Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 2

Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992 Fagnaður í óperunni Morgunblaðið/KGA Því var fagnað í íslenzku óperunni í gær, að 10 ár eru liðin síðan óperan fékk höfðinglega gjöf úr dánarbúi hjónanna Sigurliða Kristjánssonar, kaupmanns í Silla og Valda, og Helgu Jónsdóttur. Þessi gjöf gerði óperunni kleift að eignast Gamla bíó, sem hefur verið aðsetur hennar æ síðan. Fjöldi gesta sótti fagnaðinn. Utanríkisráðherra boðið til Litháens Litháar minnast að eitt ár er liðið frá „blóð- ugnm sunnudegi“ með hátíðlegum hætti VITAUTAS Landsbergis, forseti Litháens, hefur boðið Jóni Bald- vini Hannibalssyni utanríkisráðherra til Litháens nú um helgina, en þá hyggjast Litháar minnast þess með hátíðlegri athöfn 13. janúar að eitt ár er liðið frá hinum „blóðuga sunnudegi“ í Vilnu, höfuðborg Litháens, þegar óvopnaðir Litháar vörðu sjónvarpsstöð Vilnu og útvarpsturn gegn sovéskum hermönnum. Utanríkisráð- herra hefur þegið boðið og fer utan í dag. „Forsetinn býður mér að vera viðstaddan sérstaka hátíð litháísku þjóðarinnar, þar sem þess verður minnst að eitt ár er liðið frá ódæð- inu í fyrra,“ sagði Jón Baldvin í samtali við Morgunblaðið í gær. Utanríkisráðherra riíjaði upp að Landsbergis sendi á sínum tíma frá sér neyðarkall til íslands vegna atburðanna í Vilnu, sem leitt hefði af sér langan slóða, m.a. harðorðar ályktanir íslensku ríkisstjómarinn- Gjaldþrot Veraldar: Farþegar fá hótelgistingu án greiðslu viðbótargjalds Farþeg-arnir fluttir heim með Flugleiðum 23. janúar SAMKOMULAG tókst í gær við hótel á Kanaríeyjum, sem hýsa far- þega Veraldar, um að farþegamir héldu hótelplássi sínu án þess að greiða fyrir það aukagjald. Þá hefur verið ákveðið að farþegarnir verði fluttir heim á vegum samgönguráðuneytisins og munu Flugleið- ir annast þann flutning samkvæmt samkomulagi við ráðuneytið. Þessi flutningur verður greiddur af 6 milljóna króna tryggingu Veraldar hjá samgönguráðuneytinu. Gjaldþrotabeiðni Veraldar barst skiptaráð- andanum í Reykjavík síðdegis I gær og er úrskurðar um hana að vænta fyrir hádegi í dag. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði að í gær hefði kom- ið fram að skuldir Veraldar við hótel á Kanaríeyjum væru miklar, eða um 11 milljónir peseta, sem jafngildir rúmum 6 milljónum króna. „Það urðu einhver vandræði gærmorgun, þegar íslendingar Smáskífa Syk- urmolanna: Spáð 15. til 20. sæti SMÁSKÍFA Sykurmolanna, Hit, sem kom út í Bretlandi um áramótin og fór beint í 27. sæti breska vinsældalist- ans hefur aukið við sig í sölu og er því spáð að lagið fan í 15.-20. sæti á mánudag. Hljómsveitin kom í gær- kvöldi fram í hinum kunna breska sjónvarpsþætti Top of the Pops og segir úlgef- andi sveitarinnar í Bretlandi hana hafa verið frábæra. Hit kom út á gamlársdag í Bretlandi og víðar í Evrópu, en hér á landi kom lagið út á Þor- láksmessu. Að sögn Dereks Birketts, forstjóra One Little Indian-útgáfunnar sem gefur Sykurmolana út í Bretlandi, gefur Gallup-fyrirtækið, sem sér um breska vinsældalistann, út miðvikuspá, og er því spáð þar að Hit muni hækka sig úr 27. sæti uppí 15. til 20. sæti. Derek sagði að frammistaða Sykurmolanna í Top of the Pops ætti