Morgunblaðið - 25.10.1991, Blaðsíða 36
MOEÍGtJNBIÁÐIÐ FÖSTUDAGÚR 25. OKTOBER 1991
Hjónaminning:
Krislján Steingrímsson
Sigrún Gissurardóttir
36
Sigrún
Fædd 28. mars 1908
Dáin 28. apríl 1991
Kristján
Fæddur 25. september 1906
Dáinn 15. október 1991
I dag verður til hinstu hvílu lagð-
ur Kristján Steingrímsson, sem
andaðist á Sólvangi 15. október sl.,
.. við hlið ástkærrar eiginkonu sinnar,
sem andaðist 28. apríl á þessu ári,
einnig á Sólvangi, þar sem þau
dvöldu sitt ævikvöld í góðri umsjá
starfsfólks þar.
Mig langar að kveðja þau með
fáeinum orðum sem hljóta að verða
fátækleg, miðað við þær móttökur
og meðlæti sem ég af þeim ogþeirra
fólki hlaut, er ég sem ungur maður
kynntist dótturdóttur þeirra.
Aldrei kemur mér annað þeirra
svo í hug að hitt fylgi ekkþ fast á
eftir. Svo nátengd og samstiga voru
þau í öllum sínum gjörðum og at-
höfnum sem einkenndust af góðvild
og kærleika.
Ég minnist þess að Kristján og
->!».Sigrún töldu það ætíð Guðs þakkar
vert ef þeim auðnaðigtað rétta ein-
hveijum hjálparhönd og skipti þá
einu hvort um ættingja væri að
ræða eður ei.
Ast sú og umhyggja sem bjó í
brjóstum þeirra sýndi sig best í
þeirri fórnfýsi sem þau sýndu í öllu
er laut að umönnun og uppvexti
langafa og langömmubarnanna
þeirra. Þau voru alltaf vakandi yfír
velferð þeirra og áttu þessi börn
hug þeirra allan jafnt í gleði sem
Usorg.
Þrátt fyrir að mér og konu minni
fyrrverandi tækist ekki að stíga lífs-
dansinn saman af þeirri fágætu list,
sem þau Kristján og Sigrún gerðu,
og slitum samvistir, komu þau allt-
af fram við mig með virðingu og
alúð og með velferð mína og barna
minna í huga.
Þau Kristján og Sigrún voru
guðrækið fólk og lögðu líf sitt í
Hans hendur og munu með Hans
hjálp áfram halda verndarhendi yfir
ungum niðjum sínum.
Kynni mín af þeim hjónum voru
mér til góðs.
Kærleikur þeirra og mildi gerðu
mig vonandi að ögn betri manni.
Með þessum fáeinu orðum vil ég
kveðja með þökk sæmdarhjón, sem
einkenndust af reisn góðvildar og
kærleika til Guðs og ’manna.
Gylfi Norðdal
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaður viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja,
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
Margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
I dag kveðjum við hjartkæran
afa okkar Kristján Steingrímsson
'sem andaðist á Sólvangi 15. októ-
ber síðastliðinn.
Okkur finnst svo stutt síðan við
kvöddum ömmu sem lést 28. apríl
á þessu ári. Nú hafa afi og amma
hist á ný. Þau eru komin til síns
himneska föður sem þau trúðu á
og treystu.
Okkur langar til að minnast afa
og ömmu því að mikill kærleikur,
ást og umhyggja ríkti á milli okkar
en sambandi pkkar er erfitt að lýsa
með orðum. Á stundum sem þess-
ari kemur upp tómleiki og söknuður
en jafnframt streyma minningarnar
fram, allar svo ljúfar og góðat- því
okkur þótti svo vænt um þau. Þau
voru fastur punktur í tilveru okkar
og líf þeirra einkenndist af góðverk-
um og kærleika í okkar garð.
Afi fæddist 25. september 1906
í H.afnarfirði. Foreldrar hans voru
Steingrímur Jónsson og fýrri kona
hans Jóna Kristjánsdóttir bæði ætt-
uð frá Álftanesi. Eftirlifandi bræður
afa eru Jón, albróðir, sem nú dvelur
á Sólvangi í Hafnarfirði og Guðni,
hálfbróðir, en hann er múrarameist-
ari og búsettur í Hafnarfirði, móðir
hans var Guðrún Einarsdóttir seinni
kona Steingríms.
