Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 V estmannaeyjar: Tillaga um landhelgi lögð fyrir bæjarstjóm Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja að störfum í Vogum á sunnudaginn. Eldur í íbúð í Voafum Voinim. ^ * Vo^um. SLOKKVILIÐ Brunavarna Suðurnesja var kvatt að Hafnargötu 3 í Vogum kl. 12.28 á sunnudag. Eldur hafði komið upp í eldhúsi á efri hæð. Þrír íbúar voru í húsinu, tveir fullorðnir og sofandi barn og komust þau öll út. Sjónarvottar sáu eld standa út um eldhúsglugga og reyk leggja út um aðra glugga á efri hæðinni. 'Þegar slökkviliðið kom á stað- sem slökknaði, en kom upp aftur. inn var dálítill eldur í eldhúsinu, Þegar húseigandi ætlaði að nota en húseigandi hafði í tvígang þriðja tækið á eldinn, komst hann tæmt úr handslökkvitæki á eldinn ekki inn vegna þess að íbúðin inni. hafði fyilst af reyk. Eldurinn byijaði út frá potti á eldavél og náði ekki út fyrir eld- húsið. Óttast var að eldurinn hefði komist upp á loft yfir eldhúsinu, en svo var ekki. Skemmdir urðu vegna elds í eldhúsinu og skemmdir af völdum reyks í íbúð- - E.G. Vestmannaeyjum. Bæjarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokksins í bæjarsljórn Vest- mannaeyja lögðu fram tillögu í bæjarráði í gær þar sem óskað er eftir því við sjávarútvegsráðherra að komið verði á landhelgi kring- um Vestmannaeyjar. í tillögunni er óskað eftir að sett verði reglugerð sem kveður á um landhelgi kringum Vestmannaeyjar og jafnframt er óskað eftir því við sjávarútvegsráðherra að komið verði á virkri 3 mílna landhelgi við suðurströnd landsins. Vitnað er til þess að við suðurströndina sé eggj- aklasi hrygningarfisks mestur og því sé nauðsyn að þau fái að klekj- ast út í friði. í tillögunni er óskað eftir tillög- um um nánari útfærslu á þessari landhelgi frá Skipstjóra- og stýri- mannafélaginu Verðandi, Vélstjór- afélagi Vestmannaeyja, Útvegs- bændafélagi Vestmannaeyja, Sjó- mannafélaginu Jötni, Félagi smá- bátaeigenda í Eyjum og útibúi Þorlákshöfn: Mótmæla lokun á Hafrannsóknar í Eyjum og eiga tillögur þessara aðila að liggja fyr- ir í októberlok. Sigurður Einarsson, formaður bæjarráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið að tillaga þessi væri fram komin vegna þeirrar miklu umræðu sem fram hefði farið að undanförnu um friðun fiskistofn- anna. „Fólk hefur greinilega áhyggjur af hversu gengið hefur á fiskistofnana "óg ég held að flestir séu sammála um að ein leiðin sem við höfum til að ná þeim upp sé að auka friðun með lokun hrygn- ingarsvæaða. Við viljum leggja okkar af mörkum til að auka þessa friðun með því að leggja til lokun svæða sem næst okkur eru. Hér við Vestmannaeyjar og suður- ströndina er mikið hrygningar- svæði og með lokun hér fær fiskur- inn griðland til hrygningar. Við óskum eftir tillögum frá hags- munaaðilum hér í Eyjum um nán- ari útfærslu á þessari landhelgi og vonum að víðtæk sátt náist um þessar aðgerðir,“ sagði Sigurður. Grímur grunnslóð Þorlákshöfn. Utgerðarstjóri Utgerðarfélags Dalvíkinga: Á FUNDI sem Útvegsmannafélag Þorlákshafnar efndi til í Dugg- unni í Þorlákshöfn á laugardag var mótmælt harðlega þeim hug- myndum sem fram hafa komið um lokun grunnslóðar fyrir Suður- landi. Kristján Ragnarsson for- maður LIÚ sat fundinn en hann er hlynntur þessum hugmyndum sem ætlað er að vemda hrygingar- stofn þorsksins. í ályktun sem samþykkt var á fundinum koma m.a. fram hörð mót- mæli gegn þerim hugmyndum