Morgunblaðið - 12.01.1992, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 12.01.1992, Qupperneq 10
10 MORGUNBLÁÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚÁr'Í'992 Sjúklingar eiga að spara ríkinu millj- arða með því að greiða hærri gjöld fyrir lyf, læknisþjónustu og heilsu- gæslu og elli- og örorkulífeyrir skerð- ist hjó 3.000 manns eftir Guðmund Sv. Hermonnsson AF ÁRLEGUM útgjöldum íslenska ríkisins eru útgjöld til heilbrigðis- og tryggingamála Iangmest. I fjárlögum fyrir þetta ár eru þessi út- gjöld áætluð um 44 milljarðar króna af 109,6 milljarða heildarútgjöld- um ríkisins, eða rúm 40%. En þegar hafist var handa við fjárlagavinn- una í fyrravor leit út fyrir að útgjöld ríkisins til heilbrigðismála yrðu tæpum þremur milljörðum króna hærri. Það er fyrir þessum milljörð- um sem margir munu finna á þessu ári, aðallega í formi hækkaðra gjalda fyrir læknisþjónustu, lyf og skerðingu á elli- og örorkulífeyri. Hér á eftir verður farið yfir helstu breytingarnar sem snúa að almenn- ingi. í hlut foreldra koma 15% af tannlæknakostnaði barna á skólaaldrí, en Trygginga- stofnun endurgreiðir 85%. Allar forvarnaraðgerðir eru þó undanskildar.Þetta atriði er nú í meðferð Alþingis. Sjúkraflutningur verður nú 2.400 kr. að hámarki. Hann var áður 2.100 kr. Greiðslur fyrir læknisþjónusfu og heilsugæslu Almennt gjald Elli- og örorku- lífeyrisþegar Breytingin tekur gildi 15. janúar 1992 var verður var verður Koma á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis á dagvinnutíma 0 300 kr. 200 kr. --" - utan dagvinnutíma 500 1.000 kr. 350 kr. Læknisvitjun til sjúklings á dagvinnutíma 400 1.000 kr. 350 kr. -" -- utan dagvinnutíma 1.000 1.500 kr. 500 kr. Koma til sérfræðings á göngu-, slysadeild eða bráðamóttöku 900 1.500 kr. 300 500 kr. Koma til röntgengreiningar eða rannsókna 300 600 kr. 100 200 kr. Krabbameinsleit hjá heimilislækni eða á heilsugæslustöð 0 1.500 kr. 500 kr. Ekki skal greiða fyrir komur vegna mæðra- og ungbarnaverndar eða heilsugæslu í skólum Hámarksgreiðslurfyrir læknisþjónustu og heilsugæslu árið 1992 eru 12.000 kr. Börn yngri en 16 ára í sömu fjölskyldu eru talin saman og hámarksgreiðsla fyrir þau er einnig 12.000 kr. Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega er upphæðin 3.000 kr. Taka skal kvittun fyrir greidda þjónustu og þegar hámarks- upphæðinni er náð gefur Tryggingastofnun eða umboðum hennar út FRÍKORT. Eftir það þarf ekki að greiða meira fyrir læknisþjónustu út árið, en áfram verður samt að greiða fyrir læknisvitjanir, 400 kr. á dagvinnutíma en 900 kr. utan dagvinnu- tíma. Ríkisstjórnin tók fyrstu skrefin í niðurskurðarátt í heilbrigðiskerfínu um mitt síðasta ár, þegar ákveðið var að sjúklingar yrðu að greiða stærri hluta af verði lyfja en áður. Þá leit út fyrir að um þremur milljörðum króna yrði veitt gegnum sjúkratrygg- ingar til að niðurgreiða lyf á síðasta ári að óbreyttu. 