Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 19

Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 19 vinnuástand í einstökum byggðar- lögum. Þeir myndu kaupa fisk- vinnslustöðvar, sem eru hagkvæm- ar, og slík fyrirtæki hafa engum skyldum að gegna gagnvart íbúun- um, það hefur fyrst og fremst skyld- um að gegna gagnvart hluthöfum sínum.” Ég endurtek: Með aðild að EES erum við að hleypa inn í landið gróðaþyrstu auðmagni. Það er mergurinn málsins. Talsmenn EES segja: Það er engin hætta á að erlent auðmagn fái hér fótfestu. Við höfum fyrir- vara, við munum setja upp girðing- ar okkur til varnar. Ég spyr: Hvernig í ósköpunum er hægt að setja upp girðingar sem koma að gagni? Ríkisstjórnin boðar einkavæðingu orkustofnana og rík- isbanka. Stofnuð verða svokölluð aimenningshlutafélög. Hlutabréfin ganga kaupum og sölum. Erlendum aðilum eru heimiluð kaup. Er ekki ljóst að hið „gróðaþyrsta auðmagn” muni koma til sögunnar? 7. Ef afglöp Jóns Baldvins í umræð- um EB og EFTA um EES eru tíund- uð þá eru þau þessi helst: Hann átti mestan þátt í því að ísland fylkti sér í hóp EFTA-ríkj- anna þrátt fyrir þá staðreynd að þau höfðu allt annarra hagsmuna að gæta en ísland. í samningaviðræðunum glutraði hann niður þýðingarmiklum fyrir- vörum sem Steingrímur Hermanns- son setti fram í ræðu sinni í Ósló í mars 1989. Hann gekk á snið við samráð- herra sína í ríkisstjórn Steingríms og hann hefur allt frá upphafi við- ræðnanna látið undir höfuð leggjast að hafa náið samráð við utanríkis- málanefnd Alþingis — þrátt fyrir að það er tilskilið í lögum. Eins og áður segir þá hafa nefndarmenn enn þann dag í dag ekki fengið næg gögn til yfirvegunar. 8. íslenska þjóðin stendur frammi fyrir miklum vanda nú um stundir — eins og svo oft áður. Kvótaskerð- ing, atvinnuleysi, orkuvextir, verð- bólga. Ult er að vita til alls þessa, en þetta eru innanríkismál. Með atorku sinni, dugnaði og menntun mun þjóðin sigrast á erfið- leikunum. Samningurinn um þátttöku Is- lands í efnahagssvæði Evrópu er utanríkismál. Fari svo að við íslend- ingar gerumst aðilar að EES þá ráðum við ekki einir ferðinni inn í 21. öldina. Það voru orð að sönnu sem Stein- grímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu til þjóðarinnar um síðustu áramót: „Éins og sagan sýnir munu er- lendar þjóðir eða efnahagssam- steypur aldrei láta stjórnast af hagsmunum hinnar örsmáu ís- lensku þjóðar, ef þær mega ráða landsins auði. Minnumst þess jafn- Tónleikar Hljómsveit- ar Tónlist- arskólans FYRSTU tónleikar Hyóm- sveitar Tónlistarskólans í Reykjavík á þessu skólaári verða haldnir í Langholts- kirkju laugardaginn 23. nóv- ember nk. og hefjast kl. 17.00. Fluttur verður forleikur að Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir W.A. Mozart og einnig aríur og dúett úr sömu óperu. Einsöngvarar eru Hlín Péturs- dóttir, sópran, Laufey Helga Geirsdóttir, sópran, og Tómas Tómasson, bassi, en þau eru öll nemendur í skólanum. Jafn- framt verður flutt Sinfónía nr. 7 í A-dúr op. 92 eftir L. van Beethoven. Stjómandi er Örn Óskarsson. