Morgunblaðið - 08.02.1992, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Eftir að
salta síld í
35 þúsund
tunnur
A FIMMTUDAGSKVÖLD var búið
að salta síld í 95.604 tunnur, þar
af liðlega 3 þúsund tunnur fyrir
Rússlandsmarkað. Eftir er að
salta upp í samninga um sölu á
tæplega 8 þúsund tunnum af flök-
um fyrir Norðurlandamarkað og
27 þúsund tunnum af hausskorinni
og slógdreginni síld fyrir Rúss-
landsmarkað. Hugsanlega verður
því saltað í 130 þúsund tunnur á
þessari vertíð, þar af rúmar 41
þúsund tunnur af flökum, en á
síðustu vertíð var saltað í 122.114
tunnur, þar af 37.418 tunnur af
flökum.
Síldin þarf að vera a.m.k. 12%
feit til að hún sé söltunarhæf fyrir
Rússlandsmarkað. Síidin er nú rétt
yfir þessum mörkum en engin síid-
veiði var aðfaranótt föstudags vegna
brælu. Mest hefur verið saltað á
Höfn á þessari vertíð en þar ér búið
að salta í 20.000 tunnur.
Síld hefur verið söltuð á 30 stöðv-
um á þessari vertíð en á síðustu ver-
tíð var saltað á 37 stöðvum. Á
fimmtudagskvöld hafði verið saltað
í 1.002 tunnur á Þórshöfn, 1.749 á
Vopnafirði, 9.878 á Seyðisfirði,
8.384 á Neskaupstað, 13.475 á Eski-
firði, 1.765 á Reyðarfirði, 10.357 á
Fáskrúðsfirði, 1.988 á Breiðdalsvík,
3.424 á Djúpavogi, 19.813 á Höfn í
Hornafirði, 6.997 í Vestmannaeyj-
um, 1.268 í Þorlákshöfn, 11.346 í
Grindavík, 235 í Sandgerði, 1.336 í
Keflavík, 588 í Vogum á Vatnsleysu-
strönd, 15 í Hafnarfirði og 1.984 á
Akranesi.
Morgunblaðið/Ulfar Ágústsson
Nógu sterkur afísingarvökvi ekki til á Isafirði
Ein af Fokker-flugvélum Flugleiða hefur verið veðurteppt á ísafirði
frá því á miðvikudag vegna ísingar og slæms veðurs. Vélin fór til
ísafjarðar síðastliðinn miðvikudag og lenti í svokallaðri ísrigningu
á leiðinni. Vélin var því kiakabrynjuð þegar hún lenti og þurfti vand-
legrar afísingar með áður en hún gæti flogið aftur. Hins vegar er
ekki nógu sterkur afísingarvökvi til á Isafirði. Dimmviðri og snjó-
koma hefur verið á ísafirði undanfarna daga og ekki flugfært tii
bæjarins. í gær var önnur flugvél send með afísingarvökva vestur.
Ekki tókst hins vegar að leysa málið í gær og er frekari aðgerða
þörf áður en unnt verður að fljúga vélinni suður að nýju.
ASÍ um Bifreiðaskoðun;
Skráninga-
tekjurnar um
180 milljónir
GYLFI Arnbjörnsson hagfræðing-
ur hjá Alþýðusambandi íslands
segir að offjárfesting í skoðunar-
stöðvun um allt land hafi átt sér
stað hjá Bifreiðaskoðun íslands.
Aðhald að fjárfestingum fyrirtæk-
isins hafi verið mjög lítið á sama tíma
og það geti innheimt um 180 millj.
kr. tekjur fyrir nýskráningar og
umskráningar, sem lítil kostnaður sé
samfara.
Sjá einnig bls. 7.
Kúveitar ræða við SÍS um
kaup á hlut í Olíufélaginu
Rætt um að þeir kaupi 31% í félaginu á sexföldu
nafnverði, eða á rúmar 1.100 milljónir króna
SAMBAND íslenskra samvinnufélaga hefur undanfarna daga átt í við-
ræðum við fulltrúa frá Kúveit um sölu SÍS til fjárfesta í Kúveit á 31%
eignarhlut Sambandsins í Olíufélaginu hf. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var það Scandinavian Bank í London, viðskiptabanki
Sambandsins, sem hafði milligöngu um komu Kúveitanna hingað til
lands. Rætt er um að Kúveitarnir kaupi 31% hlut Sambandsins í Olíufé-
laginu á sexföldu nafnverði, eða fyrir upphæð sem svarar rúmum 1.100
milljó'num króna. Landsbanki Islands hefur öll hlutabréf Sambandsins
að handveði í Landsbankanum á móti 1.100 milljóna króna skuld þess
við bankann. Hlutabréf Olíufélagsins eru nú skráð lyá verðbréfafyrir-
tækjum á gengi frá 4,5 földu nafnverði upp í 5,7 falt nafnverð.
