Morgunblaðið - 15.12.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MENIMIIMGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1991
C 25
■ Sænski handritshöfund-
urinn Reidar Johnson,
sem útnefndur vai’ til Ósk-
arsins fyrir besta handrit
þegar hann skrifaði „Mit
liv som en hund“ eftir
samnefndri bók sinni, er
farinn að undirbúa fram-
haldsmynd Hundalífsins.
Hún á að heita „My Fat-
her, His Son“ og vera hluti
númer tvö í trílógíu og hún
verður gerð í Bandaríkjun-
um á ensku. Johnson vill
fá Morgan Freeman í
aðalhlutverkið, strákurinn
Ingemar Johansson, sem
sagan fjallar um, verður
áfram leikinn af Anton
Glanzelius og talað hefur
verið um Graeme Clifford
(„Frances") sem leikstjóra.
Hvernig fara á að því að
færa sögusviðið vestur um
haf er á huldu.
MNýjasta mynd banda-
ríska leikstjórans Barry
Levinsons heitir „Wilder
Napalm“ en tökur á henni
hófust í nóvember sl. „Na-
palm“ er TriStar mynd með
Debra Winger, Dennis
Quaid og Arliss Howard
í aðalhlutverkum.
■ Tökur á stórmynd þeirra
feðga Alexanders og Ilia
Salkind, Kristófer
Kólumbus: Uppgötvunin
eru nú hafnar. Það er að-
eins einn hængur þar á;
Kólumbus er ófundinn.
Bond-leikarinn Timothy
Dalton hætti við hlutverkið
og fóru þá framleiðendurn-
ir að leita logandi ljósi að
einhveijum í hans stað og
kom Matt Dillon helst til
greina ásamt Willem
Dafoe. Marlon Brando
hefur ákveðið að leika lítið
hlutverk í myndinni fyrir
dálaglega summu en talað
er um Isabellu Rosselini
og Tom Selleck af öllum
í hlutverk ísabellu drottn-
ingar og. Ferdinands. Á
meðan siglir Kólumbus
Ridley Scotts seglum
þöndum með Gerard Dép-
ardieu við stýrið.
Drakúla í tísku
11.000 A
FUGLASTRÍÐIÐ
Eftir að fréttir bárust af
því að Francis Ford
Coppola væri farinn að kvik-
mynda hina einu og sönnu
Drakúlasögu Bram Stokers
með Gary Oldman, Winona
Ryder, Anthony Hopkins og
Keanu Reeves, fór að bera
á öðrum blóðsugum í Holly-
wood svo nú er ekki ein
heldur nokkrar á leiðinni á
hvíta tjaldið. x
Horrormeister Stephen
King hefur skrifað kvik-
myndahandrit sem heitir
Sv.efngenglar og segir frá
blóðsugum utan úr geimn-
um sem koma til jarðarinnar
í leit að nýjum fórnarlömb-
um. Líklega verður myndin
frumsýnd undir vorið.
Saklaust blóð heitir önnur
sem John Landis leikstýrir
með Anthony LaPaglia og
Anne Parillaud (úr frönsku
hasarmyndinni Níkítu) í
aðalhlutverkum. Parillaud
leikur vampýru sem aðeins
sýgur blóð úr þijótum og
ómennum.
Aðrar eru „Love at Sec-
ond Bite“, framhaldsmynd
„Love at First Bite“ með
Guy Hamilton frá 1979 og
„The Lost Boys II“, fram-
haldsmynd samnefndrar
myndar frá 1987 sem í léku
Jason Patric og Kiefer Suth-
erland. Joel Schumacher
mun leikstýra aftur. Og loks
má nefna myndina Viðtal
við vampýru sem byggir á
fyrstu sögunni í trílógíu
bandaríska rithöfundarins
Anne Rice.
Alls hafa um 11.000
manns séð dönsku
teiknimyndina Fuglastríðið
í Lumbruskógi í Regnbog-
anum, að sögn Andra Þórs
Guðmundssonar rekstrar-
stjóra, en myndin er sýnd
með íslensku tali.
