Morgunblaðið - 15.12.1991, Page 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1991
NÝJU VÉLSLEOARNIR
KOMNIR
Ásamt miklu úrvali af vélsleðafatnaði
^ ARCTIC CAT
Sleðasýning laugardag og sunnudag
Cat vélsleðarnir árgerð 1992
eru nú komnir í miklu úrvali.
Við sýnum þá að Ármúla 13
laugardag og sunnudag
frákl 10-17.
Á sýningu L.í. V. þann 7. des. 1991 á Akureyri,
var Wildcat 700 kosinn fallegasti sleðinn af
sýningargestum.
UMBOÐSAÐILAR FYRIR ARCTIC CAT:
Höldur sf. Akureyri, Múlatindur Ólafsfirði,
Flugfélagið Ernir ísafirði.
Tilvaliö til jóiagjafa
Á sýningunni verður einnig mikið úrval af
vélsleðafatnaði og öðrum gjafavörum
fyrir vélsleðamenn.
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13108 Reykiavík Símar 6812 00 & 312 36
Af ljósakri
List og hönnun
BragiÁsgeirsson
Líkast til er þetta í þriðja skipti
sem þau hjónin Hörður Daníelsson
og Kristín Þorkelsdóttir gefa út
sitt sérkennilega dagatal, sem
hlotið hefur miklar vinsældir og
prýtt hefur veggi fjölda heimila
og opinberra stofnana síðustu ár.
Hörður ljósmyndar, en Kristín
hannar og hvorutveggja fram-
kvæmdin telst vera í hágæða-
flokki.
Eftir að hafa skoðað dagatalið
fyrir árið 1992, er auðvelt að kom-
ast að þeirri niðurstöðu að hann
sé toppurinn á samvinnu þeirra tii
þessa, bæði hvað ljósmyndir og
hönnun áhrærir. Hönnunin er ein-
faldari og markvissari og ljós-
myndirnar njóta sín betur í upp-
setningunni, hafa einhvern veginn
meiri nánd og eru þar af leiðandi
ágengari, auk þess sem Ijósmynd-
unin er a.m.k. jafn góð.
Jafnan hefur framtakið ákveðið
heiti og fyrir ári tengdist það hug-
takinu bjartsýni, en í ár nefnist
það „Af ljósakri“ og til að kynna
hvað liggur að baki nafngiftarinn-
ar tel ég vel við hæfi að vitna strax
í texta Harðar: „Því í Ijósnæma
húð filmunnar er greypt þetta
heillandi Ijós, sem kallar okkur
sumar eftir sumar út á akur ljóss-
ins ... Og ef til vill er hér komin
skýringá því, að ljósmyndir dagat-
alsins eru eiginlega ekki af neinu
sérstöku. Hvar er fossinn
frægi?... og fjallið eina ...? að
ógleymdum hver liveranna? Því
myndirnar eru af íslenzku Ijósi í
íslenzkri náttúru, þegar Ijósopið
starði agndofa eina örskotsstund,
smellti í góm og sagði: aftur!
Hér er brugðið upp mynd af
stemmningunni í kringum athafn-
irnar, og þetta er vafalaust sann-
leikanum samkvæmt. Nema að
myndimar séu eiginlega ekki af
neinu sérstöku, sem er trúlegast
orðaleikur sem hefur ákveðna skír-
skotun, því að sjálfsögðu er hver
blettur íslenzkrar náttúru sérstak-
ur og getur framkallað ákveðna
hugljómun við vissar aðstæður,
þótt ekki hafi hann né um hverfið
forframast af íslenzkri þjóð né
sögu.
Og rétt er það að ljósið er alveg
sérstakt á Islandi, sem kemur
einna skýrast fram í birtuskilum
ljósakursins á sumri og stillum á
vetri og þó ekki sé þetta gull
áþreifanlegt, né verði varðveitt í
skjölum eða föstu áþreifanlegu
formi er hér falinn fjársjóður og
margfalt verðmætari öllum stór-
framkvæmdum neysluþjóðfélags-
ins sem landið byggir.
