Morgunblaðið - 08.02.1992, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1992
47
FRJALSIÞROTTIR
Krabbe í bann!
- meðan beðið er endaniegrar niðurstöðu lyfjaprófs
ÞÝSKA hlaupadrottningin
Katrin Krabbe, heimsmeistari
í 100 og 200 m hlaupum í
Tókíó f fyrra, og tvær aðrar
frjálsíþróttakonur, hafa verið
sett í keppnisbann af þýska
frjálsiþróttasambandinu,
meðan beðið er endanlegrar
niðurstöðu úr iyfjaprófi sem
hún gekkst nýlega undir.
Krabbe fór í lyfjapróf í Suður-
Afríku á dögunum, en þar
var hún í æfingabúðum. Einnig
hinar tvær, sem settar hafa verið
í bann af sömu orsökum, Grit
Breuer og Silke Möller, báðar
miklar afrekskonur, þó ekki séu
þær jafnfrægar Krabbe.
Fram kom í dagblaðinu Bild í
gær að ekki hefðu fundist nein
ólögleg lyf í þvagsýni úr Krabbe,
en sérstaklega var fjallað um hana
í þessu sambandi. Forráðamenn
þýska sambandsins töldu sig þó
hafa fundið eitthvað grunsamlega
líkt. Framkvæmdastjóri sam-
bandsins, Manfred Steinbach,
sagði að ekki væri verið að dæma
hlaupadrottninguna fyrir fram,
„en grunsemdirnar eru svo miklar
að málið verður að kanna til hlýt-
ar. Þar til það hefur verið gert,
teljum við fyrir bestu að Katrin
Krabbe sé sett í keppnisbann.“
Krabbe neitar að iiafa tekið
ólögleg lyf: „Ekkert getur hafa
fundist. Eg hef ekkert tekið,“ var
haft eftir henni í tíild.
Hin hávaxna, ijóshærða
Krabbe, sem kölluð var drottning
heimsmeistaramótsins í Japan í
fyrra, var síðla árs kjörin fijáls-
íþróttakona ársins af aiþjóða
fijálsíþróttasambandinu — vegna
frábærrar frammistöðu á heims-
meistaramótinu.
Krabbe liljóp fyrir Austur-
Þýskaland er hún vann til þrennra
gullverðlauna á Evrópumótinu
1990. Var svo auðvitað í liði
l}ýskalands í Japan, þar sem hún
gerði drauma Merlene Ottey frá
Jamaíka um gull i einstaklings-
grein á HM að engu. Krabbe hljóp
á 10,99 _sek. en Ottey — sem
missti af Ólympíuleikunum í Seoul
vegna meiðsla og iiafði verið
ósigruð í 100 m hlaupi síðan 1987
— varð þriðja á 11,06 sek.
Katrin Krabbe
Frá
Bob
Hennessy
ÍEnglandi
íÞfém
FOLK
H ERIC Cantonn, franski lands-
liðsmiðheijinn, verður líklega með
Leeds í fyrsta skipti í dag, a.m.k.
varamaður. Liðið mætir Oldham.
■ MEL Sterland,
hægri bakvörður
Leeds, er meiddur
og verður tæplega
með í dag.
H MARK Hughes verður væntan-
lega með Manchester United í dag
gegn Sheffield Wednesday. Hann
var settur út úr liðinu í bikarleikn-
um gegn Southampton, en United
var þá slegið út úr keppninni.
M FERGUSON, stjóri United,
segir Hughes einn besta leikmann
í sögu félagsins, en hann hafí ekki
skorað nógu mikið undanfarið.
H JAN Mölby meiddist á hné í
bikarleiknum gegn Bristol Rovers
í vikunni og verður líklega ekki með
Liverpool gegn Coventry í dag.
H STEVE Nicol og Michael
Thomas, misstu báðir af bikar-
leiknum, og verða hvorugur með í
dag, vegna meiðsla.
I GORDON Durie, skoski fram-
heijinn sterki, sem Tottenham
keypti frá Chelsea í haust á 2,2
milljónir punda, er sagður vilja
komast heim til Skotlands og hafa
beðið um að verða seldur. Hann
hefur ieikið mjög vel með Totten-
ham í vetur.
I KEVIN Keegan stjórnar liði
Newcastle í fyrsta skipti í dag,
eftir að hann tók við af Osvaldo
Ardiles sem framkvæmdastjóri í
vikunni. Búist er við troðfullum
áhorfendapöllum á St. James’ Park
í dag — ríflega 30.000 manns.
I NEWCASTLE er í mikilli fall-
hættu — næst neðst í 2. deild, en
strax frá því tilkynnt var að Keeg-
an tæki við hafa símalínur í miða-
sölu félagsins verið nánast róðgló-
andi. Áliangendur liðsins 'aö panta
miða á alla leiki út tímabilið!
H KEEGAN hefur ráðið sér að-
stoðarmann, Terry McDermott,
fyrrum félaga sinn hjá Liverpool
og Newcastle.
