Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992 Minning: Helgi Ólafsson fasteignasali Fæddur 27. júní 1924 Dáinn 30. desember 1991 Aramót marka oft þáttaskil í lífi manna. Kærir samferðamenn kveðja, menn sem maður hefði kos- ið að njóta lengur samfylgdar við. Á sjötta degi jóla fékk ég óvænt boð, að minn gamli samferðamaður og tryggðarvinur, Helgi Olafsson, hafi látist þá um daginn. Helgi var jafnan kenndur við Stokkseyri, upp- alinn á Skeiðum og varði unglings- árunum á Selfossi; Árnesingur, dæmigerður Sunnlendingur, sem hafði unnið ævistarfið, fyrst við brimgnýinn á Stokkseyri og síðar í Reykjavík, lengst af með búsetu í Kópavogi, en í Reykjavík nú allra síðustu árin. Starfsferill Helga hófst á Sel- fossi, en hann var til fjölda ára útibússtjóri Kaupfélags Árnesinga á Stokkseyri, síðar kaupfélagsstjóri á Kjalarnesi, um margra ára skeið fjármálastjóri dagblaðsins Tímans, og síðustu árin rak hann sjálfstæða fasteignasölu, meðan kraftar leyfðu. Helgi naut skammrar skóla- göngu að þeirra tíma hætti. Hann vann þó það afrek að öðlast löggild- ingu til fasteignasölu, rétt við hlið- ina á þeim löglærðu í lagadeildinni. Hann rak sjálfstæða fasteignasölu um árabil. Helgi bjó fyrst í Kópavogi, eftir að hann fluttist suður. Þar heilluðu hann bæjarmálin og var hann fram- arlega í Framsóknarfiokknum. Eftir að hann fluttist á Snorrabrautina hafði hann áfram auga með félög- um sínum Kópavogi. Iðulega réði hann ráðum með fyrri félögum sín- um. Störf hans hjá Tímanum vöktu eftirtekt. Hann starfaði undir hand- leiðslu Tómasar Árnasonar, sem var framkvæmdastjóri blaðsins á blóm- askeiði þeirrar útgáfu. Lipurð hans og útsjónarsemi var slík að margir leituðu til hans með málefni sín, bæði stór og smá. Helgi hafði sérstakt lag á því að umgangast margbreytilega pers- ónuleika af þeirri fimi sem ekki er öllum gefin. Mér eru efst í huga ýmsir menn á ólíklegustu póstum í þjóðfélaginu sem Helgi fann greið- an aðgang að, sem öðrum var lokuð leið. Ekki flíkaði hann þessu og vann störf sín yfirlætislaus og var manna skilvirkastur. Margir bundust Helga ævilöng- um vináttuböndum. Hér má telja marga gamla samtímamenn við Tímann, Indriða G. Þorsteinsson, Jón Hákon Magnússon, Guðjón Ein- arsson og Tómas Árnason. I þennan hóp má bæta Magnúsi Bjarnfreðs- syni, Guttormi Sigurbjörnssyni og Árna Halldórssyni. Um áraskeið rak hann á heimili sínu fasteignasöluna. Þessu fylgdi mikill gestagangur. Margir vinir og kunningjar fyrir austan fjall áttu við hann erindi. Þrátt fyrir löng og ströng veik- indi fylgdist Helgi vel með. Hugur hans var jafnan fyrir austan fjall eða á fyrri slóðum í Kópavogi. Hann hafði jafnan auga með starfs- félögum sínum frá Tímaárunum. Ég man eitt sinn á björtum haustdegi að við Helgi skruppum austur fyrir fjall og niður á Stokks- eyri. Þennan dag var bjart yfir Suðuriandi og fjallasýn með miklum litbrigðum. Þetta var minnisverður dagur fyrir það að hér fann Helgi rætur sínar. Hér var hans heimur. Helgi var einn af fjölmörgum, sem öðrum þræði lifðu í draumalandi æskuhugsjóna, þrátt fyrir að fást við gráan hversdagsleikann á-möl- inni. Þessir menn eru að hverfa og upp vex malbikskynslóð skrýdd prófgráðum. Kynslóð, sem ekki hef- ur numið hrynjanda þessa lands, sem fóstraði okkur sem þjóð. Kynni okkar Helga eru gömul, ná aftur til ársins 1950. Þau tengd- ust í fyrstu