Morgunblaðið - 12.01.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ IVIIIMIMIIMU AK SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 1992
Guðrún M. Brands
dóttir — Minning'
Fædd 12. júlí 1908
Dáin 31. desember 1991
Tengdamóðir mín, mæt og mikil
kona, kvaddi þennan heim á síðasta
degi fyrri árs, eftir stutta en stranga
legu. Ég sem þetta skrifa vil með
fátæklegum orðum kveðja þennan
vin sem ég tel hafa verið mína
mestu gæfu að hafa kynnst, og
notið vináttu hennar í áratugi.
Guðrún Magnúsína var fædd á
Onundarhorni undir Austur-Eyja-
fjöllum, dóttir hjónanna Brands
Ingimundarsonar og Jóhönnu Jóns-
dóttur. Er Brandur og Jóhann
kynntust höfðu þau misst maka sína
og áttu samtals tíu börn frá fyrra
hjónabandi. Saman eignuðust þau
þijú börn og að auki ólu þau upp
fósturdóttur Öldu Jóhannsdóttur en
Alda er ein á lífi af þessum stóra
og föngulega hópi barna þeirra
hjóna, en Guðrún var síðust af
systkinahópnum til að kveðja þenn-
an heim.
Guðrún fluttist ung að árum til
Reykjavíkur og bjó þar ætíð síðan,
hún giftist 1937 Ólafi Stéfánssyni
og átti með honum tvær dætur, en
þær era: Svava, gift Þorkeli Krist-
inssyni og eiga þau þijú börn og tvö
barnaböm. Bima Sigríður, gift
Gunnlaugi B. Daníelssyni og eiga
Fáein síðbúin minningarqrð um
elskulega æskuvinkonu mína Gurrý,
eins og hún var kölluð. Hún var
ákaflega sterkur persónuleiki,
kímnigáfan alveg sérstök, hún sá
alltaf manna fyrst spaugilegu hlið-
amar á málunum, alltaf var það þó
græskulaust gaman. Hún var mjög
vel greind og ákaflega trygglynd.
Við kynntumst á sjúkrahúsi fyrir
rúmum 40 árum. Ég minnist þess
þegar ég sá hana fyrst, þá svona
unga hvað mér þótti hún hugguleg,
há og beinvaxin.
Elskuleg vinkona mín. Ekki datt
mér í hug að það yrði í síðasta sinn
sem ég heyrði í henni er hún hringdi
í mig fjórum dögum fyrir andlátið,
svo hress að vanda og sagði mér
að hún væri búin að sauma jóla-
kjóla á tvö barnabörn og væri langt
komin með húfur og vettlinga á litlu
elskulegu ömmubörnin. Gurrý var
tvígift. Mjög ung giftist hún Vig-
fúsi Sólberg Vigfússyni. Þau eign-
uðust tvær dætur. Þær heita Jónína
og Lára Emilía.
Lára eignaðist eina dóttur sem
ólst upp að mestu hjá ömmu sinni.
Gurrý og Sólberg slitu samvistir.
12. febrúar 1961 giftist Gurrý Frið-
sími689120
Við erum fiutt f
Fákafen 11
Opið 9-22 alla daga
þau eitt barn og eitt barnabarn.
Guðrún og Ólafur slitu samvistir
eftir fimm ára hjónaband. Nokkrum
áram síðar giftist Guðrún seinni
manni sínum, Einari J. Karlssyni,
og átti með honum eina dóttur,
Kristínu Björgu, en hún er gift
Ágústi ísijörð og eiga þau fjögur
börn og eitt barnabarn. Seinni mað-
ur Guðrúnar lést fyrir fímm árum,
en Guðrún brá ekki búi, en bjó ein
þar til sjúkdómur sá er leiddi hana
til dauða lagði hana í rúmið fyrir
tveim mánuðum síðan. Þessa tvo
mánuði dvaldi hún á Landakotsspít-
ala, og naut þar frábærrar umönn-
unar lækna og hjúkrunarfólks, ég
vil fyrir hönd fjölskyldunnar senda
þessu góða fólki þakkir okkar allra.
