Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992 13 Hjörtur Hjartarson fv. forstjóri — Mhming Genginn er nú góður vinur. Margs er að minnast við fráfall Hjartar Hjartarsonar. Er ég ungur axlaði þá ábyrgð að standa fyrir stóru byggingarfyrirtæki kom fljótt upp sú staða að leitað var ráða sér reyndari manna á sama starfssviði. Félag byggingarefna- kaupmanna hafði starfað um nokkurt skeið en með takmarkaðri samheldni, en yngri menn voru að taka við störfum og eygðu breytta tíma. Það var þá sem ég kynntist fyrst Hirti Hjartarsyni og héldust góð kynni og gagnkvæmt traust til hinstu stundar. Hjörtur var í forystu byggingarefnakaupmanna um áratuga skeið. Hann náði góðri samstöðu um að nota styrk félag- anna til að efla frelsi í viðskiptum og berjast fyrir afnámi hafta og gjaldeyristakmarkana, þannig að neytendur fengju notið hagstæðari viðskipta við aukna samkeppni. Þar gekk Hjörtur ótrauður til verks, enda hafði hann ungur kynnst hugsjónum tengdaföður síns, Jóns Þorlákssonar, og hafði þær í hávegum til hinsta dags. Síðan lágu leiðir enn frekar sam- an í margvíslegum störfum fyrir íslenska verslunarstétt. Alls þess samstarfs er ljúft að minnast og einkum þó í stjórn Verslunarráðs Islands, en þar naut verslunarstétt landsins starfskrafta Hjartar um áratuga skeið. Persónulegust samskipti áttum við best í stjórn Árvakurs hf., út- gáfufélags Morgunblaðsins. Hjört- ur hóf störf í félaginu 1956, var kosinn í stjórn 1963 og sat þar óslitið til 1986. Hann var áhuga- samur framfarasinni með einlægan áhuga á velgengni og framgangi blaðsins þannig að það gæti á sem bestan hátt þjónað lesendum sínum og viðskiptavinum. Það var hollt samstarfsmönnum hans að eiga við hann orðastað á fundum þegar ráða þurfti fram úr vandasömum úrlausnum. Tillögur hans mótuðust ávallt af því sem reynst gæti mál- efnum blaðsins til mestra heilla. Á stundum var slegið á léttari strengi. Hvort sem það var er menn gerðu sér glaðan dag, eða á kyrrum kvöldum í veiðihúsi eftir fengsælan dag á bökkum laxveið- iár, var Hjörtur hrókur alls fagnað- ar og allra manna hugljúfi. Það er með einlægum söknuði sem stjórnarmenn Árvakurs minnast horfins félaga. Við sendum börnum hans og öðrum fjölskyldumeðlimum alúðar- fullar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Haraldur Sveinsson. Hjörtur Hjartarson hefur svo lengi sem ég man verið eitt af stóru nöfnunum í íslenskum viðskiptum. Nú að leiðarlokum rifjast upp góðar minningar um góða viðkynn- ingu og náið samstarf. Fyrst fékk ég aðeins virt mann- inn úr fjarlægð, hávaxinn, grann- an, glæsilegan mann, sem reykti mjóa vindla úr munnstykki, klædd- ist bláum blazer og þaut um á afturmjórri Barracuda-glæsibifreið frá Chrysler. Hann var annar for- stjóri eins af virtustu fyrirtækjum landsins, J. Þorláksson & Norð- mann hf. Seinna átti ég því láni að fagna að sitja með honum í stjórn Verslunarráðs íslands þar sem hann var formaður árin 1970- 1974. Samstarf okkar var mjög náið á þessum árum þó að aldursmunur- inn væri tuttugu ár. Hjörtur Hjartarson var alla tíð einn allra skeleggasti baráttumað- ur frjálsrar verzlunar og opins efnahagslífs. Hann hafði og staðið í fylkingarbijósti þeirra, sem börð- ust gegn stóreignaskattinum á sinni tíð.