Morgunblaðið - 08.02.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1992
> o
35
Minning:
Sveinlaug H. Sveins-
dóttir, Sandgerði
Fædd 8. mars 1918
Dáin 29. janúar 1992
í dag verður jarðsett frá Hvals-
neskirkju amma mín, Sveinlaug
Halldóra Sveinsdóttir, og langar
mig í örfáum orðum að minnast
hennar. Ég kynntist ömmu mjög
lítið fyrstu árin, við komum til
ömmu og afa í Sandgerði tvisvar
til þrisvar á ári og stoppuðum þá
einungis nokkra daga í senn. Það
var ekki fyrr en ég dvaldi hjá þeim
einn vetur, fyrsta veturinn sem
ég stundaði nám við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja í Keflavík, að ég
kynntist þeim að nokkru marki.
Það var gott að vera hjá þeim
og að mörgu leyti mjög fróðlegt.
Amma fræddi mig um margt sem
ég hafði aldrei heyrt um áður og
var flest af því að einhverju leyti
tengt ætt okkar. Mikið hafði ég
t.d. gaman af því að fletta í gegn-
um Víkingslækjarættina með
henni og láta hana segja mér frá
hvernig hinir og þessir voru skyld-
ir okkur. Sá skyldleiki sem hún
hafði fundið út var ekki alltaf stutt
aftur í tímann, því hún var búin
að grúska svo mikið í þessu að
hún gat rakið hvern lið lengst aft-
ur. Þennan tíma sem ég dvaldi hjá
þeim fann ég líka að amma var
húsmóðir á sínu heimili og var
ekki par hrifin þegar maður lét
sér svo mikið sem detta til hugar
að taka af borðinu, hvað þá að
vaska upp. Það var alveg sama
hversu heilsulaus hún var, hún
vildi sko fá að stjórna á sínu heim-
ili og gera það sem þar þurfti að
gera. Þetta er einungis eitt af
mörgum atriðum sem sýndu fram
á hinn mikla persónuleika og
sterka sem amma hafði til að bera.
Við eigum öll eftir að sakna
þeirrar sómakonu sem amma var,
en mestur er þó missir afa. Elsku
afi, við skulum biðja þann sem
öllu ræður að styrkja okkur í sorg-
inni og við skulum einnig reyna
að vera sterk, því að ég veit að
það hefði amma viljað.
Ömmu vil ég þakka samveru-
stundirnar og allt sem hún gerði
fyrir mig. Guð blessi minningu
ömmu minnar í Sandgerði.
Aðalheiður Fanney Björnsdóttir.
unga aldri. Þórunn átti tvo syni
frá fyrra hjónabandi, Ólaf og Ottó
Guðmundssyni. Þau systkini eru
nú öll látin.
Árið 1924 lést faðir Sveinlaugar
af völdum sprengingar sem varð
í báti hans við bryggju á Seyðis-
firði. Árið eftir fluttust þær mæðg-
ur til Vestmannaeyja. Bernsku og
æskuár Sveinlaugar liðu við leik
og algeng störf í Vestmannaeyj-
um, auk þess sem hún var í vist
um nokkurra ára skeið í Reykja-
vík.
Tvítug að aldri flytur Sveinlaug
til Sandgerðis og starfar það sem
ráðskona í verbúð. í Sandgerði
kynnist hún eftirlifandi manni sín-
um Pétri Hafsteini Björnssyni, frá
Tjarnarkoti í Sandgerði. Þar hófu
þau sinn búskap árið 1940 og
bjuggu í .Sandgerði allar götur síð-
an.
Pétur stundaði sjómennsku þar
til fyrir þremur árum. Þeim hjón-
um varð sex barna auðið. Eitt
þeirra dó við fæðingu. Þau sem
upp komust eru: Guðbjörg Birna,
fædd 1940, maki Björn Kristjáns-
son, Sveindís Þórunn, fædd 1942,
maki Ágúst Einarsson, Sigurður
Rósant, fæddur 194\, maki Guðný
Edda Magnúsdóttir, Jóhanna
Sigurrós, fædd 1948, maki Níels
Karlsson, og Anna Marý, fædd
1955, maki Guðmundur Jens
Knútsson. Afkomendur þeirra
hjóna eru nú 35 talsins. Vegna
starfa Péturs við sjómennsku og
fjarvista af þeim sökum frá heim-
ili kom það í hlut Sveinlaugar að
annast um rekstur heimilis og
umönnun. Heimili Sveinlaugar,
hvar sem það stóð, hvort heldur
við þrengsli frumbýlingsáranna,
eða meira húsrými seinni búskap-
arára, bar dugnaði hennar og
myndarskap glöggt vitni.
Þess nutum við í ríkum mæli,
börnin, tengdabörnin og barna-
börnin. Eftir því sem börnin uxu
úr grasi, fór Sveinlaug að vinna
utan heimilis, var matráðskona á
ýmsum stöðum, m.a. í sumarbúð-
um þjóðkirkjunnar í Reykjakoti við
Hveragerði í 10 sumur, einnig
vann hún við fiskvinnslu. Svein-
laug starfaði einnig mikið að
félagsmálum, einkum í slysa-
varnadeildinni Sigurvon, en mest
þó í kvenfélaginu Hvöt, en hún
var einn af stofnfélögum félagsins
árið 1945. í Hvöt beitti hún sér
mjög fyrir stofnun minningarsjóðs
um Finnbjörgu Sigurðardóttur frá
Felli í Sandgerði sem komið var á
fót 1953. Annaðist Sveinlaug fjár-
reiður sjóðsins til dauðadags. Sjóð-
urinn hefur gefið sjúkrahúsinu í
Keflavík margar góðar gjafir.
