Morgunblaðið - 08.02.1992, Blaðsíða 28
Mývatnssveit:
Ataksverkefni
í atvinnumálum
Björk, Mývatnssveit.
LEITARRÁÐSTEFNA var haldin í Hótel Reynihlíð á vegum átaksverk-
efnis í Mývatnssveit 1. og 2. febrúar síðastliðinn. Ráðstefnuna sátu 40
heimaaðilar auk leiðbeinenda og gesta. Árangur ráðstefnunnar var að
sex verkefnishópar voru stofnaðir um jafnmörg verkefni. Margar aðr-
ar hugmyndir komu fram sem athugaðar verða.
En hvað er átaksverkefni? Átaks-
verkefni er samnefnari fyrir verkefni
sem hafa að markmiði að stuðla að
þróun á ýmsum sviðum atvinnu- og
menningarlífs. Aðalatriðið er að
frumkvæðið og þátttaka sé frá íbúum
byggðalagsins.
Leitarráðstefna byggir á hópvinnu
og er fyrirmyndin sótt til Noregs þar
sem átaksverkefni eiga sér lengri
sögu en á Islandi. Á leitarráðstefn-
unni í Mývatnssveit var fyrst rakin
saga staðarins og fólk velti fyrir sér
fortíð, nútíð og framtíð. Hverjar ósk-
imar væru um framtíðina og hvem-
ing framtíðin liti út ef ekkert væri
að gert. Næst var velt upp ýmsum
Islenskur
skinnaiðnaður:
Samningar
upp á 220
millj. fyrri
hluta árs
MIKIL vinna er nú lyá Is-
lenskum skinnaiðnaði og
verkefnastaðan betri en áður
hefur verið á þessum árs-
tíma. Nýverið hafa verið
gerðir samningar um sölu
skinna til afgreiðslu á fyrri
hluta þessa árs að verðmæti
um 220 milljónir króna.
Bjarni Jónasson, fram-
kvæmdastjóri íslensks skinna-
iðnaðar, sagði að verkefnastaða
fyrirtækisins væri mjög góð um
þessar mundir og mikil vinna
framundan. Gerðir hafa verið
samningar um sölu skinna til
kaupenda, einkum á Ítalíu, að
upphæð um 220 milljónir króna
og sagði Bjarni að þeir samn-
ingar sem gerðir hefðu verið
undanfarið væru ívið hagstæð-
ari en þeir sem gerðir voru á
sama tíma í fyrra og ætti það
m.a. við um verð og afhending-
ar.
hugmyndum, nýjum og gömlum.
Fólk fékk tækifæri á að velja sér
hugmynd til að vinna með og fram-
haldið verður síðan að koma þeim í
framkvæmd.
Tilefni átaksverkefnis í Mývatns-
sveit er það að þar hefur fólki fækk-
að á síðustu árum og þar er nú 7-10%
atvinnuleysi meginhluta ársins, þó
að nóg sé að gera yfir sumarið. Með
vilja, getu og kunnáttu íbúanna á
að stöðva þá þróun sem orðið hefur
og snúa vörn í sókn.
Forstöðumaður átaksverkefnis í
Mývatnssveit er Frímann Guðmunds-
son.
Kristján
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fyrstu flökin runnu eftir hinni nýju flæðilínu Hraðfrystiliúss Ólafsfjarðar í gærmorgun og var létt
yfir starfsfólkinu er vinna hófst að nýju í húsinu eftir langt hlé.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar:
Starfsemin í hentugra hús
o g flæðilína tekin í notkun
ÞAÐ VAR létt yfir starfsfólki Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar er það
mætti til vinnu í gærmorgun, en vinna hófst þá á ný í frystihúsinu
eftir all langt stopp, eða frá því 20. desember síðastliðinn. Starfsfólk-
ið hefði líka ástæðu til að fagna, tekin var í notkun ný flæðilína í
nýju og endurbættu húsnæði, en lagfæringar á húsinu sem og upp-
setning flæðilínunnar hefur staðið yfir síðustu vikur. Bæjarbúum
verður boðið að skoða húsakynni frystihússins sem og flæðilínuna
í dag, laugardag. Nýja vinnslukerfið var smíðað hjá Þorgeir og Ell-
ert á Akranesi, en hönnuður þess er Ingólfur Árnason.
Jóhann Guðmundssön fram- ast meiri stöðugleiki í atvinnulífi
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss bæjarins, en áður var ekki óalgengt
Ólafsfjarðar sagði að um stórt skref
væri að ræða, starfsemin hefði flutt
úr þröngu og óhentugu húsnæði
yfir í bjartari og hagkvæmari salar-
kynni auk þess sem hið nýja
vinnslukerfi er tekið í notkun.
Tvö frystihús voru starfrækt í
Ólafsfirði, Hraðfrystihús Ólafs-
fjarðar hf. og Magnús Gamalíelsson
hf., en þau voru sameinuð árið
1989. Síðla árs 1990 keypti útgerð-
arfyrirtækið Sæberg í Ólafsfirði
hlutabréf Byggðastofnunar og
Ólafsfjarðarbæjar í HÓ og á nú 70%
hlut í fyrirtækinu. Eftir sameiningu
frystihúsanna tveggja hefur skap-
að starfsfólki frystihúsanna væri
sagt upp störfum vegna hráefnis-
skorts hluta úr ári.
