Morgunblaðið - 24.10.1991, Qupperneq 46
46
roo.r q'aqó't'^to r<* ch’ in h hí kímnx'iri rjííif'iðt/'rth<ínr*
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991
BREFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
! SÍMI: 62 84 50
3dagar
17.900
HOLIDAY INN
Með morgunverðarhlaðborði. Aðgangur að heildverslun Makro.
=. FLUGFERÐIR
= SULHRFLUD
Vesturgata 17, Sími 620066.
öll verö eai staðgreiðsluverð án flugvallaskatta og forfallatryggingar.
w
STÚRHÁTÍO
HEsmmi
1991
Lokahóf 42. þings Landssambands hesta-
manna og árshátíð Hestamannafélagsins
Gusts verður laugardaginn 26. okt. 1991 -
fyrsta vetrardag - í íþróttahúsinu „Digranesi
í Kópavogi.
Borðhald og góð skemmtiatriði.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar.
Aðgöngumiðar eru seldir í versl. Ástund og
Hestamanninum, félagsheimili Gusts í Glað-
heimum og skrifstofu Fáks.
Tökum greiðslukort.
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs.
• Borgarnes: Glitnir.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvitárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir.
• Grundarfjörður: Guöni Hallgrimsson.
• Stykkishólmur: Skipavík.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar
• Ísafjörður: Póllinn hf.
• Blönduós: Hjörleifur Júliusson.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf.
• Siglufjörður: Torgió hf.
• Akureyri: Sir hf.
• Husavik: Öryggi sf
• Þórshöfn: Noróurraf.
• Neskaupstaður: Rafalda hf
• Reyðarfjörður: Rafnet.
• Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guómundss.
• Breiðdalsvik: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss.
• Höfn í Hornarfirði: Kristall
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga.
• Selfoss: Árvirkinn hf
• Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar
• Keflavik: Ljósboginn.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
SIEMENS -gæði
ÓDÝRAR OG GÓÐAR
ELDAVÉLAR FRÁ SIEMENS
HS 24020
■ Breidd 60 sm
■ Grill
■ 4 hellur
■ Geymsluskúffa
HN 26020
■ Breidd 50 sm
■ Grill
■ 4 hellur
■ Geymsluskúfta
Munið umboðsmenn okkar viðs vegarum landið
Þessar sívinsælu eldavélar frá SIEMENS eru einfaldar í
notkun, traustar, endingargóðar og á mjög góðu verði.
LOGREGLUHANDTAKA
Síðla sumars var ég vitni að
harkalegri handtöku í Reykjavík eitt
föstudagskvöldið. Verið var að færa
ölvaðan pilt upp í lögreglubifreið.
Þetta var ungur strákur um tvítugt,
sem greinilega hafði drukkið of mik-
ið til að geta gengið beinn og óstudd-
ur. Þarna voru þrír lögreglumenn
og einn þeirra á svipuðum aldri og
sá sem verið var að taka fastan. Sá
ölvaði var eitthvað seinn til svara
þegar ungi lögreglumaðurinn spurði
hann um nafn og heimilisfang, svo
vörður laganna þreif hann á fætur,
snéri upp á handlegg hans um leið
og hann hreytti út úr sér við starfs-
félaga sína: Hann er eitthvað geð-
veikur þessi, þá verður ekki tekið
neinum vettlingatökum á honum.
Sá ölvaði kveinkaði sér undan með-
förunum og sársaukinn skein úr
andliti hans, því hinn ungi vörður
laganna stóð við orð sín, meðan
hann var að skella unga manninum,
sem veitti enga mótspymu, á gólfið
í lögreglubílnum. Eldri starfsbræð-
urnir í lögreglunni ávíttu þó hinn
unga lögregluþjón í hálfum hljóðum.
