Morgunblaðið - 08.02.1992, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1992
Ný sendinga af katategöllum
n
PANRHO
SENDUMI' PÓSTKRÖFU UMLAND ALLT. ÚTI Glæsibæ, sír MK Lff ni 8129í íM ■■ ff EURO-VIS/^* ■ Y RAÐ r SAMNINGAR ?2.
P
UMBOÐSLAUS AÐFOR
AÐ SJÚKRAHÚSI
Meira en þú geturímyndað þér!
eftir Sigurð E.
Haraldsson
Nærtækasta skylda hvers manns
hlýtur að vera sú að líkna þeim sem
sjúkir eru, og skiptir þá ekki máli
hvaða orsákir liggja til að menn
ganga ekki heilir til skógar. En á
sama hátt og líknarskyldan er
hveijum einstökum sjálfsögð gilda
sömu lögmál um þjóðfélagið sem
heild. Þeifri siðferðiskröfu, að lina
þjáningar allra sjúkra og lækna þá
sem eiga möguleika á heilsubót,
má ekki bregðast.
Að gefnu tilefni eru þessi aug-
ljósu sannindi rifjuð upp. Um ára-
tugaskeið hafa verið starfrækt þrjú
stór sjúkrahús hér í Reykjavík og
þess hefur ekki orðið vart að þeirra
væri ekki þörf. Án þess að rekja
þá sögu nánar kemur mjög á óvart
að heilbrigðisyfirvöld haldi nú þann-
ig á málum að kippa nánast fótun-
um undan einni þessara virtu
sjúkrastofnana, Landakotsspítalan-
um. Sú var tíð að kærleiksríkar og
fómfúsar trúsystur vöktu þar yfir
öllu starfi og byggðu raunar allt
upp frá byijun. Varla verður sagt
að andi þeirra svífi yfir þeim vötn-
um, sem nú er veitt að spítalanum
þeirra við Landakotstúnið.
Snemma nú í vetur voru kynnt
áform um að gjörbreyta starfrækslu
sjúkrahúss í Hafnarfirði, án alls
samráðs við starfslið þess og stjórn-
endur. En þegar þar var komið risu
Hafnfirðingar og nágrannar upp og
slógu skjaldborg um sjúkrahúsið
undir Hamrinum í Hafnarfirði. Sér-
staka athygli vakti vaskleg fram-
ganga ungs þingmanns í Hafnar-
fírði, sem nýkjörinn er til setu á
zz
n A QTI
tlAvl i
ALLT AÐ 70% AFSLATTUR!
SPORTGALLAR Á BÖRN FRÁ: 1498 KR
PÓLÓBOLIR FRÁ: 1135 KR
T-BOLIR FRÁ:300 KR
ÚLPUR FRÁ: 4463 KR
BÓMULLARGALLAR FRÁ: 1470 KR
ERÓBIK FATNAÐUR FRÁ: 1143 KR
CLOCK-PEYSUR FRÁ: 2900 KR
STAKAR BÓMULLARPEYSUR :RÁ: 995 KR
RAICHLE GÖNGUSKÓR FRÁ: 467Q
NIKE ÆFINGASKÓR FRÁ: 1748 KR
VÖÐLUR FRÁ: 3355 KR UPPSELT
SIÐUSTU FORVOfi
VEIÐIVESTI FRA: 1499 KR
EINNIG FULLT AF ÖÐRUM TILBQÐUM!
ADIOAS, HEAD, MIKE, ÆFINGASKÓR A ÚTSÖLU EÐA TILBOOI
fLtUJF-FATNAOUR 0G SKIÐAGALLAR A BORN
múi
SENDUM í PÓSTKRÖFU
UM LAND ALLT!
IÐ FYRIR MEIRA EN
7000 KR.
OG FÁIÐ ÆFINGAGALLA Á
KRÓNU.
KRINGLU
KRINGLUSPORT, BORGARKRINGLUNNI, SÍMI: 679955
Sigurður E. Haraldsson
„Hvar eru nú þing-menn
Reykvíkinga, láta þeir
sér örlög Landakots á
sama standa, finnst
enginn í þeirra hópi,
sem bregst til varnar?“
Alþingi. Fyrirætlanir um gjörbylt-
ingu á sjúkrastofnuninni voru
dregnar til baka.
Með þetta í huga hlýtur að vakna
þessi spurning: Hvar eru nú þing-
menn Reykvíkinga, láta þeir sér
örlög Landakots á sama standa,
fínnst enginn í þeirra hópi, sem
bregst til varnar?