ungliðahreyfingu innan Framsóknarflokksins. Ég lagði það í vana minn, í hvert sinn sem skrapp suður, að líta við hjá Helga. Meðan heilsa leyfði komu þau hjón Helgi og Kristín til okkar Áslaugar norður í land, og enn er okkur minnisstæð samveran á Kýp- ur. Símtölin okkar eru fjölmörg og fór fjölgandi, eftir að róðurinn þyngdist hjá Helga. Veikindi Helga voru mikil þrekraun en með æðru- leysi og ódrepandi lífsvilja vann hann marga hildina við manninn með ljáinn. Jafnan spratt hann upp á ný fullur af krafti til að mæta næstu lotu. Svo var með Helga vin minn, eins og okkur alla, að um síðir fer á einn veg. Helgi naut þeirrar lífshamingju að eignast framurskarandi lífsföru- naut, Kristínu Einarsdóttur, ein- staka drengskaparkonu, sem var kletturinn, á hveiju sem gekk. Við sáTnstarfsmenn og vinir Helga stöndum í ævarandi þakkarskuld við Kristínu, þessa fómfúsu höfð- ingskonu. Þau hjón Helgi og Kristín bjuggu sér hlýlegt heimili, við þjóðbraut á Flókagötu 1. Kristín rak gistiheim- ili með miklum myndarskap um áraraðir í tengslum við heimili þeirra. Helgi var hreinskiptinn, þó tillits- samur, orðvar, vinsæll af öllum sem hann þekktu. Hann var yfirlætis- laus, en var þungur á bárúnni þeg- ar við þurfti og vinfastur með af- brigðum. Kynni mín af Helga voru mér tengsl við þann jarðveg, sem ég sjálfur er sprottinn úr. Þetta var mér leið til rótarinnar, sem Sunn- lendings, sem eytt hefur öllu lífs- púðrinu norðan heiða. Við Áslaug vottum Kristínu Ein- arsdóttur og hennar fólki samúð okkar, börnum Helga, og ekki síst dóttursyninum, Helga Jónssyni, sem var augasteinn afa síns, djúpa samúð. Áskell Einarsson í dag verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju kl. 15.00 Helgi Ólafsson, fasteignasali, en hann lést á Landspítalanum þann 30. des- ember sl. Mörg undanfarin ár hefur Helgi átt við erfiðan sjúkdóm að stríða svo andlát hans nú kom kunn- ugum ekki á óvart. Helgi Ólafsson var fæddur í Reykjavík 26. júní 1924, sonur hjónanna Guðlaugar Sigurðardótt- ur og Ólafs Helgasonar, en fímm ára að aldri var hann tekinn í fóst- ur af föðurbróður sínum Katli Helg- asyni að Álfsstöðum á Skeiðum og konu hans, Kristínu Hafliðadóttur, og ólst þar upp til fullorðinsára. Ég kynntist Helga fyrst veturinn 1941—1942 þegar við vorum báðir í skóla á Laugarvatni og bjuggum þar í Björkinni eins og það var kallað. Á þeim árum var Helgi frem- ur óframfærinn og fáskiptinn og stundaði námið af stakri samvisku- semi. Hann var sem sagt í hópi þeirra sem kennararnir kölluðu góða nemendur. Að loknu námi á Laugarvatni fór Helgi i Samvinnu- skólann og lauk þaðan prófí 1946. Að loknu námi í Samvinnuskól- anum hóf Helgi störf hjá Kaupfé- lagi Árnesinga og var um tíma úti- bússtjóri kaupfélagsins á Stokks- eyri. Þaðan lá svo leiðin til Reykja- víkur þar sem hann vann um tíma á skrifstofum Sambandsins í nokk- ur ár, en á árunum 1960 til 1965 vann Helgi hjá Tímanum sem skrif- stofustjóri og gjaldkeri. Upp úr því stofnaði Helgi svo fasteignasöluna Húsaval og tók próf sem löggiitur fasteignasali 1975. Helgi var mikill félagsmálamað- ur. Af því leiddi að hann var sam- vinnumaður og studdi Framsóknar- flokkinn dyggilega, en á þeim vett- vangi lágu leiðir okkar síðar- saman í Kópavogi. Helgi gegndi mörgum trúnaðarstörfum bæði fyrir Fram- sóknarflokkinn og Kópavogskaup- stað. Hann var m.a. varabæjarfull- trúi