Morgunblaðið - 22.11.1991, Side 24

Morgunblaðið - 22.11.1991, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 Jón Baldvin Hannibalsson: Sósíalisminn sam- ræmist ekki lýðræði > ____ Olafur Ragnar er framsóknarmaður í pólitískri gíslingu „OLAFUR Ragnar Grímsson hefur aldrei tilheyrt þessum flokki sem hann er formaður fyrir. Hann var framsóknarmaður og er það í raun og veru enn. Hann er hins vegar í pólitískri gíslingu hjá þessu liði og það hentar þeim nú í stjórnarandstöðu að flagga honum, af því að fortíð hans er í þeim skilningi flekklaus að hann hefur ekki verið áhangandi þeirrar hugmyndafræði sem nú er í rústum um gervalla heimsbyggðina, eins og þeir hinir,” segir Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins. „Sósíalismi er í reynd stjórnkerfi sem samræmist ekki lýðræði og það gerðu jafnaðarmannaflokkar í Vestur Evrópu sér grein fyrir upp úr 1930. Okkar stefna heitir sósíal demókratí og byggir á gmnnhug- myndum um lýðræði og réttarríki. Alþýðubandalagið er með seinustu pólitísku söfnuðum í veraldarsög- unni til að uppgötva þetta núna. Ég þekki reyndar svo vel til innan veggja Alþýðubandalagsins að ég veit að þrátt fyrir þessa varaþjónk- un, er meginhlutinn af forystu- mönnum flokksins alls ekki sam- mála þessum hugmyndum. Þeir þora einfaldlega ekki að hampa sín- um eigin, vegna þess að þær eru dauðar,” sagði Jón þegar hann var ■ í HREYFILISTAHÚSINU Vesturgötu 5, fer fram kennsla í kínverskri leikfimi eða Tijiquan. Tijiquan er afslöppuð og róleg lík- amleg athöfn, sem getur hjálpað fólki að halda sér í andlegu og lík- amlegu formi. Nú eru að hefjast ' námskeið fyrir barnshafandi konur, þar sem áhersla er lögð á öndun, hugarró, þjálfun grindarbotnsvöðva og opnun á flæði til líffæra. (Fréttatilkynning) ■ ÍSLANDSMÓT kvenna 1991 verður haldið dagana 22. nóvember til 24. nóvember nk. í Faxafeni 12, Reykjavík. Tefldar verða 7 umferð- ir. Tímamörk 2 klst. á 40 leiki og 30 mín. til að ljúka skákinni. Gert er ráð fyrir 1 umf. kl. 19.00 föstu- daginn 22. nóv. Síðan verður teflt á laugardag og sunnudag. Sigur- vegarinn fær fríar ferðir á skákmót erlendis einhvem tíma á því tíma- bili sem hann heldur titlinum. spurður álits á hvort jafnaðar- mennska og sósíalismi gætu farið saman. Jón sagði að Alþýðuflokkurinn hefði verið jafnaðarmannaflokkur íslands í meira en 70 ár og þyrfti ekki að biðjast afsökunar á fortíð sinni öfugt við Alþýðubandalagið. „Alþýðuflokkurinn hefur verið boð- beri lýðræðissinnaðrar jafnaðar- stefnu allan þennan tíma og er það enn. Á þessu tímabili hefur Alþýðu- bandalagið og forveri þess háð heil- agt hugmyndafræðilegt stríð gegn Alþýðuflokknum og hugmyndum lýðræðissinnaðrar jafnaðarstefnu. Þeirra hugmyndaarfur var mótaður á árunum milli heimsstyijalda og var ótvírætt sovéttrúboð. Nú er fortíð þeirra öll í ösku og í þeim skilningi er það rétt skilið hjá Ólafi Ragnari að Alþýðubandalagið er pólitísk flóttamannasamtök frá fortíðinni. Þeir telja nú rétt að nudda sér utan í þá jafnaðarstefnu