Lesið aftur það sem ungi lögreglu-
maðurinn sagði. Vegna þess að hann
áleit að pilturinn væri geðveikur, þá
fór hann með hann sem sauð á leið
til slátrunar. Ég hef séð lögreglu-
menn oftar en einu sinni að störfum
á slysstað þar sem þeir umgangast
þá sem veikir eru með mikilli vark-
árni. Sé manneskja hinsvegar veik
á geði, að áliti sumra, þá er hún
meðhöndluð sem rakki og umhyggj-
usemin álíka sem væri hún útigangs-
köttur. Það ætlar fólk seint að læra
að oft á tíðum eru andleg veikindi
mun erfiðari viðfangs en greinilegir
líkamlegir kvillar. Og þar sem fólk
hefur svo lítinn skilning á geðsjúk-
dómum, gerir það að verkum að hin-
ir geðsjúku eiga sér oftast ekki bata-
von fyrjr fordómum í samfélaginu,
því andlega veikt fólk þarf oft á
miklu meiri samúð að halda en sá
sem liggur í fótbroti í nokkra mánuði
en er svo heill heilsu eftir það. Það
er full ástæða til að harma það ef
þeir sem með völdin fara eru ekki
betur upplýstir og þroskaðri en ungi
maðurinn í lögreglunni. Allavega er
stórvarasamt og mannskemmandi
að afgreiða illa upplýst mál með
aðferðum unga lögreglumannsins.
Einar Ingvi Magnússon
Þessir hringdu ...
Armband úr hvítag’ulli
Armband úr hvítagulli tapaðist
í vikunni sem leið. Þrír staðir
koma til greina: A Laugaveginum
við verslunina Katel, Byko í Kópa-
vogi eða við Húsasmiðjuna í Hafn-
arfírði. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 78282. Fundarlaun.
Stór lyklakippa
Mánudaginn 21. október fund-
ust lyklar í kippu á bílaplaninu
við Landspítalann. Lyklakippan
er í svörtu leðurhulstri og á með-
al lyklanna var einn bíllykill. Ly-
klakippunnar er hægt að vitja í
upplýsingunum á Landspítalan-
um.
EES-samningurinn
Kona hringdi og vildi koma
eftirfarandi klausu á framfæri:
Ég vil vekja athygli á og þakka
Dagrúnu Kristjánsdóttur fyrir
góða og skilmerkilega grein um
EES og EB síðastliðinn laugar-
dag. Það er vonandi að þjóðinni
verði gerð ítarleg grein fyrir inni-
haldj samningsins sem nú er búið
að gera og ekkert verði dregið
undan eða falið fyrir fólki um
galla hans. Það trúir því enginn
sæmilega skynsamur maður að
hann sé okkur algjörlega í hag
og alveg gallalaus. Þvert á móti
finnst mörgum sem aðeins því
jákvæða hafi verið haldið á lofti
hingað til en neikvæðu þættirnir
þaggaðir niður.
Vínrauður „fílófax” tapaðist
Aðfaranótt sunnudagsins 13.
október var vínrauðri minnisbók
(„fílófaxi”) stolið frá Pétri Erni.
Um er að ræða leðurinnbundna
bók og í henni eru öll hans skil-
ríki en engir peningar. Einnig er
þar að finna símaskrá hans og
fleiri persónulegar upplýsingar,
því er þetta mikill tilfinningalegur
missir fyrir Pétur. Hann segist
vera tilbúinn til þess að fyrirgefa
þeim sem tók „fílofaxinn” ef hon-
um verði skilað aftur. Pétur Örn
er í síma 674263.
Tapaði úri
Soffía tapaði úri seinnipart
mánudags 21. október fyrir fram-
an Bónus og líkamsræktarstöðina
Mátt. Hún taldi að einhver hefði
áreiðanlega fundið úrið því hún
hefði sjálf uppgötvað missinn
fljótlega og leitað á staðnum en
ekki fundið úrið. Þetta er gyllt
úr með svartri leðuról. Vinnusími
Soffíu er 28300 og heimasíminn
76323.
Páfagaukurinn floginn
Grænn og gulur páfagaukur
með brúnan gogg flaug út af
heimili sínu í Ljósheimunum á
mánudagskvöldið. Þeir sem vita
um ferðir gauksa eru beðnir um
að hafa samband við Margréti í
síma 675412 eftir kl. 19ákvöldin.
Kisa í óskilum
Tveggja mánaða högni fannst
á Vitastíg laugardaginn 19. okt-
óber. Hann er dökkbröndóttur
með hvítar loppur, ómerktur. Þeir
sem kannast við kisa geta hringt
í síma 21784.
Bón Hreinsiefni Gluggakítti Lökk
Vestur-þýsk gæðavara á góðu verði
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKIN N
_____SUÐURLANDSBRAUT 8 SIMI 814670_