Amma fæddist 28. mars 1908
að Gljúfurholti í Ölfusi. Hún var
næstyngst 17 barna þeirra hjóna
Gissurar Guðmundssonar og
Margrétar Jónínu Hinriksdóttur og
kvaddi hún síðust systkina sinna
þennan heim.
Um 1920 flytur amma til Hafnar-
íjarðar með foreldrum sínum og
kynntist hún ung að árum æskuást-
inni sinni honum elskulega afa okk-
ar. Þau giftu sig 3. desember 1927
og bjuggu allan sinn búskap í Hafn-
arfirði. Afi og amma nutu samvista
í 66 kærleiksrík ár og eignuðust 4
börn. Þau eru Steingrímur, lyfsali
í Árbæjarapóteki, fæddur 21. októ-
ber 1926, maki Ingibjörg Sigur-
linnadóttir (látin); Margrét Ágústa,
fædd 3. mars 1934, maki Júlíus
Hinriksson, múrari; Kristján Hauk-
ur, fæddur 1. júní 1942, dáinn 16.
október sama ár og Gissur Vignir,
lögfræðingur, fæddur 25. júní 1944,
maki Dóra L. Sigurðardóttir, skrif-
stofumaður. Barnabörnin eru 4 og
barnabarnabörnin 11.
Afi vann eingöngu við vörubíla-
akstur og var mjög farsæll í sínu
starfi. Amma gætti bús og barna
af miklum myndarskap og stóðu
þau þétt saman í lífsbaráttunni.
Síðustu 6 árin dvöldu þau á Sól-
vangi og nutu þau þar frábærrar
umönnunar starfsfólks sem vert er
að þakka af alhug.
Álltaf munu amma og afi eiga
stað í hjörtum okkar og veganestið
sem þau gáfu okkur er dýrmætara
en gull. Við trúum því að þau haldi
áfram verndarhendi yfir okkkur.
Við viljum að lokum þakka elsku
ömmu og afa fyrir ailar góðu stund-
irnar sem við áttum saman og biðj-
um Guð að geyma minninguna um
þau. Megi góður Guð styrkja alla
þá er þeim unnu.
Sigrún, Katrín Gerður og
Valgerður Júlíusdætur
Nú eru langafi og langamma
bæði dáin.
Eftir sitja ljúfar og kærar minn-
ingar um þessar elskur sem alltaf
voru okkur svo góð.
Allt frá því að við munum eftir
okkur voru þau að hygla okkur á
allan hugsanlegan hátt. Alltaf
höfðu þau tíma aflögu fyrir okkur.
Það voru bakaðar pönnukökur,
vöfflur og klattar, og ekki var talið
eftir sér að flytja góðgætið á milli
húsa svo við fengjum örugglega að
njóta. Á hveiju hausti gengu þau
tryggilega úr skugga um að vettl-
ingar, húfur og aðrar hlífðarflíkur
væru örugglega fyrir hendi. Og
þrátt fyrir að aldurinn færðist yfir
og heijsu tæki að hraka var vök-
unni haidið.
Ætíð var spurt um fæði og klæði
og skólagöngu.
Langamma kenndi okkur margar
bænir og langafi gat haldið ungri
athyglinni óskiptri með góðlyndum
sögum og leikjum.
Við hefðum ekki getað óskað
okkur betri langafa og langömmu.
Nú vitum við að þau eru komin
saman aftur, eins og við munum
svo vel eftir þeim, hjá Guði sem þau
alltaf trúðu á og treystu.
Við þökkum langafa og
langömmu fyrir allt og vonum að
við höfum borið gæfu til að hafa
lært eitthvað af samverustundunum
með þeim.
Sigrún Kristjana Norðdahl
Júlíus Norðdahl
Vertu Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Hann langafi er dáinn. Ekki eru
nema nokkrir mánuðir síðan ég var
hjá langömmu þegar hún dó. Nú
veit ég að þau eru saman á ný.