sem Alþýðuflokkurinn er málsvari fyrir- og ekkert nema gott um það að segja. Við jafnaðarmenn fögnum öllum nýjum liðskosti,” sagði Jón. Hann sagði athyglisvert að þessi sinnaskipti ættu sér stað nú. „Allt efnahagskerfi og stjórnkerfi þess sem Alþýðubandalagið boðaði sem sósíalisma er nú á öskuhaugum sögunnar, og kemur vonandi aldrei þaðan aftur. Það er ekki pláss á Islandi nema fyrir einn jafnaðar- mannaflokk. Það er að sjálfsögðu sá flokkur sem ekki þarf að biðjast afsökunar á fortíð sinni og hefur alla tíð haldið fram gildi lýðræðis- legrar jafnaðarstefnu, og þarf þess vegna ekki að taka hugmyndafræði sína til algjörs endurmats. Þetta er því eins og hvert önnur fjölmiðla- sýning, sem ólafur Ragnar er snill- ingur í,” sagði hann. Morgunblaðið/Rúnar Þór. Loksins loðna SÚLAN frá Akureyri landaði í gærkvöldi 600 tonnum af loðnu á Krossanesi. Loðnuvertíð hefur gengið illa það sem af er hausti, tíð verið rysj- ótt og loðnan ekki fundist eða staðið djúpt. Síðustu daga hefur heldur ræst úr og nokkur skip fengið afla. Myndin var tekin í gærkvöidi er byijað var að landa úr Súlunni. Landsfundur Alþýðubandalagsins hófst í gær; Jafnaðarmannaflokk- ur íslands er hér -sagði Ólafur Ragnar Grímsson formaður í setningarræðu sinni ÓLAFUR Ragnar Grímson, formaður Alþýðubandalagsins, beindi harðri gagnrýni að ríkisstjórninni í setningarræðu sinni á 10. lands- fundi flokksins sem hófst í gær. Sagði hann ríkisstjórnina magna átök, andstæður og fjandskap í þjóðfélaginu. Lýsti hann Alþýðu- bandalagið reiðubúið til viðræðna við aðra stjórnmálaflokka um myndun nýrrar ríkissljórnar sem kæmi tillögum, sem væru lykill að nýjum kjarasamningum og stöðugleika, í framkvæmd, í samvinnu við samtök launafólks og atvinnulífs. Ólafur sagði að Alþýðuflokkur- inn hefði svikið jafnaðarmenn, skreytt sig nafnbótinni Jafnaðar- mannaflokkur Islands fyrir ári, sem nú væri háðsmerki við verk forystunnar. „Jafnaðarmannaflokkur Islands er hér,” sagði formað- ur Alþýðubandalagsins. „Á þessum fundi munum’ við samþykkja nýja stefnuskrá. Stefnu- skrá sem svarar skýrt hvert við viljum halda. Stefnuskrá sem verð- ur leiðarvísir um ókomin ár,” sagði formaðurinn. „Við heitum því að bera með réttu, í raun og sann heiti jafnaðar- stefnunnar og þeirrar róttækni og félagshyggju sem ísland þarf nú á að halda. Og við segjum við þær þúsundir sem trúðu því að aðrir myndu bera þetta merki en voru sviknir í vikunni eftir kjördag; Við bjóðum ykkur velkomin í okkar samfylgd. Og við segjum einnig við þá sem voru áður fyrr í okkar flokki en létu blekkjast af þeim sem sögðu eitt en gerðu annað; Verið velkomin heim,” sagði hann. „Þúsundir heim- ilislausra jafnaðaiTnanna og félags- hyggjufólks á íslandi er nú að leita að vettvangi samstarfs og forystu. Við bjóðum ykkur velkomin í okkar lið,” sagði Olafur. Um Sjálfstæðisflokkinn sagði Ólafur að hann væri klofinn niður í rót og væri núna flokkur lítillar, harðsvíraðrar klíku sem ætlaði að steypa íslenskt samfélag í mót kreddna