Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992 SUND Ragnheiður Runólfsdóttir er á meðal þeirra bestu í 100 m bringu- sundi. Ragnheiður Í23. sæti á heims- listanum RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir, sundkona frá Akranesi og íþróttamaður ársins 1991, er í 23. sæti í 100 metra bringu- sundi á nýasta heimslistanum sem kom út um áramótin. Ragnheiður setti sem kunnugt er íslandsmet í þessari grein á Evrópumeistaramótinu í Aþenu í ágúst. Tími Ragnheiðar er 1:11.89 mín. og er það næst besti tíminn í þessari grein á Norðurlöndunum. Það er aðeins sænska stúlkán, Lou- ise Karlsson, sem á betri tíma og munar aðeins 1/100 hluta úr sek- úndu á þeim síöllum. Efst á heimslistanum í 100 metra bringusundi kvenna er Linley Frame frá Ástralíu sem á best 1:08.91 mín. og náði hún þeim tíma á heimsmeistaramótinu í Ástralíu í fyrra. Elena Rudovskja frá Sovét- ríkjunum er í öðru sæti á listanum með 1:09.05 mín. og náði hún þeim tíma á Evrópumeistaramótinu í Aþenu. Ragnheiður er í 13. sæti í Evrópu ef við tökum mið af heimslistanum í 100 m bringusundi. Hún er ekki á meðal 25 efstu á listanum í 200 m bringusundi. SKIÐI Örnólfur annar áhollenska meistaramótinu ÖRNÓLFUR Valdimarsson hafnaði í öðru sæti í svigi á hollenska meistaramótinu sem var haldið í Flachau í Austurríki á þriðjudaginn. Valdemar Valdemarsson hafnaði í 6. sæti á sama móti, en Kristinn Björnsson og Arnór Gunnars- son urðu úrleik. Íslenska alpagreinalandsliðið hef- ur verið á keppnisferð í Austur- ríki síðustu daga og keppt í 7 mót- um á níu dögum. I sviginu í Flac- hau á þriðjudag var Örnólfur í 2. sæti, var 4 sekúndum á eftir fyrsta manni. Valdemar var tveimur sek á eftir Örnólfi. Mótið var ekki mjög sterkt, Örnólfur fékk 58 FlS-stig og Valdemar 68 stig fyrir árangur sinn. Á mánudag kepptu strákarnir í sterku alþjóðlegu svigmóti í Lienz. Kristinn Björnsson hafnaði þar í 17. sæti og Örnólfur í 23. sæti, en ÍÞR&mR FOLK M INGRID Stockl skíðakona frá Austurríki, fótbrotnaði á æfingu í Schurns í Austurríki í gær. Hún var að æfa í brunbrautinni sem keppt verður í á laugardaginn og datt illa. Hún var flutt á sjúkrahús í Innsbruck. Hún verður því ekki á meðal keppenda á Olympíuleik- unum í Albertville í næsta mán- uði. Stockl varð í öðru sæti í alpat- víkeppni á heimsmeistaramótinu í Saalbach í fyrra. ■ BILLY Bing'ham, landsliðs- þjálfari Norður-Ira í knattspymu, hefur framlengt þjálfarasamning sinn fram í janúar 1994. Norður- Irar eru í HM-riðli með Albaníu, Danmörku, Lettlaudi, Litháen, Irlandi og Spáni. J SNOKER Heimsmeistari ungl- inga keppir á íslandi Billijardsamband íslands verður í fyrsta sinn með opið alþjóðlegt snókermót á íslandi helgina 24. til 26. jan- úar og nef nist það Pepsi Cola open. Búist er við að um 30 til 40 erlendir keppendur mæti til leiks. Jónas P. Erlingsson hjá BiIIij- ardsambandi íslands sagði í sam- tali .við Morgunblaðið að hug- myndin með þessu móti væri að gefa íslenskum snókerspilurum tækifæri til að spila við þá bestu á heimavelli. Margír erlendir snókerspilarar hafa sýnt þessu móti áhuga en enn er ekki staðfest hve margir komi til með að taka þátt. Fræg- astur þeirra sem þegar hafa ákveðið að mæta er Peter Ebdon frá Bretlandi, sem varð heims- meistari unglinga 1990. Jónas sagðist reikna með að um 100 keppendur tæku ])átt í mótinu þar af um 40 erlendir. Mótið fer fram á billijardstofunum á Reykjavíkursvæðinu og verður það með útsláttar fyrirkomulagi. Mótið er svokallað þriggja stjömu mót og er viðurkennt af Billijardsambandi Evrópu. Verð- launafé í mótinu er um 560 þús- und íslenskar krónur og fær sigur- vegarinn um 180 þúsund. Knattspyrnudeild KR óskar að ráða þjálfara fyrir 6. flokk karla og knattspyrnuskóla KR. Upplýsingar gefur Geir í síma 27181 mánu- dag til föstudags milli kl. 13 og 14. Arnór og Valdemar fóru út úr brautinni í fyrri umferð. í gær kepptu þeir í stórsvigi og gekk ekki vel. Kristinn var 4 sek- úndum á eftir fyrsta manni í fyrri umferð, en keyrði út úr í þeirri síð- ari. Örnólfur hætti í fyrri umferð, en Arnór Gunnarsson og Valdemar komust í gegnum báðar umferðim- ar og voru aftarlega. Amór var einni sekúndu á undan Valdemar. Ásta í 12. sæti Ásta Halldórsdóttir varð í 12. sæti í svigi á alþjóðlegu stigamóti í St. Lardrecht í gær, en alls voru 119 keppendum sem tóku þátt. Hún keppti einnig í svigi á miðvikudag í Lautasch og hafnaði í 