Margar ljúfar minningar streyma
fram í hugann og langar mig að
kveðja langafa og langömmu hinstu
kveðju með þessum fáu orðum.
Aldrei framar mun langafi kyssa
mig á kollinn né langamma að baka
pönnukökur. Þegar mamma var í
háskólanum komu gömlu hjónin á
vörubflnum á hveijum morgni til
að passa mig, einnig stóð ekki á
þeim að koma þegar mamma og
pabbi fóru saman út á sjó. Lang-
amma passaði alltaf upp á að ég
væri södd og ánægð. Á meðan hún
bardúsaði í eldhúsinu lék langafi
við mig. Þau stóðu alltaf saman og
létu gott af sér leiða. Ég var umvaf-
in ástúð og kærleika og veganestið
sem þau gáfu mér er dýrmætara
en nokkurt annað. Ég man hvað
það var spennandi að fá að vera
inni á kontór hjá langafa í skrifstof-
uleik og nota gömlu reikningsvélina
eða að fara upp á háaloft og skoða
allt gamla dótið hennar langömmu.
Langafi og langamma virtust hafa
ótakmarkaðan tíma fyrir mig og
fjölskyldu mína. Langamma kenndi
mér margar bænir og pijónaði
sokka og vettlinga á mig því henni
var mikið í mun að mér yrði ekki
kalt. Tómlegt verður næstu jól þeg-
ar þau eru bæði farin og ekki verða
fleiri ferðirnar upp á Sólvang en
sá tími er mér ógleymanlegur. Allar
þessar ljúfu og góðu minningar mun
ég geyma í hjarta mínu. Ég er þakk-
lát fyrir að hafa átt allar þessar
góðu stundir með þeim.
Elsku Gústa amma, megi góður
Guð gefa ykkur systkinunum styrk.
Guð blessi elsku langömmu og lang-
afa og varðveiti um alla eilífð.
Nú legg ég augun aftur,
ó, guð þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. Sveinbjöm Egilsson)
Viktoría Jensdóttir
t
Ástkaer móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa-
langamma,
ENIKA HILDUR ENOKSDÓTTIR
frá Bolungarvík,
Álfaskeið 64,
Hafnarfirði,
lést í St. Jósefsspítala 15. október 1991.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Guðrún Guðmundsdóttir, Ragnar E. Tryggvason,
Sveinbjörn Guðmundsson, Steinunn Gunnarsdóttir,
Enok Guðmundsson, Anna Björnsdóttir,
Elín Guðmundsdóttir, Örn Ægir Óskarsson,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Jón Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar,
KARITAS MARÍA HJALTADÓTTIR,
lést á Hrafnistu 24. október.
Sigurborg Valgerður Jónsdóttir,
Guðríður Jónsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐMUNDA JÓNA JÓNSDÓTTIR
frá Hofi í Dýrafirði,
lést 21. október. Jarðarförin fer fram frá Þingeyrarkirkju 26. októ-
ber kl. 14.00.
Börn og tengdabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
VALGEIR HAUKDAL ÁRSÆLSSON,
sendiherra,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 28. október
kl. 15.00.
Adeline Dagmar Andersen,
Katrín Valgeirsdóttir, Don Wiley,
Bragi Valgeirsson, Ana Maria Castro,
Ágúst Valgeirsson, Guðrún Þorsteinsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
LEIFUR FINNBOGASON,
Hítardal,
lést á heimili sínu 17. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hann hvílir
í heimagrafreit.
Þökkum auðsýnda samúð.
Guðrún Jónsdóttir,
Finnbogi Leifsson, Erla Dögg Ármannsdóttir,
Sigri'ður Leifsdóttir, Sigurður Emilsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GÍSLÍNA BJARNEY GUÐMUNDSDÓTTIR,
Dalbraut 10,
Bíldudal,
verður jarðsungin frá Bíldudalskirkju laugardaginn 26. október
kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
RAGNAR ELÍASSON,
Hátúni 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 25. október,
kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Hanna Ragnarsdóttir, Árni S. Jónsson,
Guðlaug Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Alúðarþakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð við andlát
og útför, eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
ÞÓRARINS G. SIGURJÓNSSONAR.
Guðleif Árnadóttir og fjölskylda.