Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 Almenningur tekur þátt í smölun hrossa á Laxárdal í Austur-Húnavatnssýslu: Vona að ég sjái fólk hér aftur á næsta ári -segir Valgarður Hilmarsson oddviti Engihlíðarhrepps Tuttugu og tveggja manna hópur fjölmiðlafólks og hesta- áhugafólks tók þátt í smölun hrossa á Laxárdal síðastliðinn laugardag. Daginn eftir tóku gestirnir þátt í réttastörfum í Skrapatungurétt. Skipuleggjendur og þátttakendur í þessari fyrstu tilraun til þess að bjóða almenningi að taka þátt í smölun hrossa eru á einu máli um að afar vel hefði til tek- ist. Tilgangurinn með þessari nýbreytni er að laða að ferða- fólk og leyfa sem flestum að upplifa göngur og réttir. Ekki er talið ólíklegt að boð sem þessi verði gerð að árlegum við- burði. Smölunin 'hófst við Kirkju- skarð í Laxárdal þar sem gestum voru afhentir reiðskjótar og reið- tygi. Flestir virtust þaulvanir og lögðu fumlaust á þann klár sem þeim hafði verið úthlutaður. Aðr- ir urðu dálítið vandræðalegir þegar þeir tóku við beisli og hnakk. Svipurinn varði þó ekki lengi því áður en hendi var veif- að var komin hjálparhönd til þess að spenna gjörðina eða stilla ístöðin. Margt var spáð og spekúlerað við réttina. Menn vildu fá að vita nánari deili á hestinum og eigin- leikum hans. Svörin voru flest á reiðum höndum en einhveijir urðu þó að sætta sig við að fá ekki að vita nöfn reiðhesta sinna. Samferðarfólkið kom þá óðara til hjálpar og fundin voru ný nöfn sem þóttu við hæfi. Vinsæl- ast reyndist þá að sækja hug- myndir í lit klársins eða eigand- ann. Þegar lagt hafði verið á reið- skjótana var stigið á bak og rið- ið fram dalinn í fylgd fjögurra heimamanna. Menn riðu nokkuð greitt af stað en fljótlega þurfti að staldra við og skima eftir gangnamönnum af fjalli. Biðin lengdist en skyndilega kom i ljós maður á þeysireið sem nálgaðist hópinn. Þar var kominn Ævar Þorsteinsson bóndi í Enni sem falaðist eftir hjálp í fyrirstöðu upp í fjalli. Hópurinn lét ekki segja sér þetta tvisvar og Ævar hélt aftur með nokkuð fleiri reið- menn en hann hafði beðið um. Afram var haldið og skimað eft- ir hrossum sem fljótlega Ijölgaði á fjallinu. , Stórkostlegt ævintýri A eftir hrossunum komu gangnamenn sem lagt höfðu af stað í býtið um morguninn. Á meðal þeirra var þýska blaða- konan Uschi Entemann, sem skrifað hefur fyrir tímaritið Stern, og ljósmyndari með henni. Uschi hefur nokkrum sinnum komið til íslands áður til þess að heimsækja bróður sinn sem er bæklunarskósmiður og vann um tíma hjá Gísla Ferdinantssyni skósmið í Lækjargötu. „í gegn- Valgarður Hilmarsson oddviti Engihlíðarhrepps og bóndi á Fremstagili í Langadal. um hann kynntist ég Jóhönnu sem á skyldfólk á Sölvabakka," sagði Uschi. „Þangað fór ég með henni og tók þátt í göngum og réttum í fyrrahaust. Þá skrifaði ég grein sem ég sendi Stern en þeir vildu ekki birta hana vegna þess að myndir úr göngunum vantaði. Núna er ég komin hing- að með ljósmyndara til þess að bæta úr þessu.