Morgunblaðið - 22.11.1991, Page 32

Morgunblaðið - 22.11.1991, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 Morgunblaðið/Rúnar Þór „Þetta var 25 bala hús,” sagði Gunnar Jónsson starfsmaður hjá Endurskoðun Akureyrar, en verulegt tjón varð á húsnæði félagsins vegna leka í fyrrinótt. Umtalsvert tjón vegria leka í tveimur húsum UMTALSVERT tjón varð vegna vatnsleka á tveimur húsum á Akur- eyri í fyrrinótt, annars vegar í húsnæði Endurskoðunar Akureyrar við Glerárgötu 24 og hins vegar í Hafnarstræti 100 þar sem bókabúð- in Edda er til húsa. Gunnar Jónsson starfsmaður Endurskoðunar Akureyrar sagði að lekans hefði orðið vart í fyrrakvöld er starfsmaður átti fyrir tilviljun leið í fyrirtækið. Fjöldi fólks vann við það í fyrrinótt að soga upp bleytu. Undirstaða niðurfallsrörs gaf sig á kafla með þeim afleiðingum að vatn safnaðist saman á þakinu og fann sér síðan leið niður í gegnum þak- plötuna, en mikill snjór var á þakinu sem bráðnaði er fór að hlána í fyrra- dag. Gunnar sagði að um verulegt tjón væri að ræða, loft væri ónýtt að hluta, sem og milliveggir, teppi og innanstokksmunir auk þess sem vatn hefði flætt yfir tvær tölvur. Þorsteinn Thorlacius eigandi bókabúðarinnar Eddu í Hafnarstræti 100 sagði að kaldavatnsrör á salerni þriðju hæðar hússins hefði af ókunn- um ástæðum gefið sig með þeim afleiðingum að allt fór á flot. „Við tókum eftir því um morguninn þegar við komum til vinnu að það voru dropar í loftinu og þegar betur var að gáð reyndist rörið hafa gefið sig. Það var allt á floti niðri í kjallara hússins, en þar er aðailager verslun- arinnar. Við geymdum þar m.a. tölv- ur og tæki, ritföng og bækur og er hluti af því skemmdur,” sagði Þor- steinn. Bókabúðin er á fyrstu hæð húss- ins, en engin starfsemi hefur verið á efri hæðunum þremur frá því síð- asta vor er þar var rekinn skemmti- staður. Ferðafélag Akureyrar: Undirskriftum safnað til að mótmæla legu Fljótsdalslínu 1 FERÐAFÉLAG Akureyrar stendur nú að söfnun undir- skrifta til að mótmæla fyrirhug- aðri legu Fljótsdalslínu 1, há- spennulínu frá Fljótsdalsvirkjun til Akureyrar. Þegar hafa nokkr- ir tugir manna ritað nöfn sín á Markaðstorg Þórsara af stað á ný ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór fer á ný af stað með markaðstorg með svipuðu sniði og félagið hefur staðið fyrir síðastliðin ár, en ástæða þess að það fer svo seint af stað er að ekki hefur fundist hentugt húsnæði fyrr. Til bráðabirgða hafa Þórsarar fengið inni í húsnæði við Árstíg þar sem fyrirhugað er að slökkvistöð Akureyrarbæjar verði í framtíðinni. Húsnæði þetta er skammt frá íþrótt- askemmunni og síðast rak Sæplast þar einingaverksmiðju. Fyrsta markaðstorgið verður á morgur., laugardag, og verður það opnað kl. 11 og er opið til kl. 16. Undanfarnar vikur hafa fjölmargir aðilar haft samband við forráðamenn félagsins og lýst yfir áhuga á að fá leigða sölubása, þannig að þess er . að vænta að líflegt verði í „slökkvil- iðsstöðinni” nú síðustu vikumar fyrir jólin. listana, en um helgina verður opið hús hjá Ferðafélaginu þar sem fólki gefst kostur á að skrifa undir mótmælin. Athugasemdum á að skila fyrir 5. desember næst- komandi. Mótmæli