1. júlí 1991 var sett reglugerð um að hækka hlutdeild sjúklinga í lyfjakostnaði talsvert nema þeir gætu sýnt fram á með læknisvottorði að þeir væru haldnir tilteknum langvinnum sjúkdómum. Þeir sjúklingar eiga rétt á svokölluð- um lyfjakortum hjá Tryggingastofn- un og fá þá ákveðin lyf ókeypis eða gegn fastagjaldi. Nú er verið að gera upp reikning ríkisins vegna þátttöku í lyfjakostn- aði síðasta árs. Að sögn Jóns Sæ- mundar Siguijónssonar deildarstjóra í heilbrigðisráðuneytinu benda bráðabirgðatölur til þess að kostnað- ur ríkisins hafi numið um 2,4 millj- örðum króna, eða 550-600 milljónum króna minni en útlit var fyrir. Þetta er mun meiri sparnaður en reiknað var með, og segir Jón Sæmundur, að hann hafi aðallega komið fram í því að velta apóteka hafí dregist saman, þ.e. minna var keypt af lyfj- um. Í öðru lagi hafí læknar í auknum mæli ávísað á ódýrari lyf en áður, og í þriðja lagi komi svo aukin þátttaka sjúklinga í lyfjakostnaðinum. Þorkell Helgason aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra sagði, að tilgang- urinn með gjaldtöku fyrir lyf hefði verið tvíþættur. Annars vegar að minnka kostnað þjóðarbúsins með því að reyna að draga úr óþarfa ly- fjaneyslu, og hins vegar að draga úr kostnaði ríkisins. Svipaðar hug- myndir væru í skoðun á hinum Norð- urlöndunum, að taka lítil gjöld fyrir velferðarþjónustuna, til að koma í veg fyrir sóun. Þorkell sagði að spamaðurinn hefði verið mestur fyrst eftir að regl- ugerðinni var breytt, áður en fólk fékk lyfjakort í stórum stíl. Um 16 þúsund lyfjakort hafa nú verið gefín út. Fjárlög þessa árs gera ráð fyrir því að 2,1 milljarði króna verið varíð gegnum sjúkratryggingar til að greiða niður lyf til sjúklinga, sem yrði um 800 milljóna króna sparn- aður frá fjárlögum síðasta árs. Ekki er þó gert ráð fyrir að hækka það gjald sem sjúklingar þurfa að greiða fyrir lyfin, sem nú er 500 krónur (150 krónur fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega) fyrir lyf af svokölluðum bestukaupalista og 850 krónur (250 krónur fyrir elli- og örorkulífeyris- þega) fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. Þorkell Helgason sagði, að reynt yrði að ná fram viðbótarsparnaðnum án þess að það komi niður á sjúkling- um, m.a. með því að ná fram meiri samkeppni milli apóteka og lækkun á lyíjadreifingarkostnaði, og e.t.v. endurskoða reglur um útgáfu lyfja- korta, því eins og gerðist með öll velferðarkerfi væru þau misnotuð fyrr eða síðar. Læknisþjónusta hækkar Næsta spamaðarskref, sem snýr beint að almenningi, verður stigið 15. janúar þegar ný reglugerð tekur gildi um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt henni þurfa sjúklingar nú að greiða fyrir komur til heimilis- lækna og á heilsugæslustöðvar, 600- 1.000 krónur, en slíkt hefur ekki þurft sl. tvö ár. Þá hækka gjöld fyr- ir sérfræðiþjónustu og læknisvitjanir í allt að 1.500 krónur. Með þessu á að spara ríkinu 250 milljónir króna í reksturskostnaði heilsugæslustöðva og 260 milljónir króna eiga að spa- rast með komugjaldi til lækna. í reglugerðinni er jafnframt sett þak á þessar greiðslur. Greiði sjúkl- ingur á aldrinum 16-67 ára samtals 12 þúsund krónur á þessu ári fyrir komu til lækna eða á heilsugæslu- stöðvar, fær hann fríkort í Trygging- astofnun gegn framvísun kvittana og nýtur ókeypis læknisþjónustu eft- ir það til áramóta, að undanskildum læknisvitjunum. Öll börn undir 16 ára í sömu fjölskyldu teljast sem einn maður í þessu tilliti og því þarf ekki að greiða meira en 12 þúsund krónur á ári fyrir þau samtais. Ifyrir elli- og örorkulífeyrisþega er hámarks- upphæðin 3.000 