Friedmans og Heyeks. Formaðurinn fjallaði einnig um tillögur flokksins um lífskjarajöfnun og aðgerðir í atvinnulífinu, sem hann sagði að hefðu m.a. hlotið hljómgrunn hjá forsvarsmönnum atvinnulífsins. Hélt hann því fram að ef Alþýðuflokkurinn hefði ekki hlaupið burt úr síðustu ríkisstjórn hefðu tillögumar þegar verið fram- kvæmdar og nýjum kjarasamning- um verið lokið í sumar og haust. Ólafur sagði að meðal verkefna framtíðarinnar væru möguleikar á að gera samninga við aðila í fjar- lægum heimsálfum um sameigin- lega hagsmuni í sjávarútvegi og fískveiðum og nefndi sem dæmi Mexíkó, Indland og Indónesíu. „Ég veit af viðræðum við fjölmarga for- ystumenn þessara ríkja að þeir eru reiðubúnir til að setjast að samn- ingaborðinu með íslenskum útgerð- armönnum, kaupa kunnáttu okkar í sjávarútvegi og fískvinnslu og gera samkomulag um veiðar okkar skipa í þeirra landhelgi gegn endur- gjaldi af sölu aflans í gegnum mark- aðskerfí okkar og fá síðan aðstoð íslendinga við að þróa fiskiðnað og vinnslu í heimalöndum þeirra,” sagði Ólafur. Sósíalismi og markaðsbúskapur í stefnuskrárdrögnm Alþýðubandalagsins: Jafnaðarstefna og ákveðið hlutverk frjálsrar samkeppni fara ágætlega saman - segir Steingrímur J. Sigfússon, varaformaður flokksins „ALÞÝÐUBANDALAGIÐ er flokkur jafnaðarstefnu og félags- hyggju, róttækur flokkur sem byggir á grunnhugmyndum jafnað- arstefnunnar, sósíalismans, um jafnrétti, lýðræði og félagslegt réttlæti,” segir í skilgreiningu á Alþýðubandalaginu í drögum að nýrri stefnuskrá , sem lögð hafa verið fram á landsfundi flokksins. Áhersla er lögð á lýðræði og að flokkurinn hafni frjáls- hyggju og einnig „alráðri forsjárhyggju hins opinbera” en nýta beri kosti markaðsbúskapar á margvíslegum sviðum. „Við vísum í grunnhugmyndir jafnaðarstefnunnar, sósíalismans, og óumdeil- anlega sækja jafnaðarmannaflokkar, sósíalistar, ákveðnar hug- myndir í þá átt,” segir Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og varaformaður flokksins, en hann vann að lokafrágangi stefnu- skrárdraganna ásamt Má Guðmundssyni hagfræðingi. Kjartan Valgarðsson, formaður Birtingar, segist hafa viljað losna við hugtakið „sósíalisma” úr stefnuskránni en segist sætta sig við það, því það hafi sömu merkingu og jafnaðarstefna, einsog það kemur fram í drögunum. „Grunnþættir þessa plaggs eru fjórir: Blandað hagkerfí, lýðræði, jafnaðarstefnan og græni þráður- inn, sem er töluvert sterkur,” seg- ir Már. „Sósíalismi er aðeins er- lent orð yfír jafnaðarstefnu,” sagði hann. Már benti á að Al- þjóðasamband jafriaðarmanna bæri nafnið The Socialist Intern- ational og meðlimir Verkamanna- flokksins í Bretlandi, Sósíalista- flokksins í F’rakklandi og sænskir jafnaðarmenn kenndu sig við sós- íalisma. Már sagði að orðalag stefnu- skrárdraganna um að nýta' beri kosti markaðasbúskapar á marg- víslegum sviðum fari vel saman með jafnaðarstefnu. „Það fer hins vegar ekki saman að dýrka mark- aðinn sem trúarbrögð, heldur á að nota hann þar sem hann leiðir gott af sér. Þetta