Ferðafélags Akureyrar beinast að fyrirhugaðri lagningu línunnar yfir Ódáðahraun sunnan Herðubreiðatagla, en norðan Dyngjufjalla að Svartárkoti. Lín- unni er ætlað að liggja rétt sunnan Herðubreiðartagla, sveigja þar til norð-vesturs fyrir norðan Vikrafell, liggja síðan syðst við rætur Svörtu- dyngju norðan við Stórukistu og um Fjárhóla. Línan lægi um Út- bruna og Frambruna sunnan Svart- árbotna og um Suðurárhraun, þar sveigði hún til norðurs, þveraði Suðurá suðvestan við Svartárkot, færi austan í Háutungum og þver- aði Svartá austan við Svartárgil með stefnu fyrir ofan Bjarnastaði og Rauðafell. Guðmundur Gunnarsson hjá F'erðafélagi Akureyrar sagði að fyrst og fremst væri félagið að mótmæla legu línunnar um Odáða- hraun. „Það er svæði sem snertir okkur sérstaklega, það má segja að félagið hafi numið þama land, en á þessu svæði eigum við tvo skála, Þorsteinsskála við Herðu- breiðarlindir og Dreka í Dyngjufjöll- um,” sagði Guðmundur. Hann sagði að félagið vildi mót- mæla legu línunnar í svo mikilli nálægð við Dyngjufjöll og Öskju, þetta væri svæði sem mikið aðdrátt- arafl hefði fyrir ferðamenn, en yrði línan lögð þar sem fyrirhugað er að leggja hana hlytist af veruleg sjónmengun fyrir þá sem leið sína legðu í Öskju. Skrifstofa Ferðafélags Akur- eyrar við Strandgötu 23 verður opin á morgun, laugardag, frá kl. Björk, Mývatnssveit. SVEITARSTJÓRN Skútustaða- hrepps beinir því til ríkisvalds- ins, að það beiti sér fyrir rann- sóknum á bleikju- og urriðastofni Mývatns. Rannsóknin skal hafa það markmið að svara spurning- unni: Hver er orsök eða orsakir þess að veiði bleikju úr Mývatni liefur farið minnkandi á síðari árum? I greinargerð segir: „Nytjar veiðihlunninda eru efnahag veiði- réttarhafa mikilvæg. Samdráttur í hefðbundnum landbúnaði auka enn mikilvægi þessara hlunninda. Alda- löng hefð silungsveiði í Mývatni hefur skapað einn þátt atvinnu- menningar sem ber að viðhalda. Alþingi hefur með lögum sett skorð- ur við nýtingu lands og möguleikum atvinnuuppbyggingar í Mývatns- sveit, sem hljóta að hafa í för með sér skyldur af hálfu ríkisvaldsins. Óvissa um orsakir minnkandi veiði í Mývatni veldur spennu, sem hefur óæskileg áhrif í samfélaginu. Vitað er um minnkandi silungsveiði í mörgum íslenskum vötnum síðari ár, því gæti rannsóknin haft víð- tækt gildi varðandi nytjar veiði- vatna. Verkefnið er viðamikið, Skútu- staðahreppur hefur ekki bolmagn til að ráðast í það. Eðlilegt virðist KG-BOLSTRUN Fjölnisgötu 4N Hýsmiðl - vlðgeiðii 1$. 96-26123. hs. 96-26116. 13 til 17 og á sunnudag frá kl. 13 til 16, en þar munu undirskriftar- listar liggja frammi þar sem þeim sem eru sama sinnis og félagsmönn- um gefst kostur á að koma mótmæl- um sínum á framfæri. Frestur til að gera athugasemdir við línulögn- ina rennur út 5. desember næst- komandi. að Veiðimálastofnun í samvinnu við veiðiréttarhafa og fleiri, svo sem Stéttarsamband bænda, hafi rann- sóknina með höndum.” - Kristján -----» ♦ ♦----- Kvikmyndaklúbb- ur Akureyrar: Þrjár mynd- ir sýndar um helgina KVIKMYNDAKLÚBBUR Akur- eyrar efnir til sýninga á þremur myndum nú um hclgina í Borg- arbíói. Tvær þeirra voru sýndar á Kvikmyndahátíð Listahátíðar í október