Morgunblaðið - 24.09.1991, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
27
Miðausturlönd:
Friður ekki tryggð-
ur þótt ráðstefna
verði samþykkt
Nikosíu. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur á sex
mánuðum náð meiri árangri í viðleitni sinni til að koma á friði
milli araba og ísraela en flestir höfðu þorað að vona. Hann hef-
ur nýtt sér vel þau áhrif sem Bandarikin hafa vegna stöðu sinn-
ar sem eina raunverulega risaveldið, eftir að Sovétríkin lögðust
á banasæng. Deiluaðilar hafa gert tilslakanir sem fyrir fáum
árum hefðu verið taldar óhugsandi en mörg ljón eru enn í vegin-
um og margir stjórnmálaskýrendur álíta að erfiðasti hjallinn
verði enn framundan þótt friðarráðstefna verði að veruleika í
næsta mánuði.
Aðaldeilumálið er eftir sem áð-
ur staða hernumdu svæðannna;
vesturbakka Jórdan, Gazaspild-
unnar og Golanhæða, en þessi
svæði hemámu ísraelar í sex daga
stríðinu 1967. Margt hefur þó
áunnist og þróunin hefur verið
sem hér segir í málamiðlunarvið-
ræðum Bakers:
•Palestínumenn virðast hafa
samþykkt í grundvallaratriðum
að þeir fái ekki að hafa sjálfstæða
sendinefnd á ráðstefnunni en eigi
fulltrúa í nefnd Jórdana.
•Frelsissamtök Palestínumanna
(PLO) hafa sætt sig við að félag-
ar í samtökunum verði ekki meðal
fulltrúa Palestínumanna.
•ísraelar hafa árum saman hafn-
að öllum hugmyndum um fjölþjóð-
lega friðarráðstefnu en segjast
nú taka þátt í henni að uppfylltum
nokkrum skilyrðum sem arabar
segja reyndar að muni grafa und-
an árangri ráðstefnunnar. Sam-
kvæmt tillögum Bakers mun ráð-
stefnan ekki geta neytt aðila til
samninga og eftir að hún verður
sett verður ráðstefnunni strax
breytt í tvíhliða viðræður Israela
við hvert einstakt nágrannaríki.
Hún mun koma saman á ný ef
öll j)átttökulöndin samþykkja það.
• Israelar sætta sig við að fulltrú-
ar frá Sameinuðu þjóðunum (SÞ)
og Evrópubandalaginu hafi
áheyrnarrétt. Arabar láta sér það
duga en kröfðust áður að SÞ stæði
fyrir ráðstefnunni og grundvöllur
viðræðnanna yrði ályktanir ör-
yggisráðsins nr. 242 og nr. 338
sem kveða á um brottflutning
herliðs ísraela frá hernumdu
svæðunum gegn því að ísrael
verði tryggð örugg landamæri.
Bandaríkin og Sovétríkin eru
formlega ábyrg fyrir fyrirhugaðri
ráðstefnu í sameiningu.
Reuter
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, og forseti þings Palestínumanna,
Sheik Abdelhamid al-Sayeh, á leið til þings í gær í Algeirsborg.
•Arabar hafa fallið frá kröfunni
um að hætt verði við áform um
aukna búsetu gyðinga á hern-
umdu svæðunum áður en ráð-
stefnan hefjist. Svo getur jafnvel
farið að Israelsstjórn leyfi nýtt
landnám meðan á ráðstefnunni
stendur.
ísraelar neita að yfirgefa
hernumdu svæðin
PLO heldur enn fast við þá
kröfu að samtökin fái að tilnefna
menn í fulltrúahóp Palestínu-
manna, þótt ekki verði um PLO-
félaga að ræða og jafnframt að
einhverjir fulltrúanna verði frá
Austur-Jerúsalem. ísraelar hemá-
mu borgarhlutann, sem byggður
er aröbum að mestu, árið 1967
en em sammála um að láta hann
aldrei af hendi.
Arabískir andstæðingar friðar-
ráðstefnu á þeim nótum sem Ba-
ker leggur til segja að niðurstaðan
verði aðeins tvíhliða samningar
af svipuðu tagi og ísraelar og
Egyptar gerðu með sér 1979.
Sambúð ríkjanna tveggja tók
stakkaskiptum en ekkert þokaðist
í málum Palestínumanna þrátt
fyrir fjölmarga fundi ríkjanna um
þau. Israelar buðust til að leyfa
Palestínumönnum að annast dag-
lega stjórnsýslu á hernumdu
svæðunum en þverneituðu að
draga herinn á brott og lögðu
áherslu á stefnu sína með því að
efna til landnáms gyðinga á svæð-
unum.