kjörtímabilið 1970 til 1974. Lionshreyfíngin átti einnig hug Helga þar sem hann gegndi einnig mörgum trúnaðarstörfum. Það var gott að leita til Helga. hann var vinur vina sinna og vildi ávallt hvers manns vanda leysa. Helgi hafði gaman af að umgang- ast fólk og var glöggúr á kosti og galla í fari þess. Hann gat verið orðheppinn og því hrókur alls fagn- aðar þegar þannig stóð á. Helgi var tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Onnu Pálsdóttur, missti hann en með henni átti hann einn son, Ólaf Helga, verslunarmann, en fyr- ir hjónaband hafði Helgi eignast eina dóttur, Guðlaugu sjúkraliða. Seinni kona Helga er Kristín Ein- arsdóttir, fædd 1. maí 1924. Þau Kristín og Helgi áttu ekki börn saman en Kristín átti tvo syni og eina dóttur frá fyrra hjónabandi, þá Anton Bjamason, íþróttakenn- ara, og Bjarna Bjarnason, báðir þekktir íþróttamenn sem búa í Kópavogi, og Fríðu, hjúkrunarfræð- ing, búsetta í Reykjavík. Kristín er mikil myndarkona, sem bjó manni sínum fagurt og gott heimili. Hún var einnig stoð hans og stytta í erfiðum veikindum hans en hún hefur rekið gistiheimili á Flókagötu 1 í Reykjavík nú um margra ára skeið. En um það ber öllum saman sem notið hafa þeirrar þjónustu að þar hafí verið gott að koma. Ég votta Kristínu og öllum aðstandendum Helga samúðar við fráfall hans. Við sem eftir lifum eigum minninguna um góðan dreng. Guttormur Sigurbjörnsson í dag verður Helgi afí jarðsung- inn frá Hallgrímskirkju. Hann and- aðist 30. desember 1991 á Land- spítalanum eftir mikil veikindi, sem hann hafði barist við en bar ávallt höfuðið hátt. Á svona stundu vakna upp ótal minningar um afa okkar. Hann var mikil félagsvera og var gæddur þeim góða hæfileika að geta spjall- að við fólk á öllum aldri um Iífíð og tilveruna. Þegar við komum í heimsókn gaf hann sér alltaf tíma til að spjalla og hafði áhuga á því sem við höfðum fyrir stafni. Hann fylgdist með okkur á öllum sviðum, hvort sem það var skólinn, íþróttir eða skemmtanir. Sjálfur hafði hann gaman af að segja frá margs konar atburðum, gömlum sem nýjum. Allt sitt líf hafði hann unnið að ýmiss konar félagsstörfum og gaf ekkert eftir í þeim efnum í veikind- um sínum, enda hafði hann unun af því að vera meðal fólks. Félags- störfín gáfu honum mjög mikið. Aldrei sleppti hann Lionsfundi eða sóknarnefndarfundi og lét ávallt gott af sér leiða. Nýlega var hann sæmdur heiðursskjali fýrir vel unn- in störf innan Lionshreyfíngarinnar og þótti honum vænt um þennan heiður. Eftir að hann hætti með fasteignasöluna var hann iðinn við að skrifa. Til dæmis þegar við dvöldumst erlendis sendi hann okk- ur alltaf bréf og alls kyns úrklippur úr blöðum hér heima. Hann skrifaði ýmsar greinar í blöð og hafði gam- an af. Enda sagði hann í gríni að hún amma væri ekki lengur gift fasteignasala heldur rithöfundi. Þetta er lýsandi dæmi hve hress hann var og hve lífslöngun hans var mikil. Þrátt fyrir erfíð veikindi vildi hann helst ekki dveljast lengi á spítalanum, heldur vera á sínu heimili innan um fjölskyldu og vini. Nú þegar afi okkar er kominn yfir móðuna miklu vitum við að honum líður vel í sínum nýja heimi. Megi góði Guð varðveita hann og gefa honum frið. Við kveðjum afa okkar með söknuði. Elsku amma okkar, Gulla, Óli, Helgi og aðrir nánari aðstandend- ur, megi góði Guð styrkja ykkur í sorginni. Hlín og Gúa Látinn er í Reykjavík Helgi Ól- afsson, löggiltur fasteignasali, fyrr- um gjaldkeri Tímans og kaupfé- lagsstjóri á Stokkseyri og í Mosfell- sveit. Helgi .