Dagatalið heldur sinni fyrri lög-
un, er aflangt og óvenjulegt í formi
en þó aðeins styttra í þverveginn
en áður og er það til bóta því að
það ryður braut nýjum hönnunar-
möguleikum, sem hafa verið nýttir
á snjallan hátt. Ekki geri ég upp
á milli ljósmyndanna, en vil vekja
sérstaka athygli á mynd júlímán-
aðar „Á Fellsströnd“, því að slíkar
myndanir í landslaginu eiga að
höfða til íslenzkra mótunarlista-
manna og verða þeim til meiri
innblásturs en nokkrar listastefnur
frá útlandinu. Þetta er „últra mód-
erne“ virkt frá náttúrunnar hálfu,
núlist út í fingurgóma, og minnir
mig dálítið á formamyndanimar í
klettunum við Figureas á Spáni,
fæðingarþorps Dalis, en hann not-
aði þær iðulega i myndverk sín
með magnþrungnum árangri svo
sem heimurinn veit.
Prentun dagatalsins og litgrein-
ing hefur tekist mjög vel og hér
er sóminn prentsmiðjunnar Odda
ásamt filmuvinnu og bókbandi. Þá
má geta þess, að myndirnar eru
tekna rá Kodak Ektacrome
64/EPR 120 og framkallaðar hjá
Skyggnu hf. Tölvuvinnslu og setn-
ingu hefur annast Stephen Fairba-
irn AUK hf. Þýðing texta Harðar
á ensku, þýsku og frönsku: Step-
hen Fairbairn, Helmut Heinric-
hsen, Ólöf Pétursdóttir. Þá hafði
Magnús Þór Jónsson AUK hf.
umsjón með prentvinnslu. Hafa
allir aðilar leyst verk sín óað-
finnanlega af hendi svo sem heild-
stæður árangurinn ber með sér.
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu:
Tíu 1 ög valin fyrir ís-
lensku lokakeppnina
DÓMNEFND hefur valið tíu Iög
í undankeppni til þátttöku í
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í
Evrópu 1992. Alls bárust 150 lög
eftir nokkuð færri höfunda.
Lögin tíu eru, Nótt sem dag, eft-
ir Skúlptúr, Ein með þér, eftir Sig-
þrúðu Fróðan, Eva, eftir Tinna og
Sófa, Þú mátt mig engu leyna, eft-
ir Haf, Mig dreymir, eftir Reyk og
bófa, Nýr heimur, eftir Hrelli, Ein-
falt mál eftir Lala og Tralla, Nei
eða já, eftir Nordbass og 31. febrú-
ar, Þú -um þig-frá þér-til þín, eftir
Hnokka og Karen eftir Halla og
Palla. Réttum nöfnum höfunda
verður haldið leyndum þar til úrslit
eru kunn. Enn hefur ekki verið tek-
in ákvörðun um hveijir verða flytj-
endur laganna.
Dómnefndina skipuðu þau Helga
Möller, Kristinn Svavarsson, Magn-
ús Einarsson og Magnús Kjartans-
son auk Jóns Ólafssonar, sem verð-
ur hljómsveitarstjóri í undankeppn-
inni. Hún verður haldin í janúar og
febrúar og sigurlagið valið sem
verður framlag Islands til keppninn-
ar í Svíþjóð í maí 1992.
Spádómarnir rætast I
■Hotpo^
ÞVOTTAVÉL
Model 9535, ~ 4.1 kg.
Tveir vinduhraðar, 500 og
1000 snúningar á mlnútu 20
þvottakerfi, t.d. sparkerfi —
hraðkerfi — ullarkerfi o.s.frv.
Tromla úr ryðfrlu stáli. Heitt
og kalt vatn. Hæð 85 cm -
breidd 59,5 cm - dýpt 56,3 cm.
Verð kr. 65.313.- itgr.
LAUGAVEGI 174
S. 695500/695550
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1991
■ FIMM Nýaldarbækur eru
komnar út: Eftir dauðann — hvað
þá? heitir bók efitr George W.
Meek, sem Esther Vagnsdóttir
hefur þýtt. í’ kynningu útgefanda
segir m.a.: „Með þessari bók er
svipt burt þeirri hulu sem aðskilið
hefur okkar eigið jarðsvið og það
sem stundum hefur verið nefnt
„himnaríki" eða „heimurinn fyrir
handan“. Þessi bók skýrir frá vís-.
