Morgunblaðið - 22.11.1991, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991
félk f
fréttum
ÞUNGAROKK
Eitriðí
eitrinu
Það hefur heldur betur hallað
undan fæti hjá bandarísku
þungarokkshljómsveitinni sem
hefur hin seinni misseri þótt vera
í hópi bestu, en er samt þekktust
á íslandi fyrir að koma ekki á
Risarokkið í Hafnarfirði síðasta
sumar. Fjórmenningunum gengur
illa að fylgja eftir vinsældum sín-
um og skiptir þar ekki minnstu,
að heiisan er tekin að bresta hjá
hálfri hljómsveitinni, en þannig er
mál vexti, að þeir Rikki Roekett
og Bobby Dall, gítar- og bassaleik-
arar sveitarinnar eru nú langt
leiddir af fíkniefnaneyslu.
Kunnugir segja að vandinn hafi
alltaf verið fyrir hendi, en hafí
Poison: f.v. Rockett, Deville, Dall
og Michaels.
versnað stöðugt í beinu hlutfalli
við vaxandi vinsældir hljómsveit-
arinnar, en þar með jókst álagið
á drengjunum, þess var krafist að
þeir ferðuðust mgira og spiluðu
miklu oftar. Nú er svo komið, að
hljómsveitin er að heita má óstarf-
hæf, að minnsta kosti um stundar-
sakir, því þeir Rockett og Dell eru
í meðferð vegna neyslu sinnar. Því
er haldið fram, að meðlimir nok-
kurra þekktari þungarokksveitana
séu langt leiddir eiturfíklar, þann-
ig hefur því lengi verið spáð að
tannhjól „Guns ’n Roses” hljóti að
fara að hjökta hvað og hveiju,
Sigurvegararnir Sigríður Vala og Björn. Morgunblaðið/Jón Svavarsson.
NÆTURLÍFIÐ
Bestklæddu kjörin
í Hvítahúsinu
Best klæddu íslendingamir
voru kjömir á hófi miklu í
skemmtistaðnum Casablanca um
síðustu helgi. Tíu voru fyrirfram
útnefndir og kallaðir inn á dans-
gólfið, en kjörið byggði 8 manna
dómnefnd á tilþrifum fólksins í
klæðaburði á þessu umrædda
kvöldi. Keppt var um vegleg
verðlaun og að þessu sinni voru
það Sigríður Vala Þórarinsdóttir
og Bjöm Stefensen sem urðu
hlutskörpust. Siguijón Sigurðs-
son markaðsstjóri Casablanca
sagði að það hefði verið rífandi
stemming og kvöldið allt betur
heppnað en nokkur aðstandandi
hefði þorað að vona. „Þetta er
að hasla sér völl hjá okkur sem
einn af föstu punktunum í
skemmtanalífinu,” sagði Sigur-
jón.
Siguijón sagði að dómnefnd-
ina hefðu skipað Jóhann Traust-
ason verslunarstjóri hjá 17, Lilja
Hrönn Hauksdóttir hjá Cosmo,
Gunnar Þór Elvarsson hjá Hans,
Reynir Kristinsson hjá Tango,
Sigmundur Sigurðsson (Simbi)
frá Jóa og félögum, Rut Róberts-
dóttir, Ingibjörg Hilmarsdóttir
Úrslit og verð-
laun kynnt,
þarna eru f.v.
Sólveig Grét-
arsdóttir og
Jóhann
Traustason úr
dómnefndinni
og Siguijón
Sigurðsson
markaðsstjóri
Casablanca.
Hin útnefndu.
og Sólveig Grétarsdóttir sem var
annar sigurvegara síðasta árs.
Kvöldið byijaði á fordrykk boðs-
gesta og síðan smáfylltist húsið,
en upp úr miðnætti hófst dag-
skrá þar sem Icelandic Models
riðu á vaðið með sýningu á fötum
frá ýmsum tískuverslunum.
Strax að tískusýningunni lokinni
vora hinir útnefndu kallaðir inn
á gólfið og dómnefndin gaf sér
Fra tískusýningu Iceland Mod-
els.
nokkrar spennuþrungnar mínút-
ur til þess að ná niðurstöðu. Til
mikils var að vinna, fataúttekt
hjá Centrum, 17, Hans, Cosmo
og Tango, hársnyrting hjá Jóa
og félögum, ljósatímar hjá Sól
og saunu, mánaðarkort hjá
Worls Class, nuddtímar, kvöld-
verður á Trúbadornum og hel-
garpakki á Hótel Örk svo eitt-
hvað sé nefnt.
Myndir sem birtast í Morgunblaöinu,
teknar af Ijósmyndurum blaösins
fdst keyptar, hvort sem er
til einkanota eða birtingar.
UÓSMYNDADEILD
„SALA MYNDA"
Aðalstrœti 6, sími 691150
103,ReYkjavík
ÞAÐ ER OÞARFI AÐ SKJÁLFA ÞÓTT HANN BLÁSI KÖLDU
Hita- og kæliblásaramir frá Blikksmiðjunni eru
löngu landsþekktir fyrir gæði og afköst. Þeir
eru sérstaklega hannaðir fyrir fslenskt vatn
sem tryggir þeim hámarks endingu.
Ef þú þarft að hita eða kæla bílskúrinn,
tölvuherbergið, verkstæðið, vinnusalinn,
húsbygginguna eða kæliklefann þá höfum
við lausnina.
Hafðu samband og við veitum fúslega allar
nánari upplýsingar um verð og tæknileg atriði.
BLIKKSMIÐJAN
Allir hrta- og kæliblásararnir eru gæðaprófaðir af
sérfræðingi Blikksmiðjunnar í hita- og kælitækni.
SMIÐSHÖFÐA 9
112 REYKJAVfK
SlMI 685699
Metsölub/aó á hveijum degi!