Morgunblaðið - 24.09.1991, Qupperneq 56
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991
VERÐ f LAUSASÖLU 100 KR.
Orka frá
Blöndu inn á
byggðalínu
113 megavattstunda orka fór
inn á kerfi Landsvirkjunar í gær
frá Blönduvirkjun og er þetta í
fyrsta sinn sem raforka frá
virkjuninni fer inn á byggðalín-
una. Fyrsta vélin af þremur var
þá „keyrð upp“ og lauk þar með
prófunum á henni sem hófust
síðastliðinn fimmtudag. Jap-
anska fyrirtækið Fuji, sem fram-
leiddi og sér um uppsetningu á
vélunum, á að skila fyrstu vél-
inni rekstrarhæfri 1. október nk.
og verður rafaflsstöðin vígð með
formlegum hætti 5. október.
Frá því að prófanir hófust á
fyrsta hverflinum af þremur sl.
fímmtudag hefur raforkufram-
leiðslan verið 418 megavött. Sjö
Japanar vinna nú að uppsetningu
hinna tveggja vélanna og verður
mi'sta vél tekin í notkun upp úr HH
miðjum desember og sú þriðja 1.
mars. llver vél getui' l'ramleitt allt
að öf> megavöttuin og heildarraf-
orkuframleiöslan því orðið löö
megavött.
(luðnumdur l’étursson staðar-
verkfra'öingur hjá l.andsvirkjun
sagði að enn vau'u um 200 manns I
að störfum við virkjunina en hefðu »
verið 450 þegar mest var í sumar. Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Þegar sjálfri byggingu og uppsetn- . Guðmundur Pétursson staðarverkfræðingur ásamt Tsuboi starfs-
ingu véla er lokið munu 13 manns manni Fuji-fyrirtækisins við fyrsta hverfilinn sem framleiddi í
starfa við rekstur virkjunarinnar. gær 113 megavatta orku.
Ávöxtunarmálið:
Sækjandi krefst allt
að níu ára fangelsis
Segir málið umfangsmesta fjársvika-
mál sem komið hafi upp hér á landi
ATLI Gíslason hrl., sækjandi í
Ávöxtunarmálinu, krafðist þess
í sakadómi í gær að neytt yrði
iagaheimildar til að fara út fyr-
ir refsiramma auðgunarbrota
hvað varðar Pétur Björnsson
og Árniann Reynisson, eigendur
og sljórnendur Ávöxtunar og
sjóða fyrirtækisins, og að þeir
verði dæmdir til þyngstu refs-
ingar sem lög leyfa. Taki dóm-
urinn þessa kröfu til greina
yrði allt að þremur árum bætt
við hámarksrefsivist fyrir auðg-
unarbrot, sem er 6 ára fangelsi.
Atli Gíslason sagði Ávöxtunar-
málið umfangsmesta fjársvika- og
fjárdráttarmál íslenskrar afbrota-
sögu. Bæði vegna þeirrar fjárhæð-
ar, 104 milljónir króna, sem Ár-
mann og Pétur væru taldir hafa
dregið sér og fyrirtækjum sínum
úr sjóðum Ávöxtunar og vegna
þess að þeir hefðu með auglýsing-.
um beitt almenning blekkingum
til að lokka fólk til yiðskipta við
sig. Að því leyti væri málið próf-
mál fyrir íslenska dómskerfið.
Um þátt löggilts endurskoðanda
Ávöxtunar sagði Atli að í saman-
burði við brot hans væru þær sak-
argiftir sem endurskoðandi Haf-
skips hefði verið sakfelldur og
ákærður fyrir hreinir smámunir.
Vetjendur sakborninganna
fjögurra flytja varnarræður í dag
og á morgun en að því loknu verð-
ur málið tekið til dóms, en málið
dæma Pétur Guðgeirsson saka-
dómari og löggiltu endurskoðend-
urnir Sigurður.Stefánsson og Sig-
urður Pálsson.
Sjá nánar um málflutninginn
á miðopnu.