krónur. Þorkell Helgason sagði, að þessi gjöld væru fyrst og fremst ætluð til að afla ríkinu tekna, þó þannig að það kæmi sem sem réttlátast niður. Litið væri svo á, að þeir sem byggju við góða heilsu og þyrftu sjaldan að leita læknis væru vel aflögufærir að greiða komugjald í þau skipti. Hins vegar væri sett upp öryggisnet fyrir þá sem oft þyrftu að leita læknis. í reglugerðinni er einnig ákveðið verð fyrir glasafijóvganir á Landspít- alanum, sem hófust þar í október sl. Samkvæmt því greiða hjón eða sam- býlisfólk 105 þúsund krónur fyrir fyrstu meðferð, fyrir aðra og þriðju meðferð þarf að greiða 60 þúsund, en 200 þúsund fyrir hveija meðferð eftir það. „Þótt þetta séu há gjöld teljum við að með þeim sé verið að lækka kostnað fólks við þessar aðgerðir verulega," sagði Þorkell Helgason. „Fram til þessa hefur ríkið greitt fyrir þessa aðgerð í útlöndum en ekki tekið þátt í ferðakostnaði, uppi- haldi eða vinnutapi fólks vegna að- gerðarinnar. Við lítum svo á, að fólk spari sér öll þessi útgjöld ef þetta er gert á Islandi." Samkvæmt upplýsingum frá Landsspítalanum höfðu 25 konur hafíð gervifijóvgunarmeðferð í lok síðasta árs. Þar af höfðu 20 lokið fyrstu tilraun og 11 þeirra orðið þungaðar. Áætlað er að um 120 konur geti komið árlega til þessar meðferðar, en það er sá fjöldi sem undanfarið hefur farið árlega til út- ianda í þessum erindum. Einnig sé þess að vænta, að auka megi afköst bráðlega, gerist þess þörf, og stefnt verði að því að taka upp hið bráð- asta aðrar hliðargreinar við þessa þjónustu sem leiði til þess að kostnað- arsamar utanferðir yrðu alger undantekning. Telqutenging elli- og örorkulífeyris Bandormurinn svonefndi skríður enn um Alþingi, en það er mikill bálkur um breytingar sem gera þarf á núgildandi lögum svo fjárlög þessa árs standist. Þar er m.a. gert ráð fyrir að tekjutenging elli- og örorku- lífeyris taki gildi 1. febrúar. Sam- kvæmt því á ellilífeyrir að byija að skerðast við 65.847 króna tekjur; þá eru undanskyldar tekjur úr lífeyris- sjóðum. Örorkulífeyrir byijar að skerðast við 68.847 króna tekjur. Grunnlífeyrir elli- og örorkubóta er nú 12.123 krónur á mánuði en 10.911 krónur hjá hvoru hjóna um sig, njóti bæði lífeyris. Lífeyririnn á að skerðast hiutfallslega eftir því sem tekjur hækka, og fellur niður hjá ellilífeyrisþegum þegar 114.339 króna tekjum er náð (109.491 krónur hjá giftu fólki) og hjá öryrkjum þeg- ar 117.339 króna tekjum er náð (112.491 krónur hjá giftu fólki). Með þessum upphæðum er átt við brúttó- tekjur fyrir skatta. Framkvæmd þessara tillagria verður svipuð og framkvæmd tekju- tryggingar, sem einnig er ákveðið hlutfall af tekjum. Aflað verður upp- lýsinga um tekjur gegnum stað- greiðslukerfí skatta og úr skattfram- tölum. Tæplega 22 þúsund manns eiga nú rétt á ellilífeyri og samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytis- ins bitnar skerðingin á um 2.600 manns, þar af missa rúmlega 1.100 manns Iífeyrinn að fullu. Samkvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar eru um 350 þeirra, sem missa lífeyririnn alfarið, einhleypir en hinir giftir. Af þeim sem einhleypir eru hafa um 35 tekjur yfír 200 þúsund krónur á mánuði, þar af eru meðaltekjur sautj-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.