Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 34

Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 Listasafn Islands: Sýningxi á verkum Sigurðar að ljúka Yfirlitssýningu á ljósmyndaverkum Sigurðar Guðmundssonar, „Natúra Romantíka” í Listasafni Islands lýkur á sunnudag, 24. nóvem- ber. í frétt frá Listasafni íslands kem- ur fram, að sýningin hafi verið ágætlega sótt og hafi rúmlega 14 þúsund manns séð hana. í tilefni af sýningunni, sem er liður í alþjóð- iegu sýningarátaki sem tengist verkum Sigurðar, var gefin út bók um listamanninn á íslensku og ensku, í samvinnu Máls og menn- ingar og hollenskra aðila. Þessi bók, sem hefur verið til sölu í Lista- safninu, er nú nær uppseld. Almenningi er boðið upp á leið- sögn um sýninguna og fer síðasa leiðsögn fram á sunnudag kl. 15. Listasafn íslands er opið alla daga nema mánudag frá kl. 12-18. Grikkland ár o g síð Grikklandsvinafélagið heldur Hellas kynningarfund í Norræna húsinu í tilefni af útkomu tveggja bóka sem varða Grikkland laugar- daginn 23. nóvember kl.16.00. Þar munu leikaramir Helgi Skúl- ason og Erlingur Gíslason flytja fræga kappræðu Þrasýmakkosar og Sókratesar um réttlætið, úr Rík- inu eftir Platon. Þá verður kynnt bókin Grikkland ár og síð sem er ■ ÞESSA helgi mun Sri Chimnoy-setrið halda námskeið í jóga og hugleiðslu. A námskeiðinu verða kenndar slökunar- og einbeit- ingaræfíngar jafnframt því sem hugleiðsla er kynnt sem aðferð til betri árangurs í starfi og aukinnar fullnægju í daglegu lífi. Námskeiðið verður haldið í Arnagarði, það er ókeypis og öllum opið. Það er í sex hlutum og byijar fyrsti hlutinn föstudagskvöld kl. 20. nýútkomin hjá Hinu íslenska bók- menntafélagi og hefur að geyma 25 greinar eftir núlifandi íslendinga um ýmsa þætti grískrar menning- ar, sögu og þjóðlífs að fornu og nýju, og er hún helguð minningu Sveinbjamar Egilssonar á tveggja alda afmæli hans. Lesið verður úr greinum eftir Friðrik Þórðarson, Guðmund Arn- laugsson, Sigurbjöm Einarsson, Thor Vilhjálmsson og Þórarin Guðnason, en þau Helga Bach- mann, Sigurður A. Magnússon og Þorsteinn Þorsteinsson flytja ljóða- þýðingar úr forngrísku og nýgrísku. Kristján Árnason verður kynnir á samkomunni og er hún öllum opin. (Fréttatilkynning) t Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HALLGRÍMS SIGURÐSSONAR, Suðurgötu 15, Keflavík. Ingvar Hallgrímsson, Guðrún M. Þorleifsdóttir, Guðmundur R. Hallgrimsson, Gerða Halldórsdóttir, Hrafnhildur Hallgrimsdóttir, Garðar Jóhannesson, Hlöðver Hallgrimsson, Guðrún Númadóttir, J. Sigurður Hallgrímsson, Gréta Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SALÓME HALLDÓRSDÓTTUR frá Súðavík. Þórður Sigurðsson, Hjördís O. Þórðardóttir, Sigurður B. Þórðarson, Gerðar Ó. Þórðarson, Gunnar T. Þórðarson, Sæþór M. Þórðarson, Halldór G. Þórðarson, Sesselja G. Þórðardóttir, Sigurborg E. Þórðardóttir, Kristín S. Þórðardóttir, Geir Baldursson, Ásta Ákadóttir, Gyða Óladóttir, Marta Haraldsdóttir, Mikkalína Pálmadóttir, Petrea Emanúelsdóttir, Magnús Þorgilsson. Örnólfur Hálfdánarson, Jón Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Frá