Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
13
íslenska hljómsveitin
__________Tónlist______________
Jón Ásgeirsson
Haldið var upp á 10 ára starfsaf-
mæli íslensku hljómsveitarinnar, sl.
sunnudag, með tónleikum í Bú-
staðakirkju. Á efnisskránni voru
eingöngu íslensk tónverk en það
hefur verið eitt helsta markmið for-
svarsmanna hljómsveitarinnar að
flytja ný verk, sem mörg hver hafa
einnig verið samin að ósk þeirra.
Tónleikarnir hófust á Fimm lög-
um fyrir kammersveit, eftir Kar-
ólínu Eiríksdóttur, en það verk var
samið fyrir íslensku hljómsveitina.
Verkið er mjög einfalt og að mestu
einraddað og því átakalítið. Þarna
brá fyrir stefbrotum sem minna á
íslensk þjóðlög. íslensku þjóðlögin
voru hins vegar efniviðurinn í verki,
sem ber nafnið Hræra og er eftir
Þorkel Sigurbjömsson. Útfærsla
þjóðlaganna var öll hin besta unnin
og á köflum smakkaðist þessi
„hræra“ ágætlega.
Oktett eftir Hróðmar I. Sigur-
bjömsson var þriðja verkið en í
þessu nemendaverki, sem höfund-
urinn endurvann síðar, gat að heyra
kontrapúntisk vinnubrögð, var-
færnislega unnin en vel hljómandi.
Þijú einsöngslög eftir Áma Björns-
son vom sungin af Sigurði Braga-
syni og önnur þijú eftir undirritað-
an, sem Elísabet F. Eiríksdóttir
söng og var frammistaða þeirra
beggja hin ágætasta. Undirleikari
söngvaranna var Þóra Fríða Sæ-
mundsdóttir.
Stig fyrir Stokkhólm eftir Leif
Þórarinsson og Adagio eftir Jón
Nordal voru lokaverkefni tónleik-
anna. Bæði verkin em fallega gerð
og góð tónlist. Það sem í heild ein-
kenndi tónleikana var að nokkuð
vantaði víða á að verkin væru nægi-
lega vel æfð, sem kom sérstaklega
fram í verki Jóns Nordal en Adagio
er fínofið mjög að allri gerð og því
vandasamt í flutningi. Ekki væri
rétt að kenna stjómendunum að
öllu leyti um það sem miður fór,
því líklega hefur ekki verið auðvelt
að skapa öllum nægan tíma til æf-
inga.
Auk þess sem fyrr er getið um
markmið forráðamanna hljómsveit-
arinnar, hafa íslenskir hljómsveitar-
stjórar komið nokkuð við sögu og
á tónleikunum, auk Guðmundar
Emilssonar, stjómuðu þeir Guð-
mundur Óli Gunnarsson, Öm Ósk-
arsson og Hákon Leifsson. Fórst
■ ERIK Skyum-Nielsen heldur
fyrirlestur í fundarsal Norræna
hússins þriðjudaginn 24. september
kl. 20.30 og nefnir „Tilstanden
Danmark. Samfundsbilleder i den
nyeste danske prosa.“ Erik
Skyum-Nielsen lauk magisterprófí
í norrænum bókmenntum 1974 og
kom þá til Islands og var sendikenn-
ari í dönsku við Háskóla íslands á
ámnum 1974-1978. Erik Skyum
starfar nú hjá konunglega bóka-
safninu í Kaupmannahöfn við að
gera skrá yfir þýðingar á dönsku á
sígildum bókmenntum annarra
þeim öllum það vel úr hendi og
gott til þess að vita, að upp er að
vaxa kynslóð hljómsveitarstjóra. Sá
verkþáttur hefur á undanförnum
ámm aðallega verið í höndum er-
lendra kunnáttumanna og það tekur
tír i að vinna slíkri breytingu fylgi,
eii.s og á öllum öðrum sviðum, að
ekki sé nauðsynlegt að sækja allt
sitt til erlendra verkmanna.
íslenska hljómsveitin hefur lagt
sitt fram til að efla með mönnum
framsýni og trú á, að íslendingar
hafí eitt og annað þar fram að
færa, er lýtur að tónlist og þó tíu
ár séu ekki langur tími, hefur þar
ýmislegt færst til sem áður var fast
niður njörfað. Fyrir það skal for-
ráðamönnum íslensku hljómsveit-
arinnar þakkað og óskað til ham-
ingju með þá vörðu, sem þeim hef-
ur tekist að hlaða á þunggengnum
villustíg listarinnar.
landa. Hann er ritstjóri tímaritanna
Bogens verden og Den blá port, en
auk þess er hann bókmenntagagn-
rýnandi dagblaðsins Information.
Þá er hann einn af fremstu þýðend-
um Dana sem þýðir íslenskar bók-
menntir og hefur m.a. þýtt bækur
Einars Más Guðmundssonar. Hann
er prófdómari í dönsku og íslensku
við Kaupmannahafnarháskóla og
háskólann í Árósum. Erik Skyum-
Nielsen hefur skrifað nokkrar bæk-
ur um bókmenntir, m.a. um íslensk-
ar nútímabókmenntir.
Ræðumennska og mannleg samskipti.
Kynningarfundur
Verður haldinn fimmtudagskvöld kl. 20:30 að
Sogavegi 69, gengið inn að norðanverðu.
Námskeiðið getur hjálpað þér að verða betri '
ræðumaður og þjálfað þig í mannlegum sam-
skiptum. Lífskrafturinn verður meiri og þú
heldur áhyggjunum í skefjum og byggir upp
meira öryggi. Allir velkomnir.
, . ._ Fjárfesting í menntun
skilar þér arði ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 812411
0
STJORNUNARSKOLINN
Konrað Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiðin"
Búnaður í SUBARU LEGACY
er m.a.
Sítengt fjórhjóladrif og hótt og
lógt drif.
I ó ventla vélar, l .8 eða 2.2L
14 tommu felgur. Dekk: 14x185.
SjólfstæS gormafjöSrun ó hverju
hjóli.
Fimm gíra handskipting eóa 4ra
gíra sjólfskipting.
Aflstýri og veltistýri.
Somlæsing í hurðum og
afturhlera.
Rafdrifnar rúSur meS
öryggislæsingum.
B i I
Rafdrifnir speglar.
HöfuSpúðar ó aftursætum.
UpphituS afturrú&a meS
rú&uþurrku og sproutu.
Þvottasprautur ó ökuljósum.
Aflhelmar, diskabremsur.
"Hill Holder" samtenging bremsu
og kúplingar í brekku.
Útvarpsloftnet og hótalarar í
hur&um.
Hæðarstilling ökuljósa I
mælaborSi.
...og þú kemst á toppinn.
VERTU SAMFERÐA!
Ingvar
Helgason hf
Sævarhöföa 2
sími 91-674000