Ólafsson var rúmlega sextíu og sjö ára að aldri þegar hann andaðist eftir langvarandi veikindi, sem hann bar herðimann- lega, svo aðeins þeir allra nánustu vissu í raun hve sjúkur hann var. Glaðlegt viðmót og sívakandi hugur slógu blæju frískleika yfir hann í augum annarra, sem héldu að þar færi nær alheill maður. Þannig liðu hans síðustu ár við mikla ástúð barna og barnabarna, konu hans, Kristínar Einarsdóttur, og hennar barna. Var þetta fólk allt ein stór og skemmtileg fjölskylda, sem Helgi bar mjög fyrir bijósti. Votta ég þeim öllum samúð mína. Fyrir utan var hann vinmargur og vin- fastur og margir áttu erindi við þau hjón á Flókagötu 1, þar sem Krist- ín hefur rekið rómað gistiheimili í íjölda ára. Helgi rak þar einnig fasteignasöluna Húsaval á meðan hann naut fullrar heilsu. Við Helgi Ólafsson kynntumst fyrst í Laugarvatnsskóla veturinn 1942-43. Þann vetur var hann í neðri deild en ég í efri deild, en skólinn starfaði í tvískiptum deild- um. Þetta var fyrri vetur Helga á Laugarvatni, en ég var þar aðeins einn vetur. Helgi var frá Álfsstöðum á Skeiðum. Bjarni Bjarnason, skóla- stjóri, starfaði þá í pólitík og sótti fylgi til Skeiðamanna. Ríkti sú skoðun í skólanum, að Skeiðamenn væru allra manna mestir og bestir, enda báru þeir af um margt. Þeir voru góðir og ástundunarsamir námsmenn, færir í íþróttum og með myndarlegri mönnum. Allt lagðist þetta á eitt um að gera veg Skeiða- manna sem mestan, svo og gott álit skólastjórans á þeim. Helgi var góður félagi í skóla. Það efldi sjálf- straust hans að hann var Skeiða- maður. Hann var strax þá félags- lega sinnaður og góður liðsmaður við hvert eitt það brall sem skóla- nemendur tóku sér fyrir hendur, hvort heldur það var koddaslagur eða gangaruðningur. Þessi skóla- vist varð mörgum dijúgt vegamesti og skólinn þeim kær í minning- unni. Ekki stóð upp á Helga að grípa til hendi við að smala saman árgöngum til að minnast skólavistar sinnar. Var það að mig minnir gert árið 1974 og tókst mjög vel m.a. fyrir óbilandi dugnað Helga Ólafs- sonar. Helgi hóf fljótlega störf hjá Kaupfélagi Árnesinga, fyrst á skrif- stofum félagsins á Selfossi. Síðan gerði Egill Thorarensen hann að kaupfélagsstjóra á Stokkseyri. Gegndi hann því starfi nokkuð lengi við miklar vinsældir, enda maðurinn hjálpfús og úrræðagóður. Áttu við- skiptavinir hauk í homi, þar sem hann var. Minntist hann Stokkseyr- ar með hlýhug síðan. Okkar sam- skiptum lauk í bili eftir vistina á Laugai-vatni. En eitt bréf fékk ég frá Helga undir stríðslok norður á Akureyri. Þetta var langt bréf, þar sem fram komu draumar og fram- tíðarplön ungs manns, og man ég að mér þótti sérlega ánægjulegt að fá línu frá ágætum skólabróður á meðan maður bar enn mynd í vesk- inu sínu af einhverri skólasyst- urinni, sem hafði kveikt eins konar göngustígaskot. Þá var enn mikið eftir af Skeiðamanni í Helga. Bjarni var ekki vonlaus um þingsetu, og átrúnaður okkar beggja, Jónas frá Hriflu, var enn á pólitískum dögum. Allt setti þetta stílmót á bréfíð. Þar var talað um málin eins og fram- sóknarmaður frá 1927 héldi á penn- anum. Sem sagt, við yrðum að duga þjóðinni vel, láta ekki vínið éyði- leggja okkur og sækja fram til betra lífs og öryggis. Ég var nú ekki að