æfingu Leikfélags Hveragerðis á syrpu úr verkum meistara Leikfélag Hveragerðis: Syrpa úr verkum Þórbergs á Örkinni Selfossi. SYRPA úr verkum Þórbergs Þórðarsonar verður sýnd í Hótel Örk næstkomandi laugardag, 23. nóvember, klukkan 21. Það er Leikfélag Hveragerðis sem stendur fyrir sýningunni. Að henni iokinni verður stiginn dans við undirleik hljómsveitar Magnúsar Kjartanssonar. Sýningin er eitt af árlegum verk- efnum leikfélagsins. í fyrra voru tekin fyrir nokkur af verkum Hall- dórs Laxness og verkum Jónasar Árnasonar og Kjartans Ragnars- sonar hafa verið gerð svipuð skil. Þau verk Þórbergs sem tekin eru fýrir eru Sálmurinn um blómið, Ofvitinn og Steinarnir tala. Það er Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson sem leikstýrir og í uppfærslunni er mik- ið sungið og greinilegur kraftur í leikurunum. Tónlistin er eftir Atla Heimi Sveinsson og Jóhannes Morávik. Að sögn formanns Leikfélags Hveragerðis, Margrétar Ásgeirs- dóttur, hefur það gefist nokkuð vel að hafa þennan hátt á leiksýning- um félagsins. Leiksýningin hefst klukkan 21 og að henni lokinni verður dansleikur. Sýningarsalur- inn í Hótel Örk tekur um 300 manns og ef aðsókn verður svipuð og í fyrra verður þétt skipaður bekkurinn. Um 40 manns standa að uppfærslunni og dijúgur hluti Leiðrétting í fréttatilkynningu frá Vin- áttufélagi Islands og Króatíu um hjálparstarf í Króatíu kom fram rangt símanúmer þar sem tekið er við gjöfum til hjálparstarfsins, það rétta er 672662. þeirra eru böm og unglingar sem standa sig vel að sögn formanns leikfélagsins. Sig. Jóns. BÍÓHÖLLIN sýnir myndina „Fífldjarfur flótti”. Með aðalhlut- verk fara Rutger Hauer og Mimi Rogers. Leikstjóri er Lewis Teague. Sam hefur fengið vin sinn Frank (Hauer) til að taka þátt í stórþjófn- aði með sér. Þeir ætla að ræna demöntum fyrir 25 millj. dala. Frank er það nokkur hvatning að unnustan hans Noelle (Rogers) er með í ráðum. En ekki fer allt eins og ætlað er. Þau ná að flýja en sitt í hvoru lagi. En endurfundir þeirra verða öðruvísi en Frank áætlaði og kemur það fljótt á daginn að vin- átta og ástir rista ekki djúpt, því Noelle dregur upp skammbyssu og Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson leikstjóri. skýtur Frank þrisvar sinnum í bijóstkassann. En þetta ber alveg þann árangur sem þau höfðu gert ráð fýrir. Að vísu halda Noelle og Sam að þau hafa drepið Frank en svo er ekki og ekki var hann heldur með demantana sem þau gerðu ráð fyrir. Frank heldur hins vegar lífi og er dæmdur í tólf ára fangelsi. Þetta er fangelsi er nýstárlegt, þar eru engir fangelsisveggir heldur bera fangamir hálsmen sem eru þess eðlis að tvö og tvö eru sam- tengd með rafeindum og þau springa ef vegalengdin milli þeirra verður meira en hundrað metrar og veit enginn fanganna hver svo- kallaður maki hans er og það hindr- ar að þeir reyni strok. Eitt atriði úr myndinni „Fífldjarfur flótti”. Bíóhöllin sýnir myndina „Fífldjarfur flótti” t Matargerð er list og undirstaðan er úrvals hráefni mn SMJÖRLÍKISGERÐ ikjöjT ií nr.tr. oöoioc

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.