Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 54

Morgunblaðið - 22.11.1991, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FOSTUDAGUR 22. NOVEMBER 1991 Frá Bob Hennessy i Englandi Mm FOLK ■ GARY Lineker hefur ákveðið að þetta keppnistímabil verði hans síðasta með Tottenham. Hann er ákveðinn í að leika í Japan og fær 325 millj. ísl. krfyr- ir samning sinn við Grampus. Talið er að hann tvöfaldi þá upphæð með ýmsum , auglýsingatekjum og öðru, þannig að hann á að fá 650 millj. kr. fyrir að fara til Japans. Tottenham fær aftur á móti 78 millj. kr. fyrir hann. ■ TERRY Butcher, fram- kvæmdastjóri Coventry, rak á mánudaginn aðstoðarmann sinn Mike Mills, fyrrum félaga hjá Ips- wich. Þá var þjálfarinn Brian Estick einnig rekinn. ■ DON Howe, fyrrum fram- kvæmdastjóri Arsenal, og þjálfari enska landsliðsins, hefur verið ráð- inn aðstoðarmaður Butcher. ■ MO Johnston, sem Everton keypti frá Glasgow Rangers, fær 515 þús. kr. ísl. í vikulaun. Þá fær hann 31.000 kr. fyrir hvert mark ' sem hann skorar. ■ PETER Reid, framkvæmda- stjóri Manchester City, verður frá keppni í mánuð - hann braut tvö rif í leiknum gegn Man. Utd. sl. laugardag. ■ UEFA sektaði Liverpool um 206 þús. ísl. kr. - ástæðan; fimm áhorfendur hlupu inn á völlinn, til að fagna marki, þegar Liverpool vann Auxerre í Evrópukeppninni. ■ TERRY Fenwick hjá Totten- liam, sem var settur inn fyrir ölv- _> unarakstur, er laus úr fangelsisvist- inni eftir tvo mánuði. Hann losnaði á mánudagsmorgun, en seinna um daginn lék hann með varaliði Tott- enham gegn Luton. ■ BILLY Bond, framkvæmda- stjóri West Ham, hefur skrifað undir nýjan tveggja og hálfs árs samning. ■ DAVID Kelly, landsliðsmaður írlands, sem leikur með Leicester, var settur á sölulista í gær. ■ MARK Wright, sem Liverpool keypti frá Derby á 2,2 millj. punda, er byrjaður að æfa. Hann var að- eins búinn að leika tvo leiki með Liverpool þegar hann meiddist - sleit hásin. ■ ARDILES, framkvæmdastjóri Newcastle, sagði frá því í gær að Brasilíumaðurinn Mirandinha kæmi aftur til félagsins í janúar - til æfinga. „Ef hann stendur sig mun hann leika með okkur,” sagði Ardiles. ■ ENGLENDINGAR hafa ákveðið að leika vináttulandsleik gegn Brasilíumönnum á Wembley 17. maí 1992. Það verður þriðji leik- ur þjóðanna á Wembley á fímm árum. ■ IAN Rush, miðheiji Liverpool, meiddist í leiknum gegn West Ham á sunnudag og gekkst undir aðgerð á hnéi í gær. Hann verður frá vegna meiðsla í rninnst þrjár vikur. ARSENAL keypti í gær norska landsliðsmanninn Paal Lidersen fyrir 500 þúsund pund, eða um 52 milljónir ísl. kr. Lidersen er vinstri bakvörður,og lék áður með Start í Noregi. SJONVARP Næstu leikir frá Englandi Sónvarpið hefur fengið skeyti frá Englandi, þar sem tilkynnt er hvaða leikjum verði sjónvarpað beint til Norðurlanda fram að ára- mótum. 30. nóvember verður leikur Chelsea - Nott. Forest. 