Ríkisvíxilvextir óbreyttir en
bankavíxlar lækka um 3-4%
Engin ákvörðun tekin um hvort vext-
ir verði lækkaðir á ríkisverðbréfum
RAUNVEXTIR ríkisvíxla eru nú mjög háir og hafa ekki lækkað þó
bankavíxlar Landsbanka og Islandsbanka hafi lækkaö um 3-4 pró-
sentustig. Landsbankinn lækkaði vexti sinna bankavíxla fyrir tæpum
hálfum mánuði og Islandsbanki fyrir helgina. Pétur Kristinsson,
framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa, segir að eng-
in ákvörðun hafi verið tekin um vaxtalækkun og hann geti ekki að
svo komnu fullyrt hvort af henni verði. Markaðsaðstæður séu í athug-
un og það verði að tryggja að ríkissjóður fái þetta fé, hann þurfi á
því að halda.
artæki. Þeir væru til skamms tíma
og þó ávöxtunin væri há þá væri
vaxtakostnaðurinn ekki mikill
vegna þess að víxlarnir væru frá
15-120 dögum. Meðan yfirdráttur
ríkissjóðs hjá Seðlabanka væri
svona mikill þyrfti ríkissjóður á
þessum peningum að halda.
Heimsbikarmótið:
Karpov vann
í 1. umferð
ÞRÍR skákmenn, þeir Ana-
toly Karpov, Valeríj Salov
og Ljúbomir Ljúbojevic eru
efstir á Heimsbikarmóti
Flugleiða í skák en þeir
unnu skákir sínar í fyrstu
umferð í gærkvöldi.
Karpov vann Speelman,
Salov vann Jóhann Hjartarson
og Ljúbojevic vann Timman.
Jafnfefli gerðu Beljavskíj
og Portisch, Khalifman og
Chandier, Gulko og Ehlvest,
Ivantsjúk og Nicolic og And-
ersson og Seirawan.
Önnur umferð hefst á Hótel
Loftleiðum klukkan 17.15.
Sjá bls. 4
• • *
Olfushreppur vill kaupa hlut VIS í Meitlinum:
Höfum reynt að losna við
Forvextir ríkisvíxla sem eru til
»45-60 daga eru nú 18,5%, en það
jafngildir 20,58-20,67% ávöxtun.
Forvextir víxla til 60-120 daga eru
17% og þaðjafngildir 18,75-19,13%
ávöxtun. Verðbólga hefur hægt
verulega á sér og spár standa til
þess að verðbólgan verði verulega
minni það sem eftir er ársins. Þann-
ig hækkaði lánskjaravísitala milli
ágúst og september um 0,28% en
það jafngildir um 3% árshækkun.
Landsbankinn lækkaði forvexti
sinna bankavíxla fyrir um 10 dög-
um í 13-14% og Islandsbanki lækk-
aði vexti á bankavíxlum á fimmtu-
^laginn úr 17-18,75% í 13-14,25%.
Pétur sagði að 11-13 milljarðar
hefðu að staðaldri verið útistand-
andi í ríkisvíxlum í sumar og ríkis-
sjóður þyrfti á þessari lánsfjáröflun
að halda. Ákvarðanir um vexti
þyrftu að taka mið af því. Venju-
lega væri útstreymi á fé á haustin
samanborið við sumarið og vaxta-
ákvörðun yrði að taka mið af mark-
aðsaðstæðum.
Hann sagði að mjög vel hefði
tekist til um þessa lánsfjáröflun
ríkissjóðs. Tekist hefði að auka sölu
ríkisvíxla á árinu um 2-5 milljarða,
en hún hefði verið 8 milljarðar um
síðustu áramót og raunar hefði sala
ríkisvíxla stöðugt aukist undanfarin
ár. í árbyijun 1989 hefðu verið
útistandandi 700 milljónir króna og
5 milljarðar í ársbyrjun 1990.
