Morgunblaðið - 24.10.1991, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991
ÖLL FIMMTUDAGS- OG SUNNUDAGSKVÖLD
• •
'Oínekb:
HVER VERÐUR ÍSLANDSMEISTARI?
Nú fara fram í Ölveri í Glæsibæ
undanrásir í Islandsmeistarakepp-
ninni í KARAOKE, þar sem leitað
er að KARAOKEMEISTARANUM 1991. Á hverju
kvöldi undankeppninnar verður valinn einn söngvari
sem fær viðurkenningarskjal, óvænt verðlaun og
kemst í undanúrslit keppninnar sem verða
sunnudaginn 5. janúar 1992. Þar verða síðan valdir
tíu keppendur sem ásamt Karaokemeisturum
Akureyrar og Vestmannaeyja taka þátt í úrslita-
keppninni sem haldin verður 10. janúar 1992. Vakin
er sérstök athygli á því að keppnin er einungis opin
"amatörum". Aldurstakmark 18 ára.
Skráningargjald 500 kr. Nánari upplýsingar og
skráning í Ölveri eftir
kl. 18.00 og í síma 686220
á áðumeftídum tíma.
Á Bylgjunni fjallar Bjarni
Dagur um keppnina.
keppendur, stílinn og
stælinn í þættl sínum
milli kl. 9-12 virka daga.
Tökum þátt í spennandi landskeppni um Karaoke-
meistarann 1991. Mætum öll og njótum kvöldsins.
ÖLVER
G L Æ S I B Æ
ÞAR SEM HVER SYNGUR MEÐ SÍNU NEFI
mmmim
FERÐASKRIFSTOFÁ
Húsbréf
Breyting
á reglugerð
um húsbréfadeild
o g
húsbréfaviðskipti
Athygli er vakin á því að breyting hefur verið gerð
á reglugerð um húsbréfadeild og húsbréfaviðskipti.
Þeir sem hafa fengið greiðslumat frá fjármála-
stofnunum vegna húsbréfaviðskipta fyrir
9. október 1991, en hafa ekki nýtt sér það til
fasteignaviðskipta fyrir þann tíma, þurfa nýtt mat.
Að öllu jöfnu breytist greiðslumat þeirra þó ekki
sem hafa fengið mat undir 8 milljónum króna.
Fjármálastofnanir sem séð hafa um greiðslumat
vegna húsbréfaviðskipta hafa ákveðið að gefa
viðskiptavinum sínum, sem þess óska, kost á nýju
mati þeim að kostnaðarlausu.
Hlutaðeigandi er bent á að snúa sér til viðkomandi
fjármálastofnunar.
[Sn HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
Ul HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 REYKJAVlK • SlMI 91-696900
Rafvæðing sum-
arhúsahverfa
eftir Stefán
Arngrímsson
Fyrir skömmu birtist í blöðum
fréttatilkynning frá nokkrum aðil-
um sem boða til stofnunar sam-
bands sumarbústaðaeigenda. Hvat-
inn að stofnun sambandsins er
sagður vera að mestu vegna verð-
lagningar Rafmagnsveitna ríkisins
á rafmagnsheimtaugum í sumar-
hús. í fréttatilkynningunni og í fjöl-
miðlum hafa heimtaugargjöldin
verið talin „óheyrilega há”. Vegna
þessara fullyrðinga telja Rafmagns-
veiturnar rétt að koma eftirfarandi
athugasemdum á framfæri.
Forsaga
Fram til ársins 1988 voru heim-
taugargjöld fyrir sumarbústaði ekki
samkvæmt fastri gjaldskrá, heldur
var gerð kostnaðáráætlun fyrir
hveija heimtaug og innheimt sam-
kvæmt því. Þegar um sumarhúsa-
hverfi var að ræða, gat kostnaður
fyrstu umsækjenda orðið töluvert
hærri en þeirra sem á eftir komu.
