Morgunblaðið - 22.11.1991, Side 55

Morgunblaðið - 22.11.1991, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1991 55 SKODUN Ásgeir gerði mistök að láta Eyjólf Sverrisson ekki byija Þetta var ekki rétti leikurinn til að skoða nýjan leikmann Voru það ekki mistök hjá Ásgeiri Elíassyni, landsliðs- þjálfara, að láta Eyjólf Sverris- son ekki byija leikinn gegn Frökkum á Parc des Princes- leikvanginum í París í fyrra- kvöld? Mín skoðun er sú að hann hafí gert mistök. Á sama tíma og Ásgeir var- aði við því fyrir leik- inn að íslensku leik- mennimir væm ekki í nægilegri ieik- æfingu til að spila alvöru landsleik á þessum árstíma, valdi hann ekki þann leikmann sem er sjálfsagt í einna bestu leikæfingunni um þessar mundir, Eyjólf Sverrisson. Hvernig gat lands- liðsþjálfarinn gengið framhjá leikmanni sem hefur staðið sig svo vel með liði sínu og landsliðinu? Til að undirstrika þetta má geta þess að Eyjólfur gerði eitt af þremur mörk- um Stuttgarts um siðustu helgi og fékk mjög góða dóma í þýskum fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína - sagður hafa leikið í „landsliðsklassa”. Samt fékk hann ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfarans íslenska. Hann fékk aðeins að spreyta sig í 34 mínútur í París og breytti þá gangi leiksins með krafti sín- um og dugnaði - náði að skora og leggja upp marktækifæri fyr- ir samheija sína. Er hægt að ætlast til meira af leikmanni? Landsliðsþjálfarinn sagði eft- ir leikinn að það sem hefði kannski háð liðinu var hve leikmenn væru í lítilli leik- æfíngu. Ef svo er hvemig stend- ur þá á því að hann lætur leik- mann sem er í bestu leikæfing- uni sitja á bekknum mest alian leikinn, leikmann sem er í liði sem er í toppbaráttunni í einni bestu deildarkeppni í Evrópu? Er blaðamaður Morgunblaðs- ins spurði Ásgeir eftir leikinn í París hvort hann hefði ekki séð eftir að hafa ekki byijað með Eyjólf inná, sagði þjálfarinn: „Nei, ég sé ekki eftir því að hafa látið Eyjólf sitja á bekkn- um. Ég sagði fyrir ieikinn að ég ætlaði að skoða Guðmund Torfason. En Eyjólfur stóð sig vei - og hefur gert það í síð- ustu leikjum.” Sú spurning vaknar eftir þetta svar þjálfarans hvort þessi leikur hafi verið sá rétti til að skoða leikmann. Hefði ekki verið nær að láta Guðmund reyna sig með íslenska landslið- inu í æfingaleik áður en farið var að stilia honum upp í til- raunaskyni í alvöruieik? Hvers vegna vill þjálfarinn ekki viður- kenna að hann hafi gert mistök? Það er nú einu sinni svo að mönnum geta orðið á mistök og þá er einfaldast að viðurkenna þau og læra af þeim um leið. Valur Benedikt Jónatansson „Ég var að sjálfsögðu svekktur yfir að sitja á bekknum. Annars hefði ég ekkert að gera hér,” sagði Eyjólf- ur við Morgunbiaðið eftir leikínn. KNATTSPYRNA Frakkar eru í áttunda himni FRAKKAR halda vart vatni yfir knattspyrnulandsliði sínu, eftir að það sigraði ísland og varð þar með fyrst allra liða í sögu Evrópukeppninnartil að kom- ast í gegnum riðlakeppni með fullu húsi stiga. Liðinu er hrós- að í hástert í frönsku blöðunum í gær. Frakkar hafa nú lokið leikjum sínum og árangurinn er glæsi- legur: átta leikir og átta sigrar, nokkuð sem aldrei Skapti hefur gerst og um- Haiigrimsson sagnir blaða hér skrilar benda til þess að fréttamenn séu að rifna úr monti yfir sínum