Pétur tók undir að ávöxtun
ríkisvíxla væri nú mjög góð, en
mótmælti því aðspurður að ríkis-
sjóður héldi uppi háum vöxtum með
þessu. Útlánsvextir bankanna væru
mjög háir og miðað við þá væru
þessir vextir ekki óeðlilegir. Vaxta-
munur inn- og útlána bankanna
hefði vaxið og bankarnir rökstyddu
það með því að þeir væru að vinna
upp tap sem þeir hefðu orðið fyrir
fyrr á árinu. Ríkissjóður seldi verð-
tryggð spariskírteini með 7,9-8,1%
vöxtum á sama tíma og ávöxtunar-
krafa húsbréfa, sem væru einnig
ríkistryggð, væri komin yfir 9% og
Landsbankinn seldi verðtryggð
bankabréf með 9-9,1% vöxtum.
Ríkisvíxlarnir væru sveiflujöfnun-
þennan hlut árum saman
- segir Ing-i R. Helgason stjórnarformaður Vátryggingafélags íslands
m Selfossi.
ÖLFUSHREPPUR sendi á sunnudag hraðskeyti til Vátryggingafélags
Islands hf. þess efnis að hann vildi kaupa hlutabréf þess í Meitlinum hf.
í Þorlákshöfn. Vátryggingafélagið á 3,5% hlutabréfa í Meitlinum.
„Við gerum allt sem við getum til þess að halda aflakvótanum hérna
og munum hafa samband og samráð við öll sveitarfélögin á svæðinu
og aðra aðila i þessu máli,“ sagði Einar Sigurðsson oddviti Ölfus-
hrepps. Ingi R. Helgason stjórnarformaður VIS segir að þeir hafi
reynt að losna við þessi hlutabréf
„Stjórn Vátryggingafélagsins
hefur ekki tekið afstöðu til þessarar
óskar Ölfushrepps enda hún nýkom-
in inn á borð hjá okkur,“ segir Ingi
R. Helgason. „Það sem gerist næst
í málinu er að ég mun hafa samband
við Guðmund Malmquist forstjóra
Byggðastofnunar til að kanna hvað
Hlutabréfasjóður hyggst gera í mál-
inu og síðan mun ég leita eftir verð-
hugmyndum hjá Ölfushreppi. Að því
loknu verður málið lagt fyrir stjórn
félagsins."
í máli Inga kemur einnig 'fram
að Vátryggingafélag íslands hafi
árum saman en án árangurs.
síður en svo áhuga á því að lenda í
deilum um flutning á kvóta milli
landshluta en sé jafnframt umhugað
um að koma bréfum sínum í verð.
Þeir hafi fengið þennan 3,5% hlut
sinn upphaflega í gegnum Sam-
vinnutryggingar og þar sem starf-
semi Meitilsins sé fyrirsjáanlega að
stöðvast sé þeim akkur í að losna
við hlutabréfin.
Nokkur útgerðarfyrirtæki í Þor-
lákshöfn og einstaklingar buðu fyrir
þremur vikum fram 120 milljónir í
nýtt hlutafélag sem stofnað væri til
þess að endurskipuleggja Meitilinn
hf. Engin ákveðin svör bárust þess-
um aðilum utan það að þeir voru
beðnir um ýmis gögn svo sem árs-
reikninga. Stjórn Meitilsins sýndi
þessu tilboði samt sem áður áhuga
svo og fulltrúar Olíufélagsins hf.
Með þessu tilboði vildu þessir
heimaaðilar reyna sitt til þess að
kvótinn færi ekki frá staðnum. Þeir
segja að það hafi skotið skökku við
að það næsta sem gerðist var að
KEÁ og Útgerðarfélag Dalvíkur
virtust vera að ná kvóta Meitilsins
norður.
Áhugi Ölfushrepps á hlutabréfum
Vátryggingafélags Islands byggist á
því að hlutur þess er í oddaaðstöðu
hvað meirihlutaákvarðanir snertir
varðandi sölu á aflakvóta Meitilsins
af svæðinu, því Hlutafjársjóður á
rúm 48% hlutafjár.
Sig. Jóns.
Sjá einnig frétt á bls. 24.