Morgunblaðið - 08.02.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1992
Pöntunarfélagshúsið á Seyðisfirði brann:
Mikið Ijón trillu-
karla í eldinum
MILLJÓNATJÓN varð er Pöntunarfélagshúsið við Hafnargötu á
Seyðisfirði brann til kaldra kola í fyrrinótt. Eldsupptök eru ókunn,
að sögn Sigurjóns Andra Guðmundssonar, aðstoðarvarðstjóra í lög-
reglunni á Seyðisfirði. Siguijón varð var við eldinn á eftirlitsferð
um bæinn um klukkan hálfsex að morgni en um miðnætti um kvöld-
ið áður hafði lögreglan á Seyðisfirði handtekið mann um þrítugt
sem játað hefur að hafa lagt eld að Wathne-húsinu þar í bæ, en
það brann aðfaranótt 28. janúar sl. Sá maður var í haldi lögreglunn-
ar þegar eldurinn i Pöntunarfélagshúsinu kom upp, en var látinn
laus að loknum yfirheyrslum í gær, enda málið þá talið upplýst.
Sigurjón sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði verið
að aka út með sunnanverðum fírð-
inum um nóttina þegar hann hefði
séð reyk leggja frá Pöntunarfélags-
húsinu. Um svipað leyti og hann
kom að dreif að starfsmenn Síldar-
bræðslunnar, sem er í næsta húsi.
Slökkviliðið kom fljótlega á stað-
inn. „Það var mikill eldur á báðum
hæðum, aðallega þó í vestari enda
hússins og að miðju þess,“ sagði
Sigurjón.
I vestari endanum voru 6 trillu-
karlar með aðstöðu til beitingar og
fyrir geymslu veiðarfæra og vara-
hluta. Auk þess hafði Gullberg, sem
gerir út Gullver, hluta hússins á
leigu. I austurenda hússins var hins
vegar lager frá umboðsmanni Shell
á Seyðisfirði, þar á meðal 20-30
olíutunnur. Hvasst var í veðri og
sóttist slökkvistarf fremur seint,
að sögn Siguijóns. Fór enda svo
að eldurinn komst í olíutunnurnar,
sem sprungu og fóðruðu eldinn
þannig að ekki varð við neitt ráðið
fyrr en um klukkan 9 um morgun-
inn að húsið var brunnið til kaldra
kola og það fallið að undanskildum
fáeinum metrum á vesturgafli.
Sigurður Finnbogason er einn
þeirra trillukaria sem áttu veiðar-
færi og ýmis önnur verðmæti í
húsinu. Allir urðu þeir fyrir miklu
tjóni en einungis einn var tryggður
fyrir tjóni af þessu tagi. Sigurður
sagði þó að hann og annar til hefðu
sloppið betur en aðrir. Þeir hefðu
haft á leigu frystiklefa í vesturenda
hússins og hefðu þeir náð þaðan
út' uppsettri línu sinni óskemmdri.
Einnig hefði hann verið svo heppinn
að hluti af netum hans hefði legið
niðri á bryggju og því ekki orðið
eldinum að bráð. Hins vegar kvaðst
hann eins og aðrir hafa tapað þama
miklum verðmætum. Ekki vildi
hann að svo stöddu meta það tjón
til fjár.
Pöntunarfélagshúsið var tveggja
hæða bárujámsklætt timburhús og
stóð yst við Hafnargötu. í daglegu
tali hefur það verið kallað Pöntun
eða Pöntunin. Það var byggt í lok
síðustu aldar af Pöntunarfélagi
Fljótsdalshéraðs. Undanfarin ár
hefur það verið í eigu Fisksölufé-
lags Seyðisfjarðar sem er umboðs-
aðili Skeljungs á Seyðisfirði.
Að sögn Siguijóns Andra Guð-
Morgunblaðið/G J H
Eins og glöggt sést af þessari mynd er húsið sem Pöntunarfélag
Fljótsdalshéraðs byggði í lok síðustu aldar nú rústir einar.