mönnum. Þeir eru á því, sem er auðvitað lauk- rétt, að liðið sé feykilega sterkt - og eins og. eilt blaðið benti á: Það tók enginn eftir því að Jean-Pierre Papin vantaði í liðið! Það segir meira en mörg orð. Papin, þessi frábæri markaskorari, var í leik- banni, og tók Simba stöðu hans. Sá skoraði eitt mark. Þetta var annar landsleikur Simba, og hann hefur gert eitt mark í hvorum. Já, franska landsliðið er sterkt - og Guðni Bergsson, varnarmaður- inn sterki, sagði eftir leikinn í fyrra- kvöld eins gott að Papin hefði ekki verið með. „Þeir voru alveg nógu góðir samt!” sagði Guðni. Það má því segja að Frakkar hafi haldið upp á tvennt í gær - frábæran árangur landsliðs síns í knattspyrnu, og það að aðal rauð- vínsdagur ársins var þá haldinn hátíðlegur í landinu. Beaujolais Nouveaus kom á markaðinn, en það er ætíð heimsviðburður. Og Frakkar geta verið ánægðir með að landslið- ið ec gott, og svo virðist sem Beauj- olaið sé einnig gott þetta árið. SUND / BIKARKEPPNI SSI Alltaf möguleiki á meti - sagði Ragnheiður Runólfsdóttir, sem kom frá Bandaríkjunum til að keppa með Skagamönnum SUNDDROTTNINGIN Ragn- heiður Runólfsdóttir verður í liði Skagamanna í bikarkeppn- inni í sundi, sem fer f ram um helgina og héfst í Sundhöll Reykjavíkur klukkan 20 í kvöld. Ragnheiður, sem stundar nám í Bandaríkjunum, kom til lands- ins í gær vegna mótsins og fer aftur út eftir helgi. Skagamenn, sem hafa sigrað í keppninni í þrjú ár í röð, hafa fullan hug á að verja titilinn enn einu sinni og takmarkið hjá Ragnheiði er að setja met. „Það er alltaf möguleiki á meti, þegar maður stingúr sér í laugina,” sagði hún við Morgunblaðið í gær. Ragnheiður, sem átti 25 ára af- mæli í fyrradag, sagðist hafa æft mjög vel að undanförnu, en hún verður á meðal keppenda á Opna bandaríska meistaramótinu í Minneapolis um aðra helgi og kepp- ir þar í 100 m og 200 m bringu- sundi. Hún æfir með sundliði há- skóla síns, en má ekki keppa fyrir hönd skóians vegna aldurs — sund- menn háskólaliða í Bandaríkjunum mega ekki vera eldri en 23 ára — og verður því fulltrúi íslands í Minneapolis. „Þetta eru furðulegar reglur og aldurshámark er mismunandi eftir greinum — fijálsíþróttamenn mega til dæmis vera 30 ára. Ég verð því að notfæra mér göt í kerfinu og keppi fyrir hönd ÍA á félagsmótum og Island á opnum mótum.” Aðspurð sagðist Ragnheiður miða allan undirbúning við Ólymp- íuleikana í Barcelona næsta sumar og því hefði hún ekkert hvílt að undanförnu heldur æft grimmt. „Samt hef ég verið að synda mjög Ragnheiður Runólfsdóttir stefnir á að setja met í bikarkeppninni í sundi. vei og verið við ólympíulágmarkið að kvöldi þrátt fyrir að hafa synt sex kílómetra að morgni. En ég kem aftur heim um jólin og hvíli fyrir árlegt boðsmót, sem verður í Ala- bama í byijun janúar, en þar gilda sömu lágmörk og fyrir Opna banda- ríska mótið.” Ragnheiður var ekki með í bikar- keppninni í fyrra, fékk ekki frí frá þjálfara sínum ytra, en ekkert aftr- aði henni frá því_ að taka boði ÍA að þessu sinni. „Ég verð sennilega með í þremur einstaklingsgreinum og svo í boðsundum og stefni að sjálfsögðu á að setja met.” GOLF BADMINTON Skoska mótið: Broddi og" ÁmiÞór úrleikí einliðaleik EM klúbbliða: Sveit GR byrjar illa SVEIT Golfklúbbs Reykjavíkur er í næst neðsta sæti að lokn- um tveimur