7. desember verður sýnt frá viðureign Aston Villa - Man. City, 14. des. Leeds - Tottenham, 21. des. Liverpool - Man. Cjty pg 28. des. Man. City - Arsenal- ii l:< < ;:11 <, <• i I j j í KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA „Við réðum ekki öllu” - segir Eggert Magnússon, formaður KSÍ, ísambandi við ádeilurá hvað íslenska landsliðið lék seint gegn Frökkum í París - í lok nóvember Við höfum engan áhuga að semja svona - að leika landsleiki svona seint, en við réð- um ekki öllu í sam- Skapti bandi við niðurröð- Hallgrímsson un leikja,” sagði tá'pL* Eí?g:ert Magnús- traPans sorli formaður Knattspyrnusambands íslands, er Morgunblaðið spurði hann - vers vegna stæði á því að ísland léki í Evrópukeppninni í nóvember. Það hefur vakið mikla athygli, að íslenska liðið léki landsleik tveimur mánuðum eftir að keppn- istímabilinu á íslandi lauk. Það gefur auga leið að leikmenn, sem leika hér heima, eru í lítilli sem engri leikæfingu. Þegar ísland leik gegn Wales, 1:2, í Cardiff 14. nóvember 1984 undir stjórn Tony Knapp í Evrópukeppninni, var Knapp óhress og forráðamenn KSÍ sögðu; „Þetta gerist aldrei aftur.” Sjö árum seinna er ísland að leika nær jólum en 1984. „Við sátum á fjórtán tíma fundi með Frökkum, Spánveijum, Tékkum og Albönum þegar var verið að semja um leikdaga. Fund- urinn hefði einfaldlega ekki klár- ast ef við hefðum ekki fallist á þennan leikdag. Það leit allt út fyrir að vísa yrði málinu til UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, en það verður að gera ef þjóðir ná ekki samkomulagi um leikdaga. Við vorum miklu hræddari við það en að leika í nóvember. UEFA hefði getað sett leikinn á um miðj- an vetur þess vegna,” sagði Eg- gert Magnússon. Farseðlar á EM í Svíþjóð 1992 Landslið 1 V/ ■m h # Frakkland 8 8 0 0 19 6 16 5 Tékkóslóvakía 8 5 0 3 12 9 10 Spánn 7 3 0 4 17 12 6 ísland 8 2 0 6 7 9 4 Albanía 7 1 0 6 2 21 2 -j Skotland 8 4 3 1 14 7 11 Sviss 8 4 2 2 19 7 10 Q Rúmenía 8 4 2 2 13 7 10 o: Búlgaría 8 3 3 2 15 8 9 c\i San Marínó 8 0 0 8 1 33 0 -J Sovétrikin 8 5 3 0 13 2 13 Q Noregur 8 3 3 2 10 5 9 Ungverjaland 8 2 4 2 10 9 8 oc Ítalía 7 2 4 1 10 5 8 có Kýpur 7 0 0 7 2 23 0 *J Júgóslavía 8 7 0 1 24 4 14 Danmörk 8 6 1 1 18 7 13 Q Norður írland 8 2 3 3 11 11 7 ic Austumki 8 1 1 6 6 14 3 'fr' Faereyjar 8 1 1 6 3 26 3 Q Wales 6 4 1 1 8 6 9 Þýskaland 5 4 0 1 9 4 8 £ Belgia 6 2 1 3 7 6 5 irí Lúxemborg 5 0 0 5 2 10 0 -J Holland 7 5 1 1 15 2 11 —J Q Portúgal 8 5 1 2 11 4 11 Grikkland 6 3 1 2 10 6 7 oc Finnland 8 1 4 3 5 8 6 <D Malta 7 0 1 6 1 22 1 a 1 England 6 3 3 0 7 3 9 írland 6 2 4 0 13 6 8 Pólland 6 2 3 1 8 6 7 n: Tyrkland 6 0 0 6 1 14 0 Frakkar, Englendingar, Sovétmenn, Júgóslavar og Skotar hafa tryggt sér farseðilinn til Svíþjóðar. Þjóðveij- ar og Hollendingar eru komnir í farseðlasöluna. Þjóðveijar þurfa aðeins jafntefli gegn Luxemborg, heima, og Hollending- ar gegn Grikkjum, út, til að tryggja sér farseðilinn. Taugaveiklun í Svfþjóð vegna EM ÞAÐ má með sanni segja að taugaveiklun hafi gripið um sig í Sviþjóð að undanförnu vegna Evrópukeppni landsliða, sem