örugglega eftir að hafa áhrif þar á, því hljómsveit- in hefði verið frábær. Sykurmolamir verða í Bret- landi framyfir helgi, en síðan fara hljómsveitameðlimir til Frakklands og til Þýskalands til að sinna viðtölum, en piöt- unni hefur ekki verið síður tek- ið í þessum löndum. voru að fara af hótelunum, en það tókst að ráða fram úr því,“ sagði hann. Jón G. Zoéga, lögfræðingur Ver- aldar, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að Veröld hefði leitað til Flugleiða og beðið fyrirtækið um að aðstoða farþega ferðaskrifstof- unnar. „Það er rangt, sem haft er eftir Svavari Egilssyni í DV í gær, að Flugleiðir hafi ráðið því að BSP svipti Veröld heimild til farseðlaút- gáfu. Ég var búinn að óska eftir gjaldfresti hjá BSP og fékk þau svör að slíkt væri mögulegt, ef við- skiptabanki Veraldar gæfi út yfir- lýsingu um stöðu fyrirtækisins. Slíka yfírlýsingu tókst ekki að út- vega. Þá var leitað til Flugleiða, sem tóku þá drenglyndisákvörðun að bjarga málum farþega Veraldar, þó Ijóst sé að fyrirtækið tapar ein- hveijum fjármunum á því. Ég samdi svo yfirlýsingu þá, sem Svavar Egilsson ritaði undir, um að fyrir- tækið myndi óska eftir gjaldþrota- skiptum. Flugleiðamenn komu ekki nærri þeirri yfirlýsingu." Rangt var haft eftir Þórhalli Jósepssyni, deildarstjóra í sam- gönguráðuneytinu, í Morgunblað- inu í gær, að ferðaskrifstofum bæri að greiða 6 milljón króna tryggingu til ráðuneytisins. Hið rétta er, að ferðaskrifstofur leggja fram banka- tryggingu, en ráðuneytið hefur, lög- um samkvæmt, heimild til að ganga að henni til að tiyggja heimflutning íslendinga. Samkvæmt upplýsingum úr sam- gönguráðneytinu hefur verið gengið frá samkomulagi við Flugleiðir um flutning farþeganna, 120 talsins, heim frá Kanaríeyjum og koma þeir hingað til lands á fyrirfram ákveðnum tíma, eða 23. janúar n.k. Einar Sigurðsson sagði í gær að Flugleiðir myndu bera talsverðan kostnað af því greiða götu farþega á vegum Veraldar. ar, erindrekstur til sovéskra stjóm- valda, erindrekstur til allra utan- ríkisráðherra Atlantshafsband- alagsins og ferð hans sjálfs til Eystrasaltslandanna þriggja. „Það má segja að hvað hafi leitt af öðru, þar til lokaáfangi náðist í sjálfstæðisbaráttu þeirra í lok ágúst á síðastliðnu sumri, eftir hina misheppnuðu valdaránstil- raun í Moskvu," sagði utanríkis- ráðherra. Jón Baldvin sagði að hátíðahöld- in í Litháen yrðu á laugardag, sunnudag og mánudag í ýmsum borgum, og þangað yrði meðal annars boðið erlendum gestum sem eitthvað hefðu látið að sér kveða til stuðnings sjálfstæðisbaráttunn- ar í Eystrasaltslöndunum. Utanríkisráðherra sagðist ætla að þiggja hið ágæta boð Lands- bergis, en allt þar til síðdegis í gær var óvíst hvort hægt væri að tryggja honum ferð frá Vilnu til Brussel á mánudagsmorgun, þar sem fundur hans sem formaður ráðherraráðs EFTA með Andries- sen sem fer með utanríkismál fyr- ir EB verður á mánudag. Askorun um björgun Iðnó SKORAÐ hefur verið á ríki og Reykjavíkurborg að bjarga Iðnó frá niðurlægingu. Morgunblaðinu hefur borist ályktun 68 listmanna þessa efnis. I ályktuninni segir meðal ann- ars að undirrituð vilji vekja at- hygli ráðamanna á „að hin fagra vagga íslenskrar leikhúsmenn- ingar, gamla Iðnó við