Guðrún var einstakur persónu-
leiki, sem ■ til dæmis kom fram í
tryggð hennar við tengdafólk sitt
frá fyrra hjónabandi, en þau tengsl
slitnuðu aldrei, enda má segja að
flest það fólk hafi borið hana á
höndum sér, og skal því sérstaklega
þökkuð sú tryggð. Þess ber að geta
að fyrrum mágur Guðrúnar, Jón,
og kona hans, Sigríður, sem var
bróðurdóttir hennar, sýndu henni
einstaka umhyggju alla tíð.
Annað í fari Guðrúnar var kímn-
in. Sá sem þetta ritar sat oft og
hlustaði á sögur hennar af kynleg-
jóni Jónssyni, skipstjóra frá Hellis-
sandi. Þau eignuðust þrjú börn. Þau
heita Svanur Karl, Signý Rut og
Friðjón Rúnar. Gurrý ag Friðjón
bjuggu allan sinn búskap á Hellis-
sandi og er mér ekki kunnugt um
annað en hann hafi reynst Jónínu
og Láru, dætrum hennar, vel. Gurrý
þótti innilega vænt um manninn
sinn.
Friðjón var harðduglegur maður
og sá vel fyrir sínu fólki. Þau fóru
mikið til útlanda saman og hún kom
upp dubbuð til baka. Svo ég get
ekíri annað séð en hann hafi verið
eftirlátur og góður eiginmaður og
faðir. En því miður endaði sambúð
þeirra sorglega fyrir þremur, fjórum
árum. Ég kveð vinkonu mína með
söknuði og þakka henni allar okkar
gleðistundir sem við áttum saman.
Alsystkini átti hún tvö, Valdísi og
Þorkel. Við höfum nú misst Gurrý
en minningin um góða vinkonu er
mér ljóslifandi minning sem aldrei
verður frá mér tekin. Ég vil þakka
Guði fyrir þær ljúfu stundir sem ég
átti með henni og bið hann að gæta
hennar. Megi algóður Guð styrkja
börnin hennar, tengdabörn og
bamabörn, systkini og aðra ættingja
og vini í sorginni og áfram á lífsleið-
inni. Þuríður Jóhannesdóttir
£
um kvistum frá uppeldisárunum
undir Eyjafjöllunum. Einna best
tókst henni upp þegar þær sátu
saman, hún og uppeldissystirin
Alda, og rifjuðu upp löngu iiðin at-
vik úr æsku þeirra, og ekki síður
frá seinni tíð, en Guðrún var þeim
eiginleika gædd að sjá ávallt það
skrýtna og skemmtilega í fari fólks
og í atvikum líðandi stundar, aldrei
var ég þó var við að nún notaði
þennan hæfileika til annars en
græskulausrar kímni.
Guðrún var stórbrotin kona á
marga vegu, hún flaggaði ekki til-
finningum sínum fyrir ókunna, en
var hlý sínum nánustu, hlutirnir
hétu ávallt sínum réttu nöfnum í
hennar munni og fór enginn í graf-
götur með hvaða álit hún hafði á
mönnum og málefnum líðandi
stundar.
Ég vil fyrir mína hönd og fjöl-
skyldu minnar þakka Guðrúnu fyrir
samfylgdina, og ekki síst fölskva-
lausa vináttu í minn garð. Ég veit
að dætur hennar kveðja hana með
miklum trega, og söknuður þeirra
er sár. Megi góður Guð styrkja þær
í sorg þeirra en huggun þeirra er
minningin um góða móður, og von
um að einhvern tíma muni koma
að endurfundum.
Guð blessi minningu Guðrúnar.
Gunnlaugur B. Daníelsson.
Kveðjuorð til elsku ömmu, með
þakklæti fyrir allt.
Minningar streyma - fá að vera
hjá ömmu og afa um helgar, fara
með skólabækurnar og lesa fyrir
þau aftur og aftur úr „Gagn og
gaman“. Ekki var sparað hrósið.
