Morgunblaðið - 24.10.1991, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991
33
Breskir dagar í Háskólabíói;
í þjónustu hennar hátignar
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
I þjónustu hennar hátignar („On
Her Majesty’s Secret Service”.
Sýnd í Háskólabíói. Leikstjóri:
Peter Hunt. Handrit: Richard
Maibaum. Aðalhlutverk: George
Lazenby, Diana Rigg, Telly Sav-
alas.
Á milli þess sem James Bond tók
breytingum úr Sean Connery yfir
í Roger Moore fékk ókunnur leik-
ari að nafni George Lazenby að
spreyta sig á þessu einu frægasta
hlutverki kvikmyndasögunnar í
myndinni í þjónustu hennar hátign-
ar. Hann þótti ekki standa sig í
stykkinu og Moore tók við í næstu
mynd. En kannski vegna Lazenbys
hefur þessí ágæta Bondmynd verið
heldur vanmetin í gegnum tíðina.
Nú gefst kærkomið tækifæri til
að sjá hana aftur á hvíta tjaldinu
og er það í þriðja sinn a.m.k. sem
hún er sýnd á íslandi, oftar en
nokkur önnur Bondmynd. Hún var
frumsýnd í Tónabíói, endursýnd um
tíma árið 1986 í Bíóhúsinu, sem
áður var Nýja bíó, og nú er hún á
breskum dögum í Háskólabíói.
Ljóst var að hver sem tæki við
af Connery ætti erfitt uppdráttar
og Lazenby reyndist hafa það eina
hlutverk að undirbúa jarðveginn
fyrir Moore. Þegar horft er á mynd-
ina 22 árum eftir að hún var gerð
skiptir Lazenby minna máli; hann
stendur sig hvorki betur eða verr
en búast má við enda þarf engann
Shakespeare-leikara í rulluna.
Það sem mestu máli skiptir er
hasarinn og í þjónustu hennar há-
tignar býður uppá einhveijar bestu
hasarsenur Bondmyndanna. Bobb-
sleðaferðin, svo aðeins eitt atriði
sé tekið útúr, er ein sú eftirminni-
legasta úr seríunni og nokkuð sem
jafnvel Indiana Jones gæti verið
stoltur af. Þótt Bond liti eitthvað
öðruvísi út brást fastalið myndanna
honum ekki aftan við myndavélam-
ar.
Handritshöfundurinn, Richard
Maibaum, gerði handrit sem lýsti
persónunni Bond og einkahögum
hans betur en áður og af raunsæi
sem sjálfsagt má tengja hippatím-
anum sem hún er gerð á (tíska
myndarinnar er eitt af því sem eld-
ist hvað verst). Bond kvænist er í
uppreisn við „M” og segir upp stöð-
unni (það varir stutt). Hann er jafn-
vel sýndur á krummalegri skrifstof-
unni sinni, nokkuð sem gerðist ekki
fyrr eða síðar. En Maibaum bjó þó
til söguþráð sem var var ósvikinn
Bond-reyfari og fjarri öllum raun-
veruleika; erkióþokkinn Blofeld
(mjög slægur Telly Savalas) ætlar
að eyðileggja efnahagskerfi heims-
ins með því að dáleiða fallegustu
stúlkur heims og láta þær dreifa
ægilegri eituruppfínningu hans.
Framleiðendumir, Albert R.
Broccoli og Hany Saltzman, spör-
uðu ekkert til að gera myndina sem
veglegasta í útliti og í tæknilegu
tilliti og leikstjórinn, Peter Hunt,
sá um að halda spennu og hraða í
hasarsenunum með talsvert
mögnuðum áhrifshljóðum. Aðstoð-
arleikstjóri hans var John Glen sem
seinna leikstýrði mörgum Bond-
myndum. Margir vilja eflaust líta á
í þjónustu hennar hátignar sem lítt
merkilega neðanmálsgrein í Bond-
sögunni vegna George Lazenbys.
En það er kominn tími til að endur-
skoða þá afstöðu.
Myndin er sýnd textalaus.
■ Á TVEMUR VINUM á
fímmtudagskvöldið verða tónleikar
með hljómsveitinni Fríðu sársauka
sem er skipuð. þeim Eðvarð Vil-
hjálmssyni, Friðriki Sturlusyni,
yigni Þór Stefánssyni, Páli
Ólafssyni, Guðmundi HöSkulds-
syni, Andra Erni Clausen, Hönnu
Dóru Sturludóttur og Kristjönu
Stefánsdóttur. Föstudagskvöldið
verða svo tónleikar með fínnsku
rokksveitinni 22 Pisterpirkko og
Risaeðlunni. 22 Pisterpirkko kom
hingað til lands í mars sl. og héldu
nokkra tónleika á Tveimur vinum
sem margir muna eftir. Þeir hafa
gefíð út 2 breiðskífur sem vakið
hafa athygli á Norðurlöndunum, í
Frakklandi, Bretlandi ogBandaríkj-
unum. Platan Bare Bone Nest sem
hljómsveitin gaf út á síðasta ári var
valin besta plata ársins af mörgum
virtum tónlistargagmýnendum.
Risaeðlan mun einnig koma fram
þetta kvöld og bíða margir spenntir
eftir því, því mannabreytingar hafa
átt sér stað í sveitinni og nýjar
stefnur verið teknar upp. Laugar-
dagskvöld skemmtir svo ein af yngri
hljómsveitum borgarinnar, sem
kallast Soulblóm og leikur, eins og
nafnið gefur til kynna, soul tónlist
og rokk frá árunum kringum 1970.
