Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.09.1991, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 lK Éq t/il efdti a& köruan. mirv kzynist c& þi/i exé'eg d bankará/cninghbr." I > Með morgunkaffínu .. . spurnmgm. TM Reg. U.S. Pat Off. — all rights reserved ® 1991 Los AngelesTimesSyndicate Höldum okkur að þráhyggj- unni um að þú kaupir allt og kaupir þó svo Selvogs- banki sé ekki til sölu ... SETA? Fyrirspurn til ritstjórn- ar Morgunblaðsins Mig langar til að spyija hvort að ritstjórn Morgunblaðsins sé kunnugt um að það er búið að leggja niður bókstafinn z í íslensku ritmáli? Það virðist ekki skipta neinu máli hvort það er inni í miðri málsgrein eða í fyrirsögn en þessi „ólöglegi" stafur er farinn að sjást oft og víða í Morgunblaðinu í dag og þá finnst mér nú full langt geng- ið. Ungir krakkar sem eru að byrja að lesa þekkja ekki þennan staf því það er fyrir löngu hætt að nota hann í íslenskum kennslubókum. • Það hlýtur því að vera svo, að Morgunblaðið sé fullt af stafsetn- ingarvillum upp á hvern einasta dag, en eins og flestir vita þá var z kippt út úr ritmálinu með löggjöf sem verður að teljast alveg einstakt og að mínu mati hið besta mál. Eg vonast eftir svari hið fyrsta. Leifur Itrekun: Hvar er Snúlla? Öðru sinni lýsa áhyggjufullir að- standendur eftir læðunni Snúllu. Snúlla er fimm og hálfs árs gömul. Vörpuleg kisa, stórvaxin, blágrá og hvít á feldinn. Snúlla var með rauða hálsól. í ólinni voru tvær bjöllur en merkispjald var farið í sundur. Snúlla hvarf frá heimili sínu, Þúfu- seli 4 í Breiðholti, um kl. 9 sunnu- dagskvöldið 8. september. Þeir sem hafa séð til Snúllu eru vinsamlega beðnir um að hringja í síma 77644. Fólk vestast í Seljahverfi og í Kópa- voginum við Reykjanesbraut er sér- staklega beðið um að leita á neðri hæðum og í bílskúrum. Þessir hringdu ... Sakna „Jakans“ Snjólaug hringdi: Ég sakna bókarinnar „Jakans“, þ.e.a.s. endurminningar Guðmundar J. Guðmundssonar. Þetta eintak sem ég á er merkt mér með nafni og símanúmeri. Ég lánaði Lilju bókina þegar hún lá á Landakotsspítala í fyrrasumar á stofu 104 í rúmi út við gluggann. Þessi bók er mér mjög kær vegna þeirra atvika og aðstæðna sem urðu þess valdandi að ég eignaðist hana. Mér þætti vænt um að henni yrði skilað. Vinsam- legast hafið samband í síma 612163. Hundur gefins 10-11 mánaða gömul tík fæst gefins. Tíkin er af skoskum og íslenskum og einnig labrador uppruna. En nánari upplýsingar gefur Ingibjörg í síma 96-51381. Villur í Morgunblaði Húsmóðir í Austurbænum hringdi. Hún vildi benda á nokkrar misfellur f Morgunblað- inu. Þar hefði nýlega verið sagt að „Jóhanni langaði til“. Einnig hafði konan orðið fyrir því að ekki væri hægt að leysa kross- gátur í blaðinu öðruvísi heidur en að breyta þátíð í nútíð. Lausn, „var til ama“ ætti að vera angr- aði, ekki angrar. Vondir yegir Leó M. Jónsson hringdi og vildi vekja athygli á ástandi vega syðst á Reykjanesskaga. Þetta svæði er kallað Reykjanesfólks- vangur og Náttúruverndarráð hefur réttilega bent fólki á þetta svæði til útvistar og reynt að bæta aðstöðu fólks, t.d. komið upp almenningssalernum við Reykjanesvíta. Þetta væri vel gert. - En það væri ekki vel að vegunum staðið. Afleggjarinn að Reykjanesvita væri illfær fólksbílum og viðhald vegarins hefði sjáanlega ekkert verið. Hið sama verði að segjast um veginn frá Grindaivík til Krýsuvíkur. Þetta væri falleg og skemmtileg leið og umferð því mikil og vax- andi. Þess vegna væri ástand þessarar leiðar óskiljanlegt. Vonandi yrði bætt úr þessum ósköpum sem fyrst. Góður matur Ásta J. Barker hringdi: Hún er ánægð með veitingastaðinn „Mamma Rósa“ í Hamraborg- inni. Maturinn væri mjög góður og vel útilátinn. Það væri ódýrt að borða á þessum veitingastað og síðast en ekki síst, starfsfólk- ið veitti persónulega og góða þjónustu sem væri til eftir- breytni. Hurðaskellir