Morgunblaðið - 10.01.1992, Side 48

Morgunblaðið - 10.01.1992, Side 48
Sovéskum flugvélum fækkaði SOVÉSKUM flugvélum á íslcnska loftvarnasvæðinu fækkaði talsvert í fyrra frá árinu 1990. I fyrra flaug varnarliðið á Keflavíkur- flugvelli í veg fyrir 26 sovéskar flugvélar á móti 45 árið áður. Hámarki náði koma sovéskra her- flugvéla á íslenska loftvarnasvæðinu árið 1985 en þá var flogið í veg fyr- ir 170 slíkar vélar. Þessum komum hefur stöðugt farið fækkandi síðan. Sjá nánar á bls. 25. ---» ♦--- Verslunarskólinn: FLENSUFARALDUR herjar nú á nemendur og kennara Verslun- arskólans og eru dæmi um að alit að heimingur nemenda í bekk liggi veikur heima. í gærdag til- kynntu rúmlega 50 nemendur veikindi og fimm kennarar voru forfallaðir vegna flensunnar. Valdimar Hergeirsson, yfirkennari í Verslunarskólanum, segir að hann muni ekki eftir jafnmiklum forföllum hjá kennurum í einu vegna veikinda við skólann og það sé sjaldgæft að 5% nemenda tilkynni veikindaforföll sama daginn eins og gerðist í gær- dag. „Við höfum dæmi um að allt að helmingur eins bekkjar liggi nú í flensu en veikindin hafa komið við sögu í flestum bekkjardeildum," seg- ir Valdimar. „Sjálfur hef ég ekki farið varhluta af þessum veikindum því bæði dóttir mín, sem er nemandi hér, og eiginkona liggja heima með flensu." í máli Valdimars kemur fram að nú er að ijúka fyrstu kennsluviku skólans eftir jólafrí. Hann segir að veikindi kennaranna fimm hafi gert það að verkum að fella þurfti niður kennslu í stöku greinum en að öðru leyti sé skólastarf eðlilegt. Handrið á Ráðhúsbrúna Morgunblaðið/KGA Framkvæmdum utandyra við Ráðhúsið miðar vel og er búist við að þeim verði lokið snemma í vor. Verið er að koma upp handriði og sérstakri lýsingu á brúnni frá Ráðhúsinu að Iðnó og nýttu menn sér ísinn á Tjörninni til að auðvelda sér verkið. Starfsfólki á sjúkrahúsum fækkað og deildum lokað UPPSAGNIR, aðliald í inannaráðningum, niðurskurður yfirvinnu og áframhaldandi lokanir deilda eru framundan hjá sjúkrahúsunum vegna niðurskurðar á útgjöldum til þeirra á fjárlögum. Sjúkrahúsin vinna nú að gerð tillagna til heilbrigðisráðuneytis um það hvernig mæta megi 5% flötum niðurskurði. Heilbrigðisráðherra hefur liins vegar til ráðstöfunar um 500 milljónir króna á sérstökum fjárlagalið, sem nota má til að milda niðurskurðaraðgerðir. Logi Guðbrandsson framkvæmda- stjóri Landakotsspítala segir að ljóst sé að þessi mikli niðurskuður sem boðaður er á fjárveitingum til spítal- ans muni hafa í för með sér veruleg- an samdrátt í rekstri hans. „Hinsveg- ar höfum við ekki lagt niður fyrir okkur með hvaða hætti við mætum þessum niðurskurði en það verður gert á næstu dögum,“ segir Logi. í máli hans kemur fram að skera á niður um 480 milljónir króna í fjár- veitingum til spítalans og þar af á launaliður að minnka um 350 milljón- ir króna. Það segi sig því sjálft að fólki verður fækkað og deildum lokað á spítalanum. Davíð A. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítala, sagði í samtali við Morgunblaðið að stjórnendur Rík- Frjálst Framtak hf.: Ríkisskattstjóri áætlar 77 millj. viðbótargjöld fyrir 1985-1988 Um ágreining en ekki undanskot að ræða, segir Magnús Hreggviðsson stjórnarformaður isspítala vissu ekki hversu mikið þeir myndu fá í sinn hlut af sérsjóði heil- brigðisráðherra og því væri erfitt að gera sér grein fyrir því hver niður- skurðurinn yrði nákvæmlega. Davíð sagði að ef 5% niðurskurður kæmi niður á Ríkisspítölum af fullum þunga, þýddi það 300 milljónum króna minna fé en á síðasta ári. Davíð sagði að eins og staðan var í fjárlagagerðinni áður en ákveðið var að grípa til 