Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 44

Morgunblaðið - 24.09.1991, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991 Hjónaminning: Þuríður I. Amunda- dóttir — Guðbrand- ur Guðlaugsson Þuríður Fædd 23. júní 1898 Dáin 17. september 1991 Guðbrandur Fæddur 23. júní 1900 Dáinn 26. júní 1949 Ég vil með þessum fátæklegu línum skrifa nokkur kveðjuorð til móður minnar. Ég mun alltaf minn- ast hennar sem mjög mikilhæfrar konu. Hún var fædd fyrir aldamótin og ólst upp í sveitinni sinni, Kambi í Flóa, fram að giftingu, en þá flutt- ist hún ásamt föður mínum, Guð- brandi Gunnlaugssyni, til Reykja- víkur. Þar ólu upp í sátt og sam- lyndi upp 4 dætur af mikilli ástúð og eljusemi, þótt efnin væru oft lít- il. Á þeim tíma, er móðir mín hóf búskap, voru ekki heimilisvélarnar komnar til sögunnar en með mikilli atorku og dugnaði hélt hún alltaf heimilinu tandurhreinu og af mik- illi handlagni og myndarskap útbjó hún fæði og klæði handa okkur öllum. Hún trúði því að eitthvað gott byggi í öllum manneskjum og snéri alltaf öllu til betri vegar. Blessuð sé minning hennar. Auðbjörg. Í dag verður hún elsku amma borin til hinstu hvílu. Fregnin um andlát hennar kom mér ekki á óvart, því um nokkurt skeið var vitað hvert stefndi. Amma Þuríður lést í svefni að morgni þriðjudagsins 17. september eftir að hafa dvalið tæpt ár á Elliheimilinu Grund. Hinn friðsæli endir var táknrænn fyrir lífshlaup hennar, sem einkenndist af einstakri ljúfmennsku og æðru- leysi. Henni fylgdi mikill friður. Þegar ég var lítill drengur og gekk í ísaksskóla var stutt að fara yfir í Stigahlíðina til ömmu og var ég því oft hjá henni. Hún hafði þolinmæði til að svara ótal spurn- ingum og seðja forvitni lítils drengs sem vildi fá skýringar á öllu milli himins og jarðar. Þær minningar eru mér dýrmætar. Nú' í seinni tíð var oft gott að koma í síðdegis- kaffi til ömmu og leita þar vars. Þar kyrrðist fljótt hugurinn og sólin braust í gegnum þungbúin skýin sem hrannast öðru hvoru upp í misveðrasömum hversdagsleikan- um. Amma var barn nítjándu aldar- innar. Hún fæddist í torfbæ á Kambi í Flóa árið 1898 og ólst upp í stórum systkinahópi. Lífsbaráttan var hörð og menntunarmöguleikar litlir. Við, unga fólkið, erum að uppskera eins og kynslóð ömmu hafði til sáð. í velferðarsamfélagi nútímans þar sem sumir gefast upp við minnsta mótlæti eða barma sér yfir örlögum sínum vegna verald- legra smámuna er hollt að horfa niður í blámóðu sögunnar og minn- ast þeirra sem ruddu brautina. Ung fluttist amma til Reykjavík- ur og giftist afa, Guðbrandi Gunn- laugssyni. Þau voru fátæk og hann þurfti að vinna hörðum höndum til að sjá fyrir fjölskyldunni sem óx og dafnaði. Árið 1949 drýgði hann mikla hetjudáð þegar hann bar log- andi málningarpott út úr Hörpu þar sem hann starfaði, en galt fyrir með lífi sínu. Að afa látnum stóð amma á eigin fótum en hún lét ekki sorgina buga sig. Óblíð örlög og erfið lífsbarátta hefur bugað margan manninn en gert aðra sterkari og var amma í hópi hinna síðarnefndu. Hún bjó ekki við veraldlegt ríkidæmi en átti fjársjóð sem hvorki mölur né ryð fékk grandað. Af brunni hlýs hjartalags og manngæsku jós hún fram undir hið