Þetta stafaði af því að stofnkostn-
aður vegna t.d. háspennulínu lenti
að verulegu leyti á fyrstu umsækj-
endum. Við þessu var reynt að
sporna með því að hvetja eigendur
sumarhúsa í hveiju hverfi til að
sameinast um stofnframkvæmdir.
Núverandi fyrirkomulag
Fyrir nokkrum árum var Raf-
magnsveitunum heimilað að fjár-
magna stofnkerfi sumarhúsahverfa
og jafna kostnaðinum niður á vænt-
anlega umsækjendur. Fundið var
út sanngjarnt fast verð fyrir hveija
heimtaug. Það var gert með þeim
hætti, að gerð var úttekt á raun-
kostnaði fyrir þegar rafvædd sum-
arhúsahverfi, og gjaldskrárverð
fundið út þannig, að reiknað var
með að kostnaður við framkvæmdir
fengist endurgreiddur á nokkrum
árum, eða þegar meginhluti bústaða
og úthlutaðra lóða hefðu greitt
heimtaugargjöld.
Hvers vegna mismunandi
heimtaugargjöld
Margir spyija, hvers vegrta heim-
iaugar í sumarhús séu dýrari en í
þorpum eða á sveitabæjum. Svarið
er ekki einfalt, en þó má færa efir-
farandi rök fyrir mismuni: Kostnað-
ur Rafmagnsveitnanna af hverri
heimtaug fer eftir aðstæðum hveiju
sinni. Föst gjaldskrá á sér hinsveg-
ar að auki aðrar forsendur en sjálf-
an framkvæmdakostnaðinn. Verð-
pólitík, þ.e. ákvarðanir stjómvalda,
hafa brenglað gjaldskrár gegnum
tíðina, þannig að þær endurspegla
ekki að fullu þann kostnað sem ligg-
ur að baki.
Gjaldskrá raforkiifyrirtækis
byggir á því að afla þarf tekna til
að mæta útgjöldum vegna fram-
kvæmda, dreifingar og orkuöflunar.
Það er síðan matsatriði að hve miklu
leyti orkugjöldin eiga að skila tekj-
um til framkvæmda og hversu stór
hluti framkvæmdakostnaðar skal
greiddur með stofngjöldum. Lækk-
un heimtaugargjalda kallar á hækk-
un orkugjalda ef tekjur eiga ekki
að skerðast.
Mismunandi aðstæður
hafa áhrif
Þegar lagt er út í framkvæmdir,
Stefán Arngrímsson
„Niðurstaðan er sú, að
í fæstum tilfellum duga
heimtaugargj öld fyrir
framkvæmdakostnaði,
og í mörgum tilfellum
vantar mikið upp á. Lit-
ið er svo á að mismun-
urinn skili sér í orkuvið-
skiptum í framtíðinni.
Sumarhúsin hafa til
þessa ekki verið talin
skila orkusölutekjum á
sama hátt og notendur
með fasta búsetu, þótt
þar kunni að verða
breytingar á.”
má gjarnan líta á það, hvaða arð
framkvæmdin gefur. Venjuleg
heimtaug að sveitabýli er í flestum
tilvikum dýrari í framkvæmd heldur
en heimtaug í sumarhús, vegna
kröfu um afköst (afl). Hins vegar
eru útgjöld umsækjanda lægri þar
sem Orkusjóður hefur styrkt heim-
taugar að lögbýlum. Að auki er
orkunotkun að jafnaði um 5 til 10
sinnum meiri á sveitabýli en í sum-
arhúsi, og í mörgum tilfellum er
munurinn enn meiri. Meira en helm-
ingur allra sumarhúsa er með orku-
notkun undir 4.000 kWs/á ári
SIEMENS
Uppþvottavélar I mlklu úrvali!
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm
SMHH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI28300
Blöndunartækin frá damixa
tryggja rétt vatnsmagn og
hitastig með einu handtaki.
Veljið aðeins það besta
- veljið damixa blöndunartæki
fyrir eldhúsið og baðherbergið.
damixa
/II
Fæstíhelstu
byggingarvöruverslunum
umlandallt.