gera annað við sjálfan mig en keyra bíl um þetta leyti og hefði sjálfsagt mátt drekka minna. Bréfið kom því sem þörf og uppbyggileg áminning. Síðan heyrði ég ekkert frá Helga í langan tíma, eða hátt í áratug. En allt í einu var hann kominn í símann og sagðist vera með kaupfé- lagsverslunina á Stokkseyri og nú væri erindið hvort ég vildi koma austur til að lesa upp. Ég var fyrir nokkru byijaður í blaðamennsku og hafði ekki alvarlegar hugmyndir um skáldskap. Samt féllst ég á þetta mest vegna þess að mig lang- aði til að sjá Helga. Hann var hress að vanda. Við ræddum gamla daga og fréttum hvor hjá öðrum af skóla- systkinum okkar. Fleira varð það ekki í það sinn. Eftir 1960 höfðu velunnarar Tímans komið honunj í nokkurn vanda rétt einu sinni. Ég hafði þá verið á Alþýðublaðinu um stund, en var þá beðinn að koma aftur. Þá var Helgi Ólafsson orðinn gjaldkeri Tímans. Það urðu eigin- lega hálfgildings fagnaðarfundir og næstu tíu árin gekk okkur vel. Helgi missti tvær eiginkonur, en bjó um þetta leyti með börnum sín- um í Kópavogi og hafði ráðskonur. Helgi var þannig gerður að hann bauð ekki upp á neina vorkunn- semi. Aldrei varð ég var við að hann teldi að lífið hefði hantérað hann heldur illa. Aldrei heyrðist á honum að hann væri einstæðingur með börn á framfæri. Svo hitti hann Kristínu sína og það varð honum til mikillar gæfu. En á með- an hann bjó í Kópavogi hafði hann töluverð afskipti af bæjarmálum þar. Ég er ekki að segja að Kópa- vogur hafi ætíð verið honum efst í huga. En undarlega var alltaf grunnt á umræðu um Kópavog, þótt hann hefði búið lengi á Flóka- götu 1. Á þessum Tímaárum byijuðum við Helgi að veiða saman og vorum oftast saman um stöng. í fyrstu var ekki mikil alvara í þessu. Þá var Ólafur Helgi, ungur sonur hans, stundum með okkur. Óli var skemmtilegur strákur, en hann gaf sig ekki mikið að veiðinni. Hann var að hugsa um annað. Seinna rak hann saman hljómsveitir og spilaði fólki til gamans. Ég man hins veg- ar enn, að margar voru þær kók- flöskurnar, sem þurfti að tína úr bílnum að ferðalögum loknum. Með tímanum varð Helgi Ólafs- son með allra hörðustu laxveiði- mönnum. Hann hafði mikið yndi af veiði, var þaulsætinn við veiði- staði þótt ekki væri mikil fiskivon og græddi oft á því góða veiði og það af einskærri þolinmæði. En hann gat líka farið á skrið og kast- að færinu um alla á upp á von og óvon. „Það er þá lax þarna,“ sagði hann stundum á þessum rútuferð- um meðfram ánni, þegar fískur tók á óvæntum stað. Helgi notaði mikið flotholt við veiðarnar og lét það svamla. Það þýddi að stöku veiði- staðir voru óþægilegir fyrir hann. Þá lét hann mér eftir og jafnaði svo metin annars staðar. Við voruin mörg sumur í móður allra laxveiði- áa, Laxá í Aðaldal, og vorum þá í hópi með Jakob Hafstein og félög- um. Helgi var afskaplega þægilegur veiðifélagi. Síðast fórum við sumar eftir sumar í Laugardalsá í Laug- ardal við Djúp ásamt Jóni Hákoni frá Skjaldfönn og öðrum jöklaskr- ensurum. Þar naut Helgi sín best. Áin er hæg og auðveidd og gaf hér áður góða veiði. Helga var það kappsm'al að okkar stöng væri með mesta veiði. Hún var það stundum. Til marks um veiðikappið í Helga má geta þess, að eitt sinn brákað- ist hann á úlnlið og gat ekki notað höndina. Víglundur Þorsteinsson ók honum um kvöld til ísafjarðar til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.