Morgunblaðið - 08.02.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1992
21
Hæstiréttur:
Namibíumaðurinn fær
skilorðsbundið fangelsi
Dómsmálaráðuneyti ákveður hvort honum verður vísað úr landi
HÆSTIRETTUR hefur staðfest
dóm sakadóms Reykjavíkur um
6 mánaða fangelsi yfir manni
með namibískt vegabréf, sem
ákærður hafði verið fyrir fjár-
svik og auðgunarbrot í Reykja-
vík í september og október á
siðasta ári. Hann var einnig
dæmdur til að greiða Hótel
Holti, Kristu sf. og Kreditkort-
um hf. rúmlega 280 þúsund
krónur í skaðabætur. Manninum
veðrur væntanlega vísað úr
landi af dómsmálaráðuneytinu.
í sakadómi hafði helmingur 6
mánaða refsingar mannsins verið
skilorðsbundinn en í Hæstarétti
var öll refsingin skilorðsbundin, og
vísar dómurinn í því sambandi
meðal annars til þess að maðurinn
hefur verið í farbanni hér á landi
síðan hann var leystur í gæsluvarð-
haldi þann 18. október síðastliðinn.
Á fimmtudag voru gögn um mál
mannsins send dómsmálaráðu-
neytinu, sem ákveða mun hvort
Heimspekifyrirlestrar eftirsóttir:
Færðir yfir í Háskólabíó
vegna góðrar aðsóknar
AF LÍKAMA og sál, er heiti fimm erinda um tengsl sálar og lík-
ama út frá heimspeki. Tveir fyrirlestranna hafa verið fluttir síðast-
liðna laugardaga í stofu 101 í Odda en vegna mikillar aðsóknar
hefur verið ákveðið að flytja þá yfir í Háskólabíó og mun Dr.
Sigurður J. Grétarsson sálfræðingur, flytja þriðja fyrirlesturinn
„Hvernig veistu? Um heimsmynd sálfræðinnar", í Háskólabíó kl.
14 í sal 3 í dag, laugardaginn 8. febrúar.
Ólafur Páll Jónsson og Einar
Logi Vigfússon nemar í heimspeki
við Háskóla íslands, eru upphafs-
menn fyrirlestranna og sagði Ein-
ar að ætlunin hafi verið að fá
menn úr ýmsum greinum til að
fjalla um tiltekið heimspekilegt
vandamál. „Það komu um 220
manns á fyrstu tvo fyrirlestranna,
hvom um sig,“ sagði hann. „Oddi
tekur helmingi færri í sæti þannig
að við verðum að flytja þá yfir í
Háskólabíó. Þessi mikla aðsók
kom okkur verulega á óvart og
ekki síst að meirihluti áheyrenda
er utan úr bæ. Við áttum von á
að ungt fólk úr Háskólanum yrði
í meirihluta en raunin hefur orðið
önnur. Áheyrendur hafa flestir
verið á miðjum aldri og eldri og
sérstaklega er ánægjulegt að
margar konur hafa komið en heim-
speki sem grein er hálfgert karla-
veldi. Af aðsókninni má ráða að
heimspekilegar umræður eru mun
meiri hér á landi en menn hafa
talið.“
Laugardaginn 15. febrúar flyt-
ur Oddur Bjamason geðlæknir
fyrirlestur um „Geðlæknisfræði í
ljósi heimspeki" og verður hann
sem fyrr segir í sal 3 í Háskóla-
bíó. Laugardaginn 22. febrúar
flytur Þorsteinn Gylfason prófess-
or, fyrirlestur, sem enn hefur ekki
hlotið nafn. Ákveðið hefur verið
að gefa alla fyrirlestranna út á
bók í samvinnu við Myndlistaskól-
ann og er stefnt að útkomu henn-
ar í mars.
Píanótónleik
ar í Ytri-Njarð-
víkurkirkju
LÁRA Rafnsdóttir mun nk.
sunnudag, 9. febrúar, kl. 17.00
halda píanótónleika í Ytri-Njarð-
víkurkirkju. Á efnisskránni eru
verk eftir Soler, Mompou, Grieg,
Prokofiev og Chopin. Lára mun
siðan flytja sömu verk í Safnað-
arheimili Selfosskirkju laugar-
daginn 15. febrúar kl. 17.00.
