Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.12.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBUVÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNÚDAGUR 29. DpSRMBER. J991 BREFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. cn Z 'íi' Z> □ i£ i => z Múlalundur 'ISÍMI: 62 84 50 o i S! ÚTSALA Allar gjafavörur með 20% afslætti fram að áramótum. Hlíóablóm Miklubraut 68, sími 13630. Bókhalds- og rekstrar- nám 76 klst. Námið er hnitmiðað og sérhannað með þarfir atvinnulífsins í huga. Markmið námsins er að útskrifa nemendur með víðtæka þekkingu á bókhaldi (tölvubók- haldi) ásamt hagnýtri þekkingu á sviði verslunarréttar. Námsgreinar: ★ Hlutverk bókhalds, bókhaldslög. ★ Bókhaldsæfingar og reikningsskil. ★ Verslunarreikningur. ★ Launabókhald. ★ Virðisaukaskattur. ★ Raunhæft verkefni - afstemmingar og uppgjör. ★ Tölvubókhald. ★ Réttarform fyrirtækja. ★ Samningagerð. ★ Viðskiptabréf, ábyrgðir, fyrning skulda. Ef þú vilt auka þekkingu þína á bókhaldi, styrkja stöðu þína á vinnumarkaðinum, vera fullfær um að annast bókhald fyrir- tækja eða starfa sjálfstætt, þá er þetta nám fyrirþig. Viðskiptaskólinn býður litla hópa - einung- is reynda leiðbeinendur - bæði dag- og kvöldskóla - sveigjanleg greiðslukjör. Engrar undirbúningsmenntunar er krafist. Innritun er hafin. Viðskiptaskólinn Skólavörðustíg 28, Reykjavík. Sími 624162. SPARISJÓÐUR Afmælisár hefst á dagatali Sparisjóður Hafnarfjarðar verð- ur 90 ára á næsta ári og verður margt gert til að minnast afmælisins í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Fyrsta ummerki afmælisársins er hið ár- lega dagatal Sparisjóðsins, sem annars vegar er helgað sögu hans og hins vegar dagskrá afmælis- ársins í heild. Dagatalinu hefur nú verið dreift á nær 7.000 heim- ili á þjónustusvæði Sparisjóðsins í þremur hæjar- og sveitarfélög- um. Afmælisdagatalið er skreytt sögulegum ljósmyndum úr Hafn- arfirði, sem spanna 90 ára tíma- bil og fylgir texti hverri mynd, sem í hnotskurn greinir frá samof- inni sögu bæjarfélagsins og Spari- sjóðs Hafnarfjarðar. Stjórn og sparisjóðsstjórar fóru í hús í Hafnarfirði og afhentu fólki dagatalið. Hér má sjá Stefán Jónsson, sem setið hefur í sljórn í tæplega 50 ár.og Matthías Matthiesen afhenda rosknum hafnfirðingi dagatalið sitt. TÍSKA Islensk ull og skartgripir í sendiráði Anna Birgis, sendiherrafrú í Þýskalandi stóð fyrir veglegri tískusýningu í sendiherrabústaðn- um fyrir skemmstu. Hún sýndi þar íslenskan ullarfatpað og skartgripi og fylltu 110 gestir húsið og gerðu góðan róm að uppákomunni. Anna fékk fatnaðinn frá Íslenskum heim- ilisiðnaði, en skartgripina frá Sigr- únu Gunnarsdótlur í Aft-Hún. Gerður Hjörleifsdóttir hjá íslensk- um heimilisiðnaði og Unnur Arn- grímsdóttir frá Módelsamtökunum voru Önnu til halds og trausts. Unnur kom gagngert til Bonn til þess að hjálpa til við fram- kvæmd tískusýningarinnar. Fötin sýndu Cherrie Grant sendiherr- afrú frá Nýja SJálandi og 12 ára dóttir hennar Shara, Belinda Mitchell úr breska sendiráðinu, Kristín Eva Sigurðardóttir úr ís- lenska sendiráðinu og Ester Finn- bogadóttir frá Módelsamtökun- um, sem kom með Unni frá ís- landi, auk Önnu Birgis. Frá tískusýningunni í sendiráðinu. Að sögn Guðna Bragasonar hjá tanríkisráðuneytinu var um vel lukkaða sýningu að ræða og tölu- verð umræða um að festa kaup á vörunum. Meðal gesta var Barbara Genscher, þýska utanríkisráðherr- afrúin. Þýska dagblaðið General- Anzeiger greindi frá sýningunni og birti tvær myndir, þær sem hér birtast. Desembervtrð d Storno farsimum Verðið er hreint ótrúlegt. Storno bílasími kr. 79-580 stgr. með vsk. Storno burðarsími kr. 84.280 stgr. með vsk. Bíla- og burðarsími kr. 94.760 stgr. með vsk. Burðarsíma fylgir 4 Ah rafhlaða. Takmarkað magn. Verö gilda til 31. des. 1991. POSTUR OG SÍMI Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og símstöðvum um land allt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.