Sparnaður í opinberum rekstri
er sjálfsagður og þarf að njóta
stuðnings. Niðurskurður á framlög-
um til Landakotsspítalans um nærri
40 prósent á ekkert skylt við sparn-
að eins og venjulegt fólk skilur það
orð.
Þess aðhalds og sparnaðar í opin-
berum rekstri, sem nú er um rætt,
mun gæta mjög í tveim málaflokk-
um, menntamálum og heilbrigðis-
málum. Það vekur athygli á hvern
hátt ráðherrar, sem með þessi mál
fara, bregðast við. Sá sem ber
ábyrgð á menntamálum flytur mál
sitt af yfírvegun og ljóst er hveijum
sem á hlýðir, að ráðherranum er
ljóst að ýmsir kveinka sér vegna
skertra fjárveitinga til margvíslegra
verkefna. Starfsbróðir hans í heil-
brigðisráðuneytinu nálgast verkefni
sitt á allt annan hátt. Þar er á ferð
reistur maður. Þó ætti hveijum
manni að vera ljóst að stjórnvalds-
aðgerðir, sem bitna á sjúkum og
ellihrumum eru svo viðkvæmar, að
þær geta ráðið úrslitum um líf og
velferð fjölmargra einstaklinga, já,
einmitt þeirra okkar á meðal sem
minnst mega sín.
Fyrir síðustu kosningar voru eng-
in áform um að kippa nánast fótum
undan Landakotsspítalanum kynnt.
Kjósendur hafa af þeim sökum eng-
in umboð veitt til slíkra ráðstafana
og allar stjórnvaldsaðgerðir í þá
veru eru óskiljanlegar. Frá þeim
verður að falla. Ég veit fjölmarga
i hópi þingmanna Reykvíkinga, sem
treysta má í þessu máli.
Vísast er um þá sjúkrastofnun,
sem hér hefur verið um rætt, að
hún er ekki fullkomin fremur en
önnur manna verk. Sé litið til starfs
og alúðar trúsystranna í Landakoti
í marga áratugi og þess líknar-
starfs, sem þar fer fram hvern dag,
má þó með nokkrum sanni segja
að þar séu heilög vé. það er ekki
trúverðugt að hagur þjóðarinnar
nú sé slíkur að rök hnígi að því að
forgangsverkefni eins og aðhlynn-
ing sjúkra sé gert hornreka. Aðför
heilbrigðisráðherra að Landakoti
verður ekki með nokkru móti unað.
Höfundur er kaupmaður í
Reykjavík.
♦
■ STARFSMANNARÁÐ
Sjúkrahús og heilsugæslustöðvar
Vestmannaeyja mótmælir nið-
urskurði stjórnvalda til heilbrigðis-
mála og segir auðsýnt að þetta
kosti skerðingu á heilbrigðisþjón-
ustu í Vestmannaeyjum svo bæj-
arbúar þurfi í auknum mæli að
sækja þjónustu annað. Þegar á
heildina sé litið verði sparnaður
enginn, þar sem kostnaður aukist
á öðrum sviðum. Starfsmannaráð
skorar á bæjaryfírvöld að gæta
hagsmuna bæjarbúa og beijast fyr-
ir því að þar verði áfram starfrækt
viðunandi heilbrigðisþjónusta.
(Fréttatilkynning)
ENDURMENNTUN
MÁLMIÐNAÐARMANNA
MALMSUÐA
Grunnnámskeið
Námskeið samanstendur af fræðilegum og verkleg-
um þáttum. Fræðilegi þátturinn inniheldur m.a.:
Samsetningar - raufar, suðuaðferðir, rafmagns-
fræði, efnisfræði, suðuspennur, suðustaðla, suðu-
ferla, suðugalla, gæðaeftirlit og prófanir, öryggis-
mál. í verklega þættinum er soðið með mismun-
andi aðferðum og vírum í ólíkum uppstillingum,
suðan metin og dæmt eftir stöðlum.
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað málmiðnaðar-
mönnum með einhverja reynslu og
þekkingu í málmsuðu. Námskeiðið
er skilyrðislaus undanfari sér-
greindra suðunámskeiða.
Lengd námskeiðs:40 klukkustundir, (20 bóklegir og
20 verklegir tímar).
Þátttökugjald: 15.000,- kr. (námsgögn og efni inni-
falin).
Tími: Haldin verða tvö námskeið á tíma-
bilinu 11. febr.-24./25. febr.
UPPLÝSIIMGAR OG SKRÁNING:
FRÆÐSLURÁÐ MÁLMIÐNAÐARINS,
SÍMI 91-624716.