Tadzhikistan:
Kommúnistar
fá starfsleyfi
Moskvu. Reuter.
ÞING Sovétlýðveldisins Tadzhik-
istan setti í gær neyðarlög í öllu
lýðveldinu þar til 1. janúar á
næsta ári og aflétti banni við
starfsemi kommúnistaflokksins.
Það knúði jafnframt starfandi
forseta lýðveldisins, Kadreddin
Aslonov, til að segja af sér.
Forsetinn hafði bannað starfsemi
kommúnistaflokksins í lýðveldinu
eftir valdaránstilraun sovéskra
harðlínukommúnista og gefið út til-
skipun um að eignir hans yrðu gerð-
ar upptækar.
Þingið afnam bannið við starf-
semi kommúnistaflokksins, en það
hafði að sögn sovésku fréttastof-
unnar TASS ýtt undir að mótmæl-
endur réðust á styttur af Vladímír
Lenín í höfuðborginni, Dushanbe.
TASS sagði að 10.000 manns hefðu
komið saman við þinghúsið í gær
til að mótmæla samþykktum þings-
ins.
♦ ♦ t----
Bretland:
„Fimmti mað-
urinn“ játar
á sig njósnir
Lundúnum. Reuter.
FYRRUM háttsettur embættis-
maður í bresku leyniþjónustunni,
John Cairncross, hefur viður-
kennt að hafa njósnað fyrir Sov-
étmenn, að sögn breska blaðsins
Ma.il on Sunday á sunnudag.
Sjö helstu iðnríki heims:
Bandaríkjamenn fara fram á
sérstakan fund um Sovétríkin
Washington, Lundúnum. Reuter.
RÁÐAMENN í hinum vestræna heimi reyna nú allt hvað þeir geta
á bak við tjöldin til að forða Sovétmönnum frá því að lenda í
vanskilum með 70 milljarða dollara (4.200 milljarða ÍSK) erlendar
skuldir sínar. Nicholas Brady, fjármálaráðherra Bandaríkjanna,
hefur farið fram á að fjármálasérfræðingar sjö helstu iðnríkja
heims hittist á sérstökum fundi til að ræða efnahagsörðugleika
Sovétmanna.
Að sögn bandarískra embættis-
manna eru líkur á að fundurinn
fari fram í Washington í næstu
viku, þrátt fyrir að fundur sjö
helstu iðnríkjanna verður haldinn
í Bangkok 12. október, áður en
ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins og Alþjóðabankans fer fram.
Brady hefur lagt til að Sovétríkin
sendi fulltrúa á fundinn 12. októ-
ber og Moskvustjómin hefur þegar
samþykkt það.
Háttsettur bandarískur emb-
ættismaður sagði í samtali við
Eeutere-fréttastofuna að Sovétrík:
in vanti á bilinu tvo til fímm millj-
arða dollara (120 til 300 milljarða
ÍSK) á næstu fjórum til fimm
mánuðum til að. geta staðið í skil-
um með greiðslur af erlendum lán-
um og flutt inn nauðsynjar.
• Fjármálaráðherrar Evrópu-
bandalagsins ræddu á fundi sínum
í Hollandi um helgina um að fjár-
magna matarsendingar til Sov-
étríkjanna frá ríkjum Austur-Evr-
ópu. Þannig væri hægt að styðja
við bakið á landbúnaði Austur-
Evrópulanda og hjálpa Sovét-
mönnum um leið.
• Breskir bókaútgefendur til-
kynntu á sunnudag að þeir ætluðu
að senda eina milljón bóka til Sov-
étríkjanna, þar sem þeim verður
dreift um bókasöfn víðsvegar um
landið. Þessar bókasendingar eru
þegar hafnar og verður lögð
áhersla á að senda hagnýt upp-
flettirit, þótt bækur um heim-
speki, sagnfræði og bókmenntir
verði innan um.
• Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti
gaf á laugardag út tilskipun þess
efnis að hermenn frá Eystrasalts-
ríkjunum sem gegna herskyldu
verði lausir undan henni í lok
næsta mánaðar, að sögn TASS-
fréttastofunnar. Ekki er vitað hve
margir menn frá löndunum eru í
hernum, en viðbrögð þaðan við
herkvaðningartilkynningum hafa
verið dræm upp á síðkastið.
Cairncross er 78 ára að aldri og
býr nú í Frakklandi. Hann sagði í
viðtali við blaðið að hann hefði unn-
ið fyrir Sovétmenn í síðari heims-
styijöldinni og veittþeim upplýsing-
ar sem hefðu gert Rauða hemum
kleift að hrinda árásum þýska hers-
ins..