síðasta. Aldrei heyrði ég styggðarorð af vörum hennar og rósemi sinni hélt hún hverju sem á gekk. Hjálpsemi hennar og úrræð- asemi var viðbrugðið. Amma lifði langa ævi og naut góðrar heilsu fram undir nírætt. I íbúðinni sinni við Stigahlíð sem hún hafði stritað svo mjög fýrir, bjó hún fram á síðasta haust þó mjög væri farið að draga af henni. Þótt hún hefði fótbrotnað rúmlega áttræð og gengið undir erfiða aðgerð því sam- fara hélt hún góðum kröftum. En stuttu fýrir níræðisafmælið þegar hún var að ganga yfir Miklubraut- ina var ekið utan í hana á mótor- hjóli svo að hún skall í götuna og handleggsbrotnaði. Aldrei var vitað hver ökumaðurinn var því hann stakk af og skildi hana eftir liggj- andi í götunni. Eftir það óhapp dró af henni ömmu. Lífseldur ömmu hlýjaði mörgum og fékk að brenna þar til eldsneyt- ið þvarr og hann kulnaði út af sjálfu sér. I bók sinni „Um ellina“ farast Cíceró svo orð: „ ... öldungurinn deyr þegar fullum þroska er náð. Ég fyrir mitt leyti fagna því og er dauðinn nálgast finnst mér ég kom- inn í landsýn þar sem ég muni inn- an tíðar taka höfn að lokinni langri sjóferð.“ Amma Þuríður er komin heilu og höldnu í höfn að lokinni langri og viðburðaríkri sjóferð um lífshafið. Guð blessi minningu henn- ar. Árni Sigurðsson Mig langar að kveðja „ömniu Þuru“ með örfáum orðum. Allar mínar minningar um ömmu eru góðar. Aldrei bar skugga á. Ég minnist þess sem lítil stelpa að þeg- ar amma kom í heimsókn þá var hún alltaf með eitthvað handa okk- ur systrum. Og síðar þegar ég eign- aðist börn pijónaði hún alla ullar- sokka sem þau áttu og var elsti sonur minn sérlega ánægður með „ömmusokkana sína“. Eins verður mér hugsað til þess þegar hún hafði bakað flatkökur sem hún gaf okkur fyrir jólin. Alltaf var gott að koma til hennar í Stigahlíðina, hjartahlýj- an var þar í fyrirrúmi og létta lund- in hennar ömmu lyfti manni oft upp. Amma þráði hvíldina og var búin að bíða eftir henni. Þegar sonur minn spurði hana fyrir nokkrum árum hvort hún vildi verða 100 ára, sagði amma: „Nei, en ég vona að ég nái að verða 90 ára, þá vil ég fá að fara.“ Nú er amma búin að fá hvíldina sem hún þráði. Hvíli elsku amma Þura í friði. Ditta. Mér er tregt tungu að hræra er ég nú tek mig til að minnast frá- falls afa míns Guðbrands Gunn- laugssonar frá Haakoti í Flóa, og ömmu minnar, Þuríðar Ámunda- dóttur frá Kambi í Flóa, annað er ekki hægt, hún kvaddi þennan heim á hljóðlátan, friðsælan hátt þriðju- daginn 17. september að morgni dags. Fráfall afa míns var ekki jafn friðsælt og hljóðlátt, sem fráfall ömmu minnar, en hann afí dó í júní 1949, af brunasárum. Ég sakna þess en þann dag í dag og að eilífu að hafa ekki fengið tækifæri til að umgangast þennan afa minn og hef ég aðeins það til minningar um hann sem aðrir hafa sagt, þar á meðal hún amma. Ann- að hef ég sem amma gaf mér, nokkrar dagbækur afa, hárlokk og veskið hans, en í því var launadag- bók frá 1935 til 1949. Þegar ég fletti dagbók afa dagana fyrir hinn voveiflega atburð, má sjá aðdrag- andann að örlögum þessa einstaka manns. Þessar dagbækur hafa að geyma íslenskan fróðleik um látlausan lífsstíl þeirra hjóna, bara venjulegt alþýðufólk, sem ekki var mjög flók- inn, en