H KENNY Dalglish hefur keypt
pólska landsliðsmarkvörðinn Alex-
ander Klak frá Pegrotour Debica
til Blackburn Rovers fyrir um 3,3
millj. ÍSK. Debica verðui' með
pólska landsliðinu á Ólympíuleikun-
um i sumar og fer þaðan til Eng-
lands.
■ BOB Paisley sagði sig í gær
úr stjórn Liverpool, vegna heilsu-
brests. Hann hefur verið stjórnar-
maður í nokkur ár, síðan hann
hætti sem framkvæmdastjóri liðs-
ins. Paisley hefur verið í 50 ár á
Anfield, fyrst sem leikmaður.
BADMINTON / OPNA SVISSNESKA
Broddi og Ámi töpuðu
í æsispennandi leik
BRODDI Kristjánsson og Árni
Þór Hallgrímsson komust í 8-
fiða úrsiit í tvíliðaleik á opna
svissneska meistaramótinu í
badminton, en voru slegnir út
í æsispennandi leik í gær-
kvöldi. Þeir eru einnig báðir úr
ieik í einliðaleik.
Broddi og Ámi sigruðu Þjóðverj-
ana Kai Mitteldorf og Guido
Schánzler í 16-liða úrslitum fyrri
hluta dags í gær, 16:8, 15:3. í
gærkvöldi mættu þeir svo öðru
þýsku pari, Markus Keck og Helber
í 8-liða úrslitum. Sú viðureign varð
heldur betur spennandi. Þjóðvetjar
sigruðu í fyrstu hrinu 15:13, en
íslendingarnir náðu sér vel á strik
í þeirri næstu. Voru reyndar undir
8:12 en sigruðu 15:12. í þriðju hrinu
náðu Árni Þór og Broddi góðri
stöðu, komust yfir 8:4 og 11:8, en
Þjóðveijamir jöfnuðu 11:11. Þá
komust íslendingarnir f 14:11, en
hinir jöfnuðu 14:14. Hækkað var í
17 og Þjóðveijar fögnuðu sigri,
17:16.
Áhorfendur á leiknum voru um
500, en þetta var eini leikurinn í
húsinu á þessum tíma og stóð í eina
og hálfa klukkustund.
I einliðaleiknum komust íslend-
ingarnir báðir í 8 manna úrslit en
duttu úr keppni í gær. Árni tapaði
fyrir Chris Bruil, Hoilandi, 7:15,
1:15 og Broddi l'yrir Hollandsmeist-
aranum Jeroen van Dijk, 12:15,
2:15.
ÍÞRÖmR
FOLK'
■ ÓL YMPÍULEIKARNIR í Al-
bertville verða settir í dag, laugar-
dag. Setningarhátíðin hefst kl.
16.00 og verður sýnt frá henni beint
í Sjónvarpinu. Keppnishópar allra
þátttökuþjóða ganga fylktu liði inn
á leikvanginn, þar á meðal verða
íslensku þátttakendurnir: Haukur
Eiríksson, Rögnvaldur Ingþórs-
son, Ásta S. Halldórsdóttir, Krist-
inn Björnsson og Ornólfur Valdi-
marsson.
M HA UKUR Eiríksson og Rögn-
vaidur Ingþórsson keppa fyrstir ís-
lendinganna — ganga 30 km á
mánudaginn.
■ JUAN Antonio Samaranch,
forseti Alþjóðu ólympíunefndarinn-
ar, segir allt eins líklegt að Vetrar-
leikarólympíuleikar framtíðarinnar
verði skipt milli tveggja þjóða.
Ólympíuleikarnir í Albertville er
íyrsti vísirinn af þessu þar sem
keppnin fer fram á 13 stöðum á
yfir 1.600 ferkílómetra svæði í
frönsku ölpunum.
M GLEN Strömberg, sænski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu«
sem hefur leikið með Atalanta á
Italíu síðustu 9 ár, hefur ákveðið
að leggja skóna á hilluna eftir
keppnistímabilið. Hann er 32 ára
og vonast eftir að verða valinn í
sænska landsliðið í úrslitum Evr-
ópukeppninnar. Hann er þó ekkert
á leiðinni heim til Svíþjóðar því
hann ætlar að setjast að á Ítalíu.
M JAN Eirikson , landsliðsmaður
Svía sem leikur með Nörrköping
hefur verið orðaður við Tottenham.
Eirikson er miðvörður og hefur
verið boðið að koma og æfa með^
Tottenham.
Leidiétling
Þórir Áskelsson, knattspyrnu-
maður í Þór á Akureyri, var nefnd-
ur Þórður í biaðinu í gær. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
HANDKNATTLEIKUR
KA-sigur í
baráttuleik
Anton
Benjamínsson
skrifar
„ÉG er mjög ánægður með sig-
urinn í kvöld. Það er erfitt að
leika gegn Gróttu, liðið er agað
og ég hef trú á að Gróttu-menn
eigi eftir að tryggja sér sæti í
úrslitakeppninni. Og nú erum
við öruggir um að verða í einu
af átta efstu sætunum," sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari og
leikmaður KA, eftir að lið hans
sigraði Seltirninga 25:20 í 1.
deildinni nyrðra.