indalegum rannsóknum sem átt
hafa sér stað um allan heim á síð-
astliðnum sextán árum. Hér kemur
í fyrsta sinn fram í bókarformi full
staðfesting á því að hugur manns-
ins, dul, minni og persónuleiki lifa
áfram eftir dauða efnislíkamans.“
Bókin Mörg líf, margir meistarar
eftir Brian L. Weiss og hefur
Helga Ágústsdóttir þýtt. í kynn-
ingu útgefenda segir: „Hér er á
ferðinni sérlega greinargóð lýsing
á því hvernig jarðbundinn efa-
hyggjumaður kynnist fyrirbærum
sem hann óraði ekki fyrir að væru
til. Höfundurinn lýsir hér á einlæg-
an, en jafnframt gagnrýninn hátt,
hvernig hann uppgötvar áhrif fyrri
lífa á líf okkar í dag; hvernig at-
burðir og áhrif geta fylgt okkur líf
eftir líf, uns við lærum að takast á
við þau.“ Aúktu styrk þinn er eft-
ir Sanaya Roman. Þessi bók er
sjálfstætt framhald bókarinnar
Lifðu í gleði. í kynningu útgefenda
segir: „Hér er fjallað um æðri gildi
og markmið lífsins, hvernig við
stuðlum að fyllra lífi okkar og þeirra
sem við erum samvistum við. Bókin
er einnig einstök kennsla í því að
nálgast vitneskju eftir leiðum fjar-
skynjunarinnar og fá upplýsingar
um framtíðina. Lesandinn fær
greinargóðar leiðbeiningar um
hvernig hægt er að skynja tilfinn-
ingar og hugsanir annarra — og
hvernig hægt er að veijást neikvæð-
um orkustraumum og áhrifum
þeirra.“ Helga Ágústsdóttir þýddi
bókina.Vígslan er eftir Elisabeth
Haich og er efni hennar þannig
kynnt m.a.: „Vígslan er ævintýraleg
ferð um undirdjúp sálarinnar. Hún
lýsir einstakri andlegri. reynslu —
ferðlagi sem hefst á einum tíma í
fjarlægri fortíð en endar á öðrum.
Ung stúlka er undirbúin fyrir vígslu
í dulspeki forn-Egypta í pýramídan-
um mikla. Undir leiðsögn æðsta-
prestsins upplifir hún yfirskilvitleg
sannindi og skref fyrir skref kynn-
ist hún leyndardómum dulspekinnar
og óráðnum. gátum tilverunnar.“
Sigrún Ragnarsdóttir þýddi bók-
ina. Fimmta nýaldarbókin er Mika-
elhandbókin eftir Jose Stevans
og Simon Warwick-Smith, sem
Helga Ágústsdóttir hefur þýtt. í
kynningu útgefenda segir m.a.:
„Þessi einstæða bók er skemmtileg
lifandi kennsla komin frá Mikael,
vitsmunaveru á öðru tilverustigi.
Hér fást svör við því hvers vegna
mennirnir fæðast aftur og aftur og
hvernig sálkjarninn, innsta gerð
mannsins, safnar sífellt í sig meiri
þroska. En það foivitnilegasta er
c 19 ;
-------------------------------------- i
að í bókinni er sagt frá sjö gerðum
sálna. Hvert og eitt okkar tilheyrir
einhverri þessara gerða og ber ein- ■
kenni henanr oft skýrt í fasi, við- i
fangsefnum og lífstíl."
■ BÓKAFORLAG Odds Björns- j
sonar hefur gefið út bókina Depill
fer í lystigarð eftir Eric Hill. f
kynningu útgefanda segir: „Ný
barnabók um Depil, sem nú fer í
lystigarð með vinum sínum. Eins
og fyrri bækurnar um Depil, er
þessi bók tilvalin fyrir yngstu les-
endurna og ekki síður fyrir foreldra
til að lesa fyrir börnin.“ Prentun
og bókband: Prentverk Odds
Björnssonar hf.
■ BÓKAÚTGÁFAN Setberg
hefur sent frá sér bækurnar: Allir
krakkar út að leika sér og Krakk-
ar busla í bleytu með íslenskum :
texta Stefáns Júlíussonar. Þetta
er harðspjaldabækur með litríkum
og skemmtilegum teikningum.
Fimmtánda fjölskyldan
eftir Jón Óttar
... saga sem kannski er að gerast núna.
Knúin áfram af óbilandi trú á réttlætið,
sogast Kristín inn í hringiðu atburðarásar
sem verður því ógnvænlegri sem lengra
líður: Átökin milli fimmtándu fjölskyld-
unnar og hinna fjórtán. Hverjir sigra og
hverjir tapa? Hver er fimmtánda fjölskyld-
an? Og hver er Óskar Hvammdal?
Snillingur? Eða morðingi? /0i\
Og ef ekki hann... þá hver? iTv^)
IÐUNN