Morgunblaðið - 06.11.1991, Page 18
18
MORGUNRLAÐIÐ MiaYIKUDAGUR.fi. N.Ó.VEMBER.1991
Landslagið 1991:
Rás 2 og Sjón-
varpið sjá
um keppnina
RAS 2 og Sjónvarpið hafa tekið
að sér að sjá um keppnina um
Landslagið 1991. Lögin verða
kynnt í miðiunum auk þess sem
þeim verður útvarpað og sjón-
varpað á samtengdum rásum
Rásar 2 og Sjónvarpsins úrslita-
kvöldið 29. nóvember.
Miðlarnir taka við keppninni af
Stöð 2 og Bylgjunni sem upphaf-
lega ætluðu að sjá um hana.
Þorgeir Ástvaldsson, á Rás 2,
sagði að bytjað yrði að kynna lög-
in á mánudaginn. Þau verða aðal-
lega í tveimur þátttum, Níu-fjögur
og Landinu og miðunum, og verða
tvö ný lög leikin á dag þar til öll
lögin hafa verið kynnt en þá verða
þau leikin saman. Myndbönd með
keppnislögunum verða sýnd í Sjón-
varpinu. Á meðan á kynningunni
stendur getur almenningur nálg-
ast atkvæðaseðla í dagblöðunum
en atkvæðin munu vega milli 10
og 20% úrslitakvöldið. Þar verður
til staðar 7 manna dómnefnd.
Einnig munu atkvæði gesta á úr-
slitakvöldinu hafa vægi í keppn-
inni.
-----MH-----
Sjóslysið
við Hornafjörð:
30-40 manns
leita daglega
Morgunblaðið/Rax
Baggagarðar gegn uppblæstri
Bændur í Biskupstungum, sem eru félagar í Lionsklúbbnum Geysi,
fóru um síðustu helgi upp á Haukadalsheiði með heybagga._ Baggarn-
ir, sem eru afrakstur sláttar fyrra árs, eru notaðir til að hefta uppblást-
ur á heiðinni. Brynjar Sigurgeir Sigurðsson, bóndi á Heiði, sagði að
bændur leggðu baggana í langa garða, þar sem þeir heftu sandfok.
„Landgræðslan tekur svo við og sáir melgresi í baggagarðana. Þetta
hefur gefið góða raun, en það er mikil vinna eftir til að hefta uppblástur
á heiðinni,” sagði Brynjar. Á stærri myndinni er Magnús bóndi Jónas-
son á Kjóastöðum að dreifa böggunum. Á innfelldu myndinni sést bagga-
garður, sem nú er orðinn melgresisrönd þvert yfir heiðina.
V onum að beiðni um greiðslu-
stöðvun verði tekin fyrir á ný
- segir stjórnarformaður Stálfélagsins
„SVO virðist sem einhvers misskilnings hafi gætt varðandi grundvöll
úrskurðar skiptaréttar. Við erum að reyna að koma skikkan á það.
Burtséð frá því þá vinnum við að sjálfsögðu enn að því að afla fyrir-
tækinu fjármagns. Það er eiginlega þetta sem á sér stað núna,” sagði
Lars Gunnar Norberg, framkvæmdasljóri íslenska Stálfélagsins hf.,
en bæjarfógeti í Hafnarfirði hafnaði beiðni fyrirtækisins um greiðslu-
stöðvun á mánudag. Björn Ilallenius, sljórnarformaður Stálfélagsins
og aðaleigandi móðurfyrirtækisins Ipasco Steel Ltd. í London, kvaðst
vonast til þess að beiðni um greiðslustöðvun yrði tekin fyrir aftur.
LEIT stendur enn yfir að Þórði
Erni Karlssyni sem saknað er
eftir að skólaskipið Mímir fórst
við Hornafjarðarós 28. október.
30-40 manns ganga fjörur dag-
lega og bátar hafa leitað á sjó
án árangurs.
Hópur manna úr Keflavík hefur
verið björgunarsveitarmönnum á
Höfn til aðstoðar við leitina. í gær
voru um 30 manns við leit á svæð-
inu ailt frá Holtsósi á Mýrum aust-
ur fyrir Hvalnes.
-----4..».+---
Leiðrétting
I leiðara Morgunblaðsins í gær
var ranghermt að starfrækt væri
kirkjuskjól fyrir börn í tveimur
kirkjum í Reykjavík. Hið rétta er
að einungis Neskirkja býður upp
á þessa þjónustu núna en fyrr á
árinu var í tilraunaskyni einnig
starfrækt kirkjuskjól í safnaðar-
heimili Fella- og Hólakirkju.
Lars Gunnar sagði ekki vitað enn
hvort fyrirtækið yrði lýst gjaldþrota.
„Við vitum ekki hvort hægt er að
taka málið upp að nýju og erum að
afla okkur upplýsinga um það núna.”
Björn Hallenius, stjórnarformaður
Stálfélagsins, vildi ekki tjá sig um
næstu skref. „Ég vona að málið
verði tekið fyrir að nýju því mér
finnst við skulda öllum lánardrottn-
um okkar það. Við viljum forðast
gjaldþrot sem annars verður líklega
uppi á teningnum. Stjórnin hefur
lagt fram áætlun um fjárhagslega
endurskipulagningu á greiðslustöðv-
unartímanum og við höfum átt við-
ræður við helstu lánardrottna sem
hafa þegar samþykkt að þessi leið
verði farin. Sænski viðskiptabankinn
okkar hefur stutt þessa leið,” sagði
Hallenius.