Þær breytingar sem nú hafa ver-
ið gerðar eru að rækjuvinnsla sem
til staðar var í húnsæði frystihúss
Magnúsar Gamalíeissonar hefur
verið lögð niður og verður seld
Geflu hf. á Kópaskeri og frystingin
sem áður var í húsi HÓ hefur verið
flutt yfir í húsnæði rækjuvinnslunn-
ar.
Jóhann sagði að umskiptin væru
mikil, þröngt hefði verið um starf-
semina og húsnæðið þannig úr
garði gert að erfitt var að beita
hagræðingu í vinnsluferlinu. Miklar
endurbætur voru gerðar á hinum
nýju salarkynnum frystihússins,
nýjar vatns- og raflagnir lagðar,
gólfið lagfært, veggir fjarlægðir og
öllu fyrirkomulagi hússins breytt til
betri vegar. Kostnaður vegna breyt-
inga á húsnæðinu er um 18 milljón-
ir króna, en nýja vinnslukerfið kost-
ar um 7 milljónir, þannig að heildar-
kostnaður nemur um 25 milljónum
króna. Gerði Jóhann ráð fyrir að
flæðilínan myndi borga sig upp á
2-3 árum, en með tilkomu hennar
eykst m.a. nýting hráefnisins og
sem og afköst.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar fær
hráefni til vinnslu frá tveimur ís-
fisktogurum, Múlabergi ÓF og Sól-
bergi ÓF, og einnig er afli tekinn
af bátum og hann keyptur á mark-
aði á Dalvík ef þannig stendur á.
Á síðasta ári tók frystihúsið á móti
2.400 tonnum til vinnslu, sem er
um 200 tonnum meira en árið á
undan. Verðmæti aflans var þó
svipað, en aflasamsetning á síðasta
ári var heldur óhagstæð. „Við stefn-
um að því að halda sama aflamagni
á þessu ári, þrátt fyrir skerðingu á
kvóta. Þetta hús þarf að fá að lág-
marki 2.400 tonn til vinnslu og upp
í 3.000 tonn ef vel á að vera,“ sagði
Jóhann.
Með tilkomu flæðilínunnar skap-
ast meiri möguleikar til að vinna
afurðirnar í dýrari pakkningar og
sagði Jóhann að því stefnt. I
vinnslukerfinu eru 18 snyrtistæði,
pökkunarlína, og svæði sem nýtast
gæðaeftirliti auk sérstaks svæðis
fyrir niðurskurð. Ingólfur Árnason,
hönnuður kerfisins, sagði að allar
vinnslulínur byggðu á sömu grunn-
hugmyndunum, en útfærslur væru
mismunandi eftir húsum og kerfið
væri í sífelldri þróun. Hvað flæðilínu
HÓ varðar væri búið að gera mönn-
um auðveldara fyrir með vigtun.
„Við stefnum að því að halda
sama aflamagni, þrátt fyrir skerð-
ingu á kvóta. Þetta hús þarf að fá
að lágmarki 2.400 tonn til vinnslu
og u^p í 3.000 tonn,“ sagði Jóhann.
Fimmta kynslóðin af Civic hefur
litið dagsins ljós. Við fyrstu kynni
vekja glæsilegar línurnar athygli,
nánari kynni upplýsa um tækni-
lega kosti og yfirburðahönnun.
Civic árgerð 1992 er til sýnis að
Vatnagörðum 24, mánudaga til
föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 — 15:00.
Nánari upplýsingar eru veittar í
síma 68 99 00
Verð frá: 949.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
Sjórn og- trúnaðarráð Iðju:
• •
Ollnm hugmyndum um „núll-
samninga“ vísað á bug
STJÓRN og trúnaðarráð Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri,
hefur samþykkt ályktun vegna stöðu samningamála þar sem vísað
er á bug öllum hugmyndum um svokallaða „núllsamninga". Þá for-
dæmir stjórn og trúnaðarráð endurteknar árásir ríkisins á velferðar-
kerfið, eins og segir í ályktuninni.
„Stjórn og trúnaðarráð vísar á
bug öllum hugmyndum um s.k.
„núllsamninga“. Ef atvinnurekend-
ur eru ekki tilbúnir að gefa eftir
og ganga til samninga verður að
þvinga fram niðurstöðu með öllum
þeim ráðum sem verkalýðsfélögin
hafa yfir að ráða. Minnt er á að
við gerð síðustu kjarasamninga var
gert ráð fyrir að samið yrði um
aukinn kaupmátt í komandi samn-
ingum. Jafnframt er varað við að
taka svartsýnisspár um afkomu
þjóðarbúsins of alvarlega,“ segir í
ályktuninni.
Þá segir enn fremur að samning-
ar hafi verið lausir frá síðasta hausti
og þreifingar um nýja samninga
hafist síðastliðið vor, en allan þann
tíma sem liðinn er hafi atvinnurek-
endur ekki gefið færi á sáttum.
„Langlundargeðið er þrotið. Komist
ekki skriður á samninga á næstu
dögum hvetur stjórn og trúnaðarráð
Iðju Alþýðusamband Islands til að
hafa forgöngu um allsheijaraðgerð-
ir til að knýja á um gerð þeirra."