hafa sósíaldemó- kratar um allan heim gert. Þetta er ekki sérstök áhersla á markað- inn heldur fyrst og fremst skil- greining á því hvert hlutverk hans eigi að vera. Hlutverk markaðarins Steingrímur benti á að stefnu- skráin væri stutt og ætti fyrst og fremst að geta verið grundvallar- yfírlýsing sem stæðist tímans tönn óháð ýmsum breytingum á líðandi stund. „Sú lýðræðislega jafnaðarstefna sem við stöndum fyrir er skilgreind og er vísað í ákveðnar grunrthugmyndir jafn- aðarstefnunnar, sósíalismann, um jafnrétti og jöfnuð, lýðræði og félagslegt réttlæti. A öðrum stað er víkið að því að við aðhyllumst blandað hagkerfí á félagslegum grunni, þar sem markaðinum er ætlað ákveðið hlutverk en honum eru settar skýrar skorður og minnt á að hann eigi að vera þjónn en ekki herra, tæki en ekki trúar- brögð. Ég tel að þannig fari ágæt- lega saman nútímaleg, lýðræðis- leg jafnaðarstefna og ákveðið hlutverk sem fijáls samkeppni og markaður gegnir, á að gegna og getur vel gegnt. Við erum jafn andvígir óheftri fijálshyggju og frumskógarlögmálum eftir sem áður. Við setjum því mjög skýrar skorður innan hvaða takmarkana markaður og samkeppni eigi að vera í farsælu þjóðfélagi,” sagði Steingrímur. Birting hefði viljað losna við hugtakið „sósíalismi Kjartan Valgarðsson, formaður Birtingar, sagðist vera vel sáttur við stefnuskrárdrögin þó hann vildi gjarnan losna við hugtakið „sósíalisma”. „Við erum andstæð- ingar sósíalisma í merkingunni ríkisrekstur og miðstýring en ég , lít á þetta orð, eins og það kemur fyrir í stefnuskrárdrögunum, ein- göngu sem þýðingu á jafnaðar- stefnu,” sagði Kjartan. „Ég tel ■jrniod mmaTöm'fí ifmieúri traöftn þessa stefnuskrá mikilvægan áfanga og að hún sé árangur af því starfi sem við höfum unnið innan flokksins undanfarin tvö ár,” sagði hann. Endurskoðun stefnuskrár flokksins má rekja aftur til lands- fundar 1983 þegar þáverandi for- maður, Svavar Gestsson, lagði til að farið yrði í endurskoðun stefnu- skrár, og var það samþykkt. Margvísleg uppköst og drög hafa síðan verið til umræðu í flokknum. Á landsfundi 1989 lagði stefnu- skrárnefnd fram drög sem sættu mikilli gagnrýni en á miðstjórnar- fundi á Akureyri í október 1990 var samþykkt plagg sem kom að nokkru í stað stefnuskrár til bráðabirgða og var gildandi stefnuskrá afnumin. Æðstu stofn- anir flokksins hafa fjallað um lokadrög að stefnuskrá flokksins á undanförnum mánuðum og að sögn viðmælenda Morgunblaðsins hefur náðst víðtæk sátt í flokkn- um um hana. Er fastlega búist við að hún verði afgreidd sem ný stefnuskrá flokksins á landsfund- inum án verulegra breytinga. „Ég tel að breytingartillögur þurfi að vera vel rökstuddar og ígrundaðar ef þær eiga að hrófla við þessu plaggi í veigamiklum atriðum. Menn munu ekki gleypa við hug- myndum um breytingar nema þær séu vel rökstuddar eftir þá vinnu sem búið er að leggja í þessi drög,” sagði.Steingrímur, uniýlTErrran.l 6om nibn' i 1 I i I I I I > ) i ft

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.