- Með kjöri Hjartar Hjartarsonar til formennsku í Verzlunarráði Is- lands tóku hjólin að snúast með meiri hraða. Efnt var til ráðstefnu á Höfn í Hornafirði sem oft er vitn- að til. Ráðinn var ungur og rögg- samur framkvæmdastjóri, Þor- varður Elíasson. Hús verzlunarinn- ar reis en Hjörtur var formaður byggingarnefndar þess. Hann var í forustu kjararáðs verzlunarinnar. Hann stuðlaði mjög að bættri verzlun með verðbréf og var frum- kvöðull að stofnun Fjárfestingarfé- lags íslands hf. Ekki er hægt í stuttri minningargrein að minnast nema á örfá þeirra framfaramála sem Hjörtur léði lið sitt- en ævi- starf hans verður vonandi ritað af til þess hæfum mönnum svo fram- íag hans til framfara íslands verði lýðum ljóst. Það var ákaflega gefandi og mannbætandi að vinna með Hirti Hjartarsyni. Hann var alltaf hinn hreini og beini drengskaparmaður svo mað- ur fór aldrei í neinar grafgötur með það' hvar maður stóð gagn- vart honum. Hann var mjög uppörvandi í samstarfi og opinn fyrir öllum góð- um málum, tók öllunr ráðlegging- um með þakklæti og vinsemd. Þannig laðaði hann menn til að leggja sig alla fram og sameinaði afl samstarfsmanna sinna til góðra verka. Hjörtui' Hjartarson hefur öðlast þá gæfu að sjá árangur baráttu sinnar bera ríkulegan ávöxt. Mikill munur er á efnahagslífinu nú og þegar hann hóf lífsstarf sitt að loknu námi úr Verzlunarskóla íslands 1935, tvítugur að aldri, með heimskreppuna í fangið. Efna- hagur og velferð íslendinga- í dag er mikið að þakka réttsýnum og duglegum baráttumönnum eins og Hirti Hjartarsyni. Blessuð sé minning hans. Jóhann J. Olafsson, formaður Verzlunarráðs Islands. Kvaddur er í dag Hjörtur Hjart- arson, stórkaupmaður í Reykjavík. Hjörtur var í árátugi í forustusveit íslenskrar verzlunarstéttar og kom víða við í baráttu hennar fyrir fijálsri verzlun á Islandi, þjóðinni til heilla. Hann átti frumkvæði að ýmsum framfaramálum íslenzkrar verzlunar og studdi önnur með ráð og dáð. Hjörtur var maður einka- framtaks,.en hafði jafnframt ríkan skilning á þýðingu samstöðu og velvildar á milli manna góðum málstað til framdráttar. Sá sem -þessi kveðjuorð ritar, kynntist Hirti Hjartarsyni um og eftir 1957, er ég var kosinn for- maðui' Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Félagið var þá á bernskuskeiði sem launþegafélag og átti mjög á brattann að sækja. Skipti því miklu máli með hvaða hugarfari viðsemjendur félagsins nálguðust úrlausn erfiðra ágreiningsmála. Oft var hart deilt, en vegna jákvæðs skilnings margra forystumanna í röðum kaupsýslumanna, náðist oft sam- komulag í erfiðum kjaradeilum með mun betri hætti en ella hefði orðið. Það var á þessum vettvangi sem kynni okkar Hjartar hófust, þar sem við sátum sitt hvorum megin við borðið og deildum um kaup og kjör. Báðum var umhugað um, að niðurstaðan væri fólkinu í hag og fyrirtækjum viðráðanleg, en eitt sameinaði okkur frá upp- hafi, en það var að