Morgunblaðið - 16.10.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.10.1991, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1991 ÍÞRÖMR FOLK ■ WALES gæti sett mark sitt á knattspyrnusöguna í Evrópu með því að vinna þýsku heimsmeistara- na í Niirnberg í kvöld og tryggja sér þar með sæti í úrslitum Evrópu- mótsins í Svíþjóð á næsta ári. Wales, sem-er ein minnsta knatt- spyrnuþjóð Evrópu, hefur þriggja stiga forskot í 5. riðli og þarf að- ^eins eitt stig til að tryggja svo gott sem sætið í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í 34 ár. ■ TERRY Yorath, landsliðsþjálf- ari Walesveija, sagði að þeir hefðu ekkert að óttast í leiknum gegn Þjóðverjum. „Við teflum fram sterkasta liði sem Wales hefur nokkru sinni átt. Það væri gott fyr- ir okkur að ná jafntefli. Ef við næðum að vinna þyrftum við ekki flugvél til að fljúga heim,” sagði Yorath. Ef Wales nær jafntefli þarf liðið aðeins að vinna Luxem- borg í síðasta leiknum til að tryggja sér farseðilinn til Svíþjóðar. ■ ÞJÓD VERJA Rje rð a án Matt- hiasar Sammer, frá Stuttgart, ■'sem er meiddur. Berti Vogts, þjálf- ari þýska liðsins, ætlar ekki að gefa upp byrjunarlið sitt fyrr en rétt fyrir leik. Karlheinz Riedle, sem meiddist í síðustu viku, hefur náð sér og verður með í kvöld. ■ GRAHAM Taylor, landsliðs- þjálfari Englendinga, hefur sagt leikmönnum sínum að það sé nóg að vinna Tyrki með einu marki gegn engu í Evrópuleiknum í dag. En Englendingar búast við stórsigri sinna manna. „Væntingar fólksins ~'*eru miklar og það er ekki okkar mál. Við megum ekki vanmeta and- stæðinga okkar því það kann ekki góðri lukku að stýra,” sagði Tayl- or. Tyrkir hafa slæmar mirmingar frá síðustu heimsókn sinni á Wem- bley, fyrir fjórum árum, er þeir töpuðu 8:0. ■ FRANK Rijkaard, sem lýsti því yfir eftir HM á Ítalíu að hann væri hættur að leika með holienska landsliðinu, hefur snúist hugur og leikur með Hollendingum gegn Portúgal í Rotterdam í kvöld. Hollendingar eru efstir í riðlinum með jafnmörg stig og Portúgalar, en hagstæðara markahlutfall. Leik- urinn hefur því mikla þýðingu fyrir —yliðin þar sem þau eiga bæði aðeins einn leik eftir gegn Grikkjum. ■ JÚGÓSLA VAR leika gegn Færeyingum í Landskrona í Sví- þjóð í kvöld. „A þessum erfiðum tímum í heimalandi okkar eru allir leikir jafn mikilvægir fyrir okkur. Við verðum að ná upp stemmningu hjá leikmönnum sem gæti reynst erfitt við þessar aðstæður,” sagði Ivica Osim, þjálfari Júgóslava. Júgóslavar verða án Darko Pancev og Dragan Stojkovic, sem meidd- ust í æfingaleik gegn 1. deildarliði Zelieznicar á laugardaginn. ■ PÁLL Guðlaugsson, þjálfari Færeyinga, sagði að leikmenn sín- ir væru orðnir þreyttir þar sem þeir væru ekki vanir að leika svo marga leiki á alþjóðlegum vett- vangi. „Við munum þó reyna að gera okkar besta gegn Júgóslavíu, en leikmenn verða mjög fegnir að komast í frí eftir erfitt tímabil,” sagði Páll. KNATTSPYRNA Einsog hver önnur vKleysa - segirformaðurknattspymudeildar Fram um beiðni þess efnis að félaga- skipti ÞorvaldarÖrlygssonarverði könnuð „ÉG li't á þetta sem hverja aðra vitleysu. Félagaskipti Þorvaldar til okkar voru alveg fortakslaus og hann var ekki á neinum samn- ingi við [Nottingham] Forest meðan hann lék með okkur," sagði Halldór B. Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Fram við Morg- unblaðið, í framhaldi af frétt blaðsins í gær um ósk milliþinga- nefndar þess efnis að stjórn KSÍ kanni hvort löglega hafi verið staðið að félagaskiptum Þorvaldar Örlygssonar til Fram í vor, í Ijósi þess að hann væri nú farinn aftur til enska félagsins. Stef- án Konráðsson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir það skoðun sína að löglega hafi verið staðið að málum. Halldór B. Jónsson sagði félaga- skiptin algjörlega fortakslaus, sem fyrr segir, „að undan skildu því að ef Þorvaldur næði að vekja á sér athygli og komast aftur í at- vinnumennsku yrði það gert í gegn- um Forest. Það tókst ekki en sam- komulag tókst milli hans og forr- áðamanna félagsins að hann gerist atvinnumaður hjá þeim aftur.” Akveðið var, þegar Þorvaldur gekk til liðs við Fram, að félagið yrði að afsala sér leikmanninum aftur 3. október, án þess að nokkur greiðsla fengist frá Forest, enda greiddi Fram ekkert fyrir hann á sínum tíma. Löglegt á allan hátt Stefán Konráðsson, fram- kvæmdastjóri Knattspyrnusam- bandsins, sagðist í gær telja ljóst að löglega hefði verið staðið að málum Þorvaldar á allan hátt. Málið hefði verið í höndum enska knattspymusambandsins, það heimilað félagaskiptin og síðan KSI eftir það. „Hann skipti í Fram eftir lögleg- um leiðum og aftur tii Forest eftir löglegaiæ leiðum. Félagaskiptin voru fullkomlega eðlileg,” sagði Stefán, og bætti við að enska knatt- spymusambandið hafa vitað ná- kvæmlega hvernig málið hefði gengið fyrir sig. Stefán sagði mál þetta ekki eins- dæmi — nefndi einnig Guðmund Guðmundsson, leikmann Breiða- bliks, sem stundar nám í Danmörku og er í herbúðum Lyngby í vetur, eins og reyndar sl. vetur. Þegar Þorvaldur Örlygsson fagnar marki sínu gegn Spánveijum á Laugardalsvell- inum fyrir skömmu. Formaður knattspyrnudeildar Fram og framkvæmdastjóri KSí segja allt löglegt varðandi félagaskipti hans mitli Nottingham Forest og Fram. danska sambandið, hefði gefið fé- lagaskiptaheimild hefði KSÍ gert það einnig, með því skilyrði að hann yrði laus málá aftur 15. apríl í vor, þannig að hann yrði orðinn löglegur með UBK á ný þegar Islandsmótið hefst. „Þetta er eins og með Þor- vald. Mér finnst það aukaatriði þó hann hafi verið atvinnumaður,” sagði Stefán. Verður að fá úr því skorið hvort Þorvaldur var laus allra mála segirformaðurnefndarinnar, sem óskaði eftirathugun á félagaskiptum Þorvaldar Lúðvík S. Georgsson, stjórnar- maður í knattspymudeild KR, er formaður umræddrar milli- þinganefndar, sem skipuð var á síðasta ársþingi KSÍ til að fylgj- ast með leikmannasamningum og félagaskiptareglum. Þetta er eft- irlitsnefnd á vegum þingsins til að fylgjast með hvernig til hafi tekist við breytingar á reglum um leikmannasamninga og félaga- skipti, eins og Lúðvík orðaði það í gær, en reglum þessum var breytt á síðasta þingi. Lúðvík sagði í gær að kveikjan að bréfi nefndarinnar væri sú að mönnum léki forvitni á að vita hver staða Þorvaldar væri; hvort hann hefði verið laus allra mála hjá enska félaginu eins og sagt hefði verið. „Menn hafa ekki haft neitt höndunum fyrr en nú þegar það er Ijóst að hann þurfti að mæta þar á æfingu eftir þriðja október. Við teijum að það hljóti að vekja mjög alvarlegar spurn- ingar um að hann hafi ekki verið laus allra mála hjá Nottingham Forest, og því þurfi að fá úr því skorið hvort svo hafi verið eða ekki. Við viljum fyrst og fremst komast að því hvort þama sé ver- ið að skapa fordæmi, og að ekki sé starfað gegn anda reglugerðar- innar. Ef þarna er verið að gera hluti sem menn töldu að ekki væri hægt að gera