eitt blað á hvetjum sunnudegi. Á plastpoka sem börnin fá utan um möppuna sína stendur „Lífið er ævintýri — þú kynnist því í kirkjunni". Við hvetjum foreldra sem látið hafa skíra börn sín að koma með þeim í barnastarfið og þannig styrkja trúarlíf sitt og barnanna. I sumum kirkjum fer barnastarfið fram sam- tímis guðsþjónustu sunnudagsins. Þegar börnin okkar eldast vaxa þau upp úr barnaguðsþjónustunni og það geta liðið mörg ár áður en þau koma aftur til kirkjunnar í ferming- arfræðslu. Þess vegna bjóða margar kirkjur börnum frá 10 ára aldri upp á starf af ýmsu tagi. Sumar kirkjur eru með kóra og má nefna barna- kóra, tvo bjöllukóra, og einn drengja- kór. Þá er svokallað 10-12 ára starf í nokkrum kirkjum. Þar eru samver- ur einu sinni í viku þar sem skemmt- un, fræðsla og helgihald fer saman. Kirkjan býður unglingum sem ganga til spurninga og fermdum unglingum að taka þátt í starfi æsku- lýðsfélaga safnaðanna. Nú eru starf- andi æskulýðsfélög við ellefu söfnuði og Ten-Sing-starf (tónlistarstarf í samstarfi við KFUM og KFUK) verð- ur í einum eða tveimur söfnuðum. Almennt hittast unglingarnir til sam- veru einu sinni í viku og er boðið upp á ýmiskonar dagskrá. Málin eru rædd og það eru auðvitað mál sem unglingarnir velta fyrir sér. Þau hafa tækifæri til að móta starfið sjálf og mynda oft stjórn með leiðtoga sínum. Kork*o*Plast Sænsk gæðavara KORK-gólfflísar með vinyl-plast-áferð Kork-o-Plast í 10 gerðum Veggkork í 8 gerðum. Ávallt til á lager Aðrar korkvörutegundir á lager: Undirlagskork í þremur þykktum Korkvélapakkningar í tveimur þykktum Gufubaðstofukork Veggtöflu-korkplötur í þromur þykktum Kork-parkett venjulegt, f tveimur þykktum Á hverri samveru fer fram helgihald. Þá eru ferðalög og mót mikilvægur þáttur unglingastarfsins. Æskulýðs- samband kirkjunnar í Reykjavíkur- prófastdæmum (ÆSKR) sér um ýmis sameiginleg verkefni þessara félaga. Má hér nefna menntun leið- toga og sameiginleg verkefni æsku- lýðsfélaganna sem eru m.a. með tvö mót á ári og samverur á sumrin. Árlega er haldinn Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Hann verður næst sunnudaginn 1. mars 1992. Yfir- skrift þess dags og starfsins í vetur verður Á krossgötum með Kristi. Unglingar eru á krossgötum í lífinu og kirkjan vill benda þeim á leið með Jesú og hún vill einnig benda þeim á vímulausa leið og skapa umræðu um vímuvarnir. Þess vegna er sam- starf hafið við Vímulausa æsku. Kirkjan vill skapa unglingum verðug verkefni í frístundum og þannig stuðla að betra mannlífi. Höfundur er djákni og framkvæmdastjóri Æskuiýðssambands kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum. fullorflinsfræfislan Guðsþjónusta undirbúin á Landsmóti æskulýðsfélaga Þjóðkirkjunnar í sept. sl. laugavegi 163, 105 Reykjovík, simi 91-11170. Alltaf til staðar alla daga Öll kvöld allt árið Þegar þú þarft á okkur að halda Námskeið og námsaðstoð fyrir alla • Grunn- og framhaldsskólagreinar Námskeið að hefjast ENSKA - SPÆNSKA - ÍTALSKA - SÆNSKA - ÍSLENSKA - ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA - ÞÝSKA - STÆRÐFRÆÐI - EÐLISFRÆÐI - EFNAFRÆÐI - bæði dag- og kvöldtímar. i ' BINDIN stelton □F denmark /rá Múlalundi... .. þar eru gögnin á góðum stað. hackmanö n Mulalundur SÍMI: 62 84 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.