Morgunblaðið - 08.02.1992, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.02.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1992 19 Kerrur í stórmörkuðum eru hjálpar- tæki sem er ætlað til að létta undir með þeim sem versla og minnka álag á herðavöðva. Sömuleiðis blað- burðarkerrur fyrir blaðburðarfólk og bréfbera. Rétt líkamsbeiting og vinnutækni Mikilvægt er að beita sér rétt við hin ýmsu störf og athafnir. Þegar setið er þarf þrýstingur að koma á setbeinin og stuðningur að vera við bakið, en ekki skal hanga í stólnum eins og oft sést. Við stöður þarf að rétta úr sér þannig að liðir líkamans séu hver ofan á öðrum en það minnkar álag á liðina. Margir hafa vanið sig á hvers kyns óæskilegar líkamsstöð- ur, standa með hnén yfirrétt eða skjóta mjöðmunum fram. Það eykur álag á liðbönd, liðpoka og liðbijósk. Þegar hlutum er lyft þarf að huga að því að halda bakinu beinu og nota sterku fótleggjavöðvana til að lyfta. Ef maður flýtir sér um of við störf er hætta á að maður dragi axlirnar að eyrum en það eykur álag á herðavöðva. Rétt handbrögð og gott skipulag við vinnu skiptir sköpum bæði fyrir þann sem vinnur verkið og þann sem hefur af því hag. Slæm vinnutækni veldur með tímanum aukinni þreytu líkamans og hvers konar álagssjúkdómum. 011 viljum við hafa góða heilsu en til þess þarf maður að læra rétt vinnubrögð strax á yngri árum og nýta þau út lífið. Niðurlag Fjölmargar rannsóknir benda til þess að beint samhengi sé milli lé- legrar vinnutækni og álagskvilla. Allir vita það að bílvél sem er illa stillt eyðir meira eldsneyti en rétt stillt vél. Það segir sig sjálft að ef líkaminn vinnur vitlaust og notar 30-40% meiri orku í framkvæmd verkefna vegna rangrar tækni er meiri hætta á vöðvabólgum og öðr- um sambærilegum kvillum. Það er líkamanum eðlislægt að vinna á eins auðveldan og hag- kvæman hátt og hægt er. Nútíma lifnaðarhættir og störf einkennast af hraða og einhæfni sem veldur því að oft höfum við ekki tíma til að hugsa áður en framkvæmt er. Við verðum þrælar vanans sem gerir það að verkum að við hugum ekki nægilega vel að starfsaðstöðu, notum ekki hjálpartæki og gleym- um því að líkaminn er einnota hlut- ur. Unnt er að koma í veg fyrir slæma vinnutækni og þannig álagskvilla með því að vanda vel til kennslu í réttum vinnubrögðum og fræðslu um að vinna hlutina á sem auðveldastan hátt. Á mörgum vinnustöðum erlendis eru til vinnu- lýsingar á þeim störfum sem fólk vinnur. Þar er gerð grein fyrir því hvers er krafist af þeim sem verkið vinnur, hvernig á að gera það og hvaða hættur leynast í því sem gert er. Ennfremur er fólk hvatt til að nota hjálpartæki og vinna fyrir- byggjandi að ýmsum þáttum t.d. með líkamsrækt og hléliðkun. Betra er að nota tíma í það að kenna starfsmanni rétt handbrögð en að eiga það á hættu að hann þrói með sér álagskvilla eða valdi slysi sem síðan leiðir til íjarveru frá vinnu í lengri eða skemmri tíma. Einnig er mikilvægt að fylgjast með því hvernig hlutirnir vinnast því oft gleymir fólk sér og fer að vinna hlutina rangt eftir því sem tímar líða. Höfundur er sjúkraþjálfari. Hjúkrunarfélag íslands: Ástand óvissu og öryggisleysis „AÐALFUNDUR Reykjavíkurdeildar Hjúkrunarfélags íslands mót- mælir harðlega aðför heilbrigðisráðherra að heilbrigðiskerfinu. Með aðgerðum sinum héfur ráðherra tekist að skapa óvissu og öryggis- leysi bæði hjá þiggjendum og veitendum þjónustunnar. Sem dæmi iná nefna einstrengisleg vinnubrögð í málefnum Landakotsspítala," segir í frétt frá félaginu. Þá segir einnig: „Samdráttur í ijárveitingum til heilbrigðismála mun leiða af sér aukið vinnuálag á starfsmenn heilbrigðiskerfisins sem var ærið fyrir og gera þeim erfið- ara um vik að viðhafa fagleg vinnu- brögð. Hjúkrunarfræðingar eru þó sér- staklega ósáttir við hversu lítill fyr- irvari gefst til að endurmeta og skipuleggja breytingar á heilbrigð- isþjónustunni. Ógerningur er að koma auga á uppbyggileg markmið með ákvörð- un ráðherra um niðurskurð og til- færslu verkefna milli sjúkrahús- anna í Reykjavík heldur bera þær vitni um einstefnu og gerræðisleg vinnubrögð. Fundarmenn ætlast til þes að stjórnvöld taki fulla pólitíska ábyrgð á því hvar eigi að draga úr þjónustunni eða fella hana niður.“ UTyHLU (5*5®% 0PIÐ LAUBAHDABA KL■ 10-16 TEPPI - DÚKAR - FLÍSAR - PARKET - MOTTUR 30—70% Flísar á veggi og góli nú lækkun Höganes - hvítar 15x15 cm Höganes - gráar 15x15 cm Flaba - marmor 20x25 cm Eollo - gráar 20x20 cm Carrara - Ijósar 30x30 cm 20—30% Armstrong-golfdukur 2ja, 3ja og 4ra m breiður Þarf ekki að lima! Boutique - 2mm þykkur Spectrum - 3mm þykkur Balaflor ■ 2mm þykkur 15—40% Teppiírúllum 1.269 1.576 916 5 22% 23% Sahara- 3 lltir Varia - blátt Álafoss - 4 litir 1.433 4.300 2 20% 35% 19% Boeihparket - norskt gæðaparket 15% staðgmðsluatsláttur Filtteppi í400 cm. Verö áður kr. 406.-I\lú kr. 345.- 15% verðlækkun Ymsar gerðir - margar stærðir 15—3m verðlækkun Dreglar og úyramottur-15% afSláttUP Allt að 70% afsláttur Eurokredit 11 alborganir SIÐASTI DAGUfí - OPIÐ TIL KL. 16 TEPPABUÐIN Gólfefnamarkaður, Suðurlandsbraut 26, sími 91-681350 NISSAN ODYR, LIPUR, RUMGOÐUR OG SPARNEYTINN SUNNY, SJÁLFSKIPTUR EÐA 5 GÍRA SUNNY

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.