þarf að laga reglugerðina. Annars gæti þetta hugsanlega verið fordæmi þess að leikmenn séu lánaðir milli landa, jafnt íslendingar sem út- lendingar. Það er ekki leyfilegt hér á landi, en er það reyndar víða á Norðurlöndum. En við bendum á í bréfinu að ef menn vilja leyfa það þá er það mál KSÍ þingsins. En eins og staðan er í dag þá er það ekki Ieyfilegt,” sagði Lúðvík. Fimm menn eru í umræddri milliþinganefnd; Páll Bragason, Stjörnunni, Gunnar Sigurðsson ÍA, Magnús Harðarson, ÍK og Guðmundur Pétursson, fulltrúi KSÍ, auk Lúðvíks og stóðu þeir allir að bréfinu til stjórnar KSÍ. íkvöld Handknattleikur Landsleikur Laugardalshöll: Ísland-Tékkóslóvakía.. ...kl. 20 Körfuknattleikur Japisdeild: Stykkishólmur: Snæfell-Tindastóll ...kl. 20 KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD Grindvíkingar fögnuðu Skokknámskeið 11 Sigurðar Péturs /y? Vetrarskokk Námskeið fyrir alla sem áhuga hafa á skokki og al- mennri hreyfingu fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. 20. okt. Reykjavík íþróttamiðstöð ÍSÍ, Laugardal kl. 10.00-17.30. 27. okt. Halnarljörður, iþróttahúsið Kaplakrika ki. 10.00-17.30. Aðalleiðbeinandi: Sigurður Pétur Sigmundsson, maraþonhloupari Þátttúkugjald: 2 .500 kr. Innifalin gögn, kaffi og léttur hódegisverður Skráning: I seinasta lagi 3 dögum fyrir námskeið í síma 91-626380 (dagur) og 91-657635 (kvöld). .;rf9^j>d OdflR ’íe ► í I33IO.L: - hafa unnið þrjá leiki GRINDVÍKINGAR unnu sinn þriðja sigur í Úrvalsdeildinni í körfuknattleik er þeir lögðu Val að velli 75:72 í Grindavík í gær- kvöldi. Sigurinn hafði með mikilli bar- áttu en leikurinn var í járnum allan tímann og munurinn aldrei inikill. Valur hafði Frímann eitt stig yfír í hálf- Ólafsson leik 39:38 og jafnt skrífar var a öllum tölum upp í 53:53. Þátókst Grindvíkingum að ná 7 stiga for- skoti sem Valsmenn náðu ekki að vinna upp þó naumt hafi verið í lokin. Grindvíkingar fögnuðu mikið í lokin enda að vinna lið sem hefur verið spáð mikilli velgengni í vetur. J’ nbtJ I3J I »I;IJ ' ' 1 J IO„ í röð, en Valsmenn máttu þola enn eitttapið Leikmenn beggja liða sýndu ágætis baráttu en hittnin var frekar slök hjá báðum liðum. Valsmenn sýndu samt í þessum leik að þeir verða ekki auðsigraðir í vetur og þegar leikmenn liðsins hafa náð að stilla strengi sína saman verða þeir skeinuhættir. Grindvíkingar reyndu mikið að halda Franc Booker niðri og tókst það ágætlega og þrátt fyrir að skora mest Valsmanna átti hann mörg misheppnuð skot. Matt- hías Matthíasson var dijúgur fyrir Valsmenn. Heimamenn áttu ágætis spretti í fyrri og seinni hálfleik en duttu niðurþess á miili. Guðmundur Bragason og Dan Krebbs áttu góð- an leik hjá þeim ásamt Bergi Hin- rikssyni sem átti góðan fyrri hálf- leik og Mareli Guðlaugssyni eftir URSLIT Grindavík - Valur 75:72 Iþróttahúsið í Grindavík, Úrvalsdeiidin í körfuknattleik (Japisdeildin), þriðjudaginn 15. október 1991. Gangur leiksins: 0:2, 8:5, 18:15, 22:22, 27:32, 38:39. 40:45, 47:47, 53:53, 60:53, 66:57, 70:69, 75:72. Stig UMFG: Guðmundur Bragason 21, Dan Krebbs 20, Pálmar Sigurðsson 11, Marel Guðlaugsson 11, Bergur Hinriksson 8, Rúnar Arnason 2, Hjálmar Hallgrímsson 2. Stig Vals: Franc Booker 21, Matthías Matthíasson 17, Tómas Holton 12, Ragnar Jónsson 10, Símon Ólafsson 8, Ari Gunnars- son 4. Áhorfendur: 250 Dómarar: Kristinn Albertsson og Krisján .Möllert Dæmdu ágætlega.í heiljluiá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.