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um að Kúveitarnir hafi gengið á fund
bankastjóra Seðlabankans í fyrra-
dag, til þess að leita upplýsinga um
stöðu Olíufélagsins hf. og mats
Seðlabankans á félaginu. Munu Kúv-
eitarnir hafa fengið jákvæðar upplýs-
ingar um félagið, stöðu þess og rekst-
ur. Þeir munu jafnframt hafa lýst
þeim sjónarmiðum sínum að hér
væru þeir fyrst og fremst í leit að
góðum fjárfestingamöguleikum, en
þeir sæktust ekki eftir því að verða
ráðandi í stjórn félagsins. Málið er,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, á byijunarstigi, og í gær-
niorgun fóru Kúveitarnir héðan af
landi brott. Sú staðreynd að Kúveit-
arnir gengu á fund fulltrúa Seðla-
banka Islands til þéss að kanna stöðu
félagsins, þykir að mati heimilda-
manna Morgunblaðsins sýna fram á
að þeim sé full alvara með komu
sinni hingað til lands.
Heildarhlutafé Olíufélagsins hf. er
600 milljónir króna. 31% eignarhluti
Sambandsins er því að nafnvirði 186
milljónir króna. Fimmfalt gengi bréf-
anna gæfi Sambandinu 930 milljónir
í sinn hlut, en sexfalt gengi 1.116
milljónir króna. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins er talið að
innra virði Olíufélagsins sé meira en
gangverð hlutabréfa segja til um og
er þá rætt um að það sé að minnsta
Hátt í 4 þúsund manns án
atvinnu í síðasta mánuði
FLEST bendir til að fjöldi atvinnulausra á landinu öllu í janúar
hafi verið yfir 3% af mannafla á vinnumarkaði, skv. upplýsingum
Óskars Hallgrímssonar forstöðumanns vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins. Þetta jafngildir því að a.m.k. 3.800 manns hafi
verið að meðaltali á atvinnuleysisskrá i mánuðinum. Heildaryfirit
yfir atvinnuástandið í mánuðinum liggur ekki endanlega fyrir.
í desember var skráður mesti
fjöldi atvinnuleysisdaga í mánuðin-
\im frá upphafi skráningar eða
2,4% af mannafla. Um seinustu
mánaðamót lá fyrir að fjöldi at-
vinnulausra í Reykjavík í janúar
hefði verið sá mesti í 20 ár.
Að sögn Margrétar Tómasdóttur
hjá Atvinnuleysistryggingasjóði er
gert ráð fyrir um 1.150 millj. kr.
framlagi til sjóðsins á fjárlögum
en fjárþörf sjóðsins er 1.600 millj.
gangi spá Þjóðhagsstofnunar um
2,5% atvinnuleysi á landinu á árinu
eftir. Ríkissjóður ábyrgist greiðslur
sjóðsins á móti tryggingagjaldi
atvinnurekenda. Ætla má að fyrir
hvert eitt prósent atvinnulausra
þurfi að greiða 650 millj. kr. bætur
á heilu ári, að sögn Braga Guð-
brandssonar, aðstoðarmanns fé-
lagsmálaráðherra. Það þýðir að ef
yfir 3% atvinnuleysi verður viðvar-
andi út árið getur ríkissjóður þurft
að leggja til sjóðsins 800-1.000
millj. kr. til viðbótar lögbundnu
framlagi fjárlaga.
Að sögn Óskars er atvinnuleysi
þó að jafnaði meira í janúar en á
öðrum árstímum.
kosti 6,5 falt nafnverð. Samkvæmt
því þykir ekki ólíklegt að Kúveitarn-
ir væru tilbúnir til þess að greiða
sexfalt nafnverð fyrir bréf Sam-
bandsins.
Morgunblaðið sneri sér til Guðjóns
B. Ólafssonar, forstjóra Sambands-
ins í gær, en hann kvaðst ekkert um
málið vilja segja. Sagði einungis að
Sambandið væri stöðugt að ræða
eignasölu, bæði við innlenda og er-
lenda aðila. Það væru gömul tíðindi
og ný.
Utanríkisráðherra:
Skýrsla um
verktöku
á Keflavík-
urflugvelli
JÓN BALDVIN Hannibalsson
utanríkisráðherra hefur óskað
eftir því við Salóme Þorkelsdóttur
forseta Alþingis að gefa Alþingi
skýrslu um verktöku fyrir varn-
arliðið á Keflavíkurflugvelli,
ástand og horfur, á fimmtudag í
næstu viku.
Á miðopnu blaðsins er rætt við
utanríkisráðherra og Þorstein Páls-
son sjávarútvegsráðherra um verk-
takamál á Keflavíkurflugvelli. Þor-
steinn hefur lýst þeirri skoðun að
afnema eigi nú þegar einokun ís-
lenskra aðalverktaka á framkvæmd-
um fyrir varnarliðið en Jón Baldvin
segir það ekki framkvæmanlegt þar
sem þegar liggi fyrir verksamningar
um framkvæmdir til ársins 1994.