og ein var sýnd á franskri kvikmyndaviku fyrr á þessu ári. Þetta eru myndirnar Ó, Carmela, sem gerist í spænsku borgarastyij- öldinni, fjörug og skemmtileg mynd með alvarlegum undirtón sem verður sýnd á morgun, laugardag, kl. 17. Þá verður óskarsverðlaunamyndin Vegur vonar sýnd á sunnudag kl. 17, en þar segir frá tyrkneskri fjöl- skyldu er lendir í hörmungum á leið til fyrirheitna landsins, Sviss. Loks verður franska myndin Cyrano de Bergerac sýnd kl. 18.30 á mánudag, 25. nóvember. Ó, Carmela verður einnig sýnd kl. 18.30 á fimmtudag í næstu viku og Cyrano de Bergerac kl. 17 laugar- daginn 30. nóvember næstkomandi. (Frcttatilkynning) hw^híI’ííI : t nijfll asipsPipBP Versliiiiar/skrifstofiiliúsiiæúl Til leigu er 176 fm húsnæði í Kaupangi við Mýrarveg á Akureyri. Húsnæðið skiptist í jarðhæð og kjallara og hentar vel sem verslunar- eða skrifstofuhús- næði. Húsnæðið er laust nú þegar. Upplýsingar gefnar á Fasteignasölunni, Brekkgötu 4, Akureyri, í síma 96-21744. Mývatnssveit: Orsakir mirmkandi bleikju- veiði verði rannsakaðar Kristján Kristjánsson — KK. ■ KRISTJÁN Kristjánsson, söngvari, gítarleikari og munn- hörpuleikari og Þorleifur Guð- jónsson, bassaleikari, skemmta á veitingastaðnum Gikknum, Ármúla 7, um helgina, bæði í kvöld og ann- að kvöld. Þeir flytja meðal annars lög af nýrri plötu KK-bandsins, „The Lucky One” sem kemur út í næstu viku, en einnig ný og gömul blús og bluegrass-lög. -----» ♦ ♦---- Alþýðubandalagið á Reykjanesi: Forkastanleg aðför að fé- lögum okkar STJÓRN kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsins á Reykjanesi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mótmælt er þeim rökum fyrir útgöngu HÍK og FÍN úr BHM að leiðtogar BHM skuli hafa tekið sæti á lista Alþýðubandalagsins fyrir síðustu alþingiskosningar. í yfirlýsingu stjórnarinnar segir m.a.: „Þátttaka í stjórnmálum eru grundvallarmannréttindi sem ekki geta takmarkast. Með rökum sínum reyna forystumenn stéttarfélaga að hræða fólk frá þátttöku í stjórnmál- um. Aðförin að félögum okkar er einnig forkastanleg í ljósi þess að þeir Heimir Pálsson og Gunnlaugur Ástgeirsson eru með reyndustu og virkustu forystumönnum sinnar stéttar.” Borghildur Óskarsdóttir Sýnir á Kjarv- alsstöðum BORGHILDUR Óskarsdóttir opn- ar laugardaginn 23. nóvember 5. einkasýningu sína á Kjarvalsstöð- um. Borghildur hóf listnám 17 ára við Myndlista- og handíðaskóla íslands og síðar við iistaskólann í Edinborg. Seinna tók hún próf úr kennaradeild Myndlista- og handíðaskólans og kenndi börnum og fullorðnum mynd- list í 10 ár við Myndlistaskólann í Reykjavík. Síðustu ár hefur Borghildur unnið eingöngu að fijálsari myndlist og tekið þátt í fjölda sýninga víða um heim. -------»■-■♦■-♦--- M ÞESSA helgi mun Sri Chimnoy- setrið halda námskeið í jóga og hugleiðslu. Á námskeiðinu verða kenndar slökunar- og einbeitinga- ræfingar jafnframt því sem hug- leiðsla er kynnt sem aðferð til betri árangurs í starfi og aukinnar full- nægju í daglegu lífi. Námskeiðið verður haldið í Árnagarði, það er ókeypis og öllum opið. Það er í sex hlutum og byijar fyrsti hlutinn föstudagskvöld kl. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.