Hann sagði að Ungu
harðjaxlarnir væru komnir
í rúmlega 6.000 manns og
Henry: Nænnynd af ijölda-
morðingja hefðu um 4.000
manns séð. Nu er sýningum
lokið á tveimur
Kevin Costner
myndum bíósins
og sagði Andri
Þór að Hrói hött-
ur hefði endað í
41.000 manns en
Óskarsverðlauna-
myndin Dansar
við úlfa í um
53.000 manns.
Á meðal fyrstu
mynda bíósins á
nýju ári má nefna
hasarmyndina
„Ricochet" með
Denzel Washingt-
on, John Lithgow
og Ice T, „Free-
jack“ með Mick
Jagger, Anthony
Hopkins og Em-
ilio Esteves, en
það er framtíðar-
þriller, og loks gaman-
myndina Segðu ekki
mömmu að barnapían er
dauð.
Regnboginn hefur tryggt
sér sýningarréttinn á bíó-
myndinni Tvídrangar eftir
David Lynch, að sögn
Andra Þórs, en tökur
standa nú yfir á henni í
Bandaríkjunum. Einnig
hefur bíóið réttinn á nýjustu
mynd Michael Douglas,
„Basic Instinct“.
í BÍÓ
Urvalið í bíóunum núna
rétt áður en jóla-
myndirnar skella á er dág-
ott með Thelmu og Louise
í fararbroddi í hinu nýja
og glæsilega kvikmynda-
húsi Sambíóanna, Sagabíó.
Hún segir frá útlagakvens-
um tveimur og er hröð og
skemmtileg.
Annai-s einkennist úr-
valið nokkuð af listrænum
myndum. í Háskólabíói má
minna á nýjustu mynd
pólska - leikstjórans
Krzysztof Kieslowski um
Veróm'kurnar tvær og í
Regnboganum hafa Lista-
hátíðarmyndir verið til sýn-
inga eins og Vegur vonar,
Homo Faber og Ó, Car-
mela og fyrir helgi bytjaði
franska myndin „La glory
de mon pére“.
Þá má ekki gleyma nýju
Bertolucci myndinni í Sam-
bíóunum, „The Sheltering
Sky“, með Debra Winger
og John Malcovich. Hún
er svokallaður gullmoli bíó-
anna.
Yfir í allt annað; loksins
deyi- martröðin Freddi í
Laugarásbíói og þurfti til
þess fimm myndir og
þrívídd í endann.
Ungir harðjaxlar; 6.000 nianns.
SYNINGAR-
STJÓRI STALÍIMS
Nyjasta mynd rússneska
leikstjórans Andrejs
Kontsjalovskíjs heitir I innsta
hring eða „The Inner Circle"
og er með Tom Hulce í aðal-
hlutverki. Myndin er um eink-
asýningarstjóra einræðisherr-
ans Jósefs Stalíns í Sovét-
ríkjunum. Hann hefur trölla-
trú á Stalín og kerfinu sem
hann stendur fyrir, svo mikla
reyndar að hann mótmælir
varla þegar yfirmaður KGB
tekur af honum eiginkonu
hans, sem Lolita Davidovich
leikur.
Myndin gefur mjög óvenju-
lega sýn á lífið bak við Járn-
tjaldið og segir leikstjórinn
að hún sé sú fyrsta sem tekin
er innan Kremlarmúra og í
aðalstöðvum KGB.
Kontsjalovskíj hitti sýning-
arstjórann Alexander Ghans-
hín, sem myndin fjallar um,
fyrir meira en 20 árum og
sannfærðist um að samband
hans og Stalíns væri efni í
bíómynd.
Sýningarstjórinn, Ghans-
hín, sem er áttræður, var oft
viðstaddur upptökur á mynd-
inni í Moskvu og ráðlagði
Hulce. Síðasta mynd Kontsj-
alovskíjs var Tango og Cash
með Sylvester Stallone.