Leikurinn í gærkvöldi einkennd-
ist af gríðarlegri baráttu leik-
manna beggja liða, hvort sem var
í vörn eða sókn. Þá
var geysileg
stemmning í KA-
húsinu, og má segja
að það sé ekki orðin
nein skemmtiferð fyrir önnur lið að
sækja KA-menn heim. Áhorfendur
styðja vel við bakið á heimaliðinu.
KA-menn tóku fljótlega af skarið
í leiknum og náðu snemma þriggja
marka forystu. Fyrst og fremst með
mjög ákveðnum varnarleik. En
gestirnir hleyptu norðanmönnum
ekki langt frá sér.
í síðari hálfleik var sama barátt-
an upp á teningnum, Gróttumenn
náðu að minnka muninn í tvö mörk,
21:19, þegar sjö mín. voru eftir, en
þá settu KA-menn í hærri gír og
Björn Björnsson varði vel á mikil-
vægum augnablikum.
Sigur KA-manna var öruggur,
en þeir þurftu að hafa talsvert fyr-
ir honum þar sem leikmenn Gróttu
Fj. leikja U j T Mörk Stig
FH 18 15 2 1 510: 416 32
VlKINGUR 17 13 2 2 444: 385 28
KA 18 9 3 6 446: 431 21
SELFOSS 16 9 1 6 430: 417 19
FRAM 17 7 4 6 397: 409 18
ÍBV 16 7 2 7 430: 413 16
STJARNAN 17 7 1 9 417: 402 15
VALUR 16 5 5 6 391: 385 15
HAUKAR 17 5 4 8 413: 424 14
GRÓTTA 18 4 4 10 364: 432 12
HK 17 3 2 12 383: 416 8
UBK 17 2 2 13 310: 405 6
léku mjög skynsamlega.
KA-Iiðið barðist í heild mjög vel
í vöminni og „Alfreðs-stimpillinn“
er loksins kominn almennilega á
varnarleik liðsins. Nú er ekkert
verið að dunda í vörninni. Alfreð
Gíslason var tekinn úr umferð strax
frá fyrstu mín. til hinnar síðustu
en við það opnaðist leið fyrir aðra
leikmenn KA, sérstaklega Stefán
og Erling Kristjánssyni sem voru
mjög ógnandi. Það var Sigurpáll
Árni í vinstra horninu einnig þrátt
fyrir að hafa verið í mjög strangri
gæslu.
Gróttumenn gáfu heldur aldrei
þumiung eftir. Jón Örn var góður
í fyrri hálfleik — gerði fimm marka
liðsins í röð undir lok hans — og
Páll var illviðráðanlegur á línunni;
er nær óstöðvandi ef hann fær
knöttinn en þess var vel gætt að
Páll fengi hann sem sjaldnast. Þá
hleypti Svafar lífi í sóknarleikmn í
seinni hálfleik.
Erlingur Kristjánsson lék vel með KA eins og svo oft áður
traustur bæði í sókn og vörn.
er mjög
KA - Grótta 25:20
KA-húsið, Akureyri:
Gangur leiksins: 2:1, 5:3, 8:5, 11:7, 14:10,
17:12, 19:15, 21:19, 24:19, 25:20.
Mörk KA: Stefán Krisljánsson 7/1, Erling-
ur Kristjánsson 6, Sigurpáll Ámi Aðal-
steinsson 6/3, Jóhann Jóhannsson 3, Þor-
valdur Þorvaldsson 2, Alfreð Gíslason 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 8/1, Björn
Björnsson 2.
Utan vallar: 12 minútur.
Mörk Gróttu: Jón Ö. Kristinss. 6, Páll
Björnss. 4, Svafar Magnúss. 4/1, Friðleifur
Friðleifss. 3, Guðmundur Albertss. 3/1.
Varin skot: Alexander Revine 9/1.
Utan vallar: 8 minútur.
Dómarar: Jón Hermannsson og Guðmund-
ur Sigurbjörnsson.
Áhorfendur: 664.
1.DEILD KARLAl
KÖRFUKNATTLEIK
UBK- ÍS .........83:66
ÍA- ÍR...........93:71
REYNIRS.- HÖTTUR.72:76
Fj. leikja u T Stig Stig
ÍR 14 13 1 1311: 983 26
UBK 14 9 5 1246: 1025 18
HÖTTUR 14 9 5 1059: 982 18
ÍA 14 9 5 1084: 1036 18
is 14 6 8 990: 1006 12
REYNIRS. 14 4 10 1120:1160 8
VIKVERJI 13 4 9 851:' 1093 s
KFR 13 1 12 646: 1022 2