Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.02.1992, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992 Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasambandsins: Atviimutekjumar skipta öllu þegar upp er staðið Morjju nbl aö ið/1 ngvar Frá slysstað í fyrrinótt. Slökkviliðið var fengið á vettvang til að aðstoða við að ná ökumanni leigubílsins úr bílnum og til að skola burt eldsneyti sem lak af bílnum. Þrír slösuðust í árekstri „ÉG ER sammála formanni Dagsbrúnar um að brýnasta verkefnið nú sé að grynnka kreppuna. Þörfin á því brennur miklu meira á hinum almenna verkamanni heldur en þras um það hvort hægt sé að viðurkenna það sem við segjum að sé ófrávíkjanlegt, að kaupmátt- urinn samkvæmt vísitölunni falli um 1 eða 2,5%,“ segir Einar Oddur Krstjánsson, formaður Vinnuveitendasambands Island. I Morgun- blaðinu í gær var haft eftir Guðmundi J. Guðmundssyni, formanni verkamannafélagsins Dagsbrúnar, að samdráttur í eftirvinnu næmi meiri fjárhæðum en hægt yrði að ná fram í viðræðum um kjarasamn- inga, og það væri forgangskrafa að vextir yrðu lækkaðir nú þegar þar sem það væri öflugasta aðgérðin til að örva atvinnulífið. „Auðvitað er það alveg rétt hjá þetta er samt hjóm eitt miðað þann ÞRÍR menn slösuðust, þar af einn allalvarlega, í hörðum árekstri á mótum Nóatúns og Laugavegar í Reykjavík um klukkan hálfeitt í fyrrinótt. Þar skullu saman leigubíll á leið suður, eða upp, Nóatún og japanskur fólksbíll á leið vestur Laugaveg. Umferðarljós eru á gatnamótunum. Fólksbíllinn hafnaði í hlið leigubílsins, sem við áreksturinn kastaðist til og hafn- aði á staur. Að sögn lögreglu var talið að ökumaður leigubílsins hefði lær- og mjaðmagrindar- brotnað. Ökumaður og farþegi úr fólksbílnum slösuðust einnig. Báðir bílamir voru óökufærir eftir óhappið. Guðmundi að í reynd séu það at- vinnutekjurnar sem skipta öllu máli fyrir launþega þegar upp er staðið. Við höfum bent á það síðasta hálfa árið, að með því að halda hér verð- bólgu svo lágri sem hugsast getur, þá mundi kaupmátturinn sem mældur er eftir taxtakaupinu eiga sáralítið eftir að lækka, eða kannski 1-3%. Það er auðvitað ekkert gott fyrir launafólk að fá þessa skerð- ingu sem ekki verður umflúin, en VEÐUR VEÐURHORFUR 1 DAG, 20. FEBRÚAR YRRLIT: Yfir Bretlandseyjum er 1.038 mb hæð en 982 mb lægð fyrír vaxandí 978 mb kyrrstæð lægð. SPA: Suðvestanátt um allt lartd, allhvöss suöv sstan- og vestanlands, en hægara í öðrum landshlutum. El sunnan- og v laust norðan- og norðaustanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU £)> sstanlands, en úrkomu- \GA: HORFUR A FOSTUDAG: Lægð mun tara aiinrat með suðaustlægri og siðar breytilegri átt. Len frost vestanlands en slydda eða rigning og fros Austurlandi framan af degi, léttir heldur til sfðd HORFUR Á LAUGARDAG: Norðaustanátt á Ves t noroausTur ynr lanoio gst af él og 2-5 stiga tlaust á Suðaustur- og agis. stfjörðum og annesjum norðanlands en suðvestan- og vestanátt um It él, einkum um landið vestanvert. Frost 2-6 stic Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: £ indið sunnanvert. Viða 190600. 