Sveinlaugu var ýmiss sómi sýnd-
ur, m.a. var hún sæmd heiðursorðu
sjómannadagsins árið 1975.
Það kom í hlut Sveinlaugar að
afhjúpa minnisvarðann „Álög“
sem reistur var við þjóðveginn þar
sem ekið er inn í Sandgerði. Minn-
isvarðinn var reistur í tilefni af
100 ára afmæli Miðneshrepps.
Það má með sanni segja að
Sveinlaug hafi verið mikil sæmd-
arkona. Hún lét sér annt um af-
komendur sína og heimili, en gaf
einnig af kröftum sínum til framf-
aramála bæjarfélagsins. Hún var
eins og margir af hennar kynslóð
gefandi fremur en þiggjandi. Þeg-
ar komið er að leiðarlokum þökk-
um við fyrir að hafa fengið að
njóta samvista við hana. Þökkum
handleiðsluna, umhyggjuna, allt
sem hún gaf okkur. Við biðjum
algóðan Guð að blessa minningu
hennar, kærrar móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu.
Börn og tengdabörn.
Hafsteinn S. Hall-
dórsson - Kveðjuorð
Kallið er komið. Hinn 29. janúar
sl. lést ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma Sveinlaug
Halldóra Sveinsdóttir. Útför henn-
ar fer fram í dag frá Hvalsnes-
kirkju. Hún lést eftir stutta en
harða baráttu við illvígan sjúkdóm.
Öllum er okkur ljóst að hin síðasta
ferð verður ekki umflúin. En jafn-
ljóst er að hún, sem skipaði svo
stóran sess í hjörtum okkar, skilur
eftir ljúfar minningar sem við
varðveitum sem helgidóm.
Sveinlaug Halldóra Sveinsdótt-
ir, Hjallagötu 4, Sandgerði, fædd-
ist á Seyðisfirði 8. mars 1918.
Foreldrar hennar voru hjónin
Þórunn Sigurðardóttir og Sveinn
Ottó Sigurðsson. Þau hjón áttu
einnig aðra dóttur, Ágústu Karól-
ín, og soninn Sigurð, sem lést á
Fæddur 5. febrúar 1970
Dáinn 11. janúar 1992
Nú hefur Hafsteinn Smári Hall-
dórsson, Haffi vinur minn, kvatt
þetta líf. Eina sem við eigum er
minningin um hann. Haffi var al-
veg meiriháttar hress og skemmti-
legur og vildi hann öllum vel. Það
er ekki auðvelt að sitja uppi með
fullt af spurningum en engin svör.
Hann er farinn en ég skil ekki og
get ekki sætt mig við að hann
komi ekki aftur.
Með þessum fáu fátæklegum
orðum vil ég kveðja vin minn. Ég
vil votta fjölskyldu hans og vinum,
mína dýpstu samúð. Guð geymi
hann.
Elín Hanna Elíasdóttir.
EMDURMENNTUN
MÁLMIÐNAÐARMANNA
NÁMSKEIÐ UM
BILANALEIT í AFLVÉLUM
Markmið námskeiðsins er að koma til móts við
þarfir starfsmanna málmiðnaðarins um aukna
hæfni við greiningu og viðgerðir algengra bilana
í aflvélum. Námskeiðið er að mestum hluta verk-
legt þar sem þátttakendum er ætlað að finna og
gera við 12-14 mismunandi gangtruflanir og bilan-
ir í dísilvélum.
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað málmiðnaðar-
mönnum, sem hafa afskipti af við-
gerðum og viðhaldi dísilvéla. Einnig
þeim málmiðnaðarmönnum, sem
áhuga hafa á að tileinka sér vinnu-
brögð við bilanaleit dísilvéla.
Lengd námskeiðs:35 kennslustundir.
Þátttökugjald: 7.000,- kr. (námsgögn innifalin).
Staður og tími: Námskeiðið verður haldið í Vélskóla
íslands, Reykjavík, á tímabilinu
12.-22. febrúar.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING:
FRÆÐSLURÁÐ MÁLMIÐNAÐARINS,
SÍMI 91-624716.
Kynning á
IBM RISC System/6000
nýjungum
IBM tilkynnti þann 21. janúar sl. um fjölmargar
nýjungar varöandi RISC System/6000 (UNIX).
IBM á íslandi mun veröa meö tvær kynningar á
þessum nýjungum á Holiday Inn dagana 12. og
13. feb. n.k.
Kynnt verður m.a.:
- ný mjög öflug útfærsla á RISC örgjörv-
anum (samstarf IBM og Apple)
- mjög ódýr en öflug RS/6000 vinnustöð/
netstjóri
- öflugastaRISCvinnustöðinámarkaöinum
- ný útgáfa af AIX stýrikerfinu sem erfyrsta
UNIX kerfið skv. staöli "Open Software
Foundation”
- RS/6000 sem netstjóri með Novell 3.11
- nýir háhraðafjarvinnslutengimöguleikar
- þróunarhugbúnaöur (CASE)
Nýjungarnar kynnir John Barnes, sem er einn af
yfirmönnum RS/6000 deildar IBM í Bretlandi, og
starfsmenn IBM á íslandi.
Dagskráin hefst báöa dagana kl.13:30. Hér er
kjöriö tækifæri til aö kynnast öllu því nýjasta í dag
á sviöi RISC tækninnar.
Þátttaka er öllum opin og tilkynnist til IBM á
íslandi, Skaftahlíð 24, í síma 697700.
Á BARNA- OG FULLORÐINSFATNAÐI
HOLLENSKA VERSLUNARFÉLAGIÐ
FAXAFENI 9-2. HÆÐT.V. OPIÐ FRÁ KL. 10-1 8 OG LAUGARDAGA FRÁ KL.10-16