„Ég held að málið hafí ekki verið
krufíð til mergjarenn. Ég vil í raun
ekki tjá mig um þetta því það er
ekki mitt hlutverk að gagnrýna úr-
skurð skiptaréttar, en við erum að
reyna að koma frekari upplýsingum
á framfæri til réttra aðila svo unnt
verði að endurskoða það. Það er ein-
læg trú mín að fyrirtækið hafí burði
til að halda velli til langs tíma litið
og það hefur verið sýnt fram á að
það hefur góða möguleika á fram-
leiðsluaukningu að því tilskildu að
hráefni sé til staðar,” sagði Hallen-
ius. _
„Ég vona svo sannarlega að unnt
verði að halda fyrirtækinu í rekstri
því starfsmenn sem hafa hlotið þjálf-
un við þessa starfsemi og þeir sem
standa að baki fyrirtækinu vita að
þeir geta framleitt gæðastál. Þetta
er sterkt fyrirtæki og það er leitt
að vita til þess að tafír í uppsetningu
verksmiðjunnar hafí valdið þessum
vandamálum.
Hollenskur banki sem við skiptum
við og sem við héldum að stæði að
baki félaginu og staðfesti reyndar
þennan stuðning með bréfaskriftum,
greip skyndilega til aðgerða sém við
botnum enn ekkert í. Við höfum
reynt að ná sambandi við ábyrga
aðila hjá bankanum án árangurs.
Okkur fínnst við hafa verið hafðir
að leiksoppum af bankanum,” sagði
Hallenius.
Engin niðurstaða lá fyrir eftir
stjórnarfund fyrirtækisins í gær-
kvöldi og sagði Lars Gunnar Nor-
berg í samtali við Morgunblaðið að
áfram yrði leitað leiða til að tryggja
fjárhag félagsins. Hins vegar væri
ljóst að niðurstaða yrði að fást í
þessari viku.
Evrópusamtök um atferlismeðferð:
Islendingur kosinn formaður
Borgarráð:
Dr. Eiríkur Örn Arnarsson, sálfræðingur, var kjörinn formaður
Evrópusamtaka um atferlismeðferð á aðalfundi samtakanna sem
haldinn var i Osló 7. september. Atferlismeðferð er sálfræðileg
meðferð sem fæst við að breyta atferli einstaklinga.
Hinn nýkjörni formaður lauk
doktorsprófi frá háskólanum í
Manchester í Englandi 1979. Sama
ár flutti hann til íslands og hefur
starfað sem yfírsálfræðingur á geð-
deild Landsspítalans ef frá eru tal-
in 2 ár þegar hann gegndi sömu
stöðu á Borgarspítalanum.
Eiríkur sagði að meginverkefnið
framundan væri án efa að sam-
ræma nám og kröfur til meðferða-
raðila á sameiginlegum vinnumark-
aði í Evrópu. Evrópusamtök um
atferlismeðferð voru stofnuð árið
1970 og eru opin þeim stéttum sem
vinna með atferlismeðferð. Félagar
eru 10.000 frá 21 landi. Á undan-
förnum árum hafa ýmis austan-
tjaldsríki bæst í hópinn s.s. Tékk-
aslóvakía, Pólland, Ungveijaland
og Eistlendingar gengu í samtökin
á síðasta aðalfundi. Næsti aðal-
fundur verður haldinn í Portúgal á
næsta ári.
Eiríkur er einnig formaður Fé-
lags áhugamanna um atferlismeð-
ferð á Islandi sem stofnuð voru
árið 1987. Þau samtök munu
standa fyrir 5. norrænu ráðstefn-
unni um atferlismeðferð í Reykja-
vík dagana 23.-25. apríl 1992 og
aðalefni ráðstefnunnar verður
heilsusálfræði. Á ráðstefnunni hef-
ur mörgum þekktum fyrirlesurum
verið boðið og verða fjölmörg nám-
skeið haldin í tengslum við hana.
Eiríkur Örn Arnarsson
Sauðfjárbúskapur tak-
markist við tíu kindur
Landssamtök sauðfjárbænda hefur óskað eftir því við borgarráð,
-*ið settar verði reglur um sauðfjárhald í borginni. Miðað verði við að
ekki verði fleiri en 300 kindur í eigu borgarbúa, sem stunda sauðfjárbú-
skap og að hver eigandi eigi ekki fleiri en 10 vetrarfóðraðar kindur.
I erindi _sauðfjárbænda til borgar-
ráðs kemur fram, að þar sem verið
sé að laga sauðfjárframleiðsluna að
innanlandsmarkaði, sé það mikil
nauðsyn fyrir bændur sem lifa af
sauðfjárbúskap að sitja sem mest að
framleiðslunni. Bent er á að tak-
marka beri eða leggja niður sauðfjár-
búskap í þéttbýli. Þá mun og falla
úr gildi allur framleiðsluréttur sauð-
fjárafurða utan lögbýla með gildis-
töku nýs búvörusamnings 1. sept-
ember 1992. Þó er fjáreigendum
heimilt að halda eftir allt að 10 kind-
um til heimanota.
„Fordæmi er fyrir því að bæjarfé-
lag hafi sett reglur um sauðfjárhald
þess efnis að heildarfjöldi sé bundinn
ákveðnu hámarki (300 kindur) og
hver eigandi megi ekki eiga fleiri en
10 vetrarfóðraðar kindur. Stjórn
Landssamtaka sauðfjárbænda telur
mjög æskilegt að hliðstæðar reglur
verði settar í öllum þéttbýlissveitar-
félögum þar sem sauðfjárhald er.”