0 Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað / / / * f * *** f f * f * * f f f f * / *** Rigning Slydda Snjókoma Skúrír Slydduél Skýjaö Alskýjaö 7 ^ V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig V Súld = Þoka FÆRÐ A VEGUM: Greiðfært er á Suður- og Vesturiandi og fært vestur í Reykhólasveit, en Veðurstofan spáir éljagangi um allt vestanvert landið og má því búast við hálku víða á vegum þar. Á Hellisheiði hefur gengíð á meö éijum og er komin talsverð hálka á heiðinni. Fært er frá Brjánslæk um Kleifaheiðí til Patreksfjarðar og um Hálfdán til Bíldudals. Þá er fært um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og Drangsnes, en Steingrímsfjarðarheiði er orðin ófær. Botns- og Breiðdalsheiðar eru færar, en víða eru hálku- blettir á Vestfjörðum. Greiðfært er norður um land til Siglufjarðar og Akureyrar og þaðan um Þingeyjarsýslur með ströndinni til Vopnafjarð- ar. Á Austurtandi eru vegir allflestir færir, en þó er Breiðdalsheiði ófær. Vegagerðin VEBUR \ VIÐA UM HEIM kl. 12.00 Akureyri Reykjavík í gær ‘ hltl 9 4 að ísl. tíma veður rigning Bergen 2 rigning Helsinki +6 skýjað Kaupmannahö fn 0 léttskýjað Narssarssuaq -19 skýjað Nuuk ■4-26 þokumóða Ósld 0 skýjað Stokkhólmur ý*3 snjók. á síð.klst. Þórshöfn 7 rigning Algarve 13 léttskýjað Amsteróam .. 3 rignlngog súld Barcelona vantar Berlín 1 snjókoma Chicago 2 súld Feneyjar 6 heiðskírt Frankfurt 2 hálfskýjað Glasgow 1 reykur Hamborg 5 léttskýjað London 3 alskýjað Los Angeles 11 heiðskfrt Lúxemborg 0 skýjað Madríd 4 rigning Malaga 12 rfgning Mallorca 12 skýjað Mqntreal vantar NewVork 6 súld á síð.klst. Orlando 21 þokumóða Paris mmM léttskýjað Madeira 16 skýjað Róm 9 léttskýjað Vín 0 snjóél Washington 8 þokumóða Winnipeg -21 ísnálar einstakling sem missir yfirvinnuna og missir þá kannski sem svarar 20-40% af heildartekjum sínum, hvað þá heldur þann launamann sem missir atvinnuna. Þótt hann fari á atvinnuleysisbætur tapar hann kannski 50-70% af tekjum, og auðvitað er maður sem verður fyrir því áfalli í skelfilegri neyð,“ sagði Einar Oddur. Hann sagðist taka undir það með Guðmundi J. Guðmundssyni, að fyrsta skrefið í því að reyna að grynnka kreppuna hér á landi væri að lækka raunvextina með sam- stilltu átaki allra. „Eins og Guðmundur segir rétti- lega frá þá höfum við verið að leita að því með okkar atvinnumála-' nefndum að benda á leiðir og ráð sem gætu orðið til þess að reyna að grynnka þessa kreppu, en sjálfur hef ég enga trú á að við eyðum henni. Við höfum talað fyrir því lengi að lækka þyrfti raunvextina, en því miður fyrir daufum eyrum,“ sagði hann. Hann sagðist ekki eiga við það að Iækka ætti vextina með hand- afli, heldur þyrfti að breyta forsend- um vaxtana, þannig að raunvext- irnir gætu lækkað verulega og það fljótt. Þetta væri hægt ef allir aðil- ar gerðu sér grein fyrir því hvað í húfi væri. Raunvextimir væru viss- ulega mjög mikilvægir til dæmis fyrir lífeyrissjóðina, sem væru stærsti fjárfestirinn á markaðnum. En það sem sköpum skipti, og væri ennþá mikilvægara fyrir lífeyris- sjóðina, væri þó að þeir fengju ið- gjöld, en í dag minnkuðu þau stöð- ugt frá einni vikunni til annarrar. „Ég trúi því að það sé hægt að snúast gegn þessu með góðum vilja, og þetta sé það sem við eigum að gera. Það hefur I fyrstu atrennu áhrif á verslunina, þjónustuna og og byggingarstarfsemina á höfuð- borgarsvæðinu, en það dugar ekki til að koma þessari starfsemi