Morgunblaðið - 15.12.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1991
C 15
Arsfundur Ríkisspítalanna:
Kerfi fastra fjárlaga dregur
úr viðleitni til hagræðingar
-sagði Davíð A. Gunnarsson forstjóri 1 ræðu sinni
ENDURHÆFINGARDEILD og ný rannsóknarstofa í blóðmeina- og
meinefnafræði á Landspítalanum voru formlega teknar í notkun á
þriðja ársfundi Ríkisspítalanna sem haldinn var á föstudag. Páll
Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, tilkynnti á árs-
fundinum að heilbrigðisráðherra hefði ákveðið að veita sérstöku,
ótilgreindu, framlagi til deildanna í upphafi starfsemi þeirra. Davíð
A. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna, sagði í ræðu sinni að starfs-
fólk Ríkisspitalanna hefði eftir mætti reynt að mæta kröfum um
hagræðingu og aðhald. „I hagræðiugunni felst ákveðin mótsögn.
Þegar tekst að auka afköst, fjölga sjúklingum, aðgerðum eða rann-
sóknum með sama mannafla og í sama húsnæði, verður starfsemin
dýrari. Kerfi fastra fjárlaga, sem á sínum tíma var mikið framfara-
spor í fjármálastjórnun sjúkrahúsa, tekur ekki á þessum vanda og
það mun draga úr allri viðleitni til hagræðingar, nema menn beri
gæfu til að endurbæta og aðlaga kerfið," sagði hann.
Morgunblaðið/KGA
Davíð Á. Gunnarsson forstjóri flytur ræðu á þriðja ársfundi Ríkisspít-
alanna.
Davíð sagði það ekki ganga til
lengdar, að aukin afköst og
gæði sem fáist með útsjónarsemi
og dugnaði starfsmanna, verði til-
efni til ámælis, af því útgjöld færu
út fyrir fyrirfram ' gefna ramma.
Sagði hann einnig að þrátt fyrir
allt væru litlir peningar bundnir í
heilbrigðisþjónustunni. „Fasteigna-
mat allra fasteigna Ríkisspítala er
lægra en kaupverð einnar nýrrar
757 Boeingþotu Flugleiða. Verð-
mæti allra lækningatækja í þessum
byggingum eru minni en helmingur
af kaupverði einnar slíkrar þotu.
Hin raunverulega fjáifesting í heil-
brigðisþjónustu er í starfsfólkinu,
sem er kjarninn í rekstri Ríkisspítal-
anna. Starfsfólkið er heilbrigðis-
þjónustunni það sem þotan er flug-
félaginu, álbræðslan álfélaginu eða
skipið skipafélaginu. Vegna þessa
er hlutfall launakostnaðar hátt hjá
Ríkisspítölunum og öðrum heil-
brigðisstofnunum," sagði Davíð.
Sagði hann að með öllum tiltækum
ráðum yrði að tryggja heilbrigðis-
þjónustunni nægilegt vinnuafl.
Þörf á stórátaki
Guðmundur G. Þórarinsson,
stjórnarformaður Ríkisspítalanna,
sagði að fundurinn væri haldinn í
miklu ölduróti umræðu um kostnað
heilbrigðisþjónustunnar og breyt-
ingar á skipulagsmálum hennar í
heild. Fjallaði hann í ræðu sinni um
þau verkefni sem framkvæmd
hefðu verið til bóta fyrir starfsemi
Ríkisspítalanna á undanförnum
fjórum árum. Þorvaldur Veigar
Guðmundsson, formaður læknaráðs
Landspítalans, fjallaði um stöðu
rannsóknarlækninga í sinni ræðu
og benti m.a. á að stórátaks væri
þörf til að afla rannsóknatækja til
spítalans. Sagði hann að þrefalda
þyrfti fjárveitingar til kaupa á rann-
sóknartækjum svo viðunandi væri.
Nú tæki 20-25 ár að endurnýja
tækjabúnaðinn miðað við fjárveit-
ingar undanfarið. Sagði hann að
nú væri rætt um að flytja fleiri
þætti rannsókna frá spítalanum.
„Þetta er mjög slæm þróun sem
verður að snúa við. Spítalinn, þjón-
ustan við sjúklinga mun líða þegar
til lengri tíma er litið, ef rannsókna-
starfsemin færist frá spítalanum,"
sagði hann.