Er árin liðu fóru helgargistingum
fækkandi, en alltaf var komið við
hjá ömmu og afa. Þegar ég eignað-
ist dætur mínar fylgdust þau með
okkur og ósköp var notalegt að finna
alla þá væntumþykju og áhuga sem
þau sýndu. Amma hélt heimili eftir
lát afa, en hann lést 1986.
Amma var mjög skemmtileg og
félagslynd, sem best sést á því hve
góða vini hún hefur alla tíð átt. Sl.
haust fluttist fjölskylda mín heim
eftir tveggja ára búsetu í Svíþjóð.
Þótti okkur gott að vera komin heim
og geta notið samvista við ömmu
síðustu mánuðina. Hennar verður
sárt saknað af fjölskyldunni.
Kveðja. Guðrún.
t
Móðir mín,
UNNUR HELGADÓTTIR KIMMEL,
lést af slysförum 9. janúar sl.
Fyrir hönd vandamanna,
Helgi Óskarsson.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu, kærleika og heim-
sóknir við andlát og útför sonar okkar og bróður,
SVANBERGS JÓHANNSSONAR,
Mánagötu 21,
Reyðarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Guðjónsdóttir,
Þórir Stefánsson,
Óskar Jóhannsson,
Stefán Viðar Þórisson.
Guðrún Samúels-
dóttír - Kveðjuorð
Fædd 3. september 1933
Dáin 20. nóvember 1991
23
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
fyrrverandi bankafulltrúi,
Bakkagerði 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. janúar
kl. 13.30.
Margrét Dóra Guðmundsdóttir, Moritz W. Sigurðsson,
Gylfi Guðmundsson, Indíana Sigfúsdóttir,
Hákon Guðmundsson, Gróa Margrét Jónsdóttir,
Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Joseph Sablow,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR J. SÍMONARSON
fyrrv. lögregluþjónn,
Álftamýri 75,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 14. janúar
kl. 15.00.
Kristín Auðunsdóttir,
Vilhelmína Ólafsdóttir, Björn Ævar Steinarrsson,
Pétur Ólafsson, Margrét Hilmarsdóttir,
. Símon Ólafsson, Guðrún Sch. Thorsteinsson,
Magnús Ólafsson
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BIRGIR GUÐJÓNSSON
brunavörður,
Hjallabrekku 28,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. janúar
kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir sem vildu minnast
hans láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Ásta Þórarinsdóttir,
Guðjón Birgisson, Helga Karlsdóttir,
Guðbjörn Þór Pálsson, Inger Bernefeld
og barnabörn.
t
Útför elskulegrar eiginkonu minnar, dóttur, móður, tengdamóður
og ömmu,
HELGU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Klettahrauni 3,
Hafnarfirði,
verður gerð frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 14. janúar
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minn-
ast hennar, er bent á líknarfélög.
Gunnlaugur J. Ingason,
Guðrún Ásbjörnsdóttir,
Guðmundur Gunnlaugsson,
Ingi Gunnlaugsson,
Gunnlaugur H. Gunnlaugsson,
Halldór Gunnlaugsson,
Þorsteinn Gunnlaugsson,
Guðrún I. Gunnlaugsdóttir,
Auður Leifsdóttir,
Erla Eyjólfsdóttir,
Hrund Eðvarsdóttir,
og barnabörn.
Sigriður Lárusdóttir,
Ingi M. Ljótsson
t
Alúðarþakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug
við fráfall eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ARNGRÍMS BJARNASONAR
fv. aðalfulltrúa,
Byggðavegi 84,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til Kaupfélags Eyfirðinga.
Ásta Friðriksdóttir,
Stefán Arngrímsson, Kristbjörg Héðinsdóttir,
Ólöf Stefanía Arngrímsdóttir, Baldvin Jónsson,
Guðríður Þórhallsdóttir, Hallgrimur Jónsson
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
GUÐLAUGAR INGIBJARGAR AÐALSTEINSDÓTTUR,
frá Vaðbrekku,
Þiljuvöllum 28,
Neskaupstað.
Kolbeinn Ingi Arason,
Stefanía María Aradóttir,
Ragnhildur Steina Aradóttir,
Bergþóra Aradóttir,
Hrefna Aradóttir,
tengdabörn og barnabörn.