„Ég ætlaði alltaf að hætta þessu
eftir stríðið," sagði hann. „Það var
veijandi að vinna fyrir bandamenn
en að halda þessu áfram í kalda
stríðjnu er annar handleggur."
Vangaveltur höfðu lengi verið
um að Caimcross væri „fimmti
maðurinn“ í njósnaneti Sovétmanna
í Bretlandi ásamt Kim Philby, Don-
ald Maclean, Guy Burgess og Anth-
ony Blunt.
Breski þingmaðurinn Ted Lead-
bitter, sem átti þátt í að afhjúpa
Blunt árið 1979, sagði að bresk
stjórnvöld ættu að krefjast þess að
Cairncross yrði framseldur úr því
játning hans lægi fyrir.
0
Irak:
Eftirlitsmenn SÞ áfram
hindraðir í störfum
Finnland og Sovétríkin;
Nýr vináttusamningur í bígerð
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréUaritara Morgnnblaðsins.
FINNAR og Sovétmenn hyggjast endurskoða hinn 43 ára gamla vin-
áttu og aðstoðarsamning ríkjanna. í yfirlýsingu frá finnska utanrikis-
ráðuneytinu segir að nýi samningurinn verði svipaður þeim er Sovét-
menn hafa gert við Þjóðveija og Frakka.
Bush hvattur til að beita meiri hörku gegn Irökum
Bagdad, Washington, London, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
SADDAM Hussein, forseti Iraks, kallaði sanian um helgina helstu
ráðgjafa sína í varnar- og hernaðarmálum. Fundurinn kemur í kjölf-
ar hótunar Bandaríkjamanna um beita herafli neiti írakar fullri
samvinnu við sendimenn Sameinuðu þjóðanna sem hafa eftirlit með
eyðingu vopna í írak. Samkvæmt vopnahlésákvæðum ber írökum
að veita fyllstu upplýsingar og eyðileggja öll gereyðingarvopn sín.
Gamli samningurinn, sem var
undirritaður árið 1948, hefur þótt
úreltur í nokkur ár og mörgum
Finnum hefur þótt hann vera tákn
um undirokun Finna af hálfu
Kremlveija.
Finnskir fréttaskýrendur telja að
sá samningur sem nú er í deiglunni
verði líklega í styttra lagi enda vilji
Finnar að sem fæstir málaflokkar
verði þar til umfjöllunar. í samn-
ingnum frá 1948 er ákvæði um
möguleika á hernaðarlegu samráði
milli ríkjanna, óski annað hvort
þeirra eftir því. Finnar hafa þegar
lýst yfir að öll hemaðarlegu ákvæð-
in séu ógild og er þess vegna ólík-
legt að um sams konar ákvæði verði
að ræða í nýja samningnum.
Dagblöð í írak birtu myndir af
fundinum á sunnudag en ekkert var
gefíð uppi um hvað Saddam og
ráðgjöfum hans fór í milli né hvort
einhveijar ákvarðanir hefðu verið
teknar.
Undanfarnar tvær vikur hafa
miklar deilur staðið um þyrlur sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa notað til
eftirlitsferða yfir írak. írakar hafa
mótmælt flugi þyrlnanna og segja
það ógna öryggi írösku þjóðarinnar.
Þeir hafa farið fram á að ákveðnum
skilyrðum verði framfylgt við notk-
un á þyrlunum, þar á meðal að ír-
askur embættismaður verði um
borð í þyrlunum, engar loftmyndir
verði teknar og flug verði takmark-
að yfir höfuðborgina. Sameinuðu
þjóðirnar hafa neitað að fallast á
þessi skilyrði.
Utanríkisráðherra íraks, Ahmed
Hussein al-Samaraei, og Jean-
Bernard Merimee, forseti öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna funduðu
á sunnudaginn en árangurinn var
lítill. í gær bárust fréttir um að
íraskir embættismenn hefðu hindr-
að eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð-
anna í að flytja á brott úr byggingu
í Bagdad gögn um kjamorkuvopn.
í kjölfar þessara atburða hafa
tveir háttsettir demókratar á
bandaríska þinginu hvatt George
Bush, forseta Bandaríkjanna, til
þess að grípa til harðra aðgerða
gegn Irökum. Annar þeirra, öld-
ungadeildarþingmaðurinn Albert
Gore, sagði að Bandaríkjamenn
ættu að styðja þá hópa í írak sem
reyna að fella Saddam af stóli.