Hulce var eftirminnilegur
sem Amadeus og Davidovich
lék fatafelluna sem heillaði
Paul Newman í „Blaze“.
KVIKMYNDIRs^n.
/Hvemig verdur kvikmyndatónlist til?
Þaðbytjará
handrítinu
Hilmar Orn Ililmarsson tónlistarmaður og nýbakaður
Felixverðlaunahafi fyrir bestu kvikmyndatónlist Evrópu
á árinu í myndinni Börn náttúrunnar, vinnur nú við að
semja tónlistina í bíómynd Kristínar Jóhanncsdóttur, Svo
á jörðu sem á himni. Hann ihugar þrjú tilboð frá Þyska-
landi, Bretlandi og Bandarikjunum um frekari verkefni
á sviði kvikmyndatónlistar.
Hilmar Örn
Hilmarsson;
góð fimmtán
mínútna
frægð.
essar 15 mínútur af
frægð voru mjög góð-
ar,“ sagði hann um afhend-
inguna í Berlín, „og vonandi
kemúr ein-
hver vinna
útúr því.“
Svo bætti
hann því við
að hann færi
sér rólega,
væri latur að
eðlisfari og
kynni ekki við að vinna meira
en góðu hófi gegndi.
En hvernig verður kvik-
myndatónlistin hans til? „Það
byijar á handritinu," segir
Hilmar Örn. „Úr því fæ ég
hugmyndir og kynnist and-
rúmsloftinu. Eg reyni líka að
vera viðstaddur tökur eins
mikið og ég get og réð mig
til dæmis sem leikmunavörð
við upptökurnar á mynd
Kristínar fyrir austan. Þann-
ig kynnist ég blóði, svita og
tárum kvikmyndagerðarinn-
ar.
Þegar ég gerði tónlistina
við „Börnin“ vann ég mig
áfram á öllum kiippistigum.
Eg sá fyrir mér hrynjandina
eftir tivert klippistig og sett-
ist loks niður með myndina
á myndbandi eftir lokaklipp-
ingu og reiknaði út taktrás-
ina í þeim tökum sem tónlist-
in átti að vera. Það var tíu
daga ströng stærðfræðivinna
að reikna út taktana. Eftir
það fór ég í upptökuver. Þar
vann ég grunntónlistina,
sumt sá ég sjálfur um en
fékk þá Szymon Kuran fiðlu-
leikara og Stefán Örn Arnar-
son sellóleikara til að spila
undir taktrásina. Tónlistin
fylgdi klippingunni algerlega
þannig að áherslan kom alltaf
á réttum stöðum.
Ég áttaði mig fljótlega á
því að ég yrði að nota strengi
rnikið. Það kemur af sjálfu
sér þegar fjallað er um aldrað
fólk, þá notar maður ekki
liljóðgerfla. Tónlistin byggir
mikið á klisjum. Uppistaðan
er fiðla í bland við ástríðu-
fulla sígaunatóna. Hún leitar
því í klisjurnar en ég reyni
að umbreyta klisjunni þannig
að hún iifni og verði eitthvað
meira; undirstriki það sem
gerist. Kvikmyndatónlistin á
að hverfa í bakgrunninn. Hún
á alls ekki að skera sig úr,
hún er hluti af myndinni í
heild.
Börn náttúrunnar er
óskaplega rík mynd af tilfinn-
ingum og ég vissi frá upp-
hafi að ekkert gæti farið úr-
skeiðis. Þessa sömu vissu hef
ég gagnvart mynd Kristínar;
það er ekki séns að liún
klikki. Það er bytjað að klippa
hana og ég er farinn að semja
laglínur og leggja niður fyrir
mig hrynjandina en ég tek
ekkert upp fyrr en í febrúar.
Tónlistin í „Svo á jörðu" mun
einkennast mikið af kórsöng,
í henni er mikið af röddum,“
sagði Hilmar Örn að lokum.
eftir Arnald
Indriðason
i