5% flata niðurskurð- arins, hefði vantað um 50-100 millj- ónir upp á að Ríkisspítalar fengju sömu framlög og í fyrra. „Það eru peningar, sem við þurfum að ná inn mjög hratt. Við höfum þegar hert aðhald að yfirvinnu, ráðningum starfsfólks og annað slíkt,“ sagði Davíð. Hann sagði að önnur bæklun- ardeild Landspítala, sem verið hefur lokuð, yrði ekki opnuð á ný. „Hér er búið að stíga mjög harkalega á bremsurnar," sagði hann. Jóhannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans, sagði að 5% flatur niðurskurður þýddi hátt Um helming- ur nemenda í bekk ligg- ur veikur RÍKISSKATTSTJÓRI hefur að lokinni skoðun á vegum embættisins á bókhaldi Frjáls Framtaks hf. á árunuin 1985-1988 lagt um 77 milljón króna áætluð viðbótargjöld á fyrirtækið fyrir þann tíma. Afskipti embættisins af málinu hófust árið 1989. Þetta hefur Morgunblaðið eftir hcimildum sem Magnús Hreggviðsson stjórn- arformaður Fijáls Framtaks staðfesti í gær að væru réttar. Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri vildi hins vegar ekkert um málið segja þegar eftir var leitað í gær og staðfesti ekki að mál fyrirtækisins væru til meðferðar hjá embættinu. Magnús Hreggviðsson sagði við Morgunblaðið í gær að um væri að ræða áætlun skattayfirvalda, sem fyrirtækið ætti eftir að gera athugasemdir við og sú áætlun væri víðsfjarri því að vera niðurstaða í málinu. Hann kvaðst ekki kvíða endanlegri niðurstöðu ríkisskattanefndar í málinu. Magnús sagði að mál þetta snerist ekki um undanskot tekna heldur væri um efnislegan ágreining að ræða. Aðallega snerist sá ágreiningur um tvö atriði. Hvað væri frádrátt- arbær kostnaður í rekstri þeim sem félagið hafði með höndum á fyrr- greindum tíma og um það hversu mikið af yfirfæranlegu tapi fyrir- tækja sem Fijálst Framtak keypti og sameinaði rekstri sínum á árun- um 1985-1988 ættu að nýtast fyr- irtækinu. „Fijálst Framtak á eftir að koma á framfæri miklu af svörum og skýringum sem leiða munu til allt annarrar niðurstöðu. í skýrslu skattyfirvalda kemur fram ýmis misskilningur sem byggist á van- þekkingu á eðli þess rekstrar sem fyrirtækið hafði með höndum á þeim tíma sem málið tekur til,“ sagði Magnús. Hann sagði að í samræmi við lög væri fyrirtækið nú að vinna að undirbúningi kæru vegna álagning- arinnar til Ríkisskattstjóraembætt- isins sem að því búnu mundi kveða upp úrskurð um eigin verk. „Eftir það getum við — og munum örugg- lega — skjóta málinu til Ríkis- skattanefndar, sem er dómstóll og hlutlaus aðili. Ég er viss um að þegar málið kemur þangað verður hlustað á sjónarmið okkar. Ég kvíði ekki þeirri niðurstöðu," sagði Magnús. Magnús Hreggviðsson sagðist ekki í vafa um að mál þetta ætti eftir að enda vel fyrir Fijálst Fram- tak og að fjárhæðir verði á endan- um allt aðrar og miklum mun lægri. Hann sagði að þetta mál kæmi útgáfufyrirtækinu Fróða hf., sem tók til starfa í ársbyijun 1990, á engan hátt við. í 200 milljóna króna minna rekstr- arfé fyrir spítalann. Ljóst væri að engar deildir, sem nú væru lokaðar, yrðu opnaðar á árinu. Jóhannes sagð- ist óttast að til frekari lokana deilda myndi koma. „Þessi sparnaður verð- ur sársaukafullur og erfiður.“ Jóhannes sagði að til að byija með yrði gripið til hefðbundinna sparn- aðaraðgerða. Dregið yrði úr yfir- vinnu og engar nýráðningar eða afleysingaráðningar heimilaðar. Hann sagði að hefðbundnar aðhalds- aðgerðir dygðu þó skammt. Af rekstrarkostnaði færu 70% í laun, afgangurinn í lyf, hjúkrunarvörur, mat o.s.frv. Búið væri að ganga á annan kostnað en launakostnað hvað eftir annað, og Iaun væru háð kjara- samningum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.