Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 45
\ MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 10. JANUAR 1992 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA B91282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS SILD ER SÆLGÆTI Svartur sjór af síld var yfir- skrift þátta um síldarárin sem sýndur var í Sjónvarpinu fyrir skömmu. Ég man þessi ár vel og þá stemmingu sem síldveiðunum fylgdi. Það er ánægjuefni að síld- arstofninn sé nú að taka við sér á ný. En alltaf hefur mér fundist að þessi ágæti fiskur hafi verið illa nýttur hjá okkur og enn er það svo að mest af síldinni fer fy bræðslu. Þannig fæst að sjálf- sögðu ekki mikið fyrir hana. Síld ei* sannkallað sælgæti sé hún vel verkuð en hér á landi er hún alltof lítið notuð. Þessu þarf að breyta. Ef neysla á síld ykist á innanlands- markaði myndi það renna stoðum undir öfluga vinnslu og þannig skapa grundvöll fyrir aukinn út- flutning. . Sjálfsagt er erfitt að koma af stað breytingum sem þessum en Einkavæðing og einokun Félagi minn einn er ákafur stuðningsmaður þess að ríkisfyrir- tæki verði seld og telur það hag- stætt í öllum tilfellum. Ég er sam- mála að nokkru leyti. Til dæmis sé ég ekkert því til fyrirstöðu að selja Búnaðarbankann og Ríkis- skip, það myndi skapa ríkinu tekj- ur og ekki mun af veita eins og staða ríkissjóðs er. En einkavæð- ing er ekki alltaf til góðs. Þegar bifreiðaskoðun var einkavædd varð þjónustan dýrari. Ekki er hægt að leita nema tii eins fyrir- tækis til að fá skoðun, samkeppn- in er engin á þessum vettvangi. Við slíkar aðstæður tel ég sýnt að betra sé að ríkið annist rekstur-. inn. Eins er það með Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Talað hefur venð um að hún verði seld og reksturinn falinn einkaaðilum. Hagkvæni í einkarekstri byggir á samkeppni en þarna yrði ekki um neina samkeppni að ræða. Þess vegna er þessi rekstur betur kom- inn í höndum ríkisins. Ég hef ekki enn heyrt þau rök sem réttlæta einkavæðingu einokunarfyrir- tækja og efast um að þau séu til. Borgari 4 4 4 Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurair og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- leyndar. Ekki verða birt nafnlaus bréf sem eru gagnrýni, ádeilur eða árásir á nafngreint fólk. alltaf leiðist mér að heyra hvérsu mikið af þessum ágæta fiski fer í bræðslu. Ég trúi ekki öðru en þarna sé hægt að ná meiri ár- angri. Með bræðslu fæst ekki nema brot af því verði sem feng- ist ef fiskurinn væri unnin í neyt- endaumbúðir. Aukin vinnsla myndi líka skapa mikla atvinnu sem kæmi sér vel á tímum sam- dráttar eins og núna. Sigurður Bílamarkaóurinn v/Reykjanesbraut n Smiðjuveg 46e, Kóp. Sími: 671800 Chevrölet Silverado Pick Up v-8 350ci '88, 4x4 m/húsi. Topp eintak. V. 1480 þús. (vask bíll). Fiat Uno 45 '90, ek. 11 þ. km., 2 dekkjag., sem nýr. V. 565 þús. (465 stgr). Dodge Dynasty LE ’88, sjálfsk., ek. 31 þ. km., m/öllu. V. 1380 þús. (sk. á ód). Nissan Pathfinder 2.4i ’90, 5 g., ek. 23 þ. km. V. 1980 þús. (sk. á ód). Rússajeppi framb. diesel '83, ek. 36 þ. km. V. 380 þús. Subaru Legacy 1.8 Sedan 4x4 '90, sjálfsk. ek. 33 þ. km. V. 1390 þús. (sk. á ód). Toyota 4Runner 6 cyl U.S.A. týpa '90 ('91), sjálfsk., mikið af aukahl. V. 2.8 millj. (sk. á ód). Toyota Corolla Liftback 1600 '91, ek. 6 þ. km. V. 1080 þús. (sk. á ód). Isuzu Tropper '82, ek. 15 þ. á vél. V. 660 þús. MMC Lancer st. 4 x 4 GLX '87, ek. 68 þ. km. V. 850 þús. MMC L-300 4x4 8 