Sunnudagsvköld verða svo aðrir
tónleikar með 22 Pisterpirkko og
Bless.,
■ FÉLAG um heilbrigðislöggjöf
heldur umræðufund um ófijósemi,
meðferð, tilfínningar, siðræn og
lagaleg álitamál fímmtudaginn 24.
október kl. 17.15 í stofu 101 í Odda
húsi heimspekideildar Háskóla ís-
lands. Frummælendur: Þórður
Óskarsson læknir mun gera grein
fyrir tæknifijóvgun (glasafijóvgun,
tæknisæðingu o.s.frv.) og öðrum
úrræðum í meðferð ófijósemi. Sól-
-ey Bender hjúkrunarfræðingur
mun fjallæ-um sálræn vandamál og
ráðgjöf tengda ófijósemi og Garðar
Gíslason .borgardómari mun ræða
lögfræðileg álitamál er upp hafa
komið og upp kunna að koma þeg-
ar þessari tækni er beitt. Að loknum
framsöguerindum verða umræður.
Fundurinn er öllum opinn.
■ / TILEFNI24. október halda
konur upp á daginn með fjöl-
breyttri Hlaðvarpahátíð. Opið hús
og dagskrá frá kl. 7-23. Boðið verð-
ur upp á morgunkaffi frá kl. 7-9.
Byijað verður á kínverskri leikfími,
Taijiquan, undir leiðsögn Chen
Ming frá Hreyfilistahúsinu, kl.
7.10-8.10 og 9.10. Yfír daginn
verða nokkrar konur með ljóðaupp-
lestur og bókakynningar, þær
Berglind Gunnarsdóttir, Edda
Björgvinsdóttir, Elísabet Jökuls-
dóttir, Elísabet Þorgeirsdóttir,
Helga Thorberg, Kolbrún Erna
Pétursdóttir og Steinunn Sigurð-
ardóttir. Guðrún Jónsdóttir arki-
tekt mun kynna sögu húsanna kl.
16. Og ekki má gleyma tónlistinni,
Jóna Einarsdóttir mun spila á
harmonikku kl. 8.30 og 15.30 og
þau Laufey Sigurðardóttir og
Páll Eyjólfsson spilá á fíðlu og
gítar kl. 18.00. Bella vérður með
sögustund fyrir bömin kl. 17.00 og
Henrietta ætlar að stjórna fjölda-
söng kl. 18.30. Auk þess verður
samsýning nokkurra kvenna á efri
hæðinni. Og að lokum verður Al-
þýðuleikhúsið með leiksýningu á
. Undirleikur við morð kl. 20.30.
SALORA ein FALLEGASTA
SJÓNVARPSLÍNA EVRÓPU
SALORA
Gervihnattapakki
SLÆR í GEGN!
Fullkominn gervihnattabúnaður,
en einfaldur í notkun.
Gervihnattadiskarnir fást i mismunandi stæröum.
þ.e. 120 sm, 150 sm og 180 sm. Rétt stærð disks
fer eftir styrkleika gervinnattaútsendingarinnar
a hverjum stað.
Leitaðu ráða hjá SALORA umboðsmanni þinum.
í pakkanum er:
Diskur, steríó móttakari, þráðlaus
fjarstýring, veggfestingar og
ýmislegt fleira. .. o oon
Allt þetta fæst á aðeins kr. 11 9.000
SALORA N7S Sjónvarp með 100%
skjánýtingu og
NICAM-steríó.
Þessi gerð er fulltrúi þess besta í
Salora sjónvarpstækjum með
100% skjánýtingu.
Hönnun N7S sjónvarpsins er slá-
andi lík alstafrænu toppgerðinni
E7S.
Munurinn felst í tæknilegum atrið-
um. Þetta tæki er ætlað þeim sem
vilja eignast fullkomið steríó-sjón-
varp á viðráðanlegu verði.
NICAM-steríó er staðlað, svo að
það er fullbúið fyrir móttöku á staf-
rænum og fjölhljóða útsendingum.
Þetta sjónvarp hefur marga mikil-
væga Salora-toppfídusa.
Fjarstýring og upplýsingarval-
myndirnar eru mjög likar og í topp-
gerðunum. Stafræn stjómun á texta-
varpi er stöðluð. Einn af mörgum
kostum tækisins er m.a. ofur-
nákvæm stöðvastilling. Það býður
úpp á marga tengimöguleika, s.s.
fyrir Súper-VHS og “Sub-woofer“.
28” Steríó-sjónvarp
kr. 122.900.-
(sjónvarpsborð er aukahlutur).
SV - 800 Myndbandstæki
• Prógramskipanir beint á sjónvarpsskjá.
• Fjarstýring meö innbyggðum sjónvarps-
og gervihnattaskipunum.
• Súper kyrrmynd.
kr. 43.990.-
SALORA umboðsmenn um landið:
Staþafell hf
Rafborg hf
Húsið hf
Rafbúð Jónasar Þór
Keflavík
Grindavík
Stykkishólmi
Patreksfirði
Naust hf
Versl. Skógar
Verslunin Ösp
Neisti sf
Akureyri
Egilsstöðum
Selfossi
Vestmannaeyjum
HEIMILISKAUP H F
• HEIHIILISTÆKJADEILD FÁLKANS •
Suðurlandsbraut 8 - Sími 814670