Húsið fyrir brunann.
mundssonar aðstoðarvarðstjóra er
ekki Ijóst hver upptök eldsins voru.
í dag mun lögreglan í bænum
Morgunblaðið/Garðar Rúnar
ásamt mönnum frá Rafmagnseftir-
liti ríkisins kanna verksummerki
nánar.
Nýjar reglur um Verðbréfaþing íslands:
Búist við að 10-20 hluta-
félög verði skráð á árinu
BÚIST er við að 10-20 fyrirtæki skrái hlutabréf sín á Verðbréfaþingi
íslands á þessu ári, en nýjar reglur þingsins tóku gildi í byrjun febVú-
ar. Reglurnar eru byggðar á tillögum ráðgjafarfyrirtækisins Enskilda
Securities. Markmiðið með þeim er að auka miðlun upplýsinga um
verðbréfaviðskipti og ýta undir að fleiri flokkar hluta- og skuldabréfa
verði skráðir á þinginu. Þetta kom fram á fundi forráðamanna Verð-
bréfaþings með fréttamönnum í gær.
Viðskipti á Verðbréfaþingi munu
fara fram um tölvur og er gert ráð
fyrir að viðskipta- og upplýsinga-
kerfi þingsins verði tilbúið í apríl nk.
Yerðbréfamiðlarar sem aðild eiga að
þinginu fá aðgang að kerfinu og
geta skoðað viðskipti sem þar hafa
farið fram með verðbréf, skoðað til-
boð, gert tilboð eða tekið tilboðum.
Öll tilboð sem fram koma eru bind-
andi og taka bæði til verðs og magns
sem verslað er með. Ekki verður
gerð krafa um að allir skráðir flokk-
ar verðbréfa hafí viðskiptavaka. Sá
sem gerist viðskiptavaki fyrir ákveð-
in bréf verður hins vegar að vera
reiðubúinn að gera bindandi kauptil-
boð í viðkomandi hlutabréf fyrir
a.m.k. 600 þús. kr. á hveijum degi.
Þingaðilum er skylt að sjá til þess
að upplýsingar um viðskipti sem þeir
eiga utan þings með bréf skráð á
þinginu, séu skráðar í upplýsinga-
kerfi þingsins eigi síðar en fyrir há-
degi næsta viðskiptadag. I kjölfarið
mun þingið miðla upplýsingum um
viðskiptin til fjölmiðla og almenn-
ings.
Hvað snertir skráningu hlutafé-
laga á þinginu verður sérstakt aðlög-
unartímabil frá 1. febrúar til 30. júní
þar sem útgefendum verðbréfa verð-
ur auðvelduð vinna við skráninga-
rumsóknir. Á tímabilinu geta útgef-
endur eða þingaðili fyrir þeirra hönd
sótt um skráningu á grundvelli árs-
uppgjörs fyrir árið 1990 og hálfsárs-
uppgjörs fyrir 1991 auk bæklings
með viðbótarupplýsingum í stað þess
að þessar upplýsingar verði í einum
bæklingi á stöðluðu formi. Að auki
verður gefínn helmings afsláttur af
skráningargjöldum á tímabilinu.
í hinum nýju reglum er það skil-
yrði sett fyrir skráningu að lág-
marksfjárhæð hlutafjár skal vera 75
milljónir króna. Þar af skal 15% hlut-
afjár vera í eigu 200 aðila eða fleiri,
en hver um sig skal eiga a.m.k. 30
þúsund kr. Upphæðir breytast í sam-
ræmi við breytingar á ECU. Þá eru
gerðar kröfur um ítarlega upplýs-
ingagjöf hiutafélaga. Skráðum félög-
um ber að senda inn ársreikning
ásamt ársskýrslu um leið og hann
er aðgengilegur hluthöfum en þó í
síðasta lagi innan fjögurra mánaða
frá lokun reikningsárs. Ennfremur
skulu reikningsskil sem taka til
fyrstu sex mánaða reikningsársins
gerð opinber og send þinginu innan
þriggja mánaða frá lokun tímabils-
ins. Allar upplýsingar sem sendar
eru hluthöfum, svo og almennar
fréttatilkynningar skulu sendar sam-
tímis til þingsins. Jafnframt fela regl-
umar í sér að ársfjórðungslega beri
að gefa upplýsingar um eigenda-
skipti hlutabréfa og heildarupphæð.