að loka grunnslóðinni frá þremur ver- stöðvum, þ.e. Þorlákshöfn, Eyrar- bakka og Stokkseyri en rökin fyrir lokuninni séu veiðar á stórþorski. Bendir fundurinn á að veiðar á smá- fiski hafi hingað til verið vandamál en ekki veiðar á físki með 7-10 kg. meðalvikt. Fundurinn benti á hvemig þróunin hefur verið í fiskveiðum frá upphafí kvótakerfis með árminnkandi veiðum á hrygningarfíski á sama tíma og veiðar á ókynþroska físki hafa aukist í sama hlutfalli í tonnum talið, þ.e. um 60% á undanförnum 7-8 árum. Virðast tillögur um stjómvaldsað- gerðir til að hraða þessari þróun hreint óskiljanlegar. J.H.S. Samráð verður haft við Hluta- fjársióð um kaup á Meitlinum Grundvallarstefna sjóðsins að halda fyrirtækjum í heimabyggð, segir forstjóri Byggðastofnunar VIÐRÆÐUM um hugsanleg kaup Útgerðarfélags Dalvíkinga á meiri- hlutanum í Meitlinum í Þorlákshöfn verður haldið áfram i þessari viku. Valdimar Bragason útgerðarstjóri á Dalvik segir að ef jákvæð niðurstaða komi úr þessum viðræðum muni þeir hafa samráð við Hlut- afjársjóð um kaupin enda er sjóðurinn stærsti hluthafinn í Meitlinum með rúmlega 48% hlutafjár. Guðmundur Malmquist forsljóri Byggða- stofunar segir að hann viti af þeim viðræðunum sem í gangi eru en stjórn Hlutafjársjóðs hafi ekki verið tilkynnt um þær formlega. Hann bendir hinsvegar á að það sé grundvallarstefna Hlutafjársjóðs að hjálpa mönnum við að halda fyrirtækjum sínum gangandi í heimabyggð. Fundur með þing- mönnum í dag Eftir að fréttir birtust um þær þreifíngar sem í gangi eru um kaup- in á Meitlinum og flutning kvóta fyrirtækisins norður ef af kaupunum verður hefur þetta mál verið mjög til umræðu í Þorlákshöfn og hafa Ríkisstjórnin kemur illa út í skoðanakönnun DV: SUj órnarflokkarnir misstu meiríhluta ef kosið yrði nú RÍKISSTJÓRNIN hefur misst talsvert fylgi frá því í vor samkvæmt skoðanakönnun Dagblaðsins Vísis. Af þeim sem afstöðu tóku sögð- ust 42% styðja stjórnina en 58% kváðust andvíg henni. Samsvarandi tölur úr könnun DV í maimánuði eru 53% fylgi og 47% andstaða við ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Könnun DV bendir til að vinsæld- ir Framsóknarflokksins myndu aukast mest ef kosið yrði nú og að stjórnarflokkarnir misstu meirihluta á þingi. Sjálfstæðisflokkur hlyti nú tæp- kosningaspá blaðsins, eða 26%. lega 35% fylgi í kosningum, sam- kvæmt spá sem byggð er á könnun DV frá því um helgina. Það er nærri 4% minna en eftir að kosið var í vor. Alþýðuflokkurinn myndi missa ívið meira fylgi eftir spánni, milli 4 og 5%, og hlyti nú atkvæði um 11% kjósenda. Fylgi Framsókn- arflokksins yrði hins vegar 7% meira nú en í vor ef marka má Aðrir flokkar í stjómarandstöðu bæta einnig við fylgi sitt eftir spánni, Alþýðubandalagið tæpum 3% og hefði 17% fylgi en Kvenna- listinn rúmu prósentustigi og fengi 9,5% fylgi. Sé þingsætum skipt í samræmi við kosningaspá DV hefði Sjálf- stæðisflokkur 22 þingmenn og Al- þýðuflokkur 7. Alþýðubandalag hefði 11 menn, Framsókn 17 og Kvennalisti 6 þingmenn. Hringt var í 600 manns í könnun DV og skiptist hópurinn jafnt milli kynja og milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Rúm 38% að- spurðra sögðust óákveðnir hvaða lista þeir veldu ef kosið yrði nú. Þetta er 12% fleira fólk en í maí- könnun blaðsins. Þeir sem neituðu að svara um helgina voru 5,5% og eru það heldur fleiri en í vor. Þegar spurt var hvort menn væru fylgjandi eða andvígir ríkisstjórn- inni