manna (VSK-bíll) '90, diesel, ek. 33 þ. km. V. 1900. Nissan Sunny Coupé 1600 SLX ’87>, (sk. á dýrari). V. 690 þús. Volvo 740 GLE '84, beinsk., m/overdr., ek. 105 þ. km. Gott eintak. V. 850 þús. (sk. á ód). Nissan King Cap 4 x 4 '91, diesel, 5 g., ek. 30 þ. km., ýmsir aukahl. (VSK-bíll). V. 1350 þús. (sk. á ód). Toyota Hi Lux Extra Cap m/húsi '84, 38“ dekk, ýmsir aukahl. V. 1.480 þús. Peugout 205 GTi 1.9 '88, ek. 67 þ. km., vinsæll sportbíll. V. 980 þús. (sk. á ód). MMC Lancer GLX '88, sjálfsk., ek. 45 þ. km., rafm. í öllu. Topp eintak. V. 750 þús. (sk. á ód). Daihatsu Charade CS '88, 5 dyra, ek. 45 þ. km. V. 530 þús. (sk. á ód). Subaru Justy J-12 4WD '90, ek. 10 þ. km. V. 840 þús. (sk. á ód). MMC L-300 4x4 8 manna '90, ek. 21 þ. km. V. 1780 þús. (sk. á ód) Daihatsu Rocky 4x4 '85, ek. 86 þ. km., úrvals jeppi. V. 820 þús. (sk. á ód). Chrysler T. & Country turbo station '88, lúxus bíll, m/öllu. V. 1390 þús. (sk. á ód). Nú er rétti tíminn til bílakaupa Mikið úrval - Goö kjor Stundin okk- ar verði lengri Við erum nokkrar mömmur sem viljum meira barnaefni eins og stundina okkar i Ríkissjónvarpinu. Ekki þessar endalausu teiknimyndir sem eru, upp _og ofan, heldur gott íslenskt efni. í Stundinni okkar er alltaf eitthvað fræðandi og skemmtilegt fyrir krakkana og get- raunir um styttur og hús ýta undir að börnin taki eftir umhverfi sínu. Brúðurnar eiga sterk ítök í þeim og mestu heimilisvinir. Gaman er líka að fylgjast með bréfunum frá þeim. Stundin hefur beint samband við litlu áhorfendurna. Ég legg til að þátturinn verði lengdur, það er allt- af óánægja og grátur yfír því hvað hann er stuttur. Þakkir fyrir þáttin mömmur. f.h. okkar allra, Sólveig Guðmundsdóttir -♦■♦•♦ Þökk sé þeim Ekki má láta það farast fyrir að minnast á það hversu vel og hlýlega þær tóku á móti gestum, konurnar góðu er buðu fram vinnu sína í þágu Verndar á aðfangadag jóla til þess að gleðja og hjálpa þeim er minna máttu sín þennan dag. Þessar vinsamlegu konur gerðu öllum gott. Þökk sé þeim. En þessi jól var Vernd með sinn jólafagnað á veitingastaðnum Furstanum, Skipholti 37. Emil Hákonarson Anna Gísladóttir Góður upplestur Við getum ekki látið hjá líða að minnast fáeinum orðum á söguna Apinn sem missti rófuna, sem Iesin var í útvarp af Jóni Gunnarssyni leikara hinn 28. desember síðastlið- inn. Sagan er mjög táknræn og mik- ið vel lesin. Við skrifum hér fyrir hönd margra sem Iangar að heyra söguna aftur vegna þess meðal ann- ars að þeir af ýmsum ástæðum heyrðu hana ekki alla en vildu þó gefa henni gaum svo vel sem hún var flutt og mörgum fannst hún táknræn frá hendi höfundar. Jón Gunnarsson er mjög góður lesari og væri gaman að fá að heyra til hans í útvari oftar en verið hefur hingað til. Kristín Sigþórsdóttir Bergþóra Pálsdóttir Rýmingarsala Nú rýmum við fyrír nýjum vörum, Sýnishorn: Áður Nú Kerruvagn............30.500,- 25.900,- Kerra m/regnslá......14.900,- 11.900,- Vagn m/burðarrúmi....49.700,- 37.900,- Göngugrind............5.900,- 4.900,- Baðborð yfir bað.....10.500,- 8.400,- og margt margt fleira. Littu inn. Klapparstíg 27, sími 19910. nmmwímLk Hafin erhin árlega verksmidjuútsala í Smidsbúö 9\ Garöabce, á íslenskum ullar- og bómullarpeysum Verdfrá kr. 1.200,- Opid virka daga frá kl. 12—18 og laugardaga frá kl. 10—16 Ko/ndu t Smidsbúd níu og- kauptu þér hlýju Árblih hfi, SmiðsbúÖ 9, Garðabœ, sími 641466, fax 45028. wear Jcamt mi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.