vinna að heill og framgangi íslenskra atvinnu- vega á grundvelli einkaframtaks og athafnafrelsis. Þótt nokkur aldursmunur væri á milli okkar Hjartar tengdumst við ákveðnum vináttuböndum, sem voru mér og eiginkonu minni mjög verðmæt og kunnum við Hirti miklar þakkir fyrir þá samfylgd. Margs er að minnast. - Sameiginleg verkefni verzlunarstéttarinnar: Verzlunar- banki íslands hf., Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Verzlunarskóli Islands, Hús verzlunarinnar, þátt- taka í ráðgjafarnefnd EFTÁ og margt fleira á vettvangi verzlunar og viðskipta. Þá var Hjörtur virkur þátttak- andi í Sjálfstæðisflokknum og kom víða við sögu í þróun flokksins og uppbyggingu. Hjörtur var í full- trúaráði Sjálfstæðisflokksins um áratuga skeið og átti m.a. sæti í uppstillinganefndum flokksins og var í byggingarnefnd þeirri, sem annaðist byggingu hins nýja húss flokksins í Reykjavík, Valhöll. Kom Hjörtur þai' mikið við sögu eins og hans var háttur við framkvæmd þeirra vefkefna er hann tók að sér. Hjörtur rak á þeim tíma eina stærstu byggingarvöruverslun Reykjavíkur, J. Þorláksson og Norðmann, og hafði því haldgóða þekkingu á því, hvað hentaði við byggingu stórhýsa. Sjálfstæðis- flokkurinn stendur í mikilli þakkar- skuld við Hjört og þá sem höfðu forustu um byggingu Valhallar. En Hjörtur Hjartarson kom víð- ai' við í byggingu stórhýsa í Reykjavík. Hann var aðalfrum- kvöðuli þess að verzlunarstéttin sameinaðist um byggingu Húss verzlunarinnai', sem er eitt glæsí- legasta og stílhreinasta stórhýsið í Reykjavík. Það var í ársbyijun 1972, sem Verzlunarráð - íslands, Verzlunarmannafélag Reykjavík- ur, Félag íslenskra stórkaup- manna, Kaupmannasamtök Is- lands, Lífeyrissjóður verzlunar- manna, og Verzlunarbanki Islands hf. komu sér saman um að byggja Hús verzlunarinnar gegnt Safa- mýri eða í hinum fyrirhugaða nýja miðbæ Reykjavíkur. Þetta var fyrsta stórframkvæmdin á þessu svæði og fannst ýmsum í mikið ráðist. Hjörtur var kjörinn formað- ur byggingarnefndar Húss verzl- unarinnar og hafði alla forustu um byggingu þess. Við vígslu hússins árið 1983 afhenti Hjörtur eignar- aðilum húsið til afnota. Var það söguleg stund ekki aðeins fyrir verzlunarstéttina heldur einnig fyrir uppbyggingu og þróun nýs miðbæjarkjarna í Reykjavík, sem setur nú mjög svip sinn á höfuð- borgina. Hjörtur Hjartarson var glæsi- menni að vallarsýn og vakti hvar- vetna athygli þar sem hann kom. Þrátt fyrir það að hann var víða valinn til forustu var Hjörtur frek- ar fáskiptinn. Hann hafði ákveðnar skoðanir í þjóðmálum, sem grund- völluðust á frelsi einstaklingsins. Hjörtur var gagnrýninn á ofurvald og afskipti hins opinbera og vildi að atvinnulífið væri óháð stjórn- málavaldinu. Hjörtur og hans kyn- slóð var ekki margorð um gildi þess að íslendingar byggju við frelsi, heldur vann að framkvæmd þess í verkum sínum. Dagsverk þessarar kynslóðar birtist í þeirri miklu umbreytingu sem hefur orð- ið á högum íslendinga á síðustu áratugum. I vissum skilningi var Hjörtur Hjartarson og helstu sam- ferðarmenn hans í íslenskri kaup- sýslustétt