“ Uschi lét engan bilbug á sér finna þó hún viður- kenndi að hún hefði ekki mikla reynslu af útreiðum á íslenskum hestum. „Dagurinn hefur verið stórkostlegt ævintýri. Við vökn- uðum kl. 4 í nótt og höfum ver- ið á hestbaki síðan. Göngunum fylgir alveg sérstök stemmning sem helst mætti líkja við haust- verkin í Suður-Þýskalandi þar sem ég á heima. Þar framleiða menn vín og rækta til þess vín- ber sem þarf að tína á haustin. Þá er mikið að gera en fólk er ánægt og lýkur gjarnan deginum á því að bragða á léttvíni.“ Usc- hi sagðist búast við að liðið gætu 2 til 3 mánuðir þangaði til grein- in hennar birtist í Stern. Sameiginlegt áhugamál Þegar gangnamenn höfðu blásið mæðinni við Vesturá var haldið til baka að réttinni í Kirkj- uskarði. Gestirnir fylgdu á eftir, fóru hægt og nutu þess að virða fyrir sér grösugan dalinn þar sem áður voru blómleg bú. Nú voru flestir búnir að kynnast reiðskjótum sínum og fólk bar saman bækur sínar. Má þá segja að hópurinn hafi smám saman „hristst saman“ og átti sameig- inlegt áhugamál þeirra sem þarna voru komnir stærstan þátt í því. Við réttina fékk fólk sér bita á meðan bændur tóku nokkur hross úr stóðinu. Þá var haldið af stað að nýju og stóðið rekið að Skrapatungurétt. Meiri mannskapur hafði þá bæst í hóp- inn og flestir voru léttir í lundu. Einstaka maður heyrðist raula fyrir munni sér en flestir létu sér nægja að dreypa á söngvatni og ræða við meðreiðarfólk sitt. í Skrapatungu var staldrað við til þess að hvíla hestana en síðan voru þeir skyldir eftir á Njálsstöðum sem eru skammt frá réttinni. Um kvöldið var snæddur hátiðarverður á Hótel Blöndósi en daginn eftur hófust réttar- störf í Skrapatungurétt uppúr hádegi. Tilraunin tekist vel Gestirnir úr Reykjavik létu sig ekki vanta í réttina þrátt fyrir að seint hefði verið gengið til náða kvöldið áður. Þeir sögðust ekki finna fyrir eymslum eftir fyrri daginn en hrósuðu reiðhest- um sínum. Þeir voru sammála um að afar vel hefði tekist til með þessa fyrstu tilraun til að bjóða almenningi að taka þátt í smölun hrossa og tóku fram að þeir hefðu mætt mikilli velvild hjá heimamönnum. í réttinni náði blaðamaður tali af Valgarði Hilmarssyni, oddvita í Engihlíðarhreppi, sem ásamt fleirum bar hitann og þungann af þjónustu við gestina. Hann sagði að hugmyndin að boðinu hefði orðið til í vor þegar rætt hefði verið um eflingu ferða- mannaþjónustu á svæðinu. Hefði þá komið upp sú hugmynd að nýta göngur og réttir en skemmst væri frá að segja að svörunin hefði verið afar góð. „Tilgangurinn með þessu er í raun tvíþættur," sagði Valgarð- ur. „Við viljum með þessum hætti fá fleira fólk inn í héraðið en auk þess viljum við gefa fólki tækifæri til þess að kynnast göngum og réttum.“ Valgarður sagði að sérlega vel hefði tekist til við þessa fyrstu tilraun en nú yrði sest niður og staðan metin. „Sjálfur tel ég að þetta sé þess virði að skoða betur og vona að ég sjái fólk hér aftur á næsta ári.“ Hann sagðist afar ánægður með hópinn sem tók þátt í til- rauninni. „Við fengum fólkið sem við vonuðumst eftir. Við fengum fjölmiðlafólk og við fengum áhugafólk um hesta,“ sagði Val- garður. Hann tók fram að heima- fólk hefði verið afar jákvætt og fúst að lána allt sem til þurfti til þess að gera tilraunina að veruleika. Anna Gunnhildur Ólafsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.