Sérstaklega er fjallað um innheija-
viðskipti í nýju reglunum og er þar
kveðið á um að skráð félag skuli
skrá í bækur sínar og tilkynna þing-
inu eins fljótt og unnt er viðskipti
eftirtalinna aðila með hlutabréf fé-
lagsins: Stjórnarmanna og annarra
stjómenda félagsins svo sem for-
stjóra, framkvæmdastjóra, deildar-
stjóra og faglegra ráðgjafa þeirra,
innan félagsins eða utan, svo og
náinna venslamanna framantalinna.
Stefnt er að því að gjöld, sem þing-
aðilar, útgefendur og áskrifendur
upplýsinga greiða, nægi til að starf-
rækja sjálfstætt verðbréfaþing með
um 2-3 starfsmenn í upphafí. Stjóm
þingsins verður skipuð 7 aðilum.
Formaður verður skipaður af Seðla-
banka íslands, 2 stjómarmenn verða
valdir af öðrum þingaðilum, 2 verða
fulltrúar hlutafélaga á þinginu, 1
fulltrúi stærri kaupenda og 1 fulltrúi
smærri kaupenda.
Norsk skip hafa veitt 42.500 tonn
af loðnu hér í vetur, en þau voru
farin af miðunum í gær og ekkert
hefur verið veitt af loðnukvóta Græn-
lendinga. Erlend skip mega ekki
veiða loðnu í okkar lögsögu eftir 15.
febrúar og einungis norðan við Papa-
grunn fyrir 15. febrúar. íslensku
skipin hafa verið að veiðuin við Hrol-
laugseyjar að undanförnu og gengið
þokkalega.
Bræðslugeta loðnuverksmiðjanna
hér er um 12 þúsund tonn á sólar-
hring. Þær gætu því brætt þau 500
Sameining spítala:
Stjórn Landa-
kots ræðir
málið í dag
YFIRSTJÓRN Landakotsspítala
mun í dag fjalla um hvort stefna
eigi að sameiningu spítalans og
Borgarspítála.
Viðræðunefndir spítalanna hafa
fjallað um þetta ;nál undanfarna
daga, og að sögn Árna Sigfússonar
formanns stjómar sjúkrastofnana
Reykjavíkur liggja nú fyrir ákveðn-
ar tillögur sem yfirstjórn Landakots
mun ræða í dag.
Árni sagði að í tengslum við fjár-
hagsáætlun hefði borgarstjórn
Reykjavíkur samþykkt tillögu um
það á fimmtudagskvöld, að Borgar-
spítali og Landakotsspítali yrðu
sameinaðir og því væri kominn fram
skýr vilji þeim megin.
Þorkell Helgason, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, sagði í gær að
ekki væri búið að ákveða hvernig
þeim 500 milljónum króna, sem
óráðstafað er til reksturs sjúkra-
húsa, verði skipt. Þessi upphæð var
ætluð til að milda þann 5% flata
niðurskurð, sem sjúkrahúsunum var
gert að framkvæma. Þorkell segir
að fundað verði um helgina um það
hvaða heilbrigðisstofnanir þurfi
mest á þessum peningum að halda
og ákvörðunar sé að vænta í fyrsta
lagi á mánudag.