frumheijar í þeim efnum að opna ísland fyrir fijálsum verzlunar- og viðskiptaháttum. Frelsið hefur fært þjóðinni mikla velmegun og eflt hana til dáða. Það er hlutverk kontandi kynslóða að halda þessu verki áfram. Hirti Hjartarsyni eru færðar þakkir fyrir góða samfylgd, sem margir fengu að njóta. Horfinn er góður íslendingur sem unni landi sínu og þjóð. Við Ragnheiður send- um aðstandendum innilegar samúðai'kveðjur. Guðmundur H. Garðarsson. Kveðja frá Krabbameinsfé- lagi Islands Þess var minnst á síðasta ári að ijörutíu ár voru liðin frá því að Krabbameinsfélag íslands var stofnað. Ekki fer á milli mála að félagið hefur fengið miklu áorkað á þessum tíma og stendur mrjög traustum fótum. Sá sem átti einna drýgstan þátt í að efla og styrkja félagið var Hjörtur Hjartarson for- stjóri. Hann var í stjórn Krabba- meinsfélags íslands frá 1952 til 1987 eða í full 35 ár, lengst af sem gjaldkeri framkvæmdastjórnar. Hann var kosinn í stjórnina þegar félagið var að finna sér farveg og hefja baráttuna fyrir mörgum biýnum málum. Hjörtur var mikils metinn og það var félaginu ómet- anlegt að fá að njóta krafta hans. Hann var varkár í fjármálum en jafnframt maður framfara. Það er enginn vafi á því að umsvif Krabb- ameinsfélags íslands væru minni ef Hjartar hefði ekki notið við. Fyrir óeigingjarnt og farsælt starf var hann ■ kjörinn í Heiðursráð Krabbameinsfélags íslands árið 1987, enda hafði hann setið lengur en nokkur annar í stjórn þess. Það er erfitt fyrir okkur, sem nú reynum að halda á lofti merki frumkvöðlanna í krabbameins- vörnum að gera okkur grein fyrir því í hvaða sporum þeir stóðu fyr- ir fjörutíu árum. Viðhorfið til sjúk- dómsins var þá allt annað en nú er. Við eigum þeim mikið að þakka. Hjörtur Hjartarson var í þeim hópi. Fyrir hönd stjórnar Krabbameins- félags íslands sendi ég aðstand- endum hans innilegar samúðar- kveðjur. Almar Grímssön, formaður Krabbameinsfélags íslands. í dag klukkan 13.30, föstudag- inn 10. janúar, er til moldar borinn frá Áskirkju í Reykjavík, félagi okkar og vinur Hjörtur Hjartarson. Við söknum góðs drengs, sem ávallt var hrókur alls fagnaðar í okkar hópi. Hjörtur fæddist 6. apríl 1915 í Reykjavík, sonur hjónanna Iijartai' Hanssonar kaupmanns og Unu Brandsdóttur. Það var ef til vill nærtækt fyrir Hjört að mennta sig til verzlunar- starfa. Hann gekk því í Verzlunar- skólann og lauk þaðan prófi 1935 og stundaði síðan framhaldsnám bæði í Þýzkalandi og á Englandi. Ævistarf sitt vann hann svo hjá fyrirtækinu J. Þorláksson & Norð- mann í Reykjavík, sem lengi var ein helsta byggingavöruverzlun landsmanna. En hana stofnsetti hinn mikli framfaramaður, Jón Þorláksson, verkfræðingur, í félagi við Óskar Norðmann. En Hjörtur kvæntist dóttur Jóns, Önnu Mar- gréti, sem lést 1974.. Börn þeirra Önnu Margrétar og Hjartar eru: Ingibjörg, fædd 1940, gift Birni Jóhannssyni, og eiga þau 3 börn, Unnur, fædd 1945, gift Steindóri Hjörleifssyni og eiga þau 3 börn, og Hjörtur Örn, fæddur 1950, kvæntur Hrefnu Hrólfsdótt- ur, eiga þau líka 3 börn. Barna- barnabörnin eru orðin 2. Hjörtur Hjartarson