14. sæti af 105 keppendum. Harpa Hauks- dóttir varð úr leik í báðum mótun- um. Þær keppa í svigi í dag. Sigurður H. Jónsson, landsliðs- þjálfari, sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann væri ánægður með árangur Kristins í mótunum að undanförnu, en aðrir hafa ekki náð að bæta sig stigalega séð. „Árang- urinn hefur verð upp og ofan, en ég er þó bjartsýnn á framhaldið. Örnólf ur Valdimarsson vann silfurverðlaun í svigi á hollenska meistaramót- inu. íslenska landsliðsmennirnir á skíðum, sem undirbúa sig fyrir Ólympíuleik- ana í Albertville, hafa staðið í ströngu síðustu daga og keppt á sjö mótum á níu dögum í Austurríki. Daníel meðal þeirra bestu í Svíþjóð DANÍEL Jakobsson, göngu- maðurinn ungi frá ísafirði, keppti tvívegis í Svíþjóð um síðustu helgi og stóð sig vel. Hafnaði í 2. og 5. sæti. Daníel keppti á sunnudag í 11 km göngu með hefðbund- inni aðferð í Vásarna og hafnað í 5. sæti í sínum flokki. Hann var 1,20 mín. á eftir fyrsta manni. Allir þeir sem voru á undan Daní- el eru unglingalandsliðsmenn Sví- þjóðar. „Þetta var mjög sterkt mót þar sem allir bestu göngumenn Svía tóku þátt, enda um úrtökumót að ræða fyrir Ólympíuleikana í Al- bertville," sagði Daníel. Á mánudaginn keppti hann síð- an í 7,5 km göngu í Ytterhogdal og náði 2. sæti, var 6 sekúndum á eftir fyrsta manni. Sænsku unglingalandsliðsmennirnir voru ekki með. „Mér gekk mjög vel.í þessu móti og lofar það góðu fyr- ir framhaldið," sagði Daníel, sem keppir í 30 km göngu, bikarmóti, á sunnudaginn kemur. Daníel er við nám í skíða- menntaskólanum í Jerpen þar sem flestir bestu skíðagöngumenn Svía eru í námi. Hann keppir ekki á Ólympíuleikunum í Albertville, segir að sinn tími sé ekki kominn. Markmiðið hjá honum í vetur er að standa sig vel á heimsmeistara- móti unglinga sem fram fer í mars. GETRAUNIR Fyrsti vinning- ur 80 milljónir? Potturinn í sameiginlegum getraunum íslendinga og Svía verður stór á morgun, því rúmar 46 milljónir sem ekki gengu út í síðustu viku bætast nú við. Það er sú upphæð sem átti að vera fyrir tíu rétta, en þar sem svo margir náðu þeim árangri fyrir viku var vinningurinn fyrir hveija röð undir 200 krónum, og þegar svo er færist upphæðin milli vikna, og bætist við fyrsta vinning. „Við gerum ráð fyrir að fyrsti vinning- ur verði um 80 milljónir og heildar vinningsupphæðin um 180 milljónir," sagði Sigurður Baldursson, framkvæmdastjóri íslenskra Getrauna við Morgunblaðið í gær. URSLIT 2. leikv. © Arsenal Chelsea Coventry Crystal Palace Manchester Utd. Norwich Nott’m Forest Southampton West Ham Middlesbro Southend Swindon Watford Aston Villa Tottenham Queens Park R. Manchester City Everton Oldham Notts County Sheffield Utd. Wimbledon Ipswich Derby Cambridge Newcastle Heimaleikir frá 1979 1 X 2 Mörk Úrslit Mín spá 1 x 2 7 2 2 25-14 2 2 2 7-7 5 2 1 14-7 2 2 4 10-12 3 6 3 9-9 1 0 1 2-2 2 0 1 5-4 1 0 0 2-0 0 0 3 4-7 2 2 2 8-7 0 0 0 0-0 0 0 0 0-0 3 4 2 14-10 Körfuknattleikur NBA-deiidin á miðvikudag: Boston Celtics - New York Knicks.99:95 Detroit Pistons - Sacramento Kings ..114:95 Clippers - Indiana Pacers.....104:102 Chicago Bulls - Miami Heat....108:106 New Jersey Nets - Minnesota....103:97 Philadelphia 76ers - Houston..114:104 San Antonio - Los Angeles Lakers.103:87 Milwaukee Bucks - Utah Jazz.....99:98 Phoenix Suns - Denver Nuggets.135:114 Orlando Magic - Seattle.......104:103 Íshokkí NHI^-deildin á miðvikudag: Buffalo Sabres - Quebec Nordiques..4:2 Montreal Canadiens - Boston Bruins.3:2 St Louis Blues - New York Rangers..5:3 Winnipeg Jets - Edmonton Oilers...5:2 Cálgary Flames - San Jose Sharks..10:3 Knattspyrna ■Spænska bikarkeppnin, þriðja umferð. Leik- ir miðvikudag: Real Oviedo - Atletico Madrid.....1:0 Real Murcia - Sevilla.............1:1 Benidorm - Sporting Gijon.........1:1 Real Betis - Athletic Bilbao......1:1 Real Madrid - Real Burgos.........4:0 Osasuna - Deportivo Coruna........3:2 Castellon - Logrones..............2:0 Keila íslandsmótið, 1. deild, 10. umferð M.S.F. - Lærlingar................2:6 PLS - J.P.-Kast...................8:0 Þröstur - Keiluvinir..............8:0 Hitt-liðið - Kakkalakkar..........8:0 Keilulandssveitin - K.R...........2:6 Staðan: 1. Lærlingar 64.stig, 2. PLS 54,3. KR52. Staðan í 3. deild karla eftir 11 umferðir er þannig: 1. Sveitin 70 stig, 2. Sveigur 67, 3. Stormsveitin 64.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.