Reykja- víkurtjöm, er að drabbast niður öllum góðum mönnum til sárrar raunar og menningu þjóðarinn- ar til mesta álitshnekkis." Skipulagsstjórn ríkisins um Þverárselsmálið: Fjallað verði um sambýli fatlaðra í byggingamefnd Vekur furðu og hneykslan, segir Arnþór Helgasson formaður Öryrkjabandalagsins SKIPULAGSSTJÓRN ríkisins mælir með því að fjallað verði um stofnun sambýlis fatlaðra við Þverársel í byggingarnefnd Reykjavík- ur í umsögn til umhverfisráðherra. Rökin fyrir ákvörðun skipulags- stjórnar eru þau að samkvæmt lögum um málefni fatlaðra séu sam- býli stofnanir og því þurfi svæðisstjórn að sækja um leyfi til bygging- arnefndar til að breyta íbúðarhúsnæði í stofnun. Margrét Heinriksdóttir, sem sæti á í skipulagsstjóm, óskaði eftir því að um stuðning sinn við umsögnina yrði bókað, að væri gengið út frá því að sambýli teldust fortakslaust falla undir hugtakið stofnun gæti hún fallist á niðurstöðu meirihluta skipulagsstjómar. Margrét sagðist hins vegar vilja hafa þann fyrirvara á að hún væri ekki fyliilega sann- færð um að þannig skyldi vera í öllum tilvikum. Amþór Helgason, formaður Ör- yrkjabandalags íslands, segir að ástæðan fyrir því að orðið stofnun hafi farið inn í lögin hafi verið sú að þurft hefði með einhveijum hætti að finna flöt á því að koma sambýl- unum inn í fjárlög og finna þeim rekstraraðila. „Úrskurður skipulagsstjómar er með þeim hætti að hann vekur bæði furðu og hneykslan," sagði Amþór þegar hann var inntur álits á umsögn skipulagsstjómar. „Hann er að ýmsu leyti mjög óvandaður. Þar er ekki vitnað í neinar laga- greinar heldur í lögin í heild og með ólíkindum að menn skuli ekki virða þá lagatúlkun sem hefð er komin á fyrir löngu.“ Amþór sagði að sér væri kunn- ugt um að skipulagsstjóri ríkisins hefði skilað greinargerð um málið í desember. „Þar lýsir hann þeirri skoðun að ekki sé æskilegt að leyfí til rekstrar sambýla sé borið undir byggingamefnd, Aftur á móti hafa ákveðnir embættismenn innan borgarkerfisins beitt miklum þiýst- ingi til að fá aðila innan Skipulags- stjómar ríksins á band borgar- stjómar Reykjavíkur og ég harma að pólitísk ítök skuli því ráða jafn miklu um þennan úrskurð og raun ber vitni. Ég hélt að Sjálfstæðis- flokkurinn vildi losna frá þessu máli með sóma og vonandi verða lyktimar þær að umhverfisráðu- neytið úrskurðar í þessu máli sam- kvæmt þeirri hefði sem komin er á um túlkun laganna." Eystrasaltsríkin óska aðstoðar Flugleiða við stofnun flugfélags Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen, hafa óskað aðstoðar og ráðgjafar Flugleiða við að koma á fót sameiginlegu flugfé- lagi landanna þriggja. Fulltrúar nugmálastjómar og aðila i Eist- landi, sem áhuga hafa á flugrekstri, koma hingað til lands til við- ræðna við Flugleiðir Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði að fulltrúar fyrir- tækisins hefðu farið til Eistlands í desember til skrafs og ráðagerða við menn þar í landi. „Niðurstaða þeirra funda varð sú, að Flugleiðir hafa ákveðið að bjóða nokkram mönnum hingað til lands á næstunni. Fyrstir koma Eistlendingar og í þeirra hópi verða fulltrúar flugmálastjómar landsins, sem og aðilar, sem áhuga hafa á flugrekstri.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.