Morgunblaðið - 24.09.1991, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
15
Morgnnblaðið og frelsi
Eystrasaltsríkjanna
eftir Jóhann J.
*
Olafsson
Ég var langt innan fermingu
þegar íslendingar lýstu yfir fullu
sjálfstæði á Þingvöllum árið 1944.
Þetta var mikil gleði- og hátíð-
ardagur um land allt. Margt lagð-
ist á eitt við að gera þennan at-
burð gleðilegan. íslendingar höfðu
sloppið betur frá hörmungum
styijaldarinnar en aðrar Evrópu-
þjóðir og mildar framfarir höfðu
orðið í landinu á stríðsárunum.
Þjóðin gekk því full sjálfstrausts
á móti framtíð sinni. Eitt skyggði
þó á. Örlög Eystrasaltsríkjanna,
sem innlimuð höfðu verið í Sov-
étríkin með hervaldi fjórum árum
áður, eða 1940. Þijár smáþjóðir
með sína tungu, menningu og trú-
arbrögð, sem höfðu fengið fullt
sjálfstæði 1918.
Ég held að flestir íslendingar
hafi sett sig í spor þessara þjóða
og spurt sjálfa sig: Er einnig hægt,
einhvem tíma í framtíðinni að fara
svona með okkur? Flestir góðir
menn vonuðu að ástand þessara
ríkja yrði skammvinnt og þau öðl-
uðust sjálfstæði sitt á ný.
En tíminn leið og ekkert gerðist
nema neikvætt. Öflugsta þjóð
Norðurlanda, Svíar, viðurkenndu
yfirráð kommúnista strax. Ég las
eftir breskan stjórnmálamann fyr-
ir u.þ.b. 20 áram hans álit, að sjálf-
sagt væri „praktískast“ og mest
raunsæi í því að þessi þijú ríki
væra undir yfirráðum Sovétríkj-
anna og undir þeirra áhrifum.
Harold Wilson forsætisráðherra
Breta gaf þau upp á bátinn í sinni
tíð og ráðstafaði gullforða þeirra,
sem Bretum hafði verið trúað fyr-
ir.
En allan þennan tíma minntist
ég þess að Morgunblaðið birti
grein eftir grein, þar sem minnt
var á kúgun þessara ríkja og hún
fordæmd. Aldrei var útlitið svo
slæmt að blaðið stæði ekki dyggan
vörð um rétt þessara þjóðatil sjálf-
stæðis og fordæmdi kúgun Sovét-
manna. Morgunblaðið átti jafnan
í harðvítugum deilum við Þjóðvilj-
ann um þessi mál.
Við undirritun Helsinkisáttmál-
ans fullyrti utanríkisráðherra okk-
ar, Geir Hallgrímsson, að réttur
Eystrasaltsríkjanna til sjálfstæðis
yrði ekki fyrir borð borinn. Nú,
þegar þessar þjóðir þakka íslend-
ingum fyrir stuðning sem þær telja
að hafí ráðið úrslitum, er rétt að
minnast skeleggrar baráttu Morg-
unblaðsins og þakka fyrir, að það
hélt alltaf vöku sinni.
Ef einarðlegs málflutnings þess
.. JA NU SKIL EG
lim
TUNGUMALA
HEXAGLOT
ERT ÞÚ AD FARA í FERDALAG
EOA í TUNQUMÁLANÁM ?
Ú
ÍSLENSKA. DANSKA. ENSKA,
FRANSKA. ÞÝSKA, SPÆNSKA
ALLT (SÖMU TÖLVUNNI.
YFIR 3000 ORÐ OG ORÐA-
SAMBÖND Á HVERJU HINNA SEX
TUNGUMÁLA SEM TÖLVAN BÝR ÝFIR
UM LAND ALLT
„En allan þennan tíma
minntist ég þess að
Morgunblaðið birti
grein eftir grein, þar
sem minnt var á kúgun
þessara ríkja og hún
fordæmd.“
hefði ekki notið við allan tímann,
þar sem aldrei var hvikað, er óvíst
að málefni Eystrasaltsríkjanna
hefðu átt jafn greiðan aðgang að
íslendingum á örlagastundu.
Höfundur er formaður
Verslunarráðs íslands.
Krakkar - krakkar
Spennandi námskeið fram á vor í leik-
list, dansi, söng, slökun, framsögn, fram-
komu, kurteisi, borðsiðum og vinnu með
liti. Við bökum, lesum og teiknum.
Unnið verður úr hinum frábæru barna-
bókum, sem Vaka-Helgafell gefur út, og
Gáski segir frá.
Sett verður upp leikrit, sem við sýnum í vor.
Kennt verður frá kl. 8-12 og 13-17.
Örfá pláss laus.
Innritun í síma 677070.
Jóhann J. Ólafsson
Mínúta til stefnut
Minolta til taks!
Minolta er harðsnúið lið Ijósritunarvéla og í þeim hópi
finnur þú örugglega eina tegund sem hentar þér. Hraði,
hleðsla, heftun og flokkun — allt eftir þínu höfði.
Minolta vélarnar eru ríkulega útbúnar sjálfvirkum
aðgerðum sem gera notkun þeirra auðveldari en áður
hefur þekkst:
Sjálfvirkt Ijósop og „Micro Toning System" vinna
saman og tryggja skýra og hnökralausa Ijósritun frá
fyrsta eintaki til þess síðasta.
Minolta súmlinsuljósritunarvélarnar finna sjálfkrafa
rétta pappírsstærð og hlutfall stækkunar eða minnkunar
út frá því sem á að Ijósrita.
Litljósritunarvélarnar eru jafn fljótar með einföld
tveggja og þriggja lita afrit og einlit.
Innbyggt minni sparar bæði tíma og fyrirhöfn.
Með því að geyma allt að 10 algengar skipanir er
Ijósritunarvélin alltaf tilbúin.
Mikið úrval er tij af aukabúnaði fyrir
Ijósritunarvélarnar og má koma honum fyrir á mjög
auðveldan hátt.
Það tekur tæpa mlnútu að sannfærast um yfirburði
Minolta!
Einföld. Klár. — Einfaldlega klár!
- r
4Úcpm
li
lOcpm
JScpm
cpm = Eintök á mínútu
( copies per minute)
MINOLTA
Ekiaran
Skrlfstofubúnaður
•SÍÐUMÚLI 14 »S(MI (91) 813022