fallegur. í einni dagbók var heimilisgjaldabók fyrir maí 1942. Þar kemur fram dag fýrir dag, hvernig þessi verkamaður og sjó- maður notaði aurana sína meðan frúin, eins og hann ávarpar konu sína í þessum dagbókum, gætti bús og bama. Þetta var keypt 5. maí 1942: (Stíllinn er afa.) „3 kg ýsa kr. 1,80, 1 st. rúgbrauð kr. 1,02,1 st. fransk- Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar fmmort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Landsbyggð hf., Ármúla 5. Viðskíptaleg fyrirgreiðslo og róðgjöf fyrir fólk og fyrirtæki ó londsbyggð- inni og i Reykjavík. Sími 91-677585. Fox: 91-677586. Pósthólf: 8285, 128 Reykjavík. t Bróðir okkar, KARL EMIL KARLSSON, Hrafnístu, Reykjavík, áður til heímilis í Fellsmúla 16, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. septem- ber kl. 15.00. Laufey Karlsdóttir, Oddný Gísladóttir, Bragi Björnsson, Díana Karlsdóttir, Baldur Björnsson. t ÞÓRHEIÐUR SUMARLIÐADÓTTIR frá Ólafsvík, Sunnubraut 22, Kópavogi, verður jarðsungin frá nýju kapellunni í Fossvogi, miðvikudaginn 25. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlega bent á Krabbameinsfélag íslands. Björg Guðmundsdóttir, Ólafur Sveinsson. t Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, Neshaga13, Reykjavík, lést 21. september 1991. Bergþóra Jóhannsdóttir, Jóhann Kristjánsson, Agnethe Kristjánsson, Nina V. Kristjánsdóttir, Garðar Gíslason, Kjartan O. Kristjánsson, Júlíanna Harðardóttir, Sigurður H. Kristjánsson, Guðmundur K. Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR tónlistarkennari, síðasttil heimilis á Háaleitisbraut 107, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25. septem- ber kl. 13.30. Einar Kárason, Þórunn Kristinsdóttir, Kristinn Jón Einarsson, Ingibjörg Einarsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT RUNÓLFSDÓTTIR, Droplaugarstöðum, áður til heimilis í Rauðagerði 59, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 26. september kl. 13.30. Kjartan Hjartarson, Ásdís Finnsdóttir, Geir Hjartarson, Sirrý Jóhannsdóttir, Ingólfur Þórir Hjartarson, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, Kristín G. Hjartardóttir, Jónas Bjarnason. barnabörn og barnabarnabarn. t Kveðjuathöfn um RAGNHEIÐI EIRÍKSDÓTTUR frá Sólbakka i Önundarfirði, fer fram frá Neskirkju í dag, þriðjudaginn 24. sept., Jarðarförin verður gerð frá Flateyrarkirkju á morgun, inn 25. sept. kl. 13.30. miðvikudag- María Ásgeirsdóttir, Laufey Maríasdóttir, Torfi Asgeirsson, Haraldur Ásgeirsson, Önundur Ásgeirsson, og aðrir vandamenn. Hanna Ásg eirsdóttir, Guðrún F. Magnúsdóttir, Valgerður Vilmundardóttir, Halldóra Einarsdóttir, Eva Ragnarsdóttir t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SVEINN BJÖRNSSON forseti Iþróttasambands íslands, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 25. sept- ember kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Minningar- sjóð íþróttamanna og Krabbameinsfélag fslands. Ragnheiður Thorsteinsson, Björn Ingi Sveinsson, Katrín Gisladóttir, Margrét Jóna Sveinsdóttir, Jón Þór Sveinbjörnsson, Geir Sveinsson, Guðrún Arnarsdóttir, Sveinn Sveinsson, Ingigerður Guðmundsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.