verður í Sviþjóð næsta sumar. Svíar óttast að til óláta komi þegar knattspyrnubullur frá Þýskalandi, Hoilandi, Englandi og Skotlandi geri innrás. Það voru ekki fagrar fréttir sem bárust frá Brússel á miðviku- daginn, þegar Belgía og Þýskaland Frá GrétariÞór Eyþórssyni ÍSviþjóð áttust þar við. 6000 Þjóðverjar komu til Belgíu og voru 799 knattspyrnubullur og nýnasistar hand- teknir á járnbrautastöðinni í Brúss- el, en þar var ástandi eins og í Júgóslavíu - allt í hershöndum og stöðin sem vígvöllur. Belgíumenn kölluðu út 1000 manna aukalið lög- reglumanna, sem voru á varðbergi. Svíar eru nú þegar byijaðir að ræða um að að kostnaður vegna öryggisgæslu verði mjög mikill. Þær raddir hafa skotist upp á yfirborðið hvort hugsanlegt væri að þátttaka Þjóðverja í EM verði stöðvuð vegna þess að þýskar knattspyrnubullur hleypa öllu upp í háloft, þar sem þær ferðast um. 21 ára keppnin: Átta þjóðir eru eftir Atta Evrópuþjóðir hafa tryggt sér rétt til að leika um fjögur sæti á Olympíuleikunum í Bracelona 1992. Skotar, Tékkar, Italir, Danir, Þjóðveijar, Hollend- inga, Pólveijar og Svíar. Þessar þjóðir leika jafnframt í 8-liða úrslit- um í Evrópukeppni 21 ára landsliða. Dregið verður í 8-liða úrslitin í desember. FELAGSLIF Armenningar vígja nýjan félagsfána Glímufélagið Ármann heldur íþróttadag í Laugardalshöll- inni á morgun kl. 13. Félagið kynn- ir þá starfsemi sína og jafnframt munu Ármenningar víga nýjan fé- lagsfána undir stjórn Þorsteins Ein- arssonar, sem verður áttræður á morgun. SKVASS Landsliðið í Luxemborg Fyrsta íslenska skvasslandsliðið hefur verið valið og tekur það þátt í Smáþjóðaleikum í Luxem- borg, þar sem mótheijar liðsins eru skvassspilarar frá Kýpur, Mónakó, Andorra, Luxemborg og Liecten- stein. Landsliðið æfði undir stjórn Englendingsins Nigel Gildersleve í tvær vikur. Landsliðshópurinn er skipaður spilurum úr Skvassfélagi Reykjavíkur. tt, sk knattspyrnubulla handL'kiþ í Briissel. iimiiiKiiiiiiaiusiKiiflii I I Reuter ; .gítiblsiiillA - il 'iulnV ..... njjmnhl^ - V8I FRJALSIÞROTTIR ÆT Arangur með Nemeth-spjótunum afskrifaður Alþjóða fijálsíþróttasambandið hefur ákveðið að afskrifa allan árangur í spjótkasti, sem hefur unnist með Nemeth-spjót- unum, eða öðrum sjótum með hrufótt yfirborð. 1. janúar 1991 verður 89,58 m kast Bretans Steve Backleys, sem hann setti 1990, skráð sem heims- met.. Backley, Tékkinn Jan Zelezny og Finninn Seppo Ráty hafa allir 'imy ir-:i’> 11v "~'a '■<< I n>~'-j T) <u Itog ginnio bt, öir.Io kastað Nemeth-spjótinu lengra. Raty hefur kastað því lengst - 96,96 m í Finnlandi í júní Með þessu er ljóst að Nemeth- spjótið var alla tíð vafasamt, eins og margir fremstu spjótkastarar heims hafa svo oft bent á, eins og Backley og Einar Vilhjálmsson. Afrek þau sem íslenskir spjót- kastarar hafa náð með Nemeth- spjótum verða afskrifuð frá og með áramótum. i i■) '•■yi •>•> crn si‘í- fir ivr' 'iUlo nfihs’nf' áöl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.