Morgunblaðið - 25.10.1991, Side 17

Morgunblaðið - 25.10.1991, Side 17
MORGUNBLA'ÐIÐ FÖSTUDAGUR 2R ‘OKTÓBER' 1391 Minningar- vaka um Geir Krislgánsson LAUGARDAGINN 26. október gengst Bókmenntafélagið Hringskuggar fyrir minningar- vöku um Geir Kristjánsson skáld. Samkoman fer fram í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi og hefst klukkan 17 og stendur í rúma klukku- stund. Geir lést í síðasta mánuði en skömmu áður kom út á vegum Hringskugga, síðasta bók hans, Dimmur söngur úr sefi. Hefur hún að geyma ljóðaþýðingar, einkum úr rússnesku, en einnig öðrum málum. Á minningarvökunni munu Vil- borg Dagbjartsdóttir, Arnór Ben- ónýsson, Baldvin Halldórsson, Karl Guðmundsson og Pjetur Haf- stein Lárusson lesa úr verkum Geirs og Þorgeir Þorgeirsson flytja erindi um skáldið. «• Ollum er heimill aðgangur með- an húsrúm leyfir. -------------- Hrútafjörður: 2.700 komuí upplýsinga- miðstöð Stað í Hrútafirði. UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA fyrir ferðafólk var í sumar rekin í Stað- arskála af Ferðamálafélagi Vestur-Húnavatnssýslu og Stað- arskála hf. Upplýsingamiðstöð hefur nokkur undanfarin ár verið Iiður í rekstri Staðarskála. Á þessu ári gekk Ferð- amálafélag Vestur-Húnavatnssýslu til liðs við fyrirtækið og var gert stórt átak til að gera rekstur upplýs- ingaþjónusturnnar virkari. Ráðinn var uþplýsingafulltrúi, Sigríður Gróa Þórarinsdóttir, til að veita skrifstof- unni forstöðu. Það var 25. júní sem skrifstofan var opnuð og til 10. september komu 2.700 gestir. Fyrirspurnir voru mjög fjölbreyttar og má segja að þær hafi verið jafn mismunandi og gest- irnir voru margir. Þó voru eðlilegar margar af svipuðum toga. Það sem gestimir voru helst að leita eftir voru upplýsingar um gistimöguleika, ástand vega, ferðir áætlunarbifreiða og feija, áhugaverðir staðir í ná- grenninu og hvað hægt væri að hafa fyrir stafni hér. íslendingarnir höfðu einnig mjög mikinn áhuga á upplýsingum um allt er snertir veiði. Sumir komu þó eingöngu til að safna sér upplýsing- um og myndum af landinu í bækl- ingaformi. Segja má að nú sem fyrr hafi sannast að brýn þörf er að þjónusta þessi sé til staðar um ferðamanna- tímann. __________Brids_____________ Umsjón Arnór Ragnarsson Bridsfélag Hreyfils Síðastliðinn mánudag var spiluð 4. umferðin af 5 í hausttvímenningi fé- lagsins. Hæstu skor hlutu: í A-riðli: SkaftiBjömsson-JónSigtryggsson 195 Eyjólfur Ólafsson—Jón Skúlason 175 Daníel Halldórsson - Viktor Björnsson 174 í B-riðli: Sigurður Ólafsson — FIosi Ólafsson 189 Birgir Siprðsson - Ásgrimur Aðalsteinsson 186 Ásmundur Þórisson - Haraldur Brynjólfsson 186 Meðalskor er 156. Fyrir síðustu umferð er staðan afar tvísýn, en 5 efstu sætin skipa: Birgir Sigurðsson - Ásgrimur Aðalsteinsson 727 Daníel Halldórsson - Viktor Björnsson 719 SkaftiBjörnsson-JónSigtryggsson 719 Sigurður Ólafsson—FIosi Ólafsson 711 Ásmundur Þórisson - Haraldur Brynjólfsson 680 Síðasta umferðin verður spiluð í Hreyfílshúsinu mánudaginn 28. októ- ber og hefst kl. 19.30. Bridsfélag Siglufjarðar Vetrarstarfið hófst 30. september með aðalfundi. Fram kom að vart hafa siglfírskir spilarar staðið sig bet- ur í spilamennskunni er undanfarið ár. Fjárhagsleg staða félagsins er einnig góð, en benda má á að mikil áhersla