Morgunblaðið - 07.02.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1992
15
' ' ^ Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Frá undirritun sanmings um Fjölbrautaskóla Vesturlands f.v. Þórir Ólafsson skólameistari í ræðustól,
Einar Óli Petersen oddviti Álftaneshrepps á Mýrum, Gísli Gíslason bæjarsljóri á Akranesi, Ólafur G.
Einarsson menntamálaráðherra og Eiríkur Guðmundsson aðstoðarskólameistari.
ingu sem framhaldsdeildir skólans
hafa fyrir stað eins og Stykkis-
hólm.
Að lokinni undirskrift óskaði
menntamálaráðherra Vestlending-
um ti! hamingju með samninginn
og hina nýju þjónustubyggingu
skólans. Kom fram í máli hans að
tekist hefði að tryggja ijármagn
til að greiða fyrir rekstur bygg-
ingarinnar á árinu en það fékkst
ekki við afgreiðslu fjárlaga fyrir
áramót. Aðrir sem ávörp fluttu við
þetta tækifæri voru Guðjón Ingi
Stefánsson frá samtökum sveitar-
félaga á Vesturlandi, Ólafur Ás-
geirsson fyrrum skólameistari,
Alexander Stefánsson fyrrum ráð-
herra og Valgarður Jónsson for-
maður nemendafélags skólans sem
lýsti yfir ánægju með hina nýju
aðstöðu og færði skólanum blóma-
skreytingu frá nemendum í tilefni
dagsins.
I lokin talaði Sturla Böðvarsson
alþingismaður og flutti kveðjur frá
þingmönnum Vesturlands. Lagði
hann áherslu á að samstaða Vest-
lendinga um framhaldsnámið hafi
skilað þeim miklum árangri.
Skólanum bárust fjölmargar
kveðjur og gjafír, m.a. mjög veg-
legar klukkur frá Guðmundi
Hannah úrsmið á Akranesi. Um
300 manns voru viðstaddir þessa
athöfn og þáðu í lokin veitingar í
boði skólans.
- J.G.-
Doktorsvörn
við Háskóla
Islands
DOKTORSVÖRN við guðfræði-
deild Háskóla íslands fer fram
laugardaginn 8. febrúar 1992.
Séra Arngrímur Jónsson sóknar-
prestur í Háteigsprestakalli ver
doktorsritgerð sína sem guð-
fræðideild hafði áður metið hæfa
J til doktorsprófs. Heiti ritgerðar-
innar er: Fyrstu handbækur
presta á íslandi eftir siðbót.
Andmælendur af hálfu guðfræði-
deildar verða dr. Hjalti Hugason,
dósent við Kennaraháskóla íslands,
og dr. Ólafur Halldórsson, handrita-
fræðingur. Prófessor Einar Sigur-
björnsson forseti guðfræðideildar
stjórnar athöfninni.
Doktorsvörnin fer fram í Lög-
bergi, stofu 101, og hefst kl. 14.00.
Öllum er heimill aðgangur.
JOSS
Kringlunni 8-12,
sími 689150
Fjölbrautaskóli Vesturlands;
Nýr samningur
undirritaður
UNDmRITAÐUR hefur verið
nýr samningur um Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi
en að honum standa 32 sveitar-
félög á Vesturlandi og ríkissjóð-
ur. Samninginn undirrituðu
menntamálaráðherra, Ólafur G.
Einarsson, og fulltrúar sveitar-
félaganna. I samningnum er það
staðfest að Fjölbrautaskóli
Vesturlands er svæðisskóli.
Hann þjónar íbúum alls Vestur-
Sveinn
Björnsson
sýnir í
Hafnarborg
SVEINN Björnsson listmál-
ari opnaði málverkasýningu
í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnafjarðar,
laugardaginn 1. febrúar sl.
A sýningunni er málverk við
ljóð Matthíasar Johannessen,
Sálmar á atómöld. Þessi ljóða-
flokkur Matthíasar birtist fyrst
í ljóðabókinni Fagur er dalur
árið 1966 og endurútgefinn á
síðasta ári, aldarfjórðungi síð-
ar.
í ljóðaflokknum eru 65 sálm-
ar og hefur Sveinn Björnsson
unnið mynd við hvem þeirra.
Myndirnar em unnar í pastel
og olíupastel og eru allar mál-
aðar á árinu 1990.
Sýningin verður opin alla
daga nema þriðjudaga frá kl.
12-18 til 17. febrúar.
lands og rekur framhaldsdeildir
þar sem eftirspurn er næg og
aðrar aðstæður leyfa. Sveitarfé-
lögin eiga fulltrúa í fulltrúaráði
sem er tengiliður skólans við
einstök byggðarlög.
Undirritun samningsins fór
fram við hátíðlega athöfn 24. jan-
•úar sl. í hinum nýja sal þjónustu-
byggingar skólans sem tekin var
formlega í notkun þennan sama
dag. í upphafi athafnarinnar lék
Skólahljómsveit Akraness undir
stjóm Ándrésar Helgasonar nokk-
ur lög. Jón Háldanarson formaður
skólanefndar flutti ávarp og rakti
þýðingu samningsins.
Hann minnti á mikilvægi þess
að efla sjálfdæmi einstakra lands-
hluta í menntun eigin íbúa og var-
aði við því að miða framlög til
menntunar við það sem hagkvæm-
ast getur orðið á höfuðborg-
arsvæðinu. Slíkur spamaður birtist
í andstöðu sinni þegar lengra líður.
Áður en undirritun fór fram
ávarpaði Ólafur Sverrisson, bæjar-
stjóri Stykkishóms viðstadda og
lýsti mikilvægi samstarfsins fyrir
byggðina á Vesturlandi og þá þýð-
N
FIAT - TILBOÐ
UNO 45
Tilboðsverð
580.000
UNO
ÁRGERÐ 1992
Ath.: Takmarkað magn
UNO 45S 3d.
Tilboðsverð
010.000
UNO 455 5d.
Tilboðsverð
635.000
Skeifunni 17 - Sími 688850