Rúmliggjandi kona hringdi: Konan vildi taka undir þær að- finnslur sem birst hafa í Morg- unblaðinu vegna slæmrar um- gengni og sóðaskapar borgar- anna. En það væri sýnt tillits- leysi á fleiri sviðum. Hún byggi í fjölbýlishúsi og hún fengi ekki betur heyrt en að sá leiði jóla- sveinaháttur að skella hurðum væri orðinn alsiða. Heyrðist sér og sýndist að foreldrar væru ekkert betri en börnin í þessum efnum. Þetta væri óskaplegt til- litsleysi sem þar að auki færi illa með hurðirnar. V ífilsstaðavegur Einar Vilhjálmsson vill vekja athygli á mishæð við gatnamót Vífilsstaðavegar og Stekkjaflat- ar. Það væri greinilegt að Vífils- staðavegurinn lægi lægra en Stekkjaflötin. Þetta væri til lýta og einnig væri hætt við að þarna yrði snjókista í vetur. Spurning væri hvort þarna hefðu átt sér stað verkfræðileg mistök við kostnaðarsama vegafram- kvæmd. Ef svo væri, hver bæri þá ábyrgðina? Svefnlyfin Ragnar Halldórsson hringdi til að svara fyrirspurn Júlíusar í Velvakanda um hvaða svefnlyf hann og kona hans nota. „Það er að sjálfsögðu mat heimilis- læknis á hverjum stað, hvað hann ráðleggur hveijum og ein- um varðandi svefnlyf. Við hjónin notum ekki sömu tegund.“ HÖGNI HREKKVÍSI ,, EF þÚ HEYRIR í þBSSOAI AlhLMGJOLLUAl, þypiR Þae> að hann þwRFTvwsr hjAlpar." Víkverji skrifar Eftir viku sýnir íslenzka Óperan Töfraflautuna eftir Mozart. Það verður spennandi að sjá, hvern- ig til tekst að þessu sinni en þetta er í annað sinn, sem óperan sýnir Töfraflautuna. Eins og fram kom í menningarblaði Morgunblaðsins sl. laugardag sýndi óperan þetta sama verk haustið 1982 og þá söng Ólöf Kolbrún Harðardóttir hlutverk Pamínu eins Og hún gerir nú. Raunar var það ekki fyrsta sýn- ing á Töfraflautunni hér á landi. Þjóðleikhúsið setti þessa óperu upp um jólin 1956 og þá söng Þuríður Pálsdóttir það hlutverk, sem Ólöf Kolbrún hefur nú með höndum. í þeirri sýningu kom við sögu sænska óperusöngkonan Stina Britta Me- lander, sem var I hlutverki Nætur- drottningarinnar. Minnist Víkveiji þess að hafa heillast mjög af söng hennar á þeim tíma. Hún hafði raunar sungið á sviði Þjóðleikhúss- ins tveimur árum áður og kom svo aftur við sögu nokkrum árum síðar í hlutverki Gildu í Rígólettó. Ánægjulegt er, að óperan skuli fara af stað með slíkum krafti snemma á þessu hausti og lofar það góðu um framhaldið. xxx Af blaðafréttum mætti ætla, að forystumenn hins nýja hægri flokks í Svíþjóð, sem vann umtals- verðan sigur í kosningunum um daginn, séu hálfgerðir trúðar. Varla á það þó við um annan þeirra, Wachtmeister að nafni. Hann var nefnilega aðalforstjóri sænska ál- fyrirtækisins Granges, sem við ís- lendingar eigum m.a. í samninga- viðræðum við um byggingu álvers í Keilisnesi, ef marka má fréttir bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal. Wachtmeister lét af þessu starfi um miðjan síðasta áratug og skrifaði þá nokkrar bækur um sænska velferðarkerfið jafnframt því, sem hann stóð í fyrirtækja- rekstri. Bækur hans urðu met- sölubækur ogsegir bandaríska dag- blaðið, að hann hafi um skeið leitað leiða til þess að nýta sér vinsældir sínar til að koma á fót nýrri stjórn- málahreyfingu. Það hefur bersýni- lega tekizt býsna vel. xxx Yíkverji sér ástæðu til að hafa orð á skemmtilegu sjónvarps- viðtali við Harald Matthíasson, sem sýnt var í ríkissjónvarpinu sl. laug- ardagskvöld. Þar kom glögglega í ljós, að enn eru til sérstæðir og sterkir persónuleikar í þessu landi. Haraldur Matthíasson er mikill fjallamaður og hefur ferðast um landið allt svo að segja. Þótt hann sé nú háaldraður eru ekki mörg ár síðan hann gekk í kringum Lang- jökul til þess að undirbúa árbók um það svæði. í viðtalinu kom fram, að hann hefur aldrei til útlanda komið vegna þess, að hann hefur jafnan kosið að kynnast sínu eigin landi betur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.