var athafna- maður hinn mesti og sat í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og stofnaði önnur. Hann var og félagslyndur maður og lagði sig fram af heilum huga í félagsstörfum. Hann var formaður í Húseigendafélagi Reykjavíkur 1956, í stjórn Félags Byggi ngavöru k au pm an n a var hann 1957-1970, hann var í stjórn og framkvæmdastjórn Krabba- meinsfélags íslands frá 1952 og var kjörinn í heiðursi'áð þess félags 1982. Hann starfaði ötullega í Verzlunarráði íslands og var í stjórn þar frá 1967 og formaður þess var hann 1970-1974. I formennskutíð Hjartar hjá verzlunarráðinu bundust samtök atvinnurekenda og launþega í verzlun samtökum um að reisa hið glæsilega Hús verzlunarinnar, sem er bæjarprýði við Kringlumýri. Hafði Hjörtur rnikla forystu um þetta átak ásamt öðrum góðum mönnum og munu samtök þessara aðila lengi njóta þeirra verka. Hjörtur var starfsamur formaður í verzlunarráðinu og fékk marga góða menn til samstarfs við sig að framfaramálum verzlunarinnar. Sá sem þetta ritar minnist Hjart- ar fyrst á vettvangi verziunarráðs- ins. Hann vakti strax athygli mína vegna ljúfmennsku sinnar og lítil- lætis, og hann ræddi af alúð við háa sem lága um vandamál líðandi stundar. Þannig kveikti hann áhuga nýrra félagsmanna, og raunar þeirra eldri líka, á að reyna að finna leiðir til framfara í ís- lenzku viðskiptalífi. Margt það sem nú þykir sjálfsagt frelsi var það alls ekki á starfsdögum Hjartar. Myndi margt þykja með ólíkindum í dag. Prúðmennska og háttvísi ein- kenndu Hjört Hjartarson í öllu dagfari, hann var upplífgandi í allri viðkynningu, og húmorinn var í góðu lagi. Hann hafði eldlegan áhuga á öllum framfaramálum, þoldi illa íslenzka ofstjórnartil- hneigingar og var einlægur frelsis- unnandi. I einkalífi var Hjörtur áhuga- maður um gróður, ræktun og úti- veru. Hann ræktaði fagran garð við hið glæsilega hús sitt heima í Laugarásnum og einnig við sumar- bústað sinn, sem hann átti lengi á Þingvöllum. Hann hafði yndi af iaxveiðum og stundaði um árabil. Hjörtur var með glæsilegri mönnum á velli. Hár vexti og herðabreiður. Hann var svipmikið glæsimenni og höfðinglegur í allri framgöngu og klæðaburði. Hjörtur Hjartarson andaðist 2. janúar 1992 úrþeim sjúkdómi, sem er oft þungbærari fyrir aðstand- endur en sjúklinginn sjálfan, og læknavísindin standa ráðþrota gegn. Aðstandendum hans er vottuð innileg samúð okkar. Minningin um Hjört Hjartarson verður okkur kær. f.h. sundfélaga í Laugardal, Halldór Jónsson. Litháar bjóða til skemmtunar DANSHLJOMSVEITIN Studío frá Klaipcda og danshópurinn Panorania frá Litháen bjóða til skemmtunar á Hótel íslandi á laugardagskvöldið, en hópurinn og hljómsveitin hafa verið í heitn- sókn hér síðan fyrir jól og skemmt fólki á Hótel Islandi, Hótel Örk og víðar. Fararstjóri Litháanna Vytas Ka- basinskas segir, að þar sem íslend- ingar liafi gengið fram fyrir skjöldu í sjálfstæðisbaráttu Litháa, vilja þeir kynnast „nýrri vinaþjóð sinni og gefa henni kost að kynnast sér.“ Litháarnir fara heim á sunnudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.