af stað úti á landi. Stóra vandamálið okkar og það sem veldur okkur hugsýki er hins vegar sjálf fiskislóð- in. Við stöndum frammi fyrir því að við vitum ekki hvað er að gerast í hafinu, og við höfum ástæðu til að vera óttaslegnir. Það væri heimskur maður sem væri ekki hræddur. Ef það er eins og hald þeirra manna sem svartsýnastir eru, að hér séu á ferðinni einhverj- ar þær breytingar sem við fáum ekki við ráðið, þá eru íslendingar í vondum málum og verri málum en þeir hafa sjálfir trúað, og þá duga engin vettlingatök ef við ætlum að halda hér velli. Þá erum við í skelfi- legum málum,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson. verar hans frá 1970. „Þetta var löngu ákveðið af minni hálfu. Þeg- ar ég hóf þriðja kjörtímabilið ákvað ég að gefa ekki kost á mér aftur,“ sagði Jóhann. Aðalfundurinn hefst í Súlnasal Hótels Sögu kl. 10.30 í dag. Ræðuj á fundinum flytur Anne S. Bninsd-j ale um afstöðu Bandaríkjanna tiB ♦ ♦ ♦ Formannsskipti hjá Verslunarráði í dag NÝ STJÓRN verður kjörin á aðalfundi Verslunarráðs íslands í dag. Jóhann J. Ólafsson, sem verið hefur formaður samtak- anna síðastliðin sex ár, eða í þijú kjörtímabil, gefur ekki kost á sér í formannskjörinu. Stjómarkjörið fer fram skriflega og hefur staðið yfir frá 6. febrúar. Kosnir verða átján aðalmenn í stjóm og átján varamenn. Úrslitin verða lesin upp á fundinum. í gangi hefur verið listi með ábendingum um 57 menn vegna stjómarkjörs- ins. Formaður og varaformaður eru kosnir sérstaklega á fundinum. Jóhann J. Ólafsson sagði i sam- tali við Morgunblaðið að hann ætl- aði að draga sig í hlé sem formað- ur samtakanna. Hann hefur gegnt formennsku síðastliðin sex ár, eða tveimur árum lengur en allir for- Sérleyfi til Norðfjarð- ar auglýst SÉRLEYFI á flugleiðinni milli Reykjavíkur og Norðfjarðar verð- ur væntanlega auglýst laust á næstunni, en samgönguráðuneyt- inu hefur borist bréf frá Flugleið- um þar sem fyrirtækið tilkynnir að það falli frá tilkalli til sérleyfis á flugleiðinni frá og með 17. maí. Að sögn Þórhalls Jósepssonar, deildarstjóra í samgönguráðuneyt- inu, er líklegt að fallist verði á er- indi Flugleiða. Hann sagði ráðuneyt- inu hafa borist bréf frá bæjarstjóra Neskaupstaðar þar sem ákvörðun Flugleiða er mótmælt, og ráðuneytið hvatt til að taka fljótt á þessu máli þannig að aðrir aðilar geti komið að flugrekstri til staðarins. Selfoss: Armannsfell bauð lægst í þjónustuíbúð- ir aldraðra Selfossi. TILBOÐ frá tíu aðilum bárust í; byggingu þjónustuíbúða fyrir aídraða við Grænumörk á Sel- fossi. Lægsta tilboðið var frá Ármannsfelli hf. 176.836.501. Kostnaðaráætlun verksins var 221.961.377. Aðrir sem buðu í verkið voru: Selós sf. og Samtak hf. með 183.275.585, Sigfús Kristinssorí 185.388.297, Byggingafélag JVB Alftarima 191.597.986, Steinar Arnason 206.873.296, Vigfús Sig- valdason og Örn Ú. Andrésson 209.595.456, Hreiðar Hermanns- son 210.568.880, Hagvirki hf. 212.915.250, SH verktakar hf. 214.472.273 og Sigurður K. Egg-' ertsson hf. 226.603.646. Verkið sem um ræðir er bygging 24 þjónustuíbúða og rýmis fyrir þjónustumiðstöð. Gert er ráð fyrir að verktaki skili íbúðunum fullklár- uðum í apríl 1994. Nú er unnið við jarðvinnu og sækist það verk vel. Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.