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. (Fréttatilkyiming) Skuldin við starfsmenn Stj örnunnar 1,8 milljónir segir fyrrverandi starfsmaður Jóhannesar Skúlasonar FYRRVERANDI starfsmenn Jóhannesar B. Skúlasonar, útvarps- stjóra nýju útvarpsstöðvarinnar Sólarinnar, á Stjörnunni, segja að hann skuldi þeim laun, og að það sé alrangt að Jóhannes hafi ekki fengið reikninga fyrir þeim launum, sem hann skuldi þeim, eins og fram kom í viðtali við hann í Morgunblaðinu s.l. miðvikudag. framt að alþjóðleg fyrirtæki, sem velta árlega margföldum þjóðar- tekjum okkar íslendinga, eiga hægt með að eingast það, sem þau girn- ast, ef landamærin eru ekki vel varin.” Hannibal Valdimarsson var þjóð- rækinn maður og mikill jafnaðar- maður. Enn' vísa ég til orða hans: „Ég heiti á þjóðina að kynna sér þetta stærsta mál íslenskra stjórn- mála vandlega — og forðast að láta blekkja sig — hefja málið langt yfir flokka og kreíjast þess að þjóð- in verði áður spurð annaðhvort með þjóðaratkvæðagreiðslu, eða beinum alþingiskosningum sem fyrst og fremst snúast um þetta mál.” Höfundur er hagfræðingur og var aðstoðarmaður Lúðvíks Jósepssonar, ráðherra, 1971-74, varamaðurí bankaráði Seðlabankans 1972-80 og Útvegsbankans 1982-86. Þóra Hjartar er ein þeirra sem starfaði á Stjörnunni undir stjórn Jóhannesar á sínum tíma. Hún seg- ist vera búin að senda honum reikn- ing fyrir því sem hann skuldi henni. „Jóhannes skuldar mér hluta launa minna fyrir septembermánuð, og einnig hluta launa í október. Ég er reyndar mjög heppin því að sumum skuldar hann laun allt aftur í maí. Ég get aðeins staðfest að þessi upphæð sem hann skuldar mér er um 50 þúsund krónur. Ég er sölu- maður og hann tók með sér öll þau sölugögn, sem við höfðum aflað okkur,” segir Þóra. Hún segir að sá hópur, sem eigi launakröfur á hendur Jóhannesi hafí tekið sig saman og ætli að fara með málið til lögfræðings. „Jó- hannes skuldar fólki allt upp í 200 þúsund krónur, og af því má sjá að persónulega stend ég nokkuð vel.” Þóra segir að í heild séu það um 1,8 milljónir króna sem Jóhannes skuldi þeim. „Þess vegna, eins og gefur að skilja, erum við orðin mjög þreytt og vond yfír þessu máli,” sagði Þór Hjartar að lokum. FRELSI SEMDU VIÐ §§§ SJÁLFAN ÞIGUM SKATT- Jón Grímur Jónsson geröi tímamótasamning viö sjálfan sig. Hann ákvað aö kaupa sér Launabréf og getur nú greitt sjálfum sér laun meö nýjum hætti. Launin eru vextirnir af bréfunum, sem eru greiddir fjórum sinnum á ári, og veröbætur leggjast viö höfuðstólinn þannig aö hann heldur verögildi sínu. Þar aö auki eru Launabréfin skattfrjáls. Eigandi þeirra greiöir hvorki eignarskatt af höfuðstólnum né tekjuskatt af vöxtunum. Þaö eru fleiri en Jón Grímur sem geta notiö árangurs erfiöis síns og skapaö sér og sínum meiri tíma og ánægju. Faröu aö dæmi hans’: Festu fé þitt í Launabréfum, bréfum sem eru skattfrjáls tekjulind og einvörðungu byggð á ríkistryggðum eignum. Kynntu þér kosti Launabréfa hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum Landsbréfa í útibúum Landsbanka íslands um allt land. m LANDSBRÉF H.F. ? Landsbankinn stendur meö okkur 1 Suöurlandsbraut 24, sími 679200 « Löggilt veröbréfafyrirtæki Aöili að Verðbréfaþingi íslands =

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.