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri
ávarpaði ársfundinn fyrir hönd heil-
brigðisráðherra, sem var forfallaður
vegna anna á Alþingi. Fjallaði hann
m.a. um þær breytingar sem fyrir-
hugaðar eru í fjárlagaframvarpi um
aukna greiðsluþátttöku sjúklinga í
heilbrigðisþjónustunni. Frá og með
15. janúar á næsta ári ættu sjúkl-
ingar að greiða til reksturs heilsu-
gæslustöðva og á sjúkrahúsum
væri gert ráð fyrir auknum greiðsl-
um við komu á göngudeildir og
rannsóknarstofur.
„Það er líka ætlunin að skoða
nákvæmlega að hve miklu leyti
hægt er að færa aðgerðir út fyrir
spítalana. Athugun sem gerð hefur
verið sýnir að það er mismunandi
eftir sjúkrahúsum hér í Reykjavík
hvaða aðgerðir eru gerðar utan
spítalanna. Þetta er hægt að sam-
ræma,“ sagði Páll. Hann sagði einn-
ig að við þá breytingu að færa
sjúkrahús á föst fjárlög hefði rekst-
ur stofnananna breyst verulega og
markmiðið að sjúkrahúsin væru
innan fjárlagamarka-hvers árs hefði
náðst að mestu. Þó hefði komið
fram eins og sumir óttuðust að
deildum yrði lokað vegna fjárskorts
og skorts á starfsfólki.
Vandi ríkisspítalanna
I áreskýrslu Ríkisspítalanna fyrir
árið 1990 sem lögð var fram á árs-
fundinum kemur fram að vegna
skorts á fjárveitingum þurfti að
grípa til mikilla lokana á deildum.
Þrátt fyrir það jókst starfsemin
vegna þrýstings sem skapaðist
vegna lokana á öðrum sjúkrahús-
um. „Nauðsynlegt reyndist að
lengja daglegan vinnutíma á skurð-
stofum, m.a. til þess að unnt væri
að fjölga hjartaaðgerðutn og bækl-
unaraðgerðum. Þetta varð til þess
m.a. að hjartaaðgerðum fjölgaði úr
97 árið 1989 í 135 og 200 fleiri
bæklunarejúklingar fengu meðferð.
Þessi auknu afköst urðu hins vegar
til þess að auka kostnað á Ríkisspít-
ölunum, bæði launakostnað og
kostnað vegna kaupa á rekstrarvör-
um. Þegar upp var staðið fóru Rík-
isspítalar um 124 millj. króna eða
2% fram úr fjárveitingum á árinu,
en á sama tíma jókst starfsemi
spítalans langt umfram allar áætl-
anir og hefur það án efa sparað
margfalt þessa upphæð fyrir þjóðfé-
lagið í heild. Vandi Ríkisspítala er
sá að þessi aukna hagræðing og
umsetning í heilbrigðisþjónustunni
leiðir ekki til sparnaðar fyrir spítal-
ann heldur til aukins kostnaðar,"
segir í ársskýrslu stjórnar og for-
stjóra Ríkisspítalanna.
Á ársfundinum voru tíu starfs-
menn Ríkisspítalanna heiðraðir sér-
staklega fyrir áralöng störf sín á
hinum ýmsu sviðum sjúkrahúsþjón-
ustunnar.
Sunnudagur 15. desember.
í dag kl. 11 kemur Þvöru-
sleikir í heimsókn á Þjóðminja-
safnið ásamt barnakór Árbæjar-
skóla.
Á morgun mánudaginn 16.
desember kemur Pottasleikir
„Lífslistin
í postulíni frá Ros-
enthal. Fagurborð-
búnaðuráyðareigið
boró. • ' r) sáK v
Nýborg c§)
Ármúla 23, s. 813636
J D £j J J-\ s1 j\ J D s í iJ _F í
kÁ á Á k k Á a xá Á x k x Á x á Á k x a á á Á-vrvr Ar Ár Áráá k k á k k k x k x á k x k k'k k k
llmker frá
Glit
Vasar - jólabjöllur -
könnur o.fl.
Handunnir skartgripir-
postulínsnælur o.m.fl.
^ 1 f
't
Kertastjakar og skartgripir úr
íslenskum steinum frá Petru
Sveinsdóttur á Stöðvarfirði
Steinvörur frá Álfasteini.
Klukkur - pennastatíf - fígúrur •
skartgripir o.fl.
Veggspjöld í úrvali t.d. ísl. hestalitir - fiskar - flórur
fuglar - sveppir - hvalir - stjörnukort. o.fl.
Kertastikur frá
Smfðagalleríi
Opið
Úrval af íslenskum ullarvörum - keramik - T-bolir - kerti o.fl. «augardag w. io-is
sunnuaag kL 12** 18
J rf Á H 1 J1 1 A)
HAFNARSTR/ETI 3 v/NAUSTIN, S í M ! 91-22680