er lögð á að spilarar taki þátt í sem flestum mótum og er það föst regla að félagið borgi öil keppnisgjöld og tekur þátt í ferðakostnaði. Á fund- inum var kjörin ný stjóm og er formað- ur hennar Bogi Sigurbjörnsson. Þann 14. október lauk tveggja kvölda tvímenningskeppni en í henni tóku þátt 20 pör. Ekki var laust við að sumum spilurum fyndist að þeir væru orðnir betri í íþróttinni eftir að heimsmeistaratitillinn kom til íslands, þó ekki væri hægt að merkja það á skorinni hjá öllum. Mikil gleði ríkir hér yfír frábærum árangri landsliðs- ins. Röð efstu para varð annars þessi: Ásgrimur Sigurbjömsson - Jón Sigurbjömsson 212 BaldvinValtýsson-ValtýrJónsson 202 Sigfús Steingrimsson - Sigurður Hafliðason 202 Björk Jónsdóttir - Valþór Stefánsson 193 Anton Sigurbjömsso - Bogi Sigurbjörnsson 193 Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 21. október var þriðja kvöldið í hausttvímenningnum spilað. Staðan er nú þessi: Kristján Ólafsson - Ólafur Gísiason 151 Guðlaugur Sveinsson - Magnús Sverrisson 122 Karl Einarsson - Pétur Sigurðsson 101 Jens Sigurðsson - Jón Sigurðsson 92 Borgþór Pétursson - Sverrir Ármannsson 84 Drofn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 78 Staðan í sveitaskeppni byijendarið- ilsins er óbreytt: Sv. Júlíönu Sigurðardóttur 53 Sv. Steinþórunnar Kristjánsdóttur 52 Sv. Margrétar Pálsdóttur 40 Sv. Bryndísar Eysteinsdóttur 35 I dag fara Hafnfírðingar í heimsókn til Selfoss og spila hinu árlegu bæjar- keppni eins og gert hefur verið í ára- tugi. Vafalaust er þessi keppni ein langlífasta bæjarkeppni sem sögur fara af, og enn er engan bilbug að fínna á mönnum. Spilað verður á sex borðum. íslandsmót kvenna og yngri spilara í tvímenningi um helgina íslandsmót kvenna og yngri spilara (spilara sem fæddir eru ’66 eða seinna) hefst í Sigtúni 9, Jaugardaginn 26. október kl. 11.30. Áætlað er að spila til kl. 19 í báðum flokkum. Á sunnu- daginn verður síðan byijað aftur kl. 12 og áætluð spilalok eru kl. 18 á sunnudag. Örlítil aukning virðist ætla að verða í kvennaflokknum miðað við síðasta ár en nú er 21 par skráð á móti 19 þá. í yngri spilaraflokknum hefur hins vegar orðið sprenging og nú eru 28 pör skráð á móti 17 á síð- asta ári. Þetta er mjög ánægjuleg þróun og vonandi vísbending á það sem koma skal. í kvennaflokknum verða spiluð 4 spil á milli para en í yngiq spilara flokknum verða spiluð 3 spil á milli para. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgensen og reiknimeistari Ásgeir Ásbjörnsson. STÆRSTI VERÐBRÉFASJÓDIfltlNN KJARABREF eru gefin út af stærsta verðbréfasjóði á Islandi. Inneign viðskiptavina eru 3,2 milljarðar. STJ8BT1SÉREKNAUÓÐURINN FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURINN er stærsti séreignasjóðurinn á Islandi. I honum eru um 1600 félagar og nutu þeir 8,6% raunávöxtunar á síðasta ári. HÆST ÁVÖXTUN r TEKJUBREF gáfu hæsta ávöxtun allra skuldabréfasjóða árið 1990, eða 8,5% raunávöxtun. GÓÐAR FRÉTT1R SEM GEFA ARÐ! (Q> VERÐBREFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLACSINS HF. HAFNARSTRÆTI 7. 101 REYKJAVÍK, S. (91 ) 28566 • KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK ,S. (91 ) 689700 • RÁÐHÚSTORGI 3, 600 AKUREYRI . S. (96) 25000 M.G.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.