Morgunblaðið - 24.09.1991, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
OG CHANDOS
í HÁSKÓLABÍÓI
fimmtudaginn 26. sept. kl. 20.00
Edward Grieg:AÖ hausti, forleikur
Gömul, norsk rómansa
Ljóöræn smálög
Leevi Madetoja: Sinfónía nr. 3
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari
Miöaverö
,kr. 500.
Ónúmeruö
sæti.
Chandos
Sinfóníuhljómsveit íslands
Háskólabfói v/Hagatorg. Sfmi 622255.
MIKAEL NÁMSKEIÐ
Dr. José L. Stevens
sálfræöingur og Mikaelmiöill, höfundur Mikael handbókar-
innar, heldur eftirtalin námskeiö í miöstöð Nýaldarsamtak-
anna á Laugavegi 66 dagana 24. - 29. sept. næstkomandi.
1. Þriðjudag 24. sept. kl. 20.00 - 22.00: Mikael talar. Miðlun
beint frá Mikael-aflinu m.a. um atburði líöandi stundar, tímabils-
breytingar framundan (skipti frá tilfinningaskeiði yfir í vitsmuna-
tengt skeið), o.fl. Kynning á eðli og hlutverki Mikaels sem fræöara.
2. Fimmtudagur 26. sept. kl. 19.30 - 22.30: Fyrri líf. Fyrirlestur
og æfingar, sem gera þátttakendum kleift að öðlast innsýn í
sínar fyrri jarðvistir.
3. Föstudagur 27. sept. kl. 19.30 - 22.00: Island séð gegnum
Mikael: Saga, þjóð, samtíð og fortíð. Unnið hefur verið markvisst
að öflun upplýsinga frá Mikael um fjölmarga þætti, sem snerta
íslendinga og búsetu hér. Fyrirlestur/fyrirspurnir/umræður o.fl.
Þátttaka í námskeiðunum tilkynnist til Nýaldarsamtakanna
í símum 627700 og 627701 fyrir 18. september.
_______________Skráning er bindandi.____________
NÝALDARSAMTÖKIN
LAUGVEGI66 - SÍMI627700
Dr. José Stevens mun árita bók sina í versluninni
Betra lífnk. miðvikudag frá kl. 16-18. Þeir, sem
þegar eiga bækur eftir dr. Stevens, er velkomið að
koma með þær til áritunar í verslunina á sama tima.
Hermann K. Guð-
mundsson - Minning
Fæddur 21. febrúar 1916
Dáinn 14. september 1991
Það grunar víst fæsta hvenær
þeir útbúa sig í sína hinstu för. Á
föstudaginn fyrir rúmri viku hélt
Karl Guðmundsson af stað vestur
á Skarðsströnd með dóttursyni sín-
um Viðari og unnustu hans, Brynd-
ísi, hress í bragði. Hann ætlaði að
vera viðstaddur göngur og réttir
hjá barnabörnum sínum. Því alltaf
leið Kalla best þar sem eitthvað var
um að vera, einkanlega ef hann gat
rétt hjálparhönd.
En leiðarlokin voru skammt und-
an. Daginn eftir varð hann bráð-
kvaddur á heimili nafna síns og
dóttursonar, Hermanns.
Hermann Karl var fæddur í Vest-
mannaeyjum 21. febrúar árið 1916,
sonur hjónanna Jóhönnu Þorsteins-
dóttur frá Norðtungu í Borgarfirði
og Guðmundar Auðunssonar frá
Eyrarbakka. Kalli var elstur í sex
systkina hópi og eru nú fjögur
þeirra látin; Svala, Gunnar, Herold
og Karl, en eftir lifa systurnar
Hanna og Kristín.
Kalli ólst upp í Vestmannaeyjum
til 13 ára aldurs og þar hefur hon-
um liðið vel, því oft minntist hann
á uppvaxtarárin þar og kunni frá
mörgu skemmtilegu að segja, eink-
um af sjómönnum. Þau Guðmundur
og Jóhanna fluttu með barnahópinn
til Reykjavíkur og bjuggu fyrst inni
við Ás á Laugavegi. Þar byijaði
Kalli að vinna sem sendill hjá Fisk-
búð Hafliða á Hverfísgötu, skammt
fyrir ofan Hlemm. Á unglingsárun-
um stundaði hann m.a. fiskvinnu
og sjómennsku og síðar hvers konar
byggingavinnu, sem átti eftir að
verða hans aðal lífsstarf. Á ungl-
ingsárum stundaði Kalli knatt-
spyrnu hjá Fram og vann til verð-
launa í 2. og 3. flokki.