Lára hóf píanónám á ísafirði.
Að loknu einleikaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík stundaði
hún framhaldsnám við Guildhall
School of Music and Drama í Lon-
don og lauk þaðan einleikara- og
píanókennaraprófi. Hún starfar nú
honum verður vísað úr landi en
maðurinn á flugmiða, sem gildir
til Namíbíu.
Maður þessi kom hingað til lands
þann 19. september og átti bókað
far héðan til Amsterdam þann 18.
október. Hann bjó á Hótel Holti
fyrst um sinn var vísað þaðan þeg-
ar hann gat ekki greitt 241 þúsund
króna reikning. Við svo búið flutti
maðurinn sig yfir á Hótel ísland
þar hann bjó uns rannsóknarlög-
reglan handtók hann. Þá var hótel-
reikningurinn á Hótel íslandi orð-
inn um 41 þúsund krónur. Einnig
bárust kærur á maninn frá heild-
sölunni Kristu þar sem hann hafði
fengið afhentan snyrtistól og ýms-
ar snyrtivörur fyrir um 426 þúsund
krónur. Forsvarsmenn fyrirtækis-
ins náðu til baka meirihluta varn-
ingsins. Einnig var maðurinn
kærður fyrir að nota greiðslukort
sem útgefið var í S-Afríku og kom-
ið var á vákortalista.
í niðurstöðum sakadóms
Reykjavíkur, sem Hæstiréttur hef-
ur staðfest, er maðurinn sakfelldur
fyrir önnur ákæruatriði en svik
gagnvart Hótel íslandi þar sem
hann hafði ekki verið krafinn um
greiðslu þegar hann var handtek-
inn.
Dómsmálaráðuneytinu voru á
fimmtudag send frá útlendingaeft-
irliti skjöl um mál mannsins og
mun ráðuneytið taka ákvörðun um
hvort honum verði vísað úr landi,
en slíkt hefur nær undantekninga-
laust verið gert við útlendinga sem
gerst hafa sekir um brot gegn
hegningarlögum hér á landi. Frá
18. október hefur maðurinn verið
í farbanni og hefur kostnaður við
fæði hans og uppihald verið greidd-
ur úr ríkissjóði.
♦ ♦ ♦
Lára Rafnsdóttir
við Tónlistarskólann í Reykjavík og
Tónlistarskólann í Garðabæ.
Fundur um
skólahald í
Kópavogi
NÝSTOFNUÐ Samtök foreldra-
félaga við grunnskóla Kópavogs
hafa ákveðið að standa fyrir sam-
eiginlegum fundi allra foreldra-
félaga grunnskólanna í Kópavogi
með Ólafi G. Einarssyni mennta-
málaráðherra og Helga Jónas-
syni fræðslustjóra Reykjanesum-
dæinis um áhrif sparnaðár í
grunnskóluin á skólaliald í Kópa-
vogi.
Fundurinn verður haldinn mánu-
daginn 10. febrúar klukkan 20,30
í Félagsheimili Kópavogs á 2. hæð.
Þá segir og í fréttatilkynningu frá
samtökunum að fyrirhugað sé að
halda opna námsstefnu um starf
grunnskólans og samstarf heimila
og skóla í marzmánuði.
Morgunblaðid/Eyjólfur M. Guðmundsson
Byggt og leikið í snjónum
Vogum.
Að morgni miðvikudagsins 5. febrúar voru komnir nokkrir stórir
snjóskaflar í efri hluta þorpsins, eftir hvassviðri og snjókomu. Krakk-
arnir notuðu tækifærið og gerðu snjóhús í skaflana og grófu göng.
Við byggingar í snjónum nýtur athafnaþrá og sköpunargleði barnanna
Jakki Sil m/endurskinsrönd kr. 6.950,-
Buxur H m/endurskinsrönd kr. 3.950,-
Hlífðarbuxur m/rennilós í bóðum hliðum
Léttir regngallar
vatnsheldir og „anda" út
6-12 óra kr. 2.260,-
14-16-S-AA-L-XL kr. 2.550,-
Litir: Blótt, rautt, lilla
SiSBfflK
útiuf
SENDUMI
PÓSTKRÖfU
UMLAND
ALLT.
H
Glæsibæ, sími 812922.
EUR0-VISA
RAÐ
SAMNINGAR