Morgunblaðið - 22.11.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
17
Morgunblaðið/Amór
Unga fólkið hlýðir á biskup íslands, herra Ólaf Skúlason segja frá
bernskuárum sínum á Suðurnesjum.
Biskupinn yfir Is-
landi í Garðinum
HERRA Ólafur Skúlason biskup
heimsótti Garðinn sl. sunnudag í
tilefni 130 ára afmælis Útskála-
kirkju. Predikaði biskup yfir
þéttsetinni kirkju þar sem sókn-
arpresturinn Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson og fyrrum sóknar-
prestur sr. Guðmundur Guð-
mundsson þjónuðu fyrir altari.
Að lokinni messu var haldið í
samkomuhúsið þar sem borð svign-
uðu undan kræsingum kvenfélags-
kvenna sem buðu kirkjugestum upp
á kaffi, en kvenfélagið Gefn hefir
verið styrkur og stoð Útskálakirkju
í yfir 7 áratugi.
Allir klerkarnir töluðu í sam-
komuhúsinu auk Braga Friðriks-
sonar prófasts í Kjalamesprófast-
dæmi. Kom þar m.a. fram að Út-
skálakirkju er fyrst getið um árið
1200 þannig að líkur eru á að sókn-
in sé yfir átta hundruð ára. Elsti
hlutur sem kirkjan á er tinkanna
frá árinu 1775. Sr. Guðmundur
Guðmundsson hefir starfað lengst
klerka við Útskálasókn frá því að
kirkjan var tekin í notkun.
Ýmislegt fleira bar að sjálfsögðu
á góma hjá þessum lærðu mönnum
sem oft fóru á kostum í ræðum sín-
um. Það kom t.d. fram að sr. Ólaf-
ur biskup er alinn upp í Útskála-
sókn. Glafur er ættaður úr Keflavík
en Keflavík tilheyrði Útskálasókn
fram yfir miðja þessá öld.
Ýmis skemmtiatriði voru í sam-
komuhúsinu. Bjöllukór spilaði.
Barnakór söng ásamt kirkjukórn-
um. Hlíf Pétursdóttir söng með
glæsileik og tilþrifum með undirleik
Uwe Eschner og ung dama lék ein-
leik á píand.
Arnór
Kammermúsíkklúbburinn:
Mozart-tónleikar
í Bústaðakirkju
Kammermúsíkklúbburinn
heldur þriðju tónleika starfsárs-
ins í Bústaðakirkju á sunnudag,
24. nóvember, kl. 20.30. Á efnis-
skrá eru verk eftir Wolfgang
Amadeus Mozart, en tvöhundr-
uðustu ártíðar hans er minnst
þann 5. desember nk.
Fyrsta verk tónleikanna er dúó
fyrir fiðlu og lágfiðlu í B-dúr, k.
424. Sigrún Eðvaldsdóttir og Helga
Þórarinsdóttir leika. Annað verkið
er sónata fyrir fiðlu og píanó í e-
moll, K. 304. Sigrún og Snorri Sigf-
ús Birgisson leika. Þá leika Óskar
Ingólfsson, Helga og Snorri Sigfús
tríó fyrir klarinettu, lágfiðlu og
píanó í Es-dúr, K. 498.
Eftir hlé flytja þau Sigrún Eð-
valdsóttir, Zbigniew Dubik, Helga
Þórarinsdóttir, Guðmundur Krist-
mundsson og Nora Komblueh
kvintett fyrir tvær fiðlur, tvær iág-
fiðlur og knéfiðlu í g-moll, K. 516.
Morgunblaðið/Emilía
Baldvin Árnason sýnir nú í Tangasal á Hótel Loftleiðum.
■ BALDVIN Arnason sýnir nú
málverk í nýjum sýningarsal á Hót-
el Loftleiðum, Tangasal. Baldvin
er fæddur í Reykjavík árið 1934.
Hann stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskólann og fór síðan
til framhaldsnáms við Frikunst
akademien í Kaupmannahöfn, þar
sem hann var um þriggja áraskeið.
Síðar fór Baldvin til náms í högg-
myndalist við Camden Art Center
í London. Á liðnum árum hefur
hann haldið sýningar bæði hér á
landi og erlendis. Má þar nefna
sýningar í Danmörku, Færeyjum
og nú síðast á Grænlandi. Sýningu
Baldvins í Tangasal lýkur á sunnu-
dagskvöld, 24. hóvembér.
Frá 998.
stqr. á qötuna
BRIMB0RG
Innifalib
Faxafeni 8 • S: 91-685870
705 hö
160000, 16 vent/a
med beinni innspýtingu
Innifalib
Vökvastýri
Klukka
Skipt aftursætisbak
Skráning
Höfuöpúbar aö aftan
Plussklædd sæti
Samlæsing
B ára ábyrgö
Verksmiöjuryövörn
Ný númer
Heilir hjólkoppar
Skottlok/bensínlok
opnast innanfrá
FEfíOZA l 4x4
EL-U
1600 cc, 16 ventia
med beinni innspýtingu
Vökvastýri
Klukka
Skráning
Plussklædd sæti
3 ára ábyrgö
Verksmiöjuryövörn
Ný númer
Varadekkshlíf
Driflokur
Skottlok/bensínlok
opnast innanfrá