-----» ♦ ♦-----
Skarst illa er
brot reið yfír
Höfrung AK
SKIPSTJÓRINN á loðnuskipinu
Höfrungi AK skarst illa á höfði
og andliti er báturinn l ekk á sig
brot í illviðri í um það bil 6 sjó-
mílna fjarlægð frá Akranesi í
fyrrinótt. Skipstjórinn sat í
brúnni þegar ólagið reið yfir.
Það braut glugga í stýrishúsi.
Glerbrotin skáru skipstjórann í
andlitið auk þess sem hann hent-
ist úr stól sínum og skall á tækj-
um í brúnni.
Þegar óhappið varð hafði Höfr-
ungur nýlokið löndun á Akranesi
og var kominn um 6 sjómílur út
úr höfninni á leið á miðin á nýju.
Strax var snúið við og var skipstjór-
inn lagður inn á sjúkrahúsið á Akra-
nesi þar sem gert var að sárum
hans. Meðal annars þurfti að sauma
hann mikið í andliti.
Skemmdir urðu á siglingatækj-
um skipsins þegar sjór komst í þau-
og varð vélsími óvirkur. Skipið var
til viðgerðar á Akranesi í gær og
er ráðgert að-það haldi til loðnu,-
veiða að nýju á mánudag.
þúsund tonn, sem eftir er að veiða
af heildarloðnukvótanum, á 42 sólar-
hringum, en loðnuvertíð lýkur yfir-
leitt um 20. mars.
llilmir SU fór með um 1.300 tonna
loðnufarm til Færeyja í gær. Það er
fyrsti loðnufarmurinn, sem íslensk
skip landa erlendis í vetur, en í gær
höfðu verksmiðjur hér tekið á móti
6.134 tonnum úr norskum skipum.
Á Siglufirði eru greiddar 4.500 krón-
ur fyrir tonnið af loðnu en um 6.000
krónur í Færeyjum.
Flugleiðir:
80% flugferða á áætlun
FLUGLEIÐIR eru í hópi stundvísustu flugfélaga. Fyrstu ellefu
mánuði síðasta árs voru Flugleiðir 4. stundvísasta flugfélagið af
22 sem fljúga yfir N-Atlantshaf og í 5. sæti félaga í Evrópuflugi.
í Atlantshafsflugi fóru 80%
Flugleiðavéla á réttum tíma. Hjá
því félagi, sem stóð sig bezt, voru
82% flugvéla á áætlun. í Evrópu-
fluginu héldu 82% flugvéla Flug-
leiða áætiun, en 90% hjá því fé-
lagi, sem var stundvísast.
Flugleiðir settu sér það mark-
mið í byijun 1990 að ná meðal-
tali evrópskra flugfélaga í stund-
vísi fyrir árslok 1991. Þetta
markmið náðist á árinu 1990. Ein-
ar Sigurðsson blaðafulltrúi Flug-
leiða segir að ástæðan fyrir þess-
um góða árangri sé að flugfloti
fyrirtækisins hafi verið endurnýj-
aður og betra skipulag við áætla-
nagerð og vinnu á flugvöllum hafi
verið tekið upp. „Þetta er sérstak-
lega gott í Atlantshafsfluginu.
Loðnukvótinn gæti
orðið 700.000 tonn
UM 39 þúsund tonn af loðnukvóta Norðmanna hér við land og allur
loðnukvóti Grænlendinga, 81.400 tonn, falla trúlega í hlut íslendinga
á þessari vertíð. Heildarloðnukvóti íslensku skipanna er nú 577 þús-
und tonn, en hann verður trúlega aukinn í 700 þúsund tonn. Olík-
legt þykir þó að íslendingar nái að veiða þau 500 þúsund tonn, sem
eftir eru af heildarloðnukvótanum. í gær voru íslensk skip búin að
veiða 195 þúsund tonn af loðnu í vetur, þar af um 139 þúsund tonn
eftir áramót.