sögðust 34% fylgjandi henni, 47% andvíg en 17% óákveðin. Loks neituðu ríflega 2% aðspurðra að heimamenn miklar áhyggjur af þró- un málsins. Sökum þessa hefur sveitarstjórn Þorlákshafnar óskað eftir fundi með þingmönnum kjör- dæmisins og verður hann haldinn í dag. Guðmundur Malmquist mun sitja þennan fund enda fer Byggða- stofnun nú með stjóm Hlutafjár- sjóðs. Ámi Johnsen einn þingmanna Suðurlandskjördæmis segir að þegar sú staða komi upp að byggðalag eigi á hættu að missa helming kvóta síns hljóti menn að staldra við og segja hingað og ekki lengra. „Þetta er ekki bara hlutur sem snertir Þor- lákshöfn eina út af fyrir sig heldur allt þéttbýlið í Ámessýslu," segir Árni Johnsen. „Það er hollt að menn velti því fyrir sér sem hlut eiga að máli í þessum viðræðum um sölu Meitilsins og eru þjónustuaðilar á Suðurlandi öllu, á ég þar við Olíufé- lagið og Vátryggingarfélag íslands, hvort ekki yrði erfítt fyrir þá að halda áfram sem þjónustuaðila í kjördæminu ef þetta dæmi gengi eftir sem að er stefnt. Annað er að á síðustu árum hafa orðið ákveðnar kvótatilfærslur frá Suðurlandi og til Norðurlands og það er alvarlegt mál ef þeim sem best hefur gengið að sanka að sér aflaheimildum geti svo leeyft sér að leika á kerfið’." Valdimar Bragason útgerðarstjóri Útgerðarfélags Dalvíkinga segir að ekki hafí enn verið gert ákveðið til- boð í meirihluta hlutafés Meitilsins og raunar sé ekkert að frétta af málinu annað en að viðræðum verð- ur haldið áfram. „Þó við næðum meirihluta í fyrirtækinu er það ekki ætlun okkar að stjórna því í and- stöðu við IUutafjársjóð sem er stærsti eignaraðilinn og við myndum hafa samráð við sjóðinn,“ segir Valdimar. „Við gerum okkur líka ljóst að samkvæmt starfsreglum Hlutafjársjóðs eru honum ætlað inn- an ákveðins tíma að bjóða starfs- fólki og öðrum hluthöfum sitt hlut- afé til sölu, það er þessir aðilar hafi forgang að kaupum.“ Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar segir að hann geti ekki á þessari stundu tjá sig um málið í heild enda hafí stjórn Hluta- fjársjóð ekki fylgst með viðræðum um kaupin á meirihluta í Meitlinum nema með óformlegum hætti. Hins- .vegar minni hann á grundvallar- stefnu sjóðsins í málefnum þeirra fyrirtækja sem hann á aðild að, það er að fyrirtækjunum sem haldið gangandi í heimabyggð og segir jafnframt að málið muni kom til umræðu á fundi í stjóm Byggða- stofnunar þann 30. september n.k. Gífurlegt áfall Þórður. Ólafsson formaður Verk- aslýðsfélagsins Boðinn í Þorlákshöfn segir að það sé hreint útilokað dæmi að af þessum kaupum verði og heim- amönnum ekki gefínn kostur á að koma þar inn í. „Svonalagað á ekki að geta átt sér stað í þessu þjóðfé- lagi því með sölu á kvótanum væri verið að leggja allt í rúst hér í pláss-. inu,“ segir Þórður. „Atvinnuástand hér í Þorlákshöfn hefur verið með þokkalegasta móti undanfama mán- uði en ef kvótinn fer yrði það gífur- legt áfall. í Meitlinum vinna nú á annað hundrað manns fyrir utan áhafnir á togurunum tveimur en þar að auki myndi salan á kvótanum hafa miklu víðtækari afleiðingar. Sem dæmi má nefna að 8 manna löndunarflokkur missti vinnu sína og þetta hefði áhrif hjá ísverksmiðj- unni, vélsmiðjunni, kaupfélaginu og hjá öðrum þjónustuaðilum. Og það sem verst er, í augnabikinu er ekki sjáanlegt hvað ætti að koma í stað- inn. Það er ekkert sem getur komið í staðinn fyrir kvótann."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.