keppnisdögum á Evrópumeistaramóti klúbbliða, sem fer fram á Quinta-vellinum nálægt Marbella á Costa del Sol á Spáni og hófst í fyrradag. Íslensku kylfíngarnir voru í neðsta sæti eftir fyrsta dag, en fóru upp um eitt sæti i gær og eru í 20. sæti. Þá fór Einar L. Þórisson á 82 höggum (77 á miðvikudag), Sig- urður Hafsteinsson á 85 (84) og Ragnar Ólafssop á 91 höggi (84). Sveitin er á 328 höggum, Tékkar eru á 329 höggum, Þjóðveijar á 325 höggum og Austurríkismenn á 324 höggum. Spánveijar eru í fyrsta sæti á 287 höggum, síðan koma Danir (296) og Englendingar eru í 3. sæti (297). Golfklúbburinn Keilir átti að taka þátt, en hætti við á síðustu stundu og hljóp GR í skarðið, þó menn hefðu hvorki tíma til undirbúnings né fjáröflunar. ÚRSLIT Handknattleikur Bikar HSÍ, 16 liða úrslit karla: Þór - Fram..................24:20 Mörk Þórs: Rúnar Sigtryggsson 7, Jóhann Samúelsson 7/2, Atli Rúnarsson 4, Ole Nielsen 4, Sævar Ámason 2. Mörk Fram: Karl Karlsson 6/1, Gunnar Andrésson 5, Davíð Glslason 4/2, Páll Þó- rólfsson 2, Andri SiguiAsson 2, Andrés Hansen 1. Valur b - Afturelding...........27:25 f BV - Stjaraan...............frestað Karen Sævarsdóttir Karen kylfingur ársins Karen Sævarsdóttir var í gær útnefnd kylfingur ársins af Golfsambandi íslands. Karen, sem varði íslandsmeistaratitil sinn, vann öll stórtu mótin hér á landi, sem hún-tók þátt í. Þá var hún í öðru gæti á Norðurlandamóti unglinga. Karen vann það afrek að verða fyrst íslenskra kvenna til að leika 72 holur á undir 300 höggum og 18 holur undir 70 höggum. íkvöld HANDBOLTI 1. deild karla: KA-hús, KA - Selfoss.kl. 20.30 1. deild kvenna: Höll, KR - Haukar......kl. 20 Seltjn., Grótta - Ármann.kl. 20 Valsh., Vaiur-Víkingurkl. 18.15 BLAK 1. deild karla: Hvera^., UMS-Skeið - KA ......20 BRODDI Kristjánsson tapaði í 1. umferð Opna skoska meist- aramótsins í badminton í gær og er þar með úr leik í einliða- leik karla. Árni Þór Hallgríms- son tapaði í 2. umferð í undan- rásum og komst því ekki í aðal- keppnina, en þeir keppa í tví- liðaleik í dag. Broddi tapaði fyrir Dananum Michael Soggard 11-15, 15-7 og 15-1 í Glasgow í gær, en hann ■■■■■■ tryggði sér þátt- Bill tökurétt í 1. umferð Melvill með því að sigra skrífarfrá þriá andstæðinga 'of an i sina { undanrásum á miðvikudag. Broddi vann Stevén Clark, Skot- landi, í 1. umferð undankeppninnar 15:6 og 15:9. í 2. umferð mætti hann Englendingnum, Simon Arc- her, og vann 17:15 og 17:14. Í 3. umferð vann Broddi síðan Ala#-* McMillan, Skotlandi, 15:7 og var kominn í 9:1 þegar Skotinn gaf leik- inn. Broddi tryggði sér þar með sæti í aðalkeppninni sem hófst í gær. Árni Þór mætti Campbell Petter- son frá Skotlandi og vann auðveld- lega 15:2 og 15:1. í 2. umferð mætti hann Jim Mailer frá Skot- landi og tapaði 11:15 og 3:15 og var þar með úr leik. Elsa ekki áfram á HM Elsa Nielsen komst ekki í 2. umferð á heimsmeistaramóti ungi- inga 18 ára og yngri, sem fer fram í Jakarta f Indónesíu. Elsa tapaði fyrir Sita Catur frá Indónesíu 11:8 og 11:5 í 1. umferð í einliðaleik. Hún lék með stúlku frá Indónesíu í tvíliðaleik og töpuðu þær gegn kínverskum stúlkum, 15:2 og 15:6. í tvenndarleik lék Elsa með James Anderson frá Englandi og töpuðu þau (18:15, 11:15, 8:15) fyrir pari frá Tælandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.