Hinn 12. nóvember 1938 kvænt-
ist Kalli móðursystur minni, Brynd-
ísi Björnsdóttur. Hún var fædd í
Reykjavík 4. október 1914, og var
dóttir hjónanna Evlalíu Ólafsdóttur
og Bjöms Guðmundssonar, Njáls-
götu 56. Þau Kalii og Binna eignuð-
ust tvö böm, Eddu, f. 1939, og
Sverri, f. 1944.
Ég átti því láni að fagna að eiga
heima í sama húsi og þau á upp-
vaxtarárunum og það verða ætíð
ógleymanleg ár. Kalli átti bíl og var
óspar á að bjóða okkur krökkunum
í bíltúra. M.a. upp í Mosfellssveit,
þar sem hann byggði sumarbústað-
inn Lyngholt. Mikið leit ég upp til
hans þá og reyndar ætíð síðan.
Hinn 31. júlí 1951 lést Bryndís
eftir erfíða og hetjulega glímu við
skæðan sjúkdóm. Mikill var missir
Kalla og barnanna, því Binna var
einstaklega góð kona og móðir. Það
ber öllum saman um, sem hana
þekktu.
í febrúar 1956 kvæntist Kalli
Kristbjörgu Hallgrímsdóttur frá
Grafargili í Önundarfírði, mikilli
ágætiskonu og lifír hún mann sinn.
Á fímmta áratugnum hóf Kalli
störf við byggingavinnu hjá Brú og
síðar Almenna byggingafélaginu.
Brátt kom í ljós að flest verk léku
í höndum hans, svo verklaginn og
útsjónarsamur var hann. Leið því
ekki á löngu þar til hann var gerð-
ur að verkstjóra við ýmsar bygg-
ingaframkvæmdir, m.a. Laugarnes-
kirkju, Háskóla íslands, Gagnfræð-
askóla Austurbæjar og margar~
fleiri byggingar. Síðar lá leiðin í
virkjanirnar við Sog og Mjólká og
að kolanámunni við Tinda á Skarðs-
strönd, þar sem hann stjórnaði m.a.
sprengivinnu.
Kalli lauk sveinsprófí í pípulögn-
um 1960 og fékk meistarabréf
1964. Á þessum árum starfaði hann
sjálfstætt ásamt Borgþór Jónssyni
félaga sínum og síðar einn.
Á árunum 1965 og 1966 var
hann yfírverkstjóri við uppbygg-
ingu Kísiliðjunnar við Mývatn og
fórst það starf vel úr hendi. Þar
kynntist ég þeim eiginleikum hans,
sem gerðu hann að eftirsóttum
verkstjóra við vandasöm verk. Hann
gat verið mjög hvass ef svo bar
undir, en hlýlegt viðmót og glettni
var þó það sem einkenndi hann
mest, einnig varði hann ætíð þá sem
eitthvað var verið að hnýta í eða
voru á einhvern hátt minna metnir.
Hygg ég að það hafi aflað honum
mestrar virðingar. Síðasta stórverk-
ið sem Kalli tók að sér var sprengi-
vinnan við Búrfellsvirkjun. Fór
hann þangað eftir þrábeiðni verkta-
kanna, þar sem þessi vinna hafði
ekki gegnið sem skyldi. Þar hafði
hann forgöngu um að byggð yrði
sundlaug fyrir starfsemina, sjálf-
Minning:
Egill Jónsson
Fæddur 9. júní 1921
Dáinn 12. september 1991
í dag, þriðjudaginn 24. septem-
ber, kveðjum við hinsta sinni tengd-
aföður minn, Egil Jonsson. Það kom
öllum á óvart að Egill væri eins
veikur og raun bar vitni, því ekki
kvartaði hann. Heldur bar hann
ávallt hag annarra fyrir brjósti og
var alltaf reiðubúinn að rétta þeim
hjálparhönd, sem á þurftu að halda.
Egill fæddist á Kaldbak við
Húsavík 9. júní 1921, og var því
nýlega orðinn sjötugur er hann lést.
Hann var sonur hjónanna Jóns
Jónssonar frá Brekknakoti og Snjó-
laugar Guðrúnar Egilsdóttur frá
Laxamýri. Alltaf var gaman að
spjalla við Egil um uppvaxtarárin
heima í Kaldbak, en hann var núm-
er fímm í röð ellefu systkina. Ávallt
minntist hann áranna heima með
mikilli hlýju, enda hefur oft verið
glatt á hjalla í litla bænum. Og oft
settist heimilisfaðirinn, Jón í Kald-
bak, við orgelið sitt og spilaði ætt-
jarðar- og dægurlög þeirra tíma,
og allur bamahópurinn söng með.
Þar hefur eflaust verið lagður
grunnurinn að þeirri ánægju, sem
Egill hafði alla tíð af kórsöng. Hann
söng lengri með karlakórnum
Þröstum í Hafnarfírði, og síðar með
kirkjukór Víðistaðasóknar.
Það er ánægjulegt að minnast
ferðanna okkar norður í Aðaldal, á
þá staði sem hann unni mest. T.d.
var það hrein unun að sjá Egil og
barnabörnin bregða á leik í fjöru-
borðinu niðri í Gvendarbás. Því
hann var góður afi og félagi barn-
anna.
Egill hafði gaman af því að um-
gangast dýr og var mikill dýravin-
ur. Hann eignaðist hesta fyrir um
tíu árum, sem hann hugsaði vel um.
Hann hafði þá í hesthúsi sínu hjá
hestamannafélaginu Sörla, fyrir
ofan Hafnarfjörð, en í hagagöngu
hjá vinafólki sínu á Tjörn í Biskups-
tungum á haustin. Nokkur síðustu
árin hefur hann farið í göngur fyr-
ir Tjarnarbændur. Reið hann þá á
hestunum sínum inn á Biskupst-
ungnaafrétt og naut þess að vera
þar, í faðmi blárra fjalla, í um viku
tíma. Hann hafði mikla ánægju af
þeim ferðum. En nú, þegar bændur
vitja um fé sitt hittir Egill sinn
góða hirði, Jesúm, sem ber um-
hyggju fyrir honum og okkur öllum.
Og við vitum að Egill er nú í góðum
höndum.
Egill kvæntist 4. október 1947
Birnu Þóru Guðbjömsdóttur og
eignuðust þau þijá syni: Rúnar
Þór, fæddur 1949, kvæntur Svan-
hildi M. Bergsdóttur. Þau eiga þijú
börn, Egil Fannar, Bergdísi Mjöll
og Heiðrúnu Birnu. Guðbjörn,
fæddur 1951, og Siguijón, fæddur
1959.
sagt minnugur þess, hve Gijótagjá
í Mývatnssveit kom í góðar þarfír.
Kalli var ætíð hrókur alls fagnað-
ar á mannamótum og naut þess að
segja sögur sem hann átti auðvelt
með að gæða lífí svo unun var á
að hlýða. Gætti hann þess að meiða
engan í sögum sínum, en lét glettn-
ina ráða ríkju.
Eins og áður sagði eignaðist
Kalli tvö börn, Eddu, sem giftist
Karli Péturssyni og eiga þau fímm-
börn, og Sverri, sem giftur er
Guðnýju Jónsdóttur og eiga þau
þijú börn, barnabarnabörnin eru
orðin níu. Kalli lét sér mjög annt
um fjölskylduna, var ætíð boðinn
og búinn að hjálpa og aðstoða hvern
sem var. T.d. voru afi og amma á
Njálsgötu ætíð þakklát Kalla fyrir
alt það góða sem hann gerði þeim.
Barnabörnin, barnabarnabörnin og
öll önnur börn, sem kynntust Kalla,
höfðu mikið dálæti á honum, enda
var hann einstaklega þægilegur og
góður afi.
Með Karli Guðmundssyni er
genginn einn af þeim mönnum, sem
með verkkunnáttu sinni og stjóm-
unarhæfíleikum hafa lagt sinn skerf
til þeirra miklu framfara, sem hér
hafa orðið á þessari öld.
Við, sem fengum að njóta þess
að þekkja manninn Karl Guðmunds-
son og eiga hann að vini, þökkum
af alhug fyrir liðnar stundir. Minn-
ing hans fylgir okkur um ókomin
ár. Hlýjar samúðarkveðjur til konu
hans, barna og annarra ættingja
og vina. Þeirra er missirinn mestur,
en minningamar bestar og flestar.
Björn R. Lárusson
Egill var glerslípunar- og spegla-
gerðarmeistari. Hann stofnaði fyr-
irtæki sitt, Glerslípunina í Hafnar-
firði, árið 1959, og vann þar við iðn
sína til dauðadags.
Alltaf var gott að leita til hans
með hin ýmsu mál. Og alltaf gerði
hann allt sem hann gat fyrir okk-
ur. Hann var ástúðlegur og bóngóð-
ur og vakti yfír velferð fjölskyld-
unnar.
Nú að leiðarlokum þakka ég
tengdaföður mínum alla umhyggj-
una og elskulegheitin. Ég bið